Dagur - 25.08.1934, Qupperneq 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum.
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
• •• -•-•-« _ .
XVIL ár. |
Afgreiðslan
ér hjá JÖNI Þ. ÞÖK,
Norðurgötu 3. Talslmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 25. ágúst 1934.
4
t
97. tbl.
JACOB TEXIÉRE
Upplesturskvöld
Sögui1 og æftsiiýi* H. €. Aiidcrsens.
í Nýja Bíó mánndagskvöldtð 27. nt. hl. 9.
Ilúsið opnað hálfri sfundu fyrr.
Skógarbrunar.
Er loftstyrjöld
Fyrir fáum dögum síðan voru
liðin 20 ár frá því að veraldar-
stríðið hófst. Hinir hræðilegu á-
gústdagar 1914 mörkuðu ákveðin
stefnumót í sögu Evrópu. Frið-
s&mlegt og heilbrigt framfara-
tímabil, með jöfnum þroska og
vaxandi velmegun, var þá í einu
vetfangi skorið þvert yfir, og síð-
an hefir allt gengið í glundroða,
og hver hörmungin boðið annari
heim, ekki aðeins í Evrópu, held-
ur einnig um allan heim.
Aðeins í einu tilliti er hægt að
segja, að Norðurálfan standi nú
í sambærilegum sporum og fyrir
veraldarófriðinn: V o'pnabúnaðar-
kapphlaup þjóðanna er nú aftn.r
í annað sinn í fullu algleymi. —
Þegar styrjaldarmartröðinni létti
af í nóvember 1918, fannst mönn-
um, að aldrei mundi geta komið
fyrir, að mannkynið óskaði stríðs
á ný. Ef alheimsatkvæðagreiðsla
væri látin fara fram, mundi bók-
staflega talað hver einasti ein-
staklingur greiða atkvæði á móti
styrjöld. Ef nokkrar undantekn-
ingar kynnu að finnast, mundi
vera óhætt að ganga út frá því,
að andleg vanheilsa lægi til
grundvallar og að slíkum mönn-
um mætti, læknisskoðunarlaust,
stinga inn á geðveikrahæli.
En þrátt fyrir þetta er gjör-
völl Evrópa önnum kafin við að
vígbúast undir nýja styrjöld, eða
eins og þjóðimar kalla það »ör-
ugga hervörn«, því eins og menn
vita, vill aldrei neinn við því
gangast, að hafa byrjað styrjöld;
allir aðilar segja, að »á sig hafi
verið ráðizt«, og »þeir eigi hend-
ur sínar að verja«, og þessvegna
þykjast öll riki vera reiðubúin til
á sérhverjum tíma, að undir-
skrifa hverskonar árásar-afneit-
unar-samninga.
Enginn þjóðhöfðingi hefir með
fjálgari orðum lýst ást sinni á
friðnum, en Hitler, ríkisforingi
Þýskalands. »Aldrei skal það
henda, að við ráðumst á aðrar
þjóðir«, hefir hann Krópað út um
heim í hinum miklu útvarpsræð-
um sínum. En samt sem áður er
það einmitt Þýzkaland',' sem frek-
ar öllum öðrum þjóðum hefir orð-
ið þess valdandi, að gjörvallur
heimur titrar í glímuhrolli nýrr-
ar tegundar stríðs, ennþá ægi-
legri en allar fyrri styrjaldir —
loftstyrjaldarinnar. Það er alvit-
að, að það fyrsta, sem »hið þriðja
i aðsigi?
ríki« gerði, við valdatöku sína,
var að leggja aðaláherzlu á upp-
byggingu lofthers síns. Að vísu
hefir það ekki gerzt opinberlega
— enginn veit með vissu, hversu
mikinn lofther Þjóðverjar þegar
hafa vígbúið, en það eitt er víst,
að hann er geysistór. Og svo sigl-
ir hvert stórveldið á fætur öðru 1
kjölfarið, og ver óhemju fjárhæð-
um til byggingar loftflota. Eng-
land hefur um 1000 loftherskip
fullger og 500 í smíðum, Frakk-
land 1650, Rússland 1300—1500,
Bandaríkin 1100 og ítalía um
1500. Og dag eftir dag flytur út-
varpið tilkynningar um nýjar
fjárveitingar til loftflotaaukning-
ar. Mussolini veitir til þess 1200
milj. lírur, Bandaríkin hafa á
annað þúsund flugvélar í smíð-
um, Frakkland hefir nýlega veitt
3120 milj. franka til »atvinnu-
bótavinnu við styrkingu varnar-
hers þjóðarinnar«, eins og þeir
kalla það, en vitanlegt er, að því
fé verður varið til aukningar
loftflotans.
Sem stendur er að vísu ekkert,
sem bendir á að yfirvofandi vá
sé fyrir dyrum, síðan málum
Austurríkis sýnist hafa verið ráð-
ið sæmilega örugglega til lykta.
En ef styrjöld skellur á, og til
þess þarf ekki nema hinn
minnsta neista, svo hátt er bog-
inn spenntur, — þá verður það
sú ægilegasta styrjöld, sem yfir
mannkynið hefir gengið. Styrjöld
eiturgasa, sprengjuregns og
pestarsýkla. Styrjöld múgsmorða
kvenna, barna og gamalmenna.
Og það sem er voðalegast af öllu:
Styrjöld, þar sem hver einasti
þátttakandi dansar nauðugur, að
undanteknum nokkrum hernaðar-
sálsýkingum, og örfáum sam-
vizkulausum fjárplógsmönnum.
Svo skammt eru þjóðirnar enn-
þá komnar í áttina til þess, að
vera sinna .eigin örlaga smiðir.
*
Berjaland.
Höfutn Steðjaberjalandið á-leigu.
Ferðir þangað alla sunnudaga
kl. 9 f. h. og kl. 1, e. h, Áuka-
ferðir eftir því sem þörf krefur.
Bifreiðastöð Oddeyrar.
Slmi 260,
Útvarpsfréttir herma að ógur'-
legir skógarbrunar geysi um
vesturströnd Norður-Ameríku, í
fylkinu Idaho, Montana og Was-
hington í Bandaríkjunum, og
British Columbia í Canada.
Breiðir eldurinn hraðfluga um
sig, og hefir ekki enn verið rönd
við reist, enda þótt yfir 10 þús-
und manna her bei’jist dag og
nótt við að slökkva hann.
r
Opiumnauin
hefir farið mjög vaxandi í
Bandaríkjunum á síðustu árum.
Var þannig helmingi meira gert
upptækt af smygluðu ópíumi í
fyrra en árið 1932. Þó er talið
að miklu meira hafi verið gert
upptækt hin síðustu árin vegna
öflugri löggæzlu, og getur það að
nokkru leyti verið orsök til þess
að menn álíti eiturneyzluna hafa
vaxið. ópíuminu mestmegnis
smyglað inn frá Kína eða Man-
sjúríu.
AJcureyrarkirkja. Messað á sunnu-
daginn 26. þ. m. kl. 2 e. h.
Hjálpræðisherinn lieldur samkomur
laugardag og sunnudag 25. og 26. þ. m.
kl. 8% e. h.
Heim kmnnir úr llanmerkurför eru
þeir Sigfús Halldórs frá Höfnum og
Rrynleifur Tobiasson kennari.
D'niicknun. Síðdegis á þriðjudaginn
féll unglingspiltur út úr bát frá síld-
veiðiskipinu »Arthur Fanney«, fram af
Grjótnesi á Sléttu, og drukknaði. —
Hét pilturinn Valdemar Valdemarsson
og var héðan úr bænum.
Við þökkum innilega öllum,
er sýndu samúð og vinahug
við andlát og jarðarför Ásgrims
heitins Guðmundssonar skip-
stjóra.
Aðstandendur.
í ávarpi, sem Mtiller ríkisbisk-
up í Þýzkalandi birti þýzku þjóð-
inni rétt fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna 19. þ. m., farast hon-
um orð á þessa leið:
»Þegar Jesús Kristur, frelsari
vor, prédikaði fagnaðarerindið,
þá hvatti hann lýðinn til trúnað-
artrausts; þannig gerir og Adolf
Hitler, leiðtogi vor, þegar hann
leggur fyrir yður hina miklu
spurningu og biður yður að svara
játandi. Sem sannkristnir menn
hljótum vér að gefa honum já-
yrði vort, þar sem aðeins sam-
þykki vort megnar að veita hon-
um valdið, til þess að berjast fyr-
ir kristindóminum. Barátta Hitl-
ers er barátta gegn Gyðingunum,
hinum grimmúðugustu óvinum
kristindómsins. Þýzka þjóðin
kann enn að eiga þrengingar í
vændum, en hún mun sjá krist-
indóminn sigra, jafnvel þó Gyð-
ingar ákveði að eyðileggja þjóð-
ina«.
Þannig stimplar ríkisbiskupinn
þá, sem ekki geta fellt sig við
stjórnarstefnu Hitlers og Naz-
istaflokksins, ókristna, en alla
hina sannkristna. Minnir þetta á
kosningaávarp Knúts Arngríms-
sonar, er hann birti í Stefni fyrir
síðustu Alþingiskosningar,