Dagur - 21.08.1934, Qupperneq 1
D AGUR
ltemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
^AfgreiðsIan "
•r hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
-• ♦-•■ • • • •»*••»•*<
XVII. ár. |
Akureyri 21. ágúst 1934.
95. tbl.
Kreppulánasjóður.
Bráðabirgðarlög og reglugerðar-
breyling.
Hin nýja ríkisstjórn hefir gert
mikla breytingu til bóta á láns-
kjörum bænda úr Kreppulána-
sjóði. Samkvæmt bráðabirgða-
reglugerð fyrrv. stjórnar áttu
greiðslurnar að vera hæstar
fyrstu árin og fara síðan lækk-
andi. Er slíkt fyrirkomulag óhag-
stætt eins og nú standa sakir.
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra hefir, 14. þ. m., látið
birta í Lögbirtingablaðinu bráða-
birgðalög, staðfest af konungi,
um breyting á lögum um Kreppu-
lánasjóð.
Breyting sú, sem hér er um
að- ræða, er í því falin, að ríkis-
skuldabréf þau, er sjóðurinn læt-
ur af hendi skuli »innheimt á
þann hátt, að árlega sé varið
sömu fastri upphæð til saman-
Jagðra vaxta og innlausnar-
greiðslna, þannig, að öll bréfin
séu innleyst á 40 árum«.
í samræmi við þessi bráða-
birgðalög hefir Eysteinn Jónsson
fjármálaráðherra gefið út eftir-
farandi
Landbúnaðarráðherra hefir 14.
þ. m. gefið út reglugerð »um
slátrun sauðfjár og verzlun með
sláturfjárafurðir«. Er reglugerð-
in sett samkv. bráðabirgðalögun-
pm um skipulagning kjötsöl-
unnar.
Samkvæmt reglugerðinni skipt-
ist landið í eftirtalin 5 verðlags-
svæði:
1. Reykjavík, Hafnarfjörður,
Gullbringu- og Kjósarsýsla, Rang-
árvallasýsla, Árnessýsla, Mýra-
og Borgarfjarðarsýsla og Vest-
mannaeyjar.
2. Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýsla, Dalasýsla, Strandasýsla
innan Bitrufjarðar, Vestur- og
Austur-Húnavatnssýsl.
3. Barðastrandarsýsla, Vestur-
og Norður-ísafjarðarsýsla, fsa-
fjörður, Strandasýsla norðan
Bitrufjarðar.
4. Skagafjarðarsýsla, Eyjafjarð-
ursýsla, Akureyri, Siglufjörður,
REGLUGERÐ
mn breytingu á bráöabirgðareglu-
gcrð um Kreppulánasjóð, nr. 108,
2. okt. 1933.
1. gr.
Þau lán, sem Kreppulánasjóður
veitir eftir staðfestingu reglu-
gerðar þessarar, skulu ávaxtast
og endurgreiðast með jöfnum
ársgreiðslum allan lánstímann.
Heimilt er þó stjórn sjóðsins að
veita lán með þeirri afborgunar-
skilmálum, sem ákveðnir eru í
27. gr. bráðabirgðareglugerðar
zir. 108, 2. okt. 1933, um kreppu-
lán, ef lántakendur óska.
Um öll lán Kreppulánasjóðs
gilda aö öðru leyti ákvæði bráða-
birgðaieglugerðar um Kreppu-
lánasjóð, nr. 108, frá 2. okt. 1933.
2. gr.
Stjórn Kreppulánasjóðs er heim-
ilt að breyta afboi-gunai’skilmál-
um þeirra lána, sem veitt hafa
verið úr Kreppulánasjóði fyrir
staðfestingu þessarar reglugerð-
ar, til samræmis við ákvæði 1.
greinar, enda æski skuldunautur
þeirrar breytingar.
Suður- og Norður-Þingeyjarsýsla.
5. Norður- og Suður-Múlasýsla,
Seyðisfjörður, Neskaupstaður,
Austur- og Vestur-Skaftafells-
sýsla.
Eftir því, sem fyrir er mælt í
3. gr., skal útsöluverð kjöts vera
sem jafnast á hverju verðlags-
svæði fyrir sig, eftir því sem við
verður komið. Ef mismunandi
verð er ákveðið eftir verðlags-
svæðum og innan verðlagssvæða,
skal verðmunurinn aðallega mið-
aður við kostnað við það að koma
kjötinu til helztu markaðsstaða
innanlands og möguleika til þess.
Ef kjötverðlagsnefnd virðist
of mikið kjöt vera ætlað til sölu
á einhverjum markaðsstað innan-
lands, svo að hætta sé á að það
seljist ekki, er henni heimilt,
samkv. 9. gr., að takmarka flutn-
ing á kjöti þangað. Álíti nefndin,
að oflítið sé á einhverjum mark-
aðsstað, getur hún og gert ráð-
stafanir til að flytja kjöt þangað,
Bandarikln.
Frá Bandaríkjunum berast
vikulega fregnir um ný verkföll,
eða hótanir um verkföll. í Min-
neapolis stendur enn yfir verk-
fall það, er vöruflutningabifreið-
arstjórar hófu snemma í júlí, og í
Chicago er lögreglu- og hei-vörð-
ur hafður um alla borgina, vegna
verkfalls bílstjóra.
Ástandið er talið að vera mjög
alvarlegt, og sýna skýrslur fyrir
júlímánuð, -að atvinnuleysi hefir
stórum aukizt og er vinnudeilum
aðallega kennt um. í þeim mán-
uði misstu um 400 þús. manns
atvinnu, mestmegnis af þeim á-
stæðum. Fyrir nokkru síðan til-
kynnti samband verkamanna í
vefnaðarvöruverksmiðjum, að það
mundi hefja verkfall 1. sept. ef
eigi yrði gengið að kröfum þess,
en þær ganga út á kauphækkun
og styttan vinnutíma, og viður-
kenningu á verkamannafélögum
þeirra. Mun þá og einnig verða
gert verkfall í fleiri iðnaðarverk-
smiðjum, svo sem klæðaverk-
smiðjum o. fl. og verða það um
800 þús. manns sem leggja niður
vinnu 1. sept., ef eigi tekst að
koma í veg fyrir verkfall þetta.
í hitabylgjunni í Bandaríkjun-
um sem var getið fyrir skömmu,
dóu um 300 manns. En í júlí dóu
1400 manns af völdum hitans, en
þá reið yfir landið sú mesta hita-
bylgja sem um getur undanfar-
inn áratug.
* * #
Undirbúningur hefir þegar ver-
ið hafinn undir hina miklu al-
þjóðasýningu sem halda á í Cali-
forníu í Bandaríkjunum að
sumri. Á hún að standa yfir frá
1. júní 1935 til 1. marz 1936. Fá
menn þar tækifæri til að kynnast
öllum nýjustu vísindalegum upp-
fundningum og verða einnig þar
til sýnis hverskonar listaverk frá
ýmsum þjóðum. Talið er að sýn-
ingin muni kosta að minnsta
kosti 5 mill. dollara.
Bókmenntir
bannaðai’.
í Þýzkalandi er,u það ekki ein-
ungis bækur Maxim Gorki, er
bætzt hafa við bókmenntir þær,
sem álitið er að hættulegt sé fyr-
ir almenning að kynnast, heldur
hafa og einnig verið gerðar upp-
tækar allar þýzkar þýðingar á
verkum Upton Sinclairs, og bönn-
uð hin nýja bók ameríska rithöf-
undarins H. R. Knickerbocker,
»WiH War Come in Europe«
(Kemur stríð í Evrópu). Ýms er-
lend blöð hafa einnig verið sett
í bann, þar á meðal nokkur
frönsk blöð og vikurit (m. a. háð-
blöð), ungversk og checkoslova-
kisk blöð og enska blaðið Daily
Express. Félag erlendra blaða-
manna í Þýzkalandi hélt fund
ekki alls fyrir löngu, til að mót-
mæla ræðu þeirri, er Göbbels út-
breiðslumálaráðh. hélt, og þar sem
hann fór mjög hörðum orðum um
erlenda blaðamenn vegna frá-
sagna þeirra um byltingartilraun-
ina s. 1. júní. Fundur þessi var
sóttur af fulltrúum 22ja landa.
Komu fram umkvartanir yfir
framkomu yfirvaldanna í Þýzka-
landi, en að sögn blaðamannanna
höfðu þau oft og mörgum sinn-
um neitað þeim um upplýsingar,
er þeir þóttust eiga heimtingu á
að fá.
Olia ur vatni.
Vísindamaður einn, frakknesk-
ur, hefir nýlega fundið upp mjög
einfalda aðferð til að vinna olíu
úr vatni. Hefir hann þegar selt
uppgötvun þessa fyrir stórfé.
Þjóðaratkv.greiðsla
fór fram í Þýzkalandi á sunnu-
daginn um það, hvort þjóðin væri
því samþykk, að Hitler yrði bæði
ríkiskanslari og forseti. Þeii', sem
voru þvi samþykkir, áttu að segja
já, hinir nei. úrslit atkvæða-
greiðslunnar urðu þessi:
Já sögðu 38,280,000.
Nei sögðu 4,275,000.
ógildir voru 869,000 seðlar.
Hvað nœst?
Alltaf fjölgar þeim atvinnu-
greinum og störfum, sem kven-
fólk er farið að vinna að, en sem
áður voru algerlega skipaðar
karlmönnum. Hafa konur gegnt
smíðastörfum, múrara- og mál-
arastörfum, og í Englandi t. d.
eru konur svo hundruðum skipt-
ir vélstjórar. En tollþjónar hafa
þær eigi verið fyrr en nú alveg
nýlega, að í Englandi voru nokkr-
ar skipaðar til að gegna því
starfi.
ÚTVARPIÐ.
Þriðjud. 21. ágúst Kl. 20 Cellosóló.
Þórh. Árnason. Kl. 20.30 Erindi.
Grétar Fells. Kl. 21.30 Grammófón-
tónleikar. íslenzk lög. Danslög.
Miðvikud. 22. ágúst. Kl. 20 Fiðlusóló,
Þórarinn Guðmundsson. Kl. 20.30.
Erindi um síldveiði og síldarsölu. Jón
Bergsveinsson. Kl. 21.30 Grammófón-
tónleikar. <
Reglugerð um kjötsöluna.