Dagur - 30.08.1934, Blaðsíða 1
DAOUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jðhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. |úlí.
Afgreiðslan
•r hjá JÖNI Þ. ÞöE.
Norðurgötu3. Talslmi llí,
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII. ár. |
Akureyri 30. ágúst 1934.
Þorgrímur Haildórsson,
frá Hraunkoti í Aðaldal.
Dánarininning.
Einn af öðrum
ættmanna og vina
hníga og hverfa
í hulinn fjarska.
Sendi ég nú, frændi,
yfir fjöll og dali
klökkva kveðju
að kistu þinni.
Man ég ungan svein
íturfríðan
léttan í lundu
að leikjum una.
Bali og blómlaut
brostu við augum,
laufgróin brekka
og lyngvuö holt.
Rótfestist snemma
í rósamt hjarta
innileiki
til ættarsveitar.
Bundu blóðskylda
og bernsku-minni
þrautvígðan þráð
milli þín og hennar.
Æskudals allt
var þér innst í huga,
þótt hann ei þín
né þú hans nytir.
— Falla svo örlög
áður og síðan,
þótt heilir séu hugir
og hjörtu vörm,
Drengskap þú áttir
að drýgja og sigra
dags hvers önn
frá dögun að aftni,
svo að með sæmd
þú sæir borgið
konu og börnum,
er þig kveðja nú.
Þerri sumarblær
sóldagg'ir tára
trúfastrar konu
er tregar þig horfinn.
Birti himinsól
í hugum döprum
ungra sona
og aldins föður.
Ber ég fram þakkir
og bið í hljóði:
Vermi þína vini
og veg þér birti
logi hinn helgi,
er lýsir fyrir handan
landamæri
lífs og dauða.
Konráð Vilhjáknsson.
Eftirlitsnefnd.
Skipuð hefir verið fimm manna
nefnd til þess að líta eftir fjár-
hag ríkisins yfirleitt, m. a. fram-
leiðslu og sölu afurða, og meiri-
háttar viðskiptarekstri ríkis,
hlutafélaga og einstaklinga, með
það fyrir augum, að koma
sem skynsamlegustu skipulagi
á þetta allt með hagsmuni
almennings fyrir augum. Einn-
ig skal nefndin þá og í því
sambandi litast um eftir mögu-
leikum nýrra atvinnugreina.
Skýrslur skal nefndin geta heimt-
að af einstaklingum og félögum
um viðskipti þeirra öll, er henni
þurfa þykir.
í nefndinni eiga sæti: Héðinn
Valdimarsson, formaður, Emil
Jónsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, Jónas Jónsson, samvinnu-
skólastjóri, formaður Framsókn-
arflokksins, Steingrímur Stein-
þórsson, skólastjóri á Hólum og
Ásgeir G. Stefánsson, framkv.stj.,
Hafnarfirði.
Ný áfengislöggjöf.
Dómsmálaráðherrann, Hermann
Jónasson, hefir falið Þórði Eyj-
ólfssyni, prófessor, að undirbúa
nýja áfengislöggjöf í tilefni af
atkvæðagreiðslu þeirri um bann-
ið, er fram fór í fyrra.
Leynisaniningar
um laindvinniiiga.
Útvarpið hermir eftir blaði einu
í Norðurálfu, er það telur hafa
orð fyrir áreiðanleik, að leyni-
samningar um landvinninga hafi
verið gerðir milli Þýzkalands og
Yugo-Slavíu. Samkvæmt þeim
ætti eitt markmiðið að vera að
ná Triest undan ítölum. Ennfrem-
ur ætti Yugo-Slavía að verða at-
hvai'f austurrískra Nazista, er
landflótta urðu við Dollfussmorð-
ið og upphlaupin á eftir, og ætti
þá hugmynd Nazistanna að vera
að gera árás frá Yugo-Slavíu á
Vínarborg í haust, svo öfluga, að
sæmileg vissa væri fyrir því, að
borgin fengi eigi staðizt. — Ut-
anríkisráðherra Yugo-Slavíu
kveður þessar fregnir Eina mestu
lýgi. Hafi Yugo-Slavía alls enga
samúð með hinum austurrísku
Nazistum og hafi aldrei látið sér
neitt af þessu til hugar koma.
Snorri Sigfússon skólastjóri er
fimmtugur á morgun.
Bretar handteknir í Berlío.
Fjórir brezkir borgarar voru
teknir fastir í Berlín í fyrra-
kvöld, en látni lausir í gær fyrir
milligöngu brezka sendiherrans.
Hefir hann skýrt svo frá, að
þýzk stjórnarvöld telji þessa
menn meðlimi alþjóðanefndar, er
hafi það á stefnuskrá sinni að ná
kommúnistaforingjanum Thál-
mann úr fangelsi.
Talsmaður
japanska utanríkisráðuneytisins
kveður ósannan orðróminn um
það að Japan ætli sér að segja
upp Washington-flotamálasamn-
ingnum, er vera skal í gildi til
1936, verði honum ekki sagt upp
á þessu ári. — Samningur þessl
er milli Bandaríkjamanna, Breta
og Japana, þess efnis, að flota-
styrkur þeirra skuli til 1936 vera
í þessum hlutföllum: 5—5—3, í
þeirri röð, sem talið er hér að
framan.
(Japanar hafi 3 herskip gegn
hverjum 5 er hinir hafa).
Bandarikjastjórnin.
hefir skipað nefnd til þess að
reyna að koma á sættum í vefn-
aðariðjudeilunni, þar sem um er
að tefla verkfall 800,000 verka-
manna.
Óhlýðnibaráttu
Indverja lokið.
Willingdon lávarður, jarl
Bretakonungs og Indlandskeisara,
kveður nú tjaldið fallið fyrir
lokaþætti hinnar indversku ó-
Nýja-Bíóg
Föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 9,
Kínverski
ræningjaforinninn
Tal og hljommynd i 10 páttum.
Aðalhlutverkin leika:
Xils Asllicr og
liarbara Slanwyck
Mynd þessi er tekin eftir frægri
sögu eftir Grace Lering Stone »The
Bitter Tea ol General Yen«. —
Hún segir ástarsögu kínversks
ræningjaforingja og amerískrar
stúlku: Myndin er víða afar
skemmtileg og hrífandi. Hugð-
næmur er leikur hinna tveggja
elskenda og skilnaður. Myndin á
annars að sýna, að Austur- og
Vesturlandabúar eru svo gjöró-
líkir að lunderni, að þeir e>ga
ekki að blanda blóði saman.
hlýðnibaráttu. Kveðst hann eigi
svo mjög þakka þann endi að-
gerðumstjórnarinnar, sem brjóst-
greind meginþorra Indverja, er
hafi séð hvilík óvizka óhlýðnis-
baráttan hafi verið.
Flugmaðurinn Orierson
er nú loks kominn til lendingar á
Canadaströndum við fluglendingu
við Hudsonsflóa.
100 dra brauðgerðarhús.
i sumar eru liðin 100 ár frá
því að fyrsta brauðgerðarhús var
stofnsett á fslandi. Stofnandinn
var Daníel Bernhöft, ungur mað-
ur, er þá hafði nýlokið bakara-
prófi í Danmörku. Félagi hans
hét Heilmann. Afkomendur Bern-
höfts eru allmargir í Reykjavík,
og hefir ein grein afkomenda
hans haldið áfram iðn forföður-
ins fram á þenna dag. En 100
ára afmælis bakaraiðnarinnar
hérlendis minnast með hátíða-
höldum og í félagi, Bakarameist-
arafélag Reykjavíkur og Bakara-
sveinafélag íslands.
Kvenfélagið zlðunm í Hrafnagils-
hreppi heldur danssamkomu í sam-
komuhúsi hreppsins laugardaginn 8.
september n. k. Hefst skemmtunin kl.
9 e. m. — Allur ágóði af samkomunni
rennur í sjúkrasjóð félagsins. — Góð
músik.