Dagur - 06.10.1934, Page 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimihtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
KVII
• ••
. ár. |
Akureyri 6. október 1934.
Frá Alþingi.
,M«rrow €a$tle“
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÖR.
NorðurgötuS. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
115. tbl.
í fyrradag' var settur fundur
í sameinuðu þingi kl. 13. Áður
gengið væri til dagskrár, bað 10.
landskj. þm., Þorsteinn Briem,
sér hljóðs og óskaði úrskurð for-
seta um skipun í efri deild undir
atkvæði. Þessari ósk tjáði Sjálf-
stæðisflokkurinn sig fylgjandi.
Tók forseti ekki ósk þessa til
greina. —
Þá var gengið til nefndarkosn-
inga og voru þessir kosnir meðal
annars:
/ fjárveitinganefnd: Jónas
Jónsson, Pétur Ottesen, Jónas
Guðmundsson, Jón Sigurðsson,
Bjarni Bjarnason, Þorsteinn Þor-
steinsson, Sigurður Einarsson,
Magnús Guðmundsson, Þorberg-
ur Þorleifsson.
Endurskoðunarmenn lands-
reikninga voru kosnir Hannes
Jónsson dýral., Magnús Jónsson
og Sigfús Sigurhjartarson.
Frá deildarfundum og nefnd-
arkosningum í efri deild heyrðist
ekki sökum truflana.
í gær var fundur í báðum
deildum. í efri deild bar Jón Auð-
unn Jónsson fram þingsál.till á
þá leið að e. d. skoraði á stjórn-
ina að safna skýrslum um hey-
afla bænda í sumar, sérstaklega
vestan-, norðan- og austanlands
og leggja hið fyrsta fyrir þing.
Ástand væri ægilegt í þessum
landshlutum. T. d. hefðu 12
bændur í N.-ísafjarðarsýslu feng-
ið samtals 100 hesta inn af þurr-
heyi. En till. þessi kæmi fram
með því að þm. teldi enga von
til þess að sala náist á þeim fén-
aði, er bændur verða að lóga í
Atvinmibætui*
Roosevelts.
í tilefní af ásökunum í garð Roose-
Velts forseta, um óhæfiiegt fjárbruðl,
gat forsetinn þess í útvarpsræðu, að
sú mannspilling sem fylgdi langvar-
andi atvinnuleysi væri ógurlegri en
svo að til nokkurra peninga yrði met-
in og væri því vel varið öliu fé, er
úr atvinnuleysinu dragi. Annars væri
Bandaríkjastjórn ekkert að gera annað
liaust vegna fóðurskorts, þar sem
innlendi markaðurinn þrengdist
vegna verðlags og vafalaust
þrengdist erlendur markaður
líka. Ennfremur fer till. fram á
að stjórnin fái sér upplýsingar
um verð á erlendu heyi hingað
fluttu og hagkvæmustu leiðir að
ná því.
Samskonar þingsál.till. báru
þeir fram í n. d. Sigurður Krist-
jánsson og Jón Pálmason.
Á fundi í n. d. var gengið til
kosninga í fastanefndir og voru
kosnir:
Fjárhagsnefnd: Sigfús Jóns-
son, ólafur Thors, Ásgeir Ás-
geirsson, Jakob Möller, Stefán
Jóh. Stefánsson.
Samg öngumálmiefnd: Gísli
Guðmundsson, Gísli Sveinsson,
Jónas Guðmundsson, Jón ólafs-
son, Bjarni Bjarnason.
Landbúnaðarnefnd: Bjarni Ás-
geirsson, Jón Pálmason, Héðinn
Vlddimarsson, Guðbrandur I's-
berg, Páll Zophoníasson.
Sjávarútvegsnefnd: Finnur
Jónsson, Jóhann Jósefsson, Berg-
ur Jónsson, Sigurður Kristjáns-
son, Páll Þorbjarnarson.
Iðnnefnd: Páll Zophoníasson,
Guðbrandur ísberg, Emil Jóns-
son, Jakob Möller, Bjarni Ás-
geirsson.
Menntamálanefnd: Ásgeir Ás-
geirsson, Pétur IJalldórsson,
Emil Jónsson, Gunnar Thorodd-
sen, Gísli Guðmundsson.
Allsherjamefnd: Héðinn Valdi-
marsson, Thor Thors, Bergur
Jónsson, Garðar Þorsteinsson,
Stefán Jóh. Stefánsson.
en jafnaðarmenn í Bretlandi hefðu
byrjað á 1909 og myndi víst enginn
í alvöru halda þvf fram, að það hefði
orðið Englandi til Ijóns. — Annars
kveðst Roosevelt vera fyllilega á sömu
skoðun og Abraham Lincoln um
það, að eitt helzta hlutverk hverrar
stjórnar væri að gera það fyrir hin
minni máttar samfélög í þjóðfélaginu,
sem þau gætu ekki gert sjálf, en ættu
rétt á.
Viðskiptamálaráðuneyti Banda-
ríkjanna hefir þegar gert ráð-
stafanir til þess, að eigi geti aft-
ur komið fyrir slíkt slys og á
»Morrow Castle«. Hefir það til-
kynnt skipseigendum, að eftir
þetta verði sjóforingi sendur í
hvert skip áður en það leggur úr
höfn, til þess að fullvissa sig um
það, að skipin hafi næg slökkvi-
og bj örgunartæki hvað sem að
höndum ber. 'En að þessu hefir
skoðun sú er fram hefir farið,
verið mjög ófullnægjandi, að því
er ráðuneytið telur.
Stjórnarskipti urðu nú í vik-
unni á Spáni og myndaði Lerroux
ráðuneyti, en hann er fulltrúi
hins íhaldssama kaþólsksinnaða
flokks.
Vinstri flokkarnir svöruðu
Lerroux-stjórninni með mótþróa
þegar í stað, og er svo komið,
samkvæmt útvarpsfregnum í
gærkvöldi, að allsherjarverkfall
er hafið um land allt. í Madrid
eru allar samgöngur tepptar,
nema fáeinir almenningsvagnar
ganga með vopnuðum vörðum.
Alvarlegar róstur hafa orðið í
Madrid og nokkrir drepnir. Svip-
að er að frétta úr öðrum borg-
um og landshlutum. Astúríuhérað
(strandlengja með Biscayaflóa)
hefir verið lýst í hernaðarástand
og mjög alvarlegar óeirðir eru
sagðar þar í borginni Oviedo.
Stjórnin kveðst þó hafa í öll-
um höndum við verkfallsmenn,
telur ekki þörf á að lýsa Madrid
í hernaðarástand, og hyggur sig
muni leiða róstur þessar til frið-
samlegra lykta. Vinstri flokkarn-
ir aftaka með öllu að þeir geti
eftir þetta átt nokkuð saman að
sælda við Zamorra forseta, er
svikið hafi hátíðlegt loforð um
að hafa ekkert um stjórnarmynd-
un saman við kaþólska flokkinn
að sælda.
Allsherjarþing ‘brezka verka-
mannaflokksins, er nú situr á
rökstólum hefir samþykkt yfir-
Japanar
ótrauðir.
Svo þykir heimsblöðunum um
þessar mundir og furða sig á því
hve opinskáir og djarfmæltir þeir
séu orðnir. Hefir hermálaráðu-
neyti Japana nýlega gefið út til-
kynningu, að fyrirhuguð aukning
vígbúnaðar sé nauðsynleg sökum
þess að Bandaríkin auki mjög
sinn her og líka sökum vígbúnað-
ar Sovét-Rússlands. Kemst her-
málaráðuneytið svo djarflega að
orði, að bæði þessi ríki hafi í
huga að hefja ófrið i Austur-
Asíu!
■ vændum?
lýsingu þess efnis, að það sam-
gleðjist spænskum verkamönnum,
er vilja rísa mót tilraunum til
íasistastjórnar á Spáni.
Síðasta útvarpsfregn um þessi
efni hermir að þing Katalóníu
hafi verið kallað saman og þyk-
ir sennilegt að það sé í tilefni af
þessum óeirðum og að Katalónía
hyggist að rífa sig algerlega
lausa frá Spáni og gerast full-
komlega sjálfstætt ríki. Verður
þá Barcelóna vafalítið höfuð-
borgin. í
Marsvin í Sker/afirði.
Á þriðjudagsmorguninn snemma
sást til marsvínavöðu á Skerja-
firði. Var róið út til vöðunnar og
tókst að reka 73 til dráps á land
og á grynningar. Fjöldi Reykvík-
inga og Hafnfirðinga sofnuðust
að til þess að horfa á aðfarimar.
Kvöldskemmtim Geysis, í Samkomu-
húsinu kl. 9 í kvöld verður bæði fjöl-
breytt og skemmtileg. Meðal annars
skemmta þar Davíð skáld Stefánsson
frá Fagraskógi, og Sigfús Halldórs
frá Höfnum, skólastjóri, les upp
draugakvæði, — í rökkri. Söngur
verður þar allskonar og dans á eftir.
Ársritið Hlín, málgagn og merkls-
beri norðlenzkra kvenna, um heimilis-
iðnað og önnur framfaramál, er nýút-
komið; aðdáanlega samið að efni, orð-
færi og útliti, í 8vo broti, 128 bls., auk
gefins merkilegs fylgirits, vefnaðarbók,
á góðum pappír, vel prentað, — verð
1 króna. . i
Akureyri 6. okt. 1934.
Vinw' hugrekkis, hreysti og dugnaðar.
IPíanókennslu byrja is aftur um lijai ikier.
— Sími 322. — Þorbförg Halldörs fra Höfnum.
Allsherjarverkfall á Spáni.
Ný bylfing