Dagur - 29.09.1934, Side 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
• ••••« •
XVII. ár. |
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 29. september 1934.
112. tbl.
Inntaka Sovét-Rússlands
í þjóðabandalagið
fór fram í Seneve fyrra þriðjudag
og er talin til merkustu viðburða.
Hermir útvarpsfregn svo:
taskó inn á Akureyr
verður §eftur þriðjudag'inn 2. október,
klukkan 2 §íðdegi§.
rour
Frá Vopnafirði.
Vernon Bartlett, enskur blaða-
maöur, sem er einn hinna mörgu
Uaðamanna, sem viðstaddur er
fundi Þjóðabandalagsins í Genf,
talaði úr símaklefa í samkomu-
húsi Þjóðabandalagsins, og var
ræðu hans útvarpað í brezka út-
varpið. úr símaklefanum sá hann
og heyrði allt það sem var að
gerast, er Sovét-Rússland var
tekið inn í Þjóðabandalagið.
Skýrði hann frá þessu jafnharð-
an; en þess á milli var útvarpað
því sem fram fór í sjálfum sam-
komusalnum, svo hlustendum
gafst kostur á að heyra ræður
þær, sem fluttar voru, og viðtök-
ur þær, sem þær fengu. M. a.
mælti Vernon Bartlett á þessa
leið: »í dag eru 160 milljónir
manna að koma fram úr þeirri
einangrun, sem þær hafa lifað í
í 17 ár, til þess að gera hina
miklu tilraun um það, hvort auð-
skipulagsríki og kommúnistiskt
ríki geta starfað saman og unnið
hlið við hlið að stjórnmálum
heimsins. Árum saman hefi ég
ekki séð annan eins fjölda«. sagði
Vernon Bartlett ennfremur, »eins
og nú er saman kominn úti fyrir
þessu húsi, og það er gaman að
minnast á það, að þessi staður er
aðeins 3—400 metra frá húsinu
þar sem Lenin bjó einu sinni og
beint á móti þessu samkomuhúsi,
hinu megin við götuna, er gilda-
skálinn, þar sem Lenin var vanur
að hitta vini sína, til þess að ræða
um og undirbúa byltinguna, sem
hefir haft svo miklar afleiðingar
fyrir þjóð hans, og m. a. hefir
haldið henni í 17 ár utan vébanda
Þj óðabandalagsins.
Hér í Sviss hefir verið mikil
æsing í mönnum út af inngöngu
Rússlands í Þjóðabandalagið. —
Orðrómur hefir jafnvel gengið
um það, að stjórn Svisslands
mundi leggja fram fyrirvaraá-
lyktun og áskilja sér rétt til þess,
að ganga úr Þjóðabandalaginu,
vegna þess að Sovét-Rússland
hefði verið tekið í það«.
(Frh.).
Verkfallimi mikla
er nú lokið í Bandaríkjunum fyr-
ir miðlun forsetans. Samkomulag
varð um 3ja manna nefnd skip-
aða af ríkisstjórn, enda fái nefnd-
in gerðardómsvald, er báðir að-
iljar hlýði. Komizt nefndin að
þeirri niðurstöðu, að kaup baðm-
ullarverkamanna skuli hækkað,
skal sú hækkun gilda frá 1. okt.
1934, en komizt nefndin að þeirri
niðurstöðu að kaupið skuli lækk-
að, skal sú lækkun ganga í gildi
1. okt. 1935.
Sápugerðin Sjöfn
er nú að flytja í ný híbýli og líð-
ur óðum að því að hin nýja verk-
smiðja geti tekið til fullrar starf-
semi í hinni nýju vistarveru, þar
sem gærurotunin var áður.
Yfirleitt hafa menn verið mjög
vel ánægðir með framleiðslu
»Sjafnar«. En nú er verið að
koma fyrir nýtízku vélum, svo að
fært verður að framleiða ekki
einungis hinar fjölbreyttustu teg-
undir sápu, heldur einnig hinar
alvönduðustu, sem kostur er á, ut-
anlands sem innan. Má gera ráð
fyrir að þessi breyting verði kom-
in á eftir hálfan mánuð eða svo.
Bæjarsfjóri ísafjarð-
ar segir af sér.
Jón Auðunn Jónsson, bæjar-
stjóri ísafjarðar og þingm. N.-
ísafjarðarsýslu, hefir ritað bæj-
arstjórn ísafjarðar uppsögn em-
bættis síns frá 1. okt. n. k., með
því að meiri hluti bæjarstjórnar
hafði neitað honum um að mega
setja Jón Fannberg, fulltrúa, til
þess að gegna bæjarstjóraembætt-
inu um þingtímann. Kveðst hann
hafa falið Fannberg að annast
bæjarstjórastarfið og skila af sér
í hendur löglegum bæjarstjóra. —
Samþykkti bæjarstjórn þessa ráð-
stöfun alla og fól Jóni Fannberg
að gegna embættinu til áramóta.
Asgeir Sigurðsson,
aðalræðismaður Breta á íslandi,
varð sjötugur í gær. Verzlunina
Edinborg stofnaði hann í Reykja-
vík 1895 og hefir stýrt henni síð-
an. Ræðismaður Breta í Rvík
varð hann 1907, en aðalræðismað-
ur þeirra á íslandi 1928 og mun
það nálega einsdæmi, að Bretar
setji erlendan mann til þess að
gegna slíkri stöðu. — Ásgeir Sig-
urðsson er bróðursonur Jóns
Hjaltalíns, skólastjóra Möðru-
vallaskóla, og fékk þar þá undir-
stöðumenntun, er honum hefir
orðið svo notadrjúg.
Sigurðut Snotrason,
gjaldkeri bankaútibúsins í Vest-
mannaeyjum hefir nú af hæsta-
rétti verið sekur fundinn um að
hafa dregið sér fé, falsað bók-
færslu, o. s. frv., og metur réttur-
inn sekt hans til 24 mánaða fang-
elsis í stað 18, er undirréttur
hafði dæmt, en að öðru leyti á ó-
haggaður að standa dómur undir-
réttar, t. d. um endurgreiðslu kr.
60,433, greiðslu alls málskostnað-
ar o. s. frv.
200 hestwr voru nýlega fluttir frá
SÍS í Reykjavík til Þýzkalands. Voru
þeir á aldrinum 4—9 vetra, meðalald-
ur 6—7 vetra.
er útvarpinu símað, að þar sé sí-
felld norðaustanátt og rigning á
hverjum degi, enda sé nú orðið
svo blautt að upphleyptir vegir
séu sumstaðar í kafi; sumstaðar
hafi hús fallið inn af vatnsbólgu
og muni enginn maður þar því-
líkar rigningar. — Hey eru all-
víða úti. Uppskera garðávaxta
hefir verið góð og lítið borið á
kartöflusýki.
Ú (fluíiiing§baiin
á sildamijöli.
26. þ. m. öðluðust gildi lög, sem
banna útflutning síldarmjöls þess,
sem til er í landinu, nema með
sérstöku leyfi landbúnaðarráð-
herra, með því að sýnt þykir að
fóðurskortur sé yfirvofandi í vet-
ur.
Frá Hvammstanya er útvarpinu sím-
að, að slátrað myndi þar 14—15000
fjár í haust, en það er % meira en í
fyrra. Þykir sýnt að menn treysta þar,
sem iíklega allstaðar hér nyrðra, illa
heyjum sínum til ásetnings.
Kristniboðsfélag kvenna efnir til
fjársöfnunar mánud. 1. okt. n. k. Verða
seld merki á götunum og opnuð útsala
kl. 4 í húsi félagsins »Zíon«. Félagið
væntir þess að allir velunnarar kristi-
legrar starfsemi styðji að því, að þessi
fjársöfnun takist vel. Allur ágóðinn
rennur í hússjóð félagsins.
Snom-i Sigfússon skólastjóri kom
heim um miðja vikuna frá Reykjavík.