Dagur - 24.07.1934, Síða 2
228
DAGUR
83. tty.
Herkir gestir.
Hingað til Akureyrar komu í
síðustu viku, landveg frá Reykja-
vík, þau dr. Rögnvaldur Péturs-
son frá Winnipeg og kona hans
frú Hólmfríður Kristjánsdóttir,
ásamt Mr. Árna Helgasyni, verk-
fræðing frá Chicago. Höfðu þau
komið beina leið frá New York
til Reykjavíkur með þýzka
skemmtiferðaskipinu Reliance, og
verið aðeins 7 daga á leiðinni og
fengið ágæta ferð. Voru þau á
leiðinni austur í Þingeyjarsýslu á
ættstöðvar Mrs. Pétursson, en
hún er alin upp í Reykjadal og
systir Svöfu húsfreyju á Syðra-
Fjalli. Gera þau ráð fyrir að
hverfa aftur eftir skamma dvöl
eystra ög staðnæmast eitthvað í
Skagafirðinum í átthögum dr.
Rögnvaldar. En alls búast þau
við að hafa að þessu sinni við-
dvöl á íslandi a. m. k. til ágúst-
mánaðarloka.
Dr. Rögnvaldur Pétursson er
þjóðkunnur maður bæði austan
hafs og vestan. Var hann lengi
þjónandi prestur Unitarasafnað-
arins í Winnipeg, en síðan hann
lét af prestskap hefir hann verið
einn hinn fremsti forystumaður
' islenzkra félagsmála vestanhafs
og barizt ósleitilega fyrir viðhaldi
þjóðernisins og að viðhalda sam-
bandinu milli Vestur-fslendinga
og heimaþjóðarinnar. í því skyni
stofnaði hann, árið 1919, Þjóð-
ræknisfélag íslendinga í Vestur-
heimi, . sem unnið hefir að við-
haldi íslenzkrar tungu og menn-
ingar, og hefir leitazt við að
glæða og efla ættrækni og samúð
milli þjóðarbrotanna. Er hann
einn af aðalútgefendum Heims-
kringlu og ritstjóri Tímarits
Þjóðræknisfélagsins og var ein-
hver helzti forvígis- og hvatamað-
ur að heimför Vestur-íslendinga
árið 1980.
Mr. Helgason er ættaður úr
Hafnarfirði og fór vestur 1912,
þá 22 ára að aldri. Er hann að-
alverkfræðingur við »Chicago
Transfonner Corporation«, sem
er verksmiðja, er aðallega býr til
rafmagnstæki. Hefir hann um
500 manns í þjónustu sinni.
Um horfur vestra segir dr.
Rögnvaldur að heldur væri að
iifna yfir atvinnulífi í Canada og
Bandaríkjunum á ný. Tala at-
vinnuleysingjanna hefir á síðasta
ári lækkað um 4 milljónir í
Bandaríkjunum og verð á korni
og gripum hækkað allmikið frá
því í fyrra. Sömuleiðis hefir orð-
ið mikil framför í ýmsum iðnað-
argreinum. Útlit er fyrir ágæta
uppskeru í Canada í sumar, en í
Bandaríkjunum hefir uppskera
eyðilagzt á stórum svæðum af
stormum og foki í vor.
Erl. fréttir.
Frá Englandi berast þær frétt-
ir, að frumvarp hafi komið fram
í brezka þingjnu um að ríkið
veitti skozkum fiskimönnum
nokkurn fjárstyrk til að reyna að
koma í veg fyrir algert hrun út-
gerðarmanna af völdum afla- og
markaðsleysis. Frumvarpið gerir
ráð fyrir 50 sterl.pd. styrk til
hvers útgerðarmanns, en skozkir
þingmenn telja þann styrk ekki
nægilegan, heldur verði ríkið
einnig að reyna að afla fiskfram-
leiðendum aukins markaðs, og þá
helzt í Sovét-Rússlandi, og sömu-
leiðis gera allt sem hægt sé til
að auka neyzlu síldar í Bretlandi.
Áætlunum þeim, er komið hafa
fram í Englandi, um aukning
flota og lofthers, hefir verið tek-
ið mjög illa af jafnaðarmönnum
í Frakklandi. Áætlanir þessar
hafa ekki enn komið fram f
frumvarpsformi, en eru afsakað-
ar með því,- að samvinna sú, sem
England hafi haft við afvopnun-
arnefndina, hafi reynzt árangurs-
laus, svo að þeim, þess vegma,
beri brýnust skylda til að efla
aðstöðu sína út á við sem bezt að
hægt sé.
í Póllandi sunnanverðu hafa
geysað vatnavextir og flóð, meira
en sögur fara af, enda hefir verið
þar óhemju úrkoma undanfarið.
Fjöldi brúa hefir brotnað, og
járnbrautir eyðilagzt á stórum
svæðum. Talið er að yfir 100
mannshafifariztog 500 fjölskyld-
ur séu hú'snæðisvilltar, og stórar
landspildur séu einangraðar, svo
að matvælum og annari hjálp
verði ekki komið til fólksins.
Síðustu fregnir af flóðunum
miklu í Póllandi segja þau hafa
náð til Warsaw (Varsjava). Allar
þær ráðstafanir sem gerðar voru
til að skemmdir yrðu sem minnst-
ar, virðast ætla að duga lítið, því
síðast þegar fréttist, var vatns-
borðið 18 fetum hærra en venju-
lega, og búizt var við að flóð-
garðar mundu þá og þegar bresta
undan þunga vatnsins.
útlit er fyrir að vinátta sú, er
menn hugðu vera milli Þýzka-
lands og ítalíu, fari minnkandi,
vegna yfirgangs Nazista í Aust-
urríki. Mussolini telur Hitler
hafa illa brugðizt þeim loforðum
og yfirlýsingum, er hann gaf í
Feneyjum, þegar þeir ræddust
við þar á dögunum.
í Bandaríkjunum hefir geysileg
hitabylgja riðið yfir suðaustur-
hluta landsins. Hefir þar ekki
fallið dropi úr lofti í 27 daga og
hitinn sumstaðar komizt upp í
117 Fahrenheitstig, en það jafn-
gildir 47° Celsius. í fylkinu Texas
er allur gróður gersamlega
skrælnaður; er nautpeningur þar
ýmist skotinn niður eða hrynur
niður af fóðurskorti. Herma síð-
ustu fréttir að hitabylgjan nálgist
nú óðum New York, og séu borg-
arbúar mjög skelfdir af útlitinu.
Á Coney Island, sem er eyja
skammt frá New York, gekk all-
stór flóðbylgja sl. föstudag. Var
fjöldinn allur af baðgestum, sem
flúið höfðu hitann í New York,
staddur á ströndinni, er þetta
skeði og lentu margir í bylgjunni.
Tókst þó að bjarga öllum, að ein-
um undanteknum.
Frá Oberammergau fréttist, að
hinir nýafstöðnu helgisjónleikir
hafi aðeins verið sóttir af um 120
þúsundum erlendra gesta, og er
það margfalt færra en nokkru
sinni áður.
Þó að verkfallið í San Fran-
sisco hafi nú loks verið aflýst, er
verkfallsmálum í Bandaríkjunum
ekki þar með lokið. f Minneapolis
hafa vörubifreiðarstjórar gert
verkfall. S. 1. laugardag urðu þar
götubardagar, sem byrjuðu með
þeim hætti að ávaxtasali, undir
lögregluvernd, ók vagni sínum
inn á »lokað svæði«. Lenti þá i
bardaga milli lögreglunnar og
varðmanna á svæðinu; særðust
um 60 og einn dó- — óeirðir urðu
einnig í Seattle, og var orsökin
sú, að ófélagsbundnir menn voru
hafðir við uppskipun á vörum.
mmmmmmmmrnmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmm
Fiskafli var á öllu landinu um miðj-
an júlí 58,106 smálestir, en í fyrra um
sama leyti var hann 64,433 smálestir,
eða 6,327 smál. meira en í ár,
Sjóvátryggingarfélag /
tslands h. f.
Hjartans þakkir fyrir auð-
sýnda hjálp og samúð viðand-
lát og útför fósturmóður minn-
ar Önnu Maríu Davíðsdóttur.
Anna Sigurðardóttir.
FrA Seyðisfirði fréttist, að beitusíld
sé þar nægileg, og fiskafli sæmilegur,
en togarar geri þar mikinn usla, og
eyðileggi veiðarfæri fiskimanna svo að
til vandræða horfi, og skora Austfirð-
ingar á stjórnina. að senda þegar varð-
skip austur til verndar fiskimönnum.
Landsskjálfti. Kl. 10.45 á fimmtu-
daginn varð vart við landskjálftakipp
í Reykjavík og kl. 10.23, 10.29 og 10.50
voru minni hræringar. Eigi er vitað
um úr hvaða átt þeir komu, en upp-
tök þeirra munu hafa verið um 100
km. frá Reykjavík.
Júhanna J óhannsilóttir syngur í
Nýja Bíó í kvöid kl. 9, með aðstoð Páls
ísólfssonar. Söngskráin er ýms af
beztu iögum eftir Schubert. Má þar
búast við ágætri, listrænni skemmtun.
Hljómleikar Páls ísólfssonar og Árna
Kristjánssonar fara fram á fimmtu-
daginn kl. 9 eftir hád. í Nýja Bíó. Þeir
spila tvö stórverk á tvö flygei og auk
þess leikur Árni einleik.
ÚTVARPIÐ.
Þriðjud. 24. júlí: Kl. 20 Cello-sóló,
Þórh. Árnason. Kl. 20.30 Erindi, Böð
og’ líkamsæfingar, Jan Ottoson. Kl.
21.30 Grammófóntónleikar.
Miðvikud. 25. júlí: Kl. 20 Fiðlusóló,
Þórarinn Guðmundsson. Kl. 20.30
Erindi, séra Sig. Einarsson. Kl. 21.30
Grammófóntónleikar.
Vanlar slulku
nú þegar á Ljósmyndastofu
Vigfúsar Sigurgeirss.
1 B ú Ð ■
tvær stórar stofur, bað og
eldhús, óska eg að fá leigt
frá 1. okt.
Gunnar Pólsson.
Til sölu 6 syl. Chevrolet-
vörubifreið. Uppl. hjá
Árna Jóhannssyni
Kea.
Heyskapartíðin er fremur ervið hér
norðaniands. Fyrir og inn síðustu helgi
gerði þurrk nokkurn, en hann var of
stopull til þess að töður nýttust vel,
enda sumt af þeim skemmt áður.
Austan af Héraði er sögð ágætis-
spretta og nýting jafnframt mjög
sæmilég.
Ritstjóri Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar,