Dagur - 25.09.1934, Blaðsíða 1
DAOUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga'
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
'n-.o.
iYwz-ih'r.K-
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 25. september 1934.
-e o e o 9 e e- g he--*- -
| 110. tbl.
Ægilegur fellibylur
geysaði á fimmtud. yfir Japan,
svo að slíkur hefir eigi komið í
30 ár. — Manntjón og eigna er
ógurlegt.
Verst hafa orðið úti, að því er
virðist, héruðin kringum eystri
hluta innhafsins japanska, milli
megineyjarinnar Hondo og Shi-
koku. Auðvitað urðu slysfarirnar
hroðalegastar í stórborgunum
norðan við innhafið, Osaka,
mestu borg Japan (2,400,000 í-
búar), Kyoto, hinni fornu höfuð-
borg (755,000 íbúar) og Kobe
(755,000 íb.). — Sérstaklega
skelfilegt varð mantjónið fyrir þá
sök, að skólar voru nýsettir og
sópuðust þeir sumstaðar á burt
með öllu. 1 Osaka einni er talið að
47 skólahús hafi gjöreyðilagzt og
a. m. k. 200 börn lamizt til bana,
en aragrúi særzt. í Kyoto er mælt
að samskonar tölur séu aðeins lít-
ið eitt lægri.
fKjötverðlagsnefnd
tilkynnti á laugardaginn, að kjöt-
verð 1. flokks skyldi frá 23. þ. m.
vera á fyrsta verðlagssvæði kr.
1.10 fyrir kílóið, nema í Reykja-
vík, Hafnarfirði og Vestmanna-
eyjum kr. 1.15. — Á öðru verð-
lagssvæði kr. 1.05, á þriðja kr.
1.10, á fjórða kr. 1.05, nema á
Akureyri og Siglufirði kr. 1.10.
Á cimmta verðlagssvæði kr. 1.00.
inars flokks kjöt sé 10 aurum
la a en fyrsta flokks, kílóið, og
þriðja flokks kjöt 20 aurum
lægra.
Kvennaskóinn á LaugaHi
Á sambandsfundi norðlenzkra
kvenna, sem hér var haldinn ný-
lega og þar sem mættir voru 15
fulltrúar, auk frk. Halldóru
Bjarnadóttur, sem er stofnandi
sambandsins og heiðursfélagi
þess, var kvennaskólamál Eyfirð-
inga efst á döfinni. Sjö manna
nefnd situr á rökstólum og annast
framkvæmdir. Eru 3 kosnir af
sýslunefnd en 4 konur af Kvenna-
sambandi Fram-Eyjafjarðar.
Daginn eftir fundarslit fóru sam-
bandskonur fram í Laugaland, að
líta yfir staðinn og var þeim
fagnað hið bezta af húsbændum.
Vert er að geta þess, að þetta
Ofan á ósköp hvirfilbylsins
bættist svo ílóðalda, er í Osaka,
Hobe og öðrum hafnarborgum
skolaði tugum og hundruðum
húsa í sjóinn, en í öllum stórborg-
nm gaus auðvitað upp eldur hér
og þar. f Kyoto er talið að 1000
hús a. m. k. hafi gjöreyðilagzt.
Síðustu fregnir herma að ógur-
legt tjón hafi orðið að hvirfil-
bylnum allt norðuð að höfuðborg-
inni Tokyo. Meðal annars feykti
veðrið 10 járnbrautarlestum af
teinnuum og limlestust við það
hundruð manna.
Símar eru sundur tættir á stóru
svæði og vatnsleiðslurnar til Osa-
ka stórskemmdar, svo að tilfinn-
anlegur vatnsskortur er í borg-
inni.
Talið er að um 1500 manns
hafi lamizt til bana og fimm þús-
undir slasast. En eignatjónið er
metið til 450 milljóna króna.
sumar var hið þriðja, samfleytt,
er Samband norðkj&kra kvenna
kostar garðyrkjukonu á sam-
bandssvæðið til leiðbeiningar, og
er slíkt þjóðþrifaverk.
Fréttamolar
Á bæjarstjórnarfundi á Siglu-
firði, fyrra mánudag, var sam-
þykkt, með nálega öllum atkvæð-
um, að skora á kjötyerðlagsnefnd,
að sjá svo um, að kjötverð á
Siglufirði og Akureyri verði ekki
hærra en annarsstaðar á verð-
lagssvæðinu.
* * *
Heilbrigðismálastjórnin tilkynnir,
að berklasérfróður læknir verði
sendur til Raufarhafnar hið allra
fyrsta. Er það samkvæmt ósk
héraðslæknisins þar, er virðist
berklar hafa gert ískyggilega
mikið vart við sig á Raufarhöfn.
* * *
Sú nýlunda hefir skeð á ísa-
firði, að meirihluti bæjarstjórnar
hefir synjað bæjarstjóranum,
þingmanni Norður-ísafjarðar-
sýslu, um leyfi til þess að setja
fyrir sig bæjarstjóra, Jón Fann-
berg, meðan þing stendur yfir.
* * #
Stjórnarráðið tilkynnir, að
Halldóri Steinsen lækni hafi ver-
ið veitt lausn í náð frá embætti
sínu frá 1. október í haust.
□ Kún 50349268 - I rl.-.
Stórkostleot námaslys
varð í Wales á laugardaginn, af
sprengingu. Voru alls um 400
manns að vinnu í námunni, er
sprengingin varð. Um kvöldið
voru 200 komnir upp, nokkrir
voru dauðir, að því er vitað var,
en hinir eru í bráðri lífshættu —
séu þeir á lífi — því eldur geysar
víða um námugöngin, svo að
fyrst um sinn er ómögulegt að
komast upp né niður.
»Alþýðumaðurinn« kemst í síð-
asta tölublaði að þeirri niður-
stöðu, að það muni »flestra mál,
að sjaldan hafi aumari bæjar-
stjórn setið á Akureyri en þessi
8 mánaða gamla, og aldrei aum-
ari bæjarstjóri«.
Þessi ályktun er auðvitað full-
komið öfugmæli. Um hana mundu
fáir fylkja sér utan »Alþm.«, og
að vísu ekki það fjölmenni í
þessum bæ, að mál þeirra sé
»flestra mál«, — ekki þangað f
veg- Menn hafa ekki átt því að
venjast að nýkosnar bæjarstjórn-
ir, eða nefndir af þeim skipaðar,
inntu sérstakleg kraftaverk af
höndum fyrstu mánuðina. Þó hef-
ir núverandi bæjarstjórn þegar
sýnt nokkurn lit á því að taka til
í þeirri óreiðu, er hennar beið við
bæjarstjórnar- og bæjarstjóra-
skiptin.
Svo vanstilltur sem »Alþm« er
í garð núverandi bæjarstjórnar,
þá tekur þó út yfir, er minnzt er
á hinn nýja bæjarstjóra. Þetta er
í annað skipti, sem »Alþm.« ræðst
fautalega á hann. Fyrri árásin
var gerð áður en hann hafði feng-
ið færi á að kynna sig, og mætti
það kannske afsökun teljast, ef
kennd væri fljótfærni fremur en
kurteisi. En nú, er Akureyrarbú-
ar hafa nokkuð kynnzt hinum
nýja bæjarstjóra, mun þá ýkju-
laust flesta furða á áfellisdómi
yfir honum, því að það er víst,
að hann hefir virzt hverjum
manni vel og kurteislega, er við
hann hafa átt erindi og staðfest
traust þeirra, er mest með honum
vinna, á gætni hans og samvizku-
semi í embætti.
Enn furðulegastur mun þó
flestura þykja hinn ítrekaði sam-
Lik O. C. Tliora/rensens lyfsala, eldri,
kora hingað með »Dronning Alexand-
rine« í gær. Oddfellowar hér, stúku-
bræður hans tóku á móti skipinu og
báru hinn framliðna af skipsfjöl.
Slátrun sauðfjár hófst í gær í slát-
urhúsi K. E. A. á Oddeyrartanga. Gert
er ráð fyrir að slátrað verði 23 þús.
fjár í haust í húsinu og að sláturtíð
verði úti um eða litlu fyrir miðjan
október. Venjulega verður slátrað um
1200 á dag, en þó stundum nokkuð þar
fram yfir.
anburður, er »Alþm.« þarf að á-
fellast núverandi bæjarstjóra, —
»... og aldrei aumari bæjar-
stjóri«. — Nú hefir hér aðeins
verið einn bæjarstjóri áður. Án
þess að leggja á þenna saman-
burðarveg, er »Alþm.« auðsjáan-
lega virðist svo öruggur sínum
málstað, má óhætt fullyrða, að al-
menningur á Akureyri hefir ekki
síðan um bæjarstjórnarkosning-
ar, svo séð verði í fljótu bragði,
fengið nokkur ný gögn í hendur,
er geri það einu sinni líklegt, að
hann myndi vilja skipta-
Gilsárbrn,
á Jökuldal, við Skjöldólfsstaði,
var vígð fyrra sunnudag kl. 2
síðd. að viðstöddu fjölmenni, þar
á meðal sýslumönnum Norður- og
Suður-Múlasýslna, Ara Jónssyni
og Magnúsi Gíslasyni og vega-
málastjóra Geir Zoéga. — Er nú
aðeins eftir að ljúka við brú á
Víðidalsá við Ármótasel, svo að
allar nauðsynlegustu brýr á Aust-
urlandsvegi séu fullgerðar.
í tilefni af höfnum samgöngum
railli Austfjarða og Norðurlands,
var samsæti haldið á Seyðisfirði
á þriðjud- að viðstöddum sýslum.,
vegamálast j óra, landssímastj óra
og Hildimundi Björnssýni, verk-
stjóra á Fjarðarheiði.
Landabrugg i Flóa.
Snemma í síðustu viku fór
Björn Bl. Jónsson, eftirlitsmaður,
að Vatnsholti í Villingaholts-
hreppi í Flóa, þar sem bóndinn,
Einar Víglundur Vigfússon, varð
sekur fundinn um að hafa áfengi
í gerjun í tveimur ílátum, 50 lítra
í öðru en 15 í hinu. Játaði hann
að hafa ætlað að brugga sér
brennivín í göngurnar.