Dagur - 28.07.1934, Side 1
D A G UrR
lcemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júií.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓE.
Norðurgötu3. Talslmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
XVII,
ár. |
Akureyri 28. júlí 1934.
Byltingatilraunirnar í Aust-
urríki brotnar á bak aftur.
Dolfn§$ kanslari myrfur af uppreistar-
mönnum, „en stjórnarstefna han§ lifir
enn,“ segir kennslumáiaráðherra, er
fer með bráðabirgðastforn.
Hitler neitar að eiga nokkra sök á oeirðunum.
Greinilegri fréttir hafa nú borizt
af uppréistartilrauninni í Aust-
urríki, og er aðalefni þeirra á
þessa leið:
Uppreistin er talin að hafa
byrjað á því, að fámennur flokk-
ur nazista hafi tekið á vald sitt
útvarpsstöðina í bænum Biesen-
berg, og þröngvað þulnum til
þess að útvarpa, að austurríska
stjórninværi búin að segja af sér,
en að austurríski sendiherrann í
Rómaborg mundi til bráðabirgða
taka að sér stjórn ríkisins. Lík-
legast þykir að þetta hafi átt að
vera allsherjar merki til upp-
reistarmanna víðsvegar um Aust-
urríki, en þó virðist það ekki
hafa komið að tilætluðum notum,
því óeirðir voru ekki hafnar
nema á tiltölulega fáum stöðum.
Um sama leyti ruddist 150 manna
Nazistasveit inn í ráðherrahöllina
í Vínarborg og náði henni í einni
svipan' á sitt vald, þar sem allir
voni óvíðbúnir og ekkert svigrúm
til að veita viðnám. Undir samn-
ingayfirskyni tókst uppreistar-
mönnum að lokka Dolfuss út með
sér, en er út kom var hann sam-
stundis skotinn niður. Fey, fyrr-
verandi varakanslari var sjónar-
vottur að morðinu á Dolfuss, og
fekk því til leiðar komið, að sent
var eftir presti, en til hans náðist
ekki nógu fljótt, svo Dolfuss dó
óþjónustaður. Tilfæra menn sem
síðustu orð hans, að hann hafi
beðið að gæta konu sinnar og
barna, og vernda ríkið fyrir
blóðsúthellingum svo sem frekast
væri unnt. Fey, fyrrverandi vara-
kanalari, og aðrir ráðherrar er í
höllinni voru er uppreistarmenn
tóku hana, voru handteknir, og
haldið sem gislum, en sá hluti
stjórnarinnar, er utan hallarinn-
ar var, kölluðu þegar út stjórn-
arherinn, en gáfu uppreistar-
mönnum 15 mínútna umhugsun-
arfrest áður en á höllina yrði
ráðizt, en þeir virtu það að vett-
ugi, og hótuðu að drepa ráðherra
þá, er þeir höfðu á valdi sínu, ef
árás yrði gerð. Þessar hótanir
voru þó að engu hafðar, og
stjórnarherinn tók þegar höllina
af uppreistarmönnum. Var þar
með lokið uppreistartilraun Naz-
ista í Vínarborg, og hefir síðan
allt verið kyrrt þar í borginni.
Hefir kennslumálaráðherrann far-
ið með stjórnarvöldin til bráða-
birgða, og meðal annars látið út-
varpa dauða Dolfuss kanslara, og
sagt, að þó að hann væri horfinn,
þá lifði stjórnmálastefna hans
eftir sem áður. Hervörður er
hafður við allar opinberar bygg-
ingar, og póstmenn og ýmsir aðr-
ir opinb. starfsmenn eru vopnaðir.
Þýzka stjórnin neitar harðlega að
hafa átt nokkurn þátt í bylting-
artilrauninni. Hefir hún þegar
kallað heim sendiherra sinn í Vín,
vegna gruns, er á hann hefir fall-
ið um að hafa aðstoðað uppreist-
armenn til að komast á flótta yf-
ir landamæri Þýzkalands. Von
Neurath, Hindenburg, Mussolini,
Sir John Simon og Stanley Bald-
win hafa allir sent samúðarskeyti
út af fráfalli Dolfuss kanslara.
Austurríski sendiherrann í Róm
hefir verið tekinn fastur vegna
útvarpsfregna þeirra um valda-
töku hans, sem áður getur.
Reyndi hann að fremja sjálfs-
morð en misheppnaðist. Samt
mótmælir hann allri þátttöku í
uppreistinni, og kveður fyrirhug-
aða valdatöku sína á engum rök-
um reista. Stahremberg fursti,
varakanslari, og frú Dolfuss voru
bæði stödd í ítalíu er óeirðirnar
brutust út, en eru nú komin heim
og hefir Stahremberg þegar kall-
að saman Heimwehr liðið. Sér-
stakur herréttur hefir verið sett-
ur, með fullu valdi til dóma og
aftöku. Einu landshlutarnir, sem
óeirða verður nokkuð vart enn-
þá, eru Steuermark og Tyrol,
en stjórnarhersveitirnar hafa þar
þó allstaðar yfirhönd.
ih * *
Hitler og von Papen lýsa, í op-
inberu bréfi til austurrísku
bráðabirgðast j órnarinnar, samúð
sinni yfir dauða Dolfuss. Þeir
taka ennfremur fram í bréfinu
að sá orðrómur, er bæði verði
vart innan Austurríkis og í ver-
aldarblöðunum, um aö þýzka
stjórnin hafi verið undirróðurs-
menn að byltingartilrauninni, sé
algerlega tilhæfulaus, og fara
þeir fram á, að til að afsanna
sem bezt grunsemdir þessar, að
von Papen komi i opinbera heim-
sókn til Vínarborgar. Austur-
ríska stjórnin hefir látið útvarpa
bréfi þeirra Hitlers og von Pa-
pens, en ekki svarað því enn, og
ekkert gefið upp um hvort tekið
verði heimsóknartilboði von. Pa-
pens. I frásögnum sínum um aust-
urrísku uppreistartilraunina
liggja erlendu stórblöðunum held-
ur kuldaleg orð til Þýzkalands, en
kveða þó ekki upp úr um bein af-
skipti þýzku stjórnarinnar af
byltingartilrauninni, að undan-
teknum frönskum blöðum, er
skrifa mjög fjandsamlega um
þýzku stjórnina, og telja hana
eiga alla ábyrgð á austurrísku ó-
eirðunum. Ganga þau jafnvel svo
langt að amerískum blöðum
blöskrar, og kveða framferði
þeirra, með tilliti til friðarins í
Evrópu, einna líkast því að mað-
■ tir, er ætli að verja hús sitt bruna,
strái eldsglóðum út um allt gólfið.
❖ # *
Síðustu fregnir í gærkveldi
skýra frá því, að von Papen,
varakanslari Þýzkalands hafi lát-
ið af embætti sínu, og verið skip-
aður sendiherra Þýzkalands í
Vín. Skrifaði Hitler .honum bréf
með útnefningunni, þar sem
hann, með mörgum fögrum orð-
um, lýsir þeirri þakklætisskuld,
er þýzka þjóðin standi í við hann,
fyrir trúlega og vel unnið starf í
sambandi við byltingartilraunina.
Lýsir hann síðan hversu mikil-
vægt starf hann feli honum, þar
sem sé sendiherrastarfið í Vín;
að hann beri til hans fyllsta
traust, og hafi hann engum
reikningsskap að gjalda nema sér
sjálfum (Hitler). Sama fregn
hermir, að austurríski sendiherr-
ann í Róm, er reyndi að fyrir-
fara sér, hafi nú látizt af sárum.
Náttúruógnir í Póllandi.
Ofsaveður með þrumum og eld-
ingum gerði í Póllandi í vikunni.
Tveir menn biðu bana og kvikn-
aði í mörgum húsum. Uppskera
hefir stór eyðilagzt. — Af flóð-
unum miklu segja síðustu fréttir
að þau séu heldur í rénun. VarSjá
er talin úr mestu hættunni, þar
sem vatnsborðið hefir lækkað um
helming, þó enn sé það 4—5
metrum hærra en venjulega, en
engin hætta er talin að flóðgarð-
ar þar springi úr þessu; aftur á
móti sprungu flóðgarðar við
Krakau, og reið 15 metra há
vatnsbylgja yfir borgina. Talið er
að um 200 þús. manns sé húsnæð-
islaust, og að taka muni að
minnsta kosti 2—8 ár að endur-
bæta skemmdir þær, er flóðin
hafa valdið.
Stjórnarskiptin
fara væntanlega fram í dag. Verka-
skifting í hinu nýja ráðuneyti verður
á þessa leið:
Hermann Jónasson verður forsætis-
ráðherra og fer með landbúnaðarmál,
vegamál, dómsmál og kirkjumál.
Eysteinn Jónsson verður fjármálaráðh.
Haraldur Guðmundsson fer með
sjávarútvegsmál, samgöngumál (að
undanteknum vegamálum) og kennslu-
mál.
Utanríkismálum mun verða skipt
milli Hermanns Jónassonar og Har-
aldar Guðmundssonar.
Þegar að því kom að velja menn í
stjórnina, sneri miðstjórn og þing-
flokkur Framsóknarmanna sér að for-
manni flokksins, Jónasi Jónssyni, og
óskaði eftir að hann myndaði ráðu-
neytið, en hann baðst undan því starfi
og óskaði cftir að flokkurinn veldi
annan. Fól þá flokkurinn Hermanni
Jónassyni að mynda ráðuneytið.
Mótorbáturinn
Óli Björnsson frá Hrísey, sem
Slysavarnarfélag íslands hafði verið að
auglýsa eftir undanfarna tvo daga, kom
fram heilu og höldnu kl. 21.30 í
gærkveldi,