Dagur - 17.07.1934, Blaðsíða 2
220
D A G U R
80. tbf.
Frá aðalfundi $. I. S.
Úr skyrslu framkvæwulastjóra
innfhitningsdeildar.
Sambandið hefir þrjár skrif-
stofur. Aðalskrifstofan er í
Reykjavík. Hinar í Leith og
Kaupmannahöfn.
Salan á vörum þeim, er skrif-
stofurnar keyptu inn, skiptast
þannig:
Til samb. fél. 3.910 þús. kr.
— annara samv. fél. 428 þús. kr.
— annara viðskipta-
manna 355 þús. kr.
Til eigin þarfa 123 þús. kr.
Samtals 4.811 þús. kr.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá, var sala þessara vara miklu
meiri en árið 1932. Kreppan var
linari síðara árið og því ekki
þurft að spara eins innkaup og
næsta ár á undan.
Auk þeirra iðnaðarfyrirtækja
Sís, sem vinna úr innlendum hrá-
efnum, hefir það rekið kaffibæt-
isverksmiðjuna og sápuverksmiðj-
una. Freyjukaffibætirinn hefir
stöðugt unnið sér auknar vinsæld-
ir og Sjafnarsápuverksmiðjan er
að bæta við sig nýjum tækjum og
auka húsrúm sitt, til þess að geta
enn bætt framleiðslu sína á næst-
unni.
AIls framleiddu báðar þessar
verksmiðjur á síðastl. ári fyrir
145 þús. kr. og varð sæmilegur
hagnaður af. Hefir Sís selt inn-
lendan iðnaðarvarning framleidd-
an af fyrirtækjum samvinnufé-
laganna fyrir 210 þös. kr. á ár-
inu, og er þó framleiðsla Gefj-
unar, gæruverksmiðjunnar og
garnahreinsunarstöðvarinnar ekki
talin þar með. ,
Við önnur innlend iðnaðarfyr-
irtæki hefir Sís einnig haft við-
skipti, og hefir innflutningsdeild-
in alls selt innlendan iðnaðar-
varning fyrir 334 þús. kr.
Sala jarðyrkjuverkfæra hefir
verið minni árið 1933 en 1932.
Aftur hefir salan á heyvinnu-
verkfærum aukizt og verið sem
hér segir:
1932 1933
Sláttuvélar 41 87
Rakstrarvélar 21 61
Snúningsvélar 5 9
Geta má þess, að salan hefir
mikið aukizt á öðrum vélum, , sem
einkum eru notaðar til heimilis-
þarfa. Skulu hér nefndar nokkr-
ar tölur fyrir bæði árin:
1932 1933
Skilvindur 84 225
Strokkar 15 23
Saumayélar 38 157
Prjónavélar 41 86
Sala á vírneti og gaddavír hef-
ir mikið aukizt á árinu. Á gras-
fræi var salan nokkru minni árið
1933 en næsta ár á undan, en
hinsvegar seldist töluvert meira
af sáðkorni. Þá hefir kjarnfóður-
salan verið drjúgur liður í starf-
semi Sís á árinu.
Sís hefir haft með höndum
rekstur Áburðareinkasölunnar,
slðan hftw tók til Síðastl,
ár seldi hún 2364 tonn fyrir 482
þús. kr. Innkaupsverð áburðar-
ins var í hundraðstölu 82.30% og
sölukostnaður því alls 17.70%.
Hefir hér aðeins verið drepið á
örfá atriði úr skýrslu fram-
kvæmdastjórans.
Úr skýrslu framkvæmdastjóra út-
flutningsdeildar.
Sís seldi innlendar vörur árið
1933 fyrir 6,778 þús. kr. og hafði
sú sala aukizt frá því árinu áður
um nokkuð yfir 2 millj. kr. Var
þó útflutningur alls á landinu
nokkru minni árið 1933 en árið
næst á undan..
Vörubirgðir útflutningsdeildar-
innar voru um 300 þús. kr. meiri
í árslok 1933 en 1932.
(Framh.).
Málefna§amningar
milli Framsóknarflokksins og Al-
þýðuflokk'sins eru nú samþykktir
og undirritaðir af formönnum
flokkanna og riturum þeirra. Ás-
geir Ásgeirsson hefir lýst sig
samþykkan samningunum. Samn-
ingar milli flokkanna um stjórn-
armyndun og verkaskiptingu inn-
an stjórnarinnar standa yfir.
Látinn er Einar Þorgilsson kaupm.
og útgerðarmaður í Hafnarfirði hátt
á sjötugs aldri. Hann var fyrsti þing-
maður Gullbringu- og Kjósarsýslu 1920
—1923.
Þess var nýlega getið hér í
blaðinu, að hin veraldarfræga vís-
indakona, Marie Curie, væri lát-
in fyrir skömmu síðan.
Marie Curie var af pólskum
ættum, fædd í Warsaw 7. nóvem-
ber, 1867. Faðir hennar, prófes-
sor Sklodowska, var kennari við
háskóla borgarinnar í stærðfræöi
og eðlisfræði. Á uppvaxtarárum
sínum tók Marie mikinn þátt í
frelsisbaráttu Pólverja, og varð
loks að flýja land sitt, og settist
að í París. Þar kynntist hún ung-
um efnafræðing, Pierre Curie, og
giftist honum skömmu seinna.
Kom þá fljótlega í ljós hvílíkum
undursamlegum sérgáfum til
efnarannsókna Md. Curie var
gædd. Af hendingu urðu þau
hjónin vör við einhverja óþekkta
málmorku við rannsóknir sínar,
og ár eftir ár unnu þau í sam-
einingu, þrátt fyrir fátækt og fé-
leysi að rannsóknum á þessari
dularfullu orku. Erfiðleikarnir
við þetta risaverk voru svo mikl-
ir, að engin orð fá lýst. Má í því
sambandi geta þess, að með nú-
tíma tækni og þekkingu, fæst
ekki nema Örlítil ögn af radíum
úr hundrað tonnum af hinum
radíumríkasta jarðvegi, sem
þekkist. En þau Curie hjónin
voru óþreytandi, og loks kom þar
að, árið 1898, að frú Marie Curie
uppgötvaði hinn nýja málm, ra-
díum, veraldarinnar dýrasta og
dularfyllsta efni-
S j ó k I æ ð i
Mikið úrval af ágætum
Olíutreyjum, buxum, stökkum, hött-
um, kjólum, pilsum, svuntum, ermum
og dökkum siðkápum.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Jám- og Glervörudelld.
ALPA LAVAL
A. B. Separator í Stokkhólmi er eitt af þeim fyrirtækjum Svfa, er mest
og best hefir stutt að því að gera sænskan iðnað heimsfrægan.
{ meira en hálfa öld hafa ALFA LAVAL vélarnar verið viður-
kenndar sem beztu og vönduðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum, enda
hefir verksmiðjan hlotið yfir 1300 FYRSTU VERÐLAUN.
Reynslan, sem fengist hefir við að smfða meira en 4.000.000 jAlfa
Laval skilvindur, er notuð út i æsar til þess að knýja fram nýjar og
verðmætar endurbætur. Hið nýjasta á þessu sviði er:
Algerlega ryðfríar skilkarlsskálar
og algerlega sjálfvirk smurning.
Vér höfum þessar tegundir af hinum nýju endurbættu ALFA LAVAL
skilvindum á boðstólum:
Alfa Laval Nr. 20 skilur 60 Iftra á klukkustund
- 21 - 100 - - -»-
—»- — 22 - 150 — -
- 23 - 525 - - -»—
Varist að kaupa lélegar skilvindur. — Biðjið um
ALFA LAVAL.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Hvað er svo radíum? Um áhrif
hans og verkanir mætti taka
nokkur dæmi. Hann er sjálflýs-
andi eins- og rafmagn. Hann gef-
ur frá sér geysilegt hitamagn.
Reiknað hefir verið út, að eitt
tonn af radíum geti haldið eitt
þúsund tonnum vatns á suðu-
punkti í eitt ár. Hann gefur frá
sér banvæna geisla, sem smjúga
gegnum frumefni, og beri maður
radíumögn á stærð við títuprjóns-
haus í vasa sér, brennir hann á
mann sár í gegnum fötin, Hann
litar skíra demanta og rafmagn-
ar loftið í kringum sig.
En þessi risakraftur virðist
hafa ótæmandi möguleika til á-
hrifa. Hann hefir þegar verið
notaður mikið við íækningar með
undursamlegum árangri, sérstak-
lega við eyðingu krabbameina og
ýmsra eksema. En þó mun vera
óhætt að fullyrða að þessi undra
ótemja sé ekki nema að litlu leyti
beizluð ennþá, og hafi með sér
fjölmarga dulda eiginleika, sem
með aukinni þekkingu geti orðið
mannkyninu til hinnar mestu
blessunar.
við farskóla Grýiubakka-
skólahéraðs. Urasóknir
séu komnar til skóla-
nefndar fyrir 31. ágúst,
Hvammi 10 júlí 1934.
Stefán Ingjaldsson.
og ábyggilegur drengur
getur fengið starf við að
selja Dag f lausasölu. —
Gefi sig fram við undirritaðan.
Árni Jóhannsson, KEA,
Gifting. Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú Krist-
björg Dúadóttir, lögregluþjóns, og
Steindór Steindórsson menntaskóla-
kennari.
Silfurbrúðlcaup eiga 18. þ. m. frú
Þórhalla Jónsdóttir og Konráð Vil-
hjálmsson, kennari. Sama dag eiga og
Austmarshjónin silfurbrúðkaup. ,
Ritstjóri Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.