Dagur - 20.09.1934, Page 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XVIL ár. 1
; Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
g-reiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 20. september 1934.
• ■•• •••••••••••
-•-• •
-•• • •-• •
108. tbl.
I • • • • • «
Hvenær opið cr.
Opinberar stolnanir, bankar o. s. Irv.
Pósthúsið virka daga kl. 10—6, helgi-
daga kl. 10—11.
Landssíminn milli Reykjavíkur, Akur-
eyrar og Hafnarfjarðar opinn alla
daga, allan sólarhringinn, einnig
bœjarsímar þessara bæja.
Skrifstofa bæjarfógeta kl. 10—12 og 1
—3 alla virka daga, nema laugar-
daga kl. 10—12.
Skrifstofa héraðslæknis Brekkugötu 11,
kl. 1—2 alla virka daga.
Skrifstofa bæjarstjóra kl. 10—12 og
1%—5 alla virka daga.
Skrifstofa bæjargjaldkera kl. 1—5 alla
virka daga nema á mánud. kl. 1—7.
Landsbankinn kl. 10%—12 og 1%—3,
alla virka daga.
Útvegsbankinn kl. 10%—12 og kl. 1—
2%, alla virka daga.
Búnaðarbankinn kl. 2—4 frá yi0—i/#,
1—3 frá i/g—yi0 alla virka daga.
Allir bankar loka kl. 1 á laugardag.
Sparisjóður Ak. kl. 3-4 alla virka daga.
Afgreiðsla >Eimskips« kl. 9—12 og 1—
6 alla virka daga.
Afgreiðsla >Sameinaða« kl. 9—12 og
1—7 alla virka daga.
Afgreiðsla >Bergenske« kl. 9—12 og 1
•—6 alla virka daga.
Skrifstofur K. E. A. kl. 9—12 og 1—6
alla virka daga.
Heimsóknartími sjúkrahúsa.
Sjúkrahús Akureyrar kl. 3—4 alla
virka daga og kl. 2—4 á helgidögum.
Kristneshæli kl. 12%—2 virka daga,
3%—5 á helgidögum. Á þessum tím-
um eru fastar bílferðir milli Akur-
eyrar og Kristneshælis.
Hjálp Rauða Krossins, Brekkugötu 11.
Ókeypis. Fyrir mæður og börn: alla
þriðjudaga kl. 2—3. Fyrir berkla-
veika: alla föstudaga kl. 3—4.
Viðtalstími lækna.
Steingr. Matthíasson, héraðslæknir, kl.
1—2 alla virka daga í Brekkugötu
11. Á sunnudögum heima kl. 1—2.
Valdemar Steffensen kl. 10—12 og 4—
6 virka daga og 10—12 helgidaga.
Pétur Jónsson kl. 11—12 og 5—6 virka
daga og kl. 1—2 helgidaga.
Árni Guðmundsson, kl. 2—4 alla virka
daga, l%-2% helgid. á 2. lofti K. E. A.
Helgi Skúlason augnlæknir kl. 10—12
og 6—7 virka daga og kl. 1—2 helgi-
daga á 2. lofti K. E. A.
Friðjón Jensson tannlæknir kl. 10—12
1-3 og 4-6 virka daga, kl. 10-12 helgid.
Engilbert Guðmundsson tannlæknir, kl.
10—11 og 6—6 virka daga á 2. loftl
K. E. A.
Nýja-BSó föstudagskvöld kl. 9.
Hinn 15. þ. m. andaðist í Reykja-
vík Salóme Hólmfríður Pálsdóttir, ekkja
Kristins sál. Ketilssonar. Bjuggu þau
hjón lengi búi sínu á ýmsum bæjum
í Saurbæjarbreppi í Eyjafirði, voru
jafnan fátæk en komust þó af. Synir
þeirra fjórir hafa allir orðið nafnkunnir
menn, en þeir eru þessir:
Hallgrímur, forstjóri Samb. ísl, sam-
vinnufélaga, d. 30. jan. 1923. Sig-
urður, núverandi forstjóri Sís. Jakob,
skólastjóri á Eiðum. Aðalsteinn, fram-
kvæmdarstjóri Sfs,
Hjá hinum síðasttalda syni sínum
andaðist Hólmfríður (svo var hún jafn-
an kölluð) nær áttræð að aldri.
Hólmfríður sál. var mesta gæðakona
á alla lund, síglöð og blíðlynd bezta
móðir, og var elskuð og virt af öllum,
er nokkur kynni höfðu af henni. Munu
hinir mörgu Eyfirðingar, er þekktu
hana, minnast hennar með viðkvæm-
um söknuði.
Samg'öng'ur við Aust-
urland, landvcg frá
Akureyri.
má telja að hafi hafizt, er bíll
Gunnars Jónssonar, A 151, með
Gunnari Eiríkssyni bílstjóra, kom
til Eskifjarðar á föstudagskvöldið
var, kl. 7, fyrsti bíll með póst og
farþega þessa leið og alveg hjálp-
arlaust, eftir að búið var að
breyta veginum í Möðrudalsfjall-
garðinum vestari, þar sem sami
bíll stanzaði vikuna áður. — Far-
þegar fram og aftur voru Gunn-
ar Austfjörð, Jón Arnesen og
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Kom bíllinn heilu og höldnu aft-
ur í fyrrakvöld með marga far-
þega. —
ÚTVARPIÐ.
Fimmtud. 20. sept.: Kl. 19.25 Dagskrá
næstu viku. KÍ. 20 Útvarpstónleikar.
Kl. 21 Hallgr. Jónsson: Erindi. Kl.
21.30 Davína. Sigurðsson: Einsöngur.
Föstud. 21. sept.: Kl. 20 Grammófón-
tónleikar. Kl. 21 Theódór Friðriks-
son: Upplestur. Síðan grammófón-
tónleikar.
Engin kjöthækkun.
í síðasta tölubl. »Verkamanns-
ins« er svo skýrt frá, að kjötverð
hafi »hækkað stórkostlega«. —
Þetta má dagsatt heita, að öðru
leyti en því, að það er með öllu
tilhæfulaust. Kjötverðið hefir í
sumar hlýtt sömu lögum og áður,
verðið í sumar og haust hið sama
og í fyrra á sama tíma, og farið
jafnt fallandi, eins og þá. Er
þetta því magur nagli í æsinga-
súpugerð »Verkamannsins«.
Gestir i bænum eru meðal annarra
frú Sólveig Kjerúlf á Hafursá, kona
Gunnars Jónssonar lögregluþjóns og
sr. Jakob Kristinsson, skólastjóri á
Eiðum. Komu þau með A 151 á þriðju-
dagskvöld. Séra Jakob er á leið til
jarðarfarar móður sinnar, frú Hólm-
fríðar Pálsdóttur í Reykjavík.
PÓSTAR, vikuna 20.—27. sept.:
KOMA: 22. Drangey frá Sauðárkróki.
24. Dr. Alexandrine frá Reykjavík.
25. Lagarfoss að austan frá útl. 28.
FARA: 21. Gullfoss til Rvíkur, hrað-
ferð. 24. Drangey til Grímseyjar og
Raufarhafnar. 26. Dr. Alexandrine
til Reykjavíkur.
PÓSTBÍLAFERÐIR: Til Akureyrw:
Frá Rvík á miðvikud.; Kópaskeri á
fimmtud.; Húsavík á föstud.; Dalvík
á laugard.
Frá Akureyri: Til Kópaskers á mið-
vikud.; Rvíkur á fimmtud.; Húsavík-
ur á föstud.;, Dalvíkur á laugard.
Afvinnuiiefiidiii,
sú er kosin var að frumkvæði
Snorra Sigfússonar, skólastjóra, í
sumar, situr á rökstólum, en verk-
efni hennar er að gera tillögur
til bæjarstjórnar um varanlegar
endurbætur á atvinnulífi í bæn-
um- í nefndinni eru sjö menn:
Snorri Sigfússon, Helgi Pálsson,
Otto Tulinius, Tómas Björnsson,
Sveinbjörn Jónsson, ólafur Magn-
ússon og Þorsteinn Þorsteinsson.
Mesfa bru i heimi.
er nú í smíðum yfir San Fran-
ciscoflóann, milli samnefndrar
borgar og Oakland. Mestu brýr
heimsins aðrar verða smásmíði,
bornar saman við þessa. Hún
verður 11 kílómetra löng, ber tvö
þilför, og svo breið, að á efra
þilfari verða sex skeiðbrautir fyr-
ir farþegabíla, en á neðra þilfari
þrjár skeiðbrautir fyrir farmbíla,
auk tveggja sporbrauta fyrir raf-
magnsknúða vagna, er ganga
Nýja-Bíó
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9.
„Paprika"
LSöngvamynd í 9 páttum.
Aðalhlutverkin leika :
| Franziska Gaal
og Paul Horbiger.
Mynd þessi er áreiðanlega ein
allra skemtilegasta gamanmynd
sem lengi hefir sést hér. Söng-
varnir í henni eru töfrandi og
fjörugir, með beztu einkennum
hinnar sérkennilegu ungversku
sönglistar, sem á sér unnendur
hvar sem er í heiminum og
Ieikur hinnar fögru ungversku
leikkonu, Franzisku Gaal, heillar
alla. »Paprika« hennar kemur
öllum í gott skap.
milli San Francisco og Oakland-
Áætlaður kostnaður við þetta
jötunvirki er 71.400.000 dalir eða
rúmar '317 milljónir króna, mið-
að við núverandi gengi- En þess-
ari gífurlegu upphæð verður ekki
snarað út úr ríkissjóði Califomíu.
Brúin á að borga sig sjálf með
umferðar og gasolíutollum og er
gert ráð fyrir að RFC (Recon-
struction Finance Corporation),
er leggur fram féð, hafi fengið
höfuðstólinn endurgreiddan með
5% vöxtum árið 1954. En atvinnu
veitir brúarsmíðið þúsundum
manna.
Dýralækiiafél. Islands
var stofnað snemma í þessum
mánuði. Starfa nú sex dýralækn-
ar á landinu; Hannes Jónsson og
Bragi Steingrímsson í Reykjavík,
Sigurður Hlíðar hér norðanlands,
Ásgeir ólafsson í Borgarnesi, Jón
Pálsson við ölfusárbrú og Ásgeir
Einarsson í Austfirðingafjórð-
ungi. — f stjórn voru Kosnir Sig-
E. Hlíðar, form., Hannes Jónsson
og Jón Pálsson, en í sérstaka
framkvæmdanefnd félagsins
Hannes Jónsson, Ásgeir ólafsson
og Jón Pálsson.
Fjölritað blað gefur félagið út
til að ræða um sérmál dýralækna.
Ritstjóri verður Ásgeir ólafsson.
Hannes Jónsson og Sig. E.
Hlíðar voru kosnir til að semja
frumvarp um ráðstafanir gegn
næmum alidýrasjúkdómum,