Dagur - 09.08.1934, Síða 1

Dagur - 09.08.1934, Síða 1
kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- iögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan •í hjá JÖNI Þ. ÞÓE. Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir l.des. XVII. ár. | Akureyri 9. ágúst 1934. 90. tbl. Hvenær opið er. Opinberar stolnanir, bankar o. $. ftv. Pósthúsið virka daga kl. 10—6, helgi- daga kl. 10—11. Landssíminn milli Reykjavíkur, Akur- eyrar og Hafnarfjarðar opinn alla daga, allan sólarhringinn, einnig bæjarsímar þessara bæja. Skrifstofa bæjarfógeta kl. 10—12 og 1 —3 alla virka daga, nema laugar- daga kl. 10—12. Skrifstofa héraðslæknis Brekkugötu 11, kl. 1—2 alla virka daga. Skrifstofa bæjarstjóra kl. 10—12 og 1%—5 alla virka daga. Skrifstofa bæjargjaldkera kl. 1—5 alla virka daga nema á mánud. kl. 1—7. Landsbankinn kl. 10%—12 og 1%—3, alla virka daga. Útvegsbankinn kl. 10%—12 og kl. 1— 2%, alla virka daga. Búnaðarbankinn kl. 2—4 frá yi0—J./4, 1—3 frá x/e—x/10 alla virka daga. Allir bankar loka kl. 1 á laugardag. Sparisjóður Ak. kl. 3-4 alla virka daga. Afgreiðsla >Eimskips« kl. 9—12 og 1— 5 alla virka daga. Afgreiðsla j>Sameinaða« kl. 9—12 og 1—7 alla virka daga. Afgreiðsla »Bergenske« kl. 9—12 og 1 —6 alla virka daga. Skrifstofur K. E. A. kl. 9—12 og 1—6 alla virka daga. Hcimsóknartími sjúkrahúsa. Sjúkrahús Akureyrar kl. 3—4 alla virka daga og kl. 2—4 á helgidögum. Kristneshæli kl. 12%—2 virka daga, 3%—5 á helgidögum. Á þessum tím- um eru fastar bílferðir milli Akur- eyrar og Kristneshælis. Hjálp Rauða Krossins, Brekkugötu 11. Ókeypis. Fyrir mæður og börn: alla þriðjudaga kl. 2—3. Fyrir berkla- veika: alla föstudaga kl. 3—4. Viðtalstími lækna. Steingr. Matthíasson, héraðslæknir, kl. 1—2 alla virka daga í Brekkugötu 11. Á sunnudögum heima kl. 1—2. Valdemar Steffensen kl. 10—12 og 4— 6 virka daga og 10—12 helgidaga. Pétur Jónsson kl. 11—12 og 5—6 virka daga og kl. 1—2 helgidaga. Árni Guðmundsson, kl. 2—4 alla virka daga, l%-2% helgid. á 2. lofti K. E. A. Helgi Skúlason augnlæknir kl. 10—12 og 6—7 virka daga og kl. 1—2 helgi- daga á 2. lofti K. E. A. Friðjón Jensson tannlæknir kl. 10—12 1-3 og 4-6 virka daga,kl. 10-12 helgid. Engilbert Guðmundsson tannlæknir, kl. 10—11 og 6—6 virka daga á 2. lofti K. E. A. NýjarBió föstudagskvöld kl. ö. HINDENBURG. Jarðarför Hindcnburgs forseta fór fram sl. þriðjudag. Var stutt sorgarathöfn haldin á búgarði hans Neudeck, og líkið síðan flutt á fallbyssuvagni til Tannenberg og jarðað þar. Mörg hundruð þúsund manns voru viðstaddir jarðarförina og stöðugur fólks- straumur er til grafar hans, en í kring um hana brenna blys í tvær vikur. Hér er ekki rúm til að geta æfiatriða hins látna yfirher- foringja og forseta, svo að nokkru nemi. Hann var af hermannaætt- • um, og gerði líka hermennsku að æfistarfi sínu. Nítján ára gamall verður hann liðsforingi; er sæmd- ur járnkrossinum í prússnesk— franska stríðinu 1871. Þrítugur verður hann yfirforingi og mcð- limur í herstjórnarráðinu, og fimmtugur er hann gerður að herforingja. Árið 1911 fær hann lausn frá embætti sakir elli, þá 64 ára gamall, en þremur árum seinna er hann kallaður til starfa aftur í byrjun heimsstyrjaldar- innar og gerður að yfirforingja miðríkjaherjanna á austurvíg- stöðvunum; vinnur stórsigi-a sína við Tannenberg og Masúrísku vötnin og verður á svipstundu frægur um allan heim. Árið 1916 er hann skrifaður yfirforingi allra miðríkjaherjanna og var það til styrjaldarloka, en eftir uppgjöf Þýzkalands og miðríkj- anna, er Ludendorff og Vilhjálm- ur keisari flýðu úr landi, sat Hin- denburg kyrr, og lagði nú á sjö- tugt risabak sitt þá erfiðustu byrði, sem herforingja getur í hlut fallið: að sameina hinn sigr- aða her og halda uppi kyrrð og reglu. Er enginn efi á því, að þá hefir Hindenburg unnið sína stærstu sigra og getið sér sína varanlegustu frægð. En þar með er ekki dagsverkinu lokið. Tæp- um sjö árum seinna, við fráfall Eberts forseta, kallar hin ráð- þrota þýzka þjóð Hindenburg til forsetatignar, sem þann manninn, er mests trausts naut. Og við valdatöku nazista stendur enn af honum svo mikill ljómi, að Hitler notar hann til að »punta« upp á stjórn sína, enda þótt hinn 84 ára gamli öldungur væri þá mjög farinn að fótum fram. Hindenburg var fyrst og fremst hermaður, og hafði þeirrar stétt- ar glæstustu kosti, og líka tak- markanir hennar. Keisarasinni (Imperialisti) var hann alltaf, og þegar hann tók við forsetatign, spurði hann fyrst um »leyfi« Vil- hjálms í Doorn. En undirhyggju- maður var hann aldrei; og aldrei bendlaður við neitt af þeim skelf- ingum eftirstríðsáranna, er yfir Þýzkaland hafa dunið. Eitt af stærstu, ensku blöðunum gefur honum þessi eftirmæli, sem ætla mættu gleggst merki um mann- gildi hans: »Á hinum erfiðu tím- um, sem gengið hafa yfir hina þýzku þjóð undanfarið, hefir fjöldi Þjóðverja og útlendra manna engu síður verið þakklátir fyrir það, að æðsti maður Þýzka- lands skyldi vera maður, sem Nýja-Bíó Föstudags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld kl. 9, Stúlkan á æskuskeiði. f*ýsk talmynd í 9 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Hcrla Thiele, Dorthea Wieek. Myndin gerist á þýzkum kvenna- skóla, þar sem leggja á síðustu hönd á uppeldi ungu stúlkunnar áður en hún leggur út í lifið. Myndin er stór-athyglisverð og ættu foreldrar og ungar stúlkur að sjá hana. Hún er tekin eftir mjög frægu leikriti eftir ChfÍSta Winsloe, sem heitir »Gestern und Heute« og hefir hlotið mjög mikið Iof í útlendum blöðum. Sunnudaginn kl. 5. Alpýðusýning. Niðursett verð. Hressingar-hótelið. sakir staðfestu, heiðarleika og trúmennsku mátti treysta á hverju sem gekk. Hann virðist hafa verið eini maðurinn, sem pólitískar árásir, illvilji og hatur náðu ekki til. Jafnframt því sem hann var einn fyrirferðarmestí maður Þýzkalands meðan á ó- friðnum stóð, hefir hann síðan verið álitlegasti valdsmaður þess«. Er undraflugvél á ferðinni? Fimmtudaginn 2. ágúst s. 1., um kl. 4 síðd., sást til flugvélar frá bænum Meyjarhól. j. Sval- barðsströnd. Bar hana pá fyrii* ofan Krossanes, og flaug hún miðhlíðis, með jafnri en fremur hægri ferð, þráðbeina stefnu til suðausturs. Veðurfar var þannig: Úrkomulaust, norðan hægur stormur, og þokubelti um miðjar hlíðar. Sást flugvélin ýmist fyrir neðan þokubeltið eða i því, en það undarlegasta var, að ekkert heyrðist til hreyfilsins, allan þenna tíma, á meðan sást til flugunnar. Er flugvélin fór yfir Akureyrarbæ, bar hana frá Mcyjarhóli, sem stendur all hátt frá sjó, skammt fyrir neðan hús- ið Fálkafell; en það mun miðja vegu milli Akureyrarkaupstaðar og Súlutinda; segja sjónarvottar, sem eru Tryggvi Kristjánsson, bóndinn á Meyjarhóli og dætur hans tvær, Laufeý og Friðrika, að sézt hafi til flugvélarinnar í náfega 5 mínútur, frá því hún var fyrir ofan Krossanes og þar til hún hvarf í þoku, yfir Mjaðmár- dal í Eyjafirði. Sá Laufey flug- vélina fyrst, og hafði ekki augu af henni, fyrr en hún hvarf, þar (Framh. á 4. síðu). Skip koma oy fara vikuna 10.—17. ágúst. KOMA: 13. ísland frá Reykjavík. 15. Súðin (í stað Esju) að austan. 17. Goðafoss frá Rvík, hraðferð. FARA: J.O. Brúarfoss til Rvíkur, hrað- ferð. 15. ísland til Rvíkur. 16. Súðin vestur um. Alúðar þakkir vottum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför Guöbjatgar SteÍnlllU Sfeingrimsdóltur Og heiðruðu minningu hennar á ýmsan hátt. Guð blessi ykkur öll. Guðm. /. Seyðfjörð. Ingibjörg Halldórsdóttir. Steingx. G. Guðmundsson. Ingólfur Guðmundsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.