Dagur - 01.09.1934, Blaðsíða 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlf.
Afgreiðslan
M hjá JONI Þ. ÞOE,
Norðurgötuö. Talslmi 111,
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
-•••••• •
XVII, ár. |
Akureyri 1. september 1934.
Merkur maður sjötugur.
Þorleifur Jónsson, fyrrverandi
alþingismaður á Hólum í Horna-
firði, varð sjötugur 21. f. m.
Hann var fyrst kosinn alþing-
ismaður 1908 af Austur-Skaftfell-
ingum og hefir siðan óslitið setið
á þingi til 1933, eða í 25 ár, fyrir
sama kjördæmið. Lengur gaf
hann ekki kost á sér til þing-
mennsku, og var þá elzti sonur
hans kjörinn þingfulltrúi fyrir
Austur-Skaftafellssýslu í stað
föður síns.
Þorleifur hefir gegnt margvís-
legum störfum fyrir sveit sína
og sýslu. Svo mikils trausts naut
hann meðal flokksmanna sinna á
þingi, að honum var um langt
skeið falin formennska Fram-
sóknarflokksins. Víðsýni og
frjálslyndi einkenndu öll þing-
störf hans frá því fyrsta til hins
síðasta.
Núverandi formaður Fram-
sóknarflokksins, Jónas Jónsson,
Frá kjötverðlagsnefnd.
Kjötverðlagsnefnd átti fund
með sér í gær og ákvað þar, að
verðjöfnunargjald á öllu sauð-
fjárkjöti skuli vera 6 aurar á
hvert kg. Ennfremur var ákveð-
iö heildsöluverðið á öllum verð-
lagssvæðum, og er það frá kr.
1.30 til kr. 1.40 fyrir kg. Á verð-
lagssvæðinu hér verður það kr.
1.30, nema á Akureyri kr. 1.35.
ÚTVARPIÐ.
Laugardaginn 1. sept.: K1 20 Hljóm-
leikar. Kl. 20.30 Fréttir. Kl. 21.00
Erindi. Kl. 21.30 Karlakór.
Sunnudaginn 2. sept.: Messa í Dóm-
kirkjunni: Sr. Friðrik Hallgrímsson.
Kl. 15 Miðdegishljómleikar. Kl. 18.45
Barnatími, Sr. Friðrik Hallgrímsson.
Kl. 19.25 Grammofóntónleikar. Kl.
21.00 dr. Gunnl. Claessen: Erindi.
Kl. 21.30 Danslög.
Mánudaginn 3. sept.: Kl. 20 Útvarps-
tónleikar: Alþýðulög'. Kl. 20.30
Fréttir. Kl. 21.00 Vilhjálmur Þ.
Gíslason: Erindi. Kl. 21.30 Daníel
Þorkelsson: Einsöngur. Síðan
grammofóntónleikar. —
Alcureyrarlcvrkja. Messað á morgun
sunnud. 2. sept. kl. 2 e. h.
Hjálpræðishcrinn heldur samkomu
kl. 8.30 á sunnudagskvöldið. B. Skaar
frá Noregi talar. Útisamkoma kl. 7.30,
ef veður leyfir.
minnist Þorleifs á 70 ára afmæli
hans meðal annars á þessa leið í
Nýja dagblaðinu:
»Þegar litið er yfir hina löngu
og giftusamlegu stjórnmálastarf-
semi Þorleifs Jónssonar, kemur í
ljós, að hann hefir aldrei brugð-
izt stefnu sinni, kjósendum, sam-
herjum eða héraði, og kjósendur
hafa aldrei brugðizt honum. Það
er öruggt samband orsaka og af-
leiðinga. Gæfa og gengi Þorleifs
Jónssonar er ekki tilviljun, ekki
dráttur í tombólu eða happdrætti
þjóðmálalífsins. Gifta hans er
bein afleiðing af manndómi hans
og drengskap. Aldarfjórðungs-
starf hans á Alþingi er lifandi
sönnun þess, að landsmálabarátta
á fslandi er enn, hvað sem ókunn-
ugir segja, bezt rekin og með
mestri farsæld fyrir land og
þjóð, ef eiginhagsmunabarátta og
persónulegir duttlungar eru látn-
ir hvíla utan vígvallarins«.
Herðir að Pjóðverjum.
Þýzka stjórnih hefir lagt bann
við innflutningi á tóbaki frá öll-
um löndum er þeir hafa eigi sam-
ninga við um yfirfærslu gjaldeyr-
is. Og við Búlgaríu skifta þeir
m. a. á tóbaki og þýzkri fram-
leiðslu. ------
í fyrradag hélt dr. Schacht
ræðu um fjárhagsástandið í
Þýzkalandi og var ræðunni beint
til lánardrottna Þjóðverja. Lagði
hann til, að Þjóðv. yrði veittur
gjaldfrestur um nokkurn ár, því
aö með hverjum mánuði færi hag-
ur þýzka ríkisins versnandi, svo
að brátt yrði gersamlega ókleift
að fullnægja skuldaskilmálum, ef
eftir væri gengið. Bað hann allar
þjóðir, er til skulda telja hjá
Þjóðverjum, að sýna nú göfug-
lyndi, enda myndi ella viðskifta-
lífi Norðurálfu í koll koma stór-
fengleg jafnvægisröskun, ef Þjóð-
verjar yrðu gjaldþrota. Eftir ræð-
una féllu þýzk verðbréf stórkost-
lega í kauphöll Lundúna.
Hitler hefir mælt svo fyrir, að
eigi skuli taka í vinnu fólk, yngra
en 25 ára, fyrr en fullnægt sé
vinnuþörfum allra, er eldri séu.
Undantekningar eru þó frá þessu
um þá menn, er dyggilegast hafa
þjónað »foringjanum« og málstað
hans undanfarin ár.
Eigi virðist nefnd þeirri, er
getið var um í síðasta blaði, geta
tekizt að koma á sættum í baðm-
ullarvinnudeilunum í Bandaríkj-
unum. Hafa leiðtogar verka-
manna skipað þeim að vera við-
búnir að leggja niður alla .vinnu
í baðmullarverksmiðjunum kl. 11
í kvöld.
Verði af þessu verkfalli, nær
það til 400.000 verkamanna í
baðmullarverksmiðjunum einum,
og til nálega jafn margra í alls-
konar fatnaðarverksmiðjum, er
úr baðmullardúkum vinna, svo að
alls nær verkfallið til um 800.000
verkamanna, verði af því. Er
þetta eitt gífurlegasta verkfall, er
sögur fara af.
Amerískir flugmenn
í Reykjavík.
í gær kom til Reykjavíkur dr.
Richard Light(?), amerískur
maður, ásamt félaga sínum.
Höfðu þeir flogið á 7 stundum
frá Angmasalik á Grænlandi og
haft mótvind alla leið. Tíu daga
höfðu þeir verið frá borginni
New Haven.* Höfðu þeir stanzað
á Labrador og á Grænlandi. Báð-
ir eru þeir félagar frá Yale, há-
skólanum nafnkunna. Kvað dr.
Light þetta skemmtiflug ein-
göngu.
Stórkostlegt verkfall
í Wales ?
170,000 kolanámumenn í Wa-
les hafa tilkynnt verkfall í októ-
ber, verði eigi gengið að kröfu
þeirra um launahækkun. Telja
þeir — og mun eigi ranghermi —
að þeir búi nú við verri kjör en
nokkur önnur stétt í Englandi.
Loks hefir regn fallið í Eng-
landi svo um munar, að því er
útvarpið hermir. Var hellirigning
um Suður-England og í Lundún-
um í fyrrinótt, svo að sæmilegt
vatn kom í ár og lækjarfarvegi,
er r.ð mestu eða öllu voru þurrir
orðnir. í gærmorgun var þó upp-
stytta komin og veður kalt.
* New Haven er í Connacticut ríki á
austurströnd Bandaríkja norðan-
verðri, og hgíir 160,000 ibúa.
flví.gengur síldin í torfum?
Árni Friðriksson fiskifræðing-
ur hefir leitazt við að svara þess-
ari spurningu. Hefir hann í sum-
ar gert rannsóknir á síldarátu.
Kveður hann svo að oröi við
»Nýja dagblaðið«, urn átuna: »í
lok júlímánaðar er hún allstaðar
mjög jöfn, en undanfarin ár hef-
ir hún verið mjög misjöfn, þ. e. a.
s. mismunandi mikil á ýmsum
stöðum. Mér virðist rétt að á-
lykta, að þegar síldarátan sé jöfn,
sé síldin miklu dreifðari, en gangi
ekki í stórum torfum, og því
verra að fá mikla veiði í herpi-
nætur. Er þetta að því er ég bezt
veit fyrsta tilraunin til þess að
skýra það, að síldin gengur
stundum í torfum en stundum
ekki.
Þegar kom fram í ágústmánuð,
breyttist þetta. Átan fer að étast
upp á ýmsum stöðum og þéttast
á öðrum. En þá fer síldin líka að
ganga í stórum torfum og afli að
aukast. Dæmi til hins sama eru
frá ágústmánuði 1931.
— — — Þá hefi ég einnig
gert mælingu á sjávarhita fyrir
norðan land, frá yfirborði til
botns, eða niður á 250 metra
dýpi. Er ljóst af þeim mælingum,
að fyrir öllu Vesturlandi og Norð-
urlandi fellur Golfstraumur, en
viö Langanes brýzt hann austur
um mjótt hlið milli Pólstraums-
ins að norðan og landsins að
sunnan. Á þessum miklu strauma-
mótum þjappast síldin saman í
torfur og virðist hin mikla veiði
á þessum stöðum stafa af þvk.
Köttur gerir aðvart
um eldsvoða.
í fyrrinótt kom upp eldur í
Hafnarfiröi, kviknaði í heyhlöðu.
Kona, að nafni Sigríður Sigurð-
ardóttir, varð fyrst manna'elds-
ins vör, á þann hátt, að kött-
ur hennar vakti hana með mjálmi
og linnti ekki látum, fyrr en hún
fór á fætur til eftirgrennslunar.
Sá hún þá reyk mikinn úr hlöð-
unni og geröi vart við eldinn. .
Til Rcykjavíkur fór í morgun Bryn-
jólfur Sveinsson, menntaskólakennari
sér til heilsubótar. Ennfremur Árni
læknir Guðmundsson. Verður hann
fjarverandi i viku, og gegnir Stein-
grímur læknir Matthíasson sjúklingum
hans á meðan. ... .,4