Dagur - 08.09.1934, Qupperneq 2
282
DAGUR
103. tbl.
Rógsiðja ihaldsins.
Aðalmálgagn íhaldsfloklcsins í
Reykjavík hefir lagt sig mikið
eftir því að bera róg á milli
bænda og verkamanna, síðan í-
haldið tapaði í kosningunum í
vor. Mbl. reynir að hræða bænd-
ur á sósíalistum og sósíalista á
bændum. En landsmenn eru ekki
búnir að gleyma því, með hve
miklum fjálgleik íhaldsmenn töl-
uðu um sameiningu stéttanna á
undan kosningunum í vor, og
kunna því að meta rógsstarfið
eftir verðleikum. Þeir vita, að
það er af engu öðru sprottið en
öfund út af því, að andstæðing-
arnir í báðum umbótaflokkunum
báru gæfu til að verða íhaldinu
yfirsterkara og sameinast gegn
því. Þess vegna halda bændur og
verkamenn áfram að vinna í sam-
einingu að velferðarmálum þjóð-
arinnar og láta íhaldsróginn ein'
og vind um eyrun þjóta.
Bændur eru ekki búnir að
gleyma þeim kveðjum, sem þeir
fyrr og síðar hafa fengið frá í-
haldsblöðunum. Þeir hafa verið
nefndir »þreklaus bændalýður«,
»mennirnir með mosann í skegg-
inu« og öðru þvílíku, til þess að
sýna fyrirlitningu íhaldsbrodd-
anna á bændastéttinni. Þá hefir
sá sónn nokkrum sinnum heyrzt
í blöðum íhaldsins, að bændur
væru ómagar á Reykjavík og
jafnvel hefir verið kveðið svo
fast að orði, að landbúnaður ætti
að leggjast niður, og að þeir, sem
þann atvinnuveg hafa stutt, ættu
að vera látnir sæta ábyrgð fyrir
þann ósóma. Það kemur því ærið
spaugilega fyrir, þegar íhalds-
broddamir í Reykjavík þykjast
vera að leiðbeina bændum og
kenna þeim og fræða um það, að
þeir megi ekki verzla í samvinnu-
félögum eða viðhafa nokkra
skipulagningu á atvinnurekstri
sínum. öll sín viðskiptamál eigi
þeir að leggja í hendur kaup-
manna. Kaupmennirnir eigi að
vera bændanna forsjá og forsorg-
un.
Það er nú svo að sjá sem í-
haldsblöðin séu heldur að tapa
trúnni á það, að þau geti spillt
fyrir samvinnu bænda og verka-
manna. Þau hafa því tekið það
ráð að beina rógskrifum sínum í
nýjan farveg og leggja nú megin-
áherzluna á það að reyna að
vekja deilur og sundrung milli
samvinnufélaganna í nágrenni
Reykjavíkur annarsvegar og
samvinnufélaganna í fjarlægari
héruðum hinsvegar. Kemur þessi
rógsiðja fram í sambandi við
skipulagningu kjötsölunnar. —
Stefnt er að því að telja Slátur-
félagi Suðurlands og Kaupfélagi
Borgfirðinga trú um að hlutur
þeirra sé mjög fyrir borð borinn
til ágóða fyrir þau félög, sem eru
í Sambandinu. En í ákafanum og
óðagotinu gleymir íhaldið því, að
það eru meðal annars fulltrúar
frá Sláturfélagi Suðurlands og
Kaupfélagi Borgfirðinga, sem
hafa átt þátt í því, að undirbúa
löggjöf þá, sem sett hefir verið
um þetta efni. Munu þeir full-
trúar hafa haft fullt svo gott vit
á að sjá hag félaga sinna borgið,
eins og málgögn íhaldsins.
Þáð verður því að teljast von-
laust fyrir íhaldið, að nokkur á-
rangur verði af þessari síðustu
tilraun þess til sundrungar með-
al samvinnufélaganna.
SlysniM.G.
Hann hefir valið tvo óhaifa
rannsöknardQítiara.
Fyrrv. dómsmálaráðherra,
Magnús Guðmundsson, fól Garð-
ari Þorsteinssyni að rannsaka
mál Einars M. Einarssonar.
Framkvæmdi hann rannsóknina
þannig, að hæstiréttur varð að
vísa málinu frá, vegna þess að
gengið var nálega fram hjá öllu,
er sannað gæti sýknun eða sekt
hins ákærða. Var þessi atburður
einsdæmi í íslenzkri réttarfars-
sögu og olli báðum, M. G. og G.
Þ., varanlegri hneisu.
Nú hefir orðið opinbert annað
atvik frá ráðherratíð M. G., sem
er engu betra en hið fyrrnefnda.
M. G. fól Arnljóti Jónssyni að
rannsaka áfengislagabrot eitt í
Þingvallasveit. En hvergi var
þess getið í erindisbréfinu að
’Arnljóti væri falið að kveða upp
clóm í málinu.
Þrátt fyrir þetta lét Arnljótur
sér ekki nægja að framkvæma
einhverja rannsókn, heldur kvað
hann einnig upp dóm í málinu.
Hæstiréttur hefir nú ómerkt
þenna dóm vikadrengs Magnúsar
Guðmundssonar, þar sem réttur-
inn telur hann uppkveðinn í al-
gerðu heimildarleysi.
Fyrir þessar aðgerðir A. J.,
sem hæstiréttur varð að ómerkja,
hefir hann fengið ríflega greiðslu
úr ríkissjóði.
Verður ekki annað sagt en
Magn. Guðm. hafi reynzt slysinn
í vali rannsóknardómara ekki síð-
ur en í öðru.
Nú hefir Hermann Jónasson
dómsmálaráðherra skipaö Jóna-
tan Hallvarðsson, fulltrúa, setu-
dómara í þessu máli, þar sem all-
ar aðgerðir Arnljóts Jónssonar í
því hafa verið úrskurðaðar ó-
merkar af hæstarétti.
Alþingi er stefnt saman 1. október.
Skemmtisamkoma hefst i þinghúsinu
að Þverá á Staðarbyggð kl. 8 V2 í
kvöld Söngfélagið Geysir syngur.
Ungmennafélag Dalvílcur efnir til í-
þróttamóts á sunnudaginn á Dalvík.
Verður aðallega knattspyma milli fé-
lagsins og íþróttafélagsins >Þór« á
Akureyi’arbær.
Tilkynning.
Samkvæmt beiðni bæjargjaldkera Akureyrar, hefir í dag verið
úrskurðað lögtak á öll óinnheimt gjöld til bæjarsjóðs Akureyrar
frá síðastliðnu ári og svo ólokin gjöld hafnarsjóðs og rafveitu
Akureyrar, og má lögtak fara fram án frekari fyrirvara, að viku
liðinni hér frá.
Skrifstofu Ákureyrarkaupstaðar, 6. september 1934.
SIG. EGGERZ.
GLERV0RUR
Nýkontið íeikna mlkið úrval.
af ýimsuiti glervörum, svo sem:
VatníSglös, 15 gerðin Verð, á fæti frá kr. 0 35
— án fótar - - 0.15
Víilnsflöskur, í 4 litum. Verð - - 1.40
SkAlasett og lausar skálar.
Glevdiskar, — margar stærðir og litir.
Mjólkurkönnur, — — — —
Kokndiskar, — — — —
Sifrónupressnr, — — — —
Osta- og smjörkúpur, margar st. og teg.
Ker og konnur, m. bakka, — - -
Blómsfurvasar, margar stærðir og tegundir.
Margt Ilelra falleggt og þó afaa* ódýrt.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeildin.
Efliailleraðar vörur
eru nú komnar enn að nýju og eru nú ódýrari
en áður — þar á meðal:
POTTAR, KÖNNUR, KATLAR, FÖTUR,
SKÁLAR, FÖT, AUSUR, SPAÐAR,
SALTKER, SÁPU- SAND- og
SÓDAKER, BALAR, VATNS-
FÖT og KÖNNUR.
Kaupfélag Eyfirðinga,
Járn- og glervörudeild.
Akureyri og auk þess verður keppí í Fréttaritstjóri:
útiíþróttum. Sigfús Halldórs frá Höfnum.
. m f ■ • • .1. — ■-■■■— , — --—... -■—
Ritstjóri Ingimar Eydal, ^ Prentsmiðja Odds Björnssonar.