Dagur - 28.08.1934, Síða 1
DAOUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
• •--• • •; • • e
XVII
I. ár. |
t ♦ • t # t-#HI
•- • •• -• •-9 -♦ -•
t
Afgreiðsían
•r hjá JÖNI I>. ÞOE,
Norðurgötuö. Talsími 1U.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
Akureyri 28. ágúst 1934.
> • tt t e •••• • # a • •
| 98. tbl.
Meistaramót
í. S. í.
hófst fyrra laugardag í Reykja-
vík. Var keppt þann dag í þess-
um íþróttum.: 100, 800 og 5000
metra hlaupi, þrístökki, kringlu-
varpi og boðhlaupi, 4X100 metra.
Þessir urðu íslandsmeistarar:
Garðar Gíslason (K. R.) í 100
metra hlaupi, 11.4 sek; ólafur
Guðmundsson (K. R.) í 800 m.
hlaupi, á 2 mín. 8.8 sek.; Sverrir
Jóhannesson (Vestm.eyj.) í 5000
m. hlaupi, á 17 mín. 38 sek.;
Davíð Loftsson (Vestm.eyj.) í
þrístökki; Júlíus Snorrason
(Vestm.eyj.) í kringluvarpi, kast-
aði 35,69 metra; Knattspyrnufé-
lag Reykjavíkur í 4X100 m. boð-
hlaupi á 48,6 sek. Meistaramótinu
verður haldið áfram næstu daga.
Launbrugs í Hðfnum syðra.
Nýlega hefir komist upp afar
mikið launbrugg í Höfnum syðra.
Hafði hreppstjórinn þar, ólafur
Ketilsson, sterkan grun um að
mikil bruggun færi þar fram, svo
að hann kvaddi sér til aðstoðar
3 lögreglumenn úr Reykjavík og
gerði húsrannsókn á hinum grun-
uðu stöðum. Fundust þar alls 8
tunnur af bruggi, grafnar í
jörðu, þar af 5 fullar, en 3 í
gerjun.
Bær brennur.
Síðastliðinn föstudag brann til
kaldra kola bærinn Blakksgerði í
Svarfaðardal. Hafði bærinn, og
sérstaklega reykháfurinn bilað
mjög í jarðskjálftunum í vor,
enda álitið að kviknað 'hafi um
rifu á reykháfnum. Bæði hús og
innanstokksmunir voru óvá-
tryggðir.
Húsavikurbryggja.
Hin nýja biyggja á Húsavík
mun verða lengsta bryggja á ís-
landi. Verður hún 280 metra löng,
og geta þá skip Eimskipafélags-
ins og önnur álíka stór, lagzt við
hana. Raflýst verður hún og vatn
leitt fram á hana til enda. Finn-
bogi Rútur Þorvaldsson, verk-
fræðingur, hefir yfirumsjón með
smiðinu,
„Frjálsí verkíifolk
á í§landi.M
heitir nýútkomin bók eftir dr.
Guðbrand Jónsson. Bók þessi var
rituð fyrir samkeppnina um
prófessorsembættið við Háskóla
ísiands. Er hún 392 blaðsíður í
Iðunnarbroti.
Vinnutími sendisveina.
í síðasta Lögbirtingarblaði er
birt samþykkt frá bæjarstjórn
Reykjavíkur um vinnutíma sendi-
sveina i Reykjavík. Er vinnutím-
inn 8 stundir fyrir sendisveina
á aldrinum 12—14 árá, en 9\'o
st'ind fyrir sendla eldri en 14 ára.
Ermfremur skal starfi sendisvein-
anna vera lokið eigi seinna en 1
stund cftir lokun búða.
Viðskiptabann Oyðinga.
Síðastliðinn föstudag lauk al-
þjóðlegri Gyðingaráðstefnu í Ge-
néve. Var þar samþykkt að halda
áfram að herða á viðskiptabanni
gegn hinum þýzku nazistum og að
skora á hverskonar félög að gera
slíkt hið sama. — í tilefni af
þessu hafa þýzkir Gyðingar sent
Ilitler mótmæli sín gegn »þessum
ofstopafullu, útlendu Gyðingum«,
er eigi séu á nokkurn hátt full-
trúar þýzkra Gyðinga.
„Skynsemiskortur“
Landskyttnafélagið svissneska
hélt fyrir skömmu árshátíð sína í
höfuðstað landsins, Bern. Aðal-
ræðumaður hátíðarinnar var
fyrrverandi forseti lýðveldisins,
Motta, sem nú er stjórnmálaráð-
herra landsins. Hann kemst með-
al annars svo að orði:
»Aldrei gæti komið til mála, að
ráðleggja svissnesku þjóðinni, að
leggja allt vald i hendur einum
manni, þótt vitað væri, að hann
að dugnaði og samvizkusemi
skaraði fram úr öllum mönnum.
í stuttu máli: Að ætla sér að
reyna að fá Svisslendinga, er
frelsisþráin er í blóð borin sem
erfðavenja, til að fallast á ein-
íæði, í hverri mynd sem væri...
væri áberandi vottur um skort á
almennri, heilbrigðri skynsemi«.
íslendingum mættu vel verða
hugföst þessi orð eins af fyrir-
mönnum hinnar svissnesku þjóð-
ar, svo tímabær eru þau, töluð
sem úr Rugskoti hennar, er senni-
lega er allra þjóða víðfrægust,
og það maklega, öldum saman,
fyrir sjálfstæðis- og frelsisþrá,
er engri harðstjórn, erlendri né
innlendri, hefir tekizt að temja
né kúga, hvort sem beitt hefir
verið blíðmælum eða vopnum.
Pagnariimi i London.
Frá Lundúnaborg berst það ný-
mæli, að gera tilraunir með þagn-
artíma og þagnarsvæði í borg-
inni. Skal banna bílöskur frá kl.
24 til kl. 7 á 5 enskra mílna svæði
á alla vegu frá Cnaring Cross
járnbrautarstöðinni, er telja ■ má
miðdepil heimsborgarinnar. Er
talið að þessi fyrirmæli muni
einnig stuðla að því, að bílstjórar
fari gætilegar ferða sinna, er þeir
geta eigi lengur skákað í skjóli
bílalúðranna. Þá hefir og verið
skipuð nefnd til þess að rannsaka
hvernig takast megi að gera bíl-
ana að öllu hávaðaminni.
Djúpköfun.
Hinn frægi hafdjúpakönnuður
William Beebe hefir nýskeð end-
urbætt met sitt í djúpköfun.
Hafði hann áður komizt 800
metra en komst nú niður á 910
metra dýpi. Hafði hann með sér
myndatæki og heppnaðist að taka
margar stórmerkilegar myndir af
ýmsum óþekktum, sjálflýsandi
fisktegundum. Kveður hann að
svo megi segja, að nýr, ókunnur
dýraheimur sé þar í neðri byggð-
um. Vísindaárangurinn er talinn
mjög mikill af þessari síðustu
kafför hans og vekur hún hina
mestu eftirtekt náttúrufræðinga.
— Kafför þessi mun, sem áður,
hafa verið farin í afar sterkri
kúlu, er þolir heljarþrýsting, og
ei kristallsrúða geysiþykk greypt
í vegginn á einum stað og má um
liana taka myndir af umhverfinu
niðri í djúpinu.
Kornverð hœkkar.
Kornverð hefir hækkað að
miklum mun undanfarið, bæði í
Evrópu og Ameríku. Er það af-
leiðing hinna ógurlegu akra- og
uppskerueyðinga í Norður-Ame-
ríku. Þó hefir verðhækkun þessi
stöðvazt í bili eftir að rigna tók
aftur og hveiti hefir jafnvel fall-
ið ofurlítið síðustu viku.
Frá
barnaleikvellinum.
Með starfrækslu leikvallarins á
Oddeyri í sumar vottar ofurlítið
fyrir skynsamlegri umhyggju
fyrir börnum þessa bæjar, þann
tíma, sem þau eru ekki í skóla.
Er hér þó aðeins vísir þess, sem
gera þarf, ef forðast skal götu-
skríl, sem nú þegar vottar fyrir.
En götuskríll barna má ekki og
þarf ekki að skapast hér. Ráðið
er að láta börnin hafa nóg að
sýsla við leik og starf á heppi-
legum stöðum, með eftirliti og
leiðsögn. Það þarf að binda þá
orku, sem brýzt út í götuólátum,
við eitthvað fegurra og hollara.
Leikvöllurinn var opnaður 11.
júlí. Þá 20 daga, sem eftir voru
af mánuðinum, voru til jafnaðar
um 40 börn flest á vellinum f
einu, en fram til 21. ágúst um
50 til jafnaðar flest. Tíð hefir
verið slæm, þess vegna oft fátt,
en í góðu veðri eru oftast 60—70.
Stöku sinnum hefir talan orðið
80 í einu. Nægja þá ekki leiktæk-
in, þótt allar rólur séu tvísettar,
margir á hverju salti og svo mörg
utan um sandkassann, sem lömb
þéttast við jötu. Er þá gripið til
ýmsra annara leikja. Auk þess
er unnið úr lituðu snæri. Er alls
búið að gera nokkuð á annað
hundrað svippubönd og nokkra
tugi af laglegum borðmottum.
Fleira smávegis er unnið. Þetta
eykur fjölbreytni og gleði. Börn-
in kaupa efnið fyrir nokkra aura.
Þeim er betur varið þannig en
fyrir sleikipinna.
Oddeyrarleikvöllurinn er slétt-
ur og harður grasflötur. Mun leit-
un á öðrum jafngóðum fyrir inn-
bæinn, en hans er þörf, því þessi
notast ekki nema fyrir útbæinn.
Ég vil nota tækifærið og minn-
ast á þær umbætur, sem þarf að
gera þarna, svo völlurinn komi
að tilætluðum notum næsta sum-
ar.
Það þarf að slá upp háum
skjólgarði úr bárujárni að norð-
an, og helzt ofurlítið suður með
að austan, til þess að fá hlé fyr-
ir sterku hafgolunni og norðaust-
an næðingunum. Norðurkantur
vallarins er 70 m. Suður af skjól-
girðingunni þarf svo regnþak á
parti.
Einnig þarf að endurbæta girð-
inguna allt í kring og sjá svo um,
að fólk geti komizt ferða sinna,
án þess að príla yfir hana. Það
er hlægilegt að auglýsa að leik»