Dagur - 24.07.1934, Page 1
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞOK.
Norðurgötuö. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við árar
inót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
••••••
XVII. ár
Akureyri 24. júlí 1934.
83. tbl.
Stjðrnarmyndunin.
Eins og áður hefir verið frá
skýrt, hafa Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn sam-
þykkt grundvallaratriði í mál-
efnasamvinnu milli flokkanna í
sambandi við væntanlega stjórn-
armyndun. Samþykktir þær, er
hér um ræðir, hafa verið skjal-
festar og undirritaðar af báðum
aðilum, og ennfremur hefir Ás-
geir Ásgeirsson forsætisráðherra
skriflega lýst yfir fylgi sínu við
framkvæmd umræddra mála á
Alþingi. Er nú málefnum þeim,
er samvinnan byggist á og síðar
verður frá skýrt, tryggður meiri
hlu€i í báðum deildum þingsins.
Endanlegur úrskurður land-
kjörstjórnar fellur í dag. Á með-
an sá úrskurður er ófallinn og
uppbótarþingmenn hafa ekki
fengið kjörbréf sín, er ekki hægt
að mynda ráðuneyti.
Vitað er nú þegar, að sú ein
breyting verður á um uppbótar-
þingsætin, frá því er áður hefir
verið tekið fram, að Gunnar
Thoroddsen verður fjórði uppbót-
arþingmaður Sjálfstæðisflokksins,
en ekki Torfi Hjartarson. En
þetta skiptir engu máli um hlut-
föll flokkanna í þinginu.
En þó ekki sé enn búið að
ganga frá stjórnarmynduninni á
formlegan hátt af fyrrgreindum
ástæðum, þá hafa flokkarnir að
fullu komið sér saman um, hvern-
ig stjórnin skuli skipuð og hvern-
ig verkaskiptingu skuli hagað.
Opinber tilkynning um þetta
stendur því fyrir dyrum á hverri
stundu úr þessu.
óhætt er því að fullyrða, að
gtjórnin verður skipuð á þessa
leið og verkaskipting í aðalatrið-
um eins og hér segir:
Hermann Jónasson lögreglu-
stjóri ver&ur forsætisráðherra og
jafnframt dómsmálaráðherra.
Eysteinn Jónsson skattstjóri
verður fjármálaráðherra.
Haraldu/r Guðmundsson banlca-
stjóri verður atvinnnmálaráð-
herra.
Nánari grein fyrir verkaskipt-
ingu í hinu nýja ráðuneyti verð-
ur gerð síðar.
Nýja ráðuneytið verður þann-
ig skipað tveimur Framsóknar-
flokksmönnum og einum Alþýðu-
flokksmanni.
Öll eru þessi ráðherraefni þjóð-
kunnir hæfileika- og atgervis-
menn. Allir eru þeir fremur ung-
ir menn, fullir af starfsáhuga,
vinnuþreki og umbótahug.
Hermann Jónasson er fæddur
að Syðri-Brekkum í Skagafirði
25. des. 1896 og er því 37 ára að
aldri. Foreldrar hans voru búandi
hjón á Syðri-Brekkum. Hern m
stundaði nám við Gagnfræðaskól-
ann á Akureyri, lauk stúdents-
prófi 1920 og embættisprófi í
lögum við háskólann 1924. Síðan
var hann fulltrúi bæjarfógetans í
Reykjavík nokkur ái. Fór tvisvar
sinnum utan til þess að kynna
sér meðferð lögreglu- og saka-
mála. Hann hefir verið lögreglu-
stjóri í Reykjavík siðan 1929 og
í bæjarstjórn Reykjavíkur síðan
1930. Árið 1932 var hann skipað-
ur formaður ríkisskattanefndar.
Hann er varafoi*maður Fram-
sóknarflokksins.
H. J. náði kosningu í Stranda-
sýslu í sumar méð glæsilegum
meirihluta. Er hann án efa einn
áhugasamasti og þróttmesti mað-
ur Framsóknarflokksins.
Eysteinn Jónsson skattstjóri er
fæddur á Djúpavogi 13. nóv. 1906
og er því aðeins 27 ára. Er hann
sonur Jóns prests Finnsson-
ar á Djúpavogi. Eysteinn lauk
prófi við Samvinnuskólann 1927.
Var eftir það um hríð starfsmað-
ur í stjórnarráðinu og hjá skatt-
stjóranum í Rvík. Sumarið 1929
dvaldi hann erlendis og kynnti
sér skattamál og ríkisbókhald á
Norðurlöndum. Var kennari við
úrslitakappleikurinn milli Dana
og Islendinga á laugardagskvöld-
ið er fyrsti kappleikur í knatt-
spyrnu, sem verið hefir útvarpað
hér á landi. Mun það hafa verið
gert af því, að menn um land allt
hafa haft áhuga á því, að fylgjast
með leiknum, og fá fregnir strax
um það, hyort íslendingum tækist
að sigra Danina, eða þeir færu
ósigraðir heim aftur. Forseti f. S.
í., Benedikt Waage, skýrði gang
leiksins fyrir hlustendum, og
fórst það ágætlega.
Samvinnuskólann 1928—1930.
Skattstjóri í Reykjavík síðan
1930. E. J. var.kosinn á þing í
Suður-Múlasýslu 1933 og endur-
kosinn aftur í sumar með geysi-
miklu meirihluta-fylgi. Hann á
sæti í miðstjórn Framsóknar-
flokksins og er ritari flokksins.
Eysteinn Jónsson er skarpur og
rökviss bæði í ^æðu og riti og
hamhleypa til starfa.
Haraldur Guðmundsson er
fæddur 27. júlí 1892 r Gufudal í
Barðastrandarsýslu og er því
hartnær 42 ára gamall. Hapn er
sonur Guðmundar Guðmundsson-
ar fyrrum prests í Gufudal og
konu hans Rebekku Jónsdóttur
alþm. á Gautlöndum Sigurðsson-
ar. útskrifaðist úr Gagnfræða-
skólanum á Akureyri 1911.
Stundaði síðan farkennslu á vetr-
um, en vegavinnu, síldarmat o.
fl. á sumrum 1912—19. Gerðist
þá gjaldkeri í útibúi íslandsbanka
á ísafirði til 1923; síðan blaða-
maður og kaupfélagsstjóri í Rvík
og síðast bankaútibússtjóri á
Seyðisfirði. Árið 1927 var hann
skipaður í ríkisgjaldanefndina og
1928 kosinn í milliþinganefnd um
tolla- og skattalöggjöf. Hann
varð fyrst þingmaður í ísafjarð-
arkaupstað 1928 og síðar þing-
maður Seyðisfjarðarkaupstaðar
og er það enn.
Haraldur Guðmundsson er
gæddur glæsilegum gáfum og er
þróttmikill ræðumaður.
Má vænta þess, að hið nýja
ráðuneyti megi láta margt gott af
störfum sínum leiða, þar sem
hvert rúm er þar skipað vöskum
og vænlegtim drengjum.
Veður var mjög gott, blæjalogn
og ekki sólskin. Áhorfendur voru
um 3000. Dómari var Guðjón
Einarsson, og hefir hann verið
dómári í öllum leikjunum, nema
hinum sögulega K. R.-leik. Leik-
urinn var bæði fjörugur og
skemmtilegur. Eftir fyrstu 13.
mín. fyrra hálfleiks gerðu Danir
eitt mark. Þegar liðnar voru 23
mín. náðu íslendingar einu. Gerði
Jón Sigurðsson það mark. Fyrra
hálfleik lauk því með 1:1.
Síðara hálfleiknum var útvarp-
að. Hann hófst með sama hraða
og fjöri, og var þó hinn prúð-
mannlegasti. Lýsti forseti honum
svo, að mjög vel væri leikið af
báðum flokkum og skiptust á
stuttar spyrnur og langar. Lítið
var um víti eða ágreiningsatriði.
Þó var meiri sókn af hálfu ís-
lendinga og lá knötturinn mest á
vallarhelmingi Dana. Bjargaði
markvörður D’ana þá mörgum
hættulegum árásum. En eftir ná-
lega 30 mín. leik skoraði Hans
Kragh annað mark íslendinga.
Gullu þá við fagnaðaróp fr,á á-
horfendum. Einn Dani meiddist
lítilsháttar, og var hann studdur
út af vellinum og leikurinn stöðv-
aður um stund. En brátt jafnaði
hann sig og hófst þá leikurinn á
ný. Heyrðist þá lófatak frá áhorf-
endum, yfir því að meiðslið hafði
ekki verið meira. Fáum mínútum
síðar gerði Agnar Breiðfjörð
þriðja mark íslendinga. Sóttu
þeir nú ákaft á Danina og leit út
fyrir, að á þá væri kominn ber-
serksgangur. Skipti nú engum
togum unz ÞorsTeinn Einarsson
skoraði fjórða markið. Þá liðu 3
—4 mín. og gerði Gísli Guð-
mundsson þá fimmta markið.
Tók nú að síga í Danina og
hófst nú sókn af þeirra hálfu
um stund, þó án þess að ná
marki. En síðustu 10 mín. bar
meira á aukaspyrnum, og lenti
knötturinn oftar út fyrir hliðar-
mörk. Lögðu nú báðir flokkar
meira í vörn en sókn síðustu mín-
úturnar. En ekki náðust fleiri
mörk. Lauk leiknum því þannig,
að íslendingar höfðu sigrað Dan-
ina með 5 gegn 1.
Kappleikurinn hafði verið all-
snarpur á köflum en drengilegur.
Mega báðir vel við una. Hinn
hrausti flokkur Dana hefir unnið
alla hina leikina. En í þessum
leilc sýndu Islendingar greinilega,
að þeir eiga líka harðsnúna og
þjálfaða knattspýrnumenn, sem
geta mætt úrvalsflokkum annara
þjóða.
Forseti í. S. I. lauk máli sínu
með því, að óska eftir að fram-
vegis yrði útvarpað kappleikjum
frá íþróttavellinum, bæði hlaup-
um, glímum o. fl.
Eftir kappleikinn hélt móttöku-
nefndin samsæti fyrir Danina í
Oddfellow-höllinni, og skiptust
flokkarnir þar á minningargjöf-
um.
Dönsku knattspyrnumennirnir
fóru heim með íslandinu á sunnu-
dagskvöldið.
Knattspyrnukappleikurinn
í Reykjavik á laugardagskv.
Úrvalsliðið sigraði tí. 1. K. með 5 gegti 1.