Dagur - 11.10.1934, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
-* « * « »
XVII. ár. |
Áfgreiðsían
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
® «■ í * ♦
«o «* ••••««-
Akureyri 11. október 1934.
Stórtíðindi á Frakklandi
Alexander konung'ur Yug’o-SIava og
Barthou utanríkisráðherra myrtir.
í fyrradag g-erðust eftirminni-
leg tíðindi í Marseilles, hinni
miklu og fögru hafnarborg Suð-
ur-Frakklands.
Alexander konungur í Yugo-
Slavíu var til Frakklands kom-
inn í opinbera heimsókn og sté á
land í Marseille. Tóku á móti
honum ýmsir fyrirmenn hins
frakkneska lýðveldis, undir for-
ystu Barthou utanríkisráðherra.
óku þeir konungur og Barthou
með fríðu föruneyti um borgina.
Allt í einu gall við skothríð úr
mannþyrpingunni á gangstéttinni.
Reið hvert skotið af á fætur
öðru. Sáu menn að Alexander
konungur hallaðist aftur á bak í
vagninum, og rann blóð úr munni
hans.
Ráðizt var nú að veganda, er
ætlaði þegar að ráða sjálfum sér
bana, en lögreglunni tókst að
hindra það. Þó brauzt hann úr
höndum hennar, á flótta, en var
þá skotinn til bana af lögregi-
unni.
Bæjarstjórnarfundur var hald-
inn á fimmtudaginn var og stóð
hann hvíldarlaust frá kl. 4 síðd.
til kl. 2 árd., enda var dagskrá
i 15 liðum og eigi skjótráðið
fram úr sumum málum.
Meðal annarra till. frá hafnar-
nefnd var samþykkt að bærinn
leiti samþykkis atvinnumálaráðu-
neytis til þess að fá forkaupsrétt
á lóðum dánarbús Ragnars ólafs-
sonar eða Sverris Ragnars, norð-
an Gránufélagsgötu á Oddeyrar-
tanga, vestur og norður á eign-
armörk Akureyrarbæjar og aust-
ur til sjávar, og ásamt öllum
sjávarréttindum. Er þessi lóð
metin samkvæmt fasteignamati
kr. 70.000.00 virði.
Bygginganefnd hafði m. a.
samþykkt að leyfa Tómasi
Björnssyni að byggja verzlunar-
hús á lóð sinni við Kaupvangs-
stræti og Skipagötu, með 10 og
13.70 m. hliðum að götu og 8 m.
skáa á horni, 10 m. breiðar álm-
urnar, steinsteypuhús, tvær hæð-
ir, kjallaralaust.
Ennfremur var K. E. A. leyft
Þá er að var gáð, var auðséð
að Alexander konungur myndi
eiga skammt ólifað. Voru læknar
kallaðir í skyndi, en er þeir komu
var aðeins lífsmark með konungi
og dó hann þar í höndum þeirra.
Auk konungs og Barthou höfðu
særzt 5 menn, en eigi alvarlega.
f fyrstu héldu menn að sár Bar-
thou væri lítils vert, aðeins á
handlegg, en við nánari athugun
kom í ljós, að hann hafði fengið
skot í kviðinn. Var hann svæfð-
ur, til þess að ná kúlunni, en lézt
í svæfingunni kl. 16.45 í fyrra-
dag. Var viðbúið að svo færi, er
hann var maður gamall, 72 ára
að aldri.
Morðinginn er 34 ára gamall
kaupmaður, borinn og barnfædd-
ur í borginni Zagreb í Yugo-
Slavíu.
Alexander konungur var fædd-
ur 1888, sonur Péturs konungs
Kara-Georgevitch (Svarta-Ge-
orgssonar) og kom til ríkis 1921.
að byggja tvær hæðir ofan á nr.
87 í Hafnarstræti (Jón Guð-
mann), úr járnbentri steinsteypu,
18x11 m. að grunnfleti og álmu
suðvestur úr suðurhorni aðal-
hússins, 9x7 metra.
Samþykkt var tillaga vega-
nefndar, að bæta við götuljósum
á 19 stöðum í bænum. — Leiga
fyrir hvern benzíntanka var á-
kveðin 300 kr. á ári. Sé þeim
leyft að vera kyrrum fyrst um
sinn, enda geti bærinn hvenær
sem er sagt þeim upp með 2 mán.
fyrirvara.
Þá lagði fátækranefnd það til,
m. a., að ráðinn skyldi fátækra-
fulltrúi frá 1. okt. næstkomandi.
Ennfremur að Jóhannes Jónas-
son bæjarfulltrúi skyldi ráðinn
til starfsins til áramóta fyrir kr.
100.00 á mánuði.
Um þessar till. urðu töluverð-
ar umræður. Á móti þeim voru
Axel Kristjánsson og Erlingur
Friðjónsson. Taldi Erlingur
þessa embættisstof nun óþarf a;
yrði hun til þess að létta skyldu-
störfum af fátækranefnd og auka
mannahald á skrifstofu bæjar-
stjóra.
Þeir sem með till. mæltu, aðal-
lega Jóh. Frímann og Vilhjálm-
ur Þór álitu starfið svo um-
fangsmikið, þar sem undir kr.
100.000 væri nú útbýtt á ári, að
ókleyft væri fátækranefnd með
þeirri aðstöðu sem hún hefði, að
ráðstafa þessum málum sam-
vizkusamlega og þótti tilfinnan-
legt skipulagsleysi hafa verið á
þessum málum undanfarið og því
nauðsynlegt að stofna embættið,
sem myndi spara bænum vel það
fé, er stofnunin kostaði, án þess
þó að íþyngja þeim, er fátækra-
hjálpar þyrftu að njóta.
Var samþ. fyrri hluti till., að
ráða fátækrafulltrúa, með 6 atkv.
gegn 2. Þá bar Axel Kristjánsson
fram br.till. við seinni hlutann,
ráðningatímann og fulltrúann, á
þá leið, að embættið skyldi stofn-
að 1. nóv.; skyldi því slegið upp,
með umsóknarfresti til 25. okt.
Þessi br.till. var felld með 4 at-
kvæðum gegn 2, en annars lét
Vilhjálmur Þór, bæjarstjóri o. fl.
í ljós þá skoðun, að þessu em-
bætti og öðrum bæri framvegis
að slá upp til umsóknar, en nú
dygði ekki að fresta kjöri full-
trúans, er búsaðdrættir stæðu
sem hæst, enda væri hér aðeins
um þriggja mán. ráðningu að
ræða. Siðan var samþ. síðarí
hluti till. nefndarinnar með 4
samliljóða atkv.
(Framh.).
Hörmulegt slys
varð í gærdag kl. 16, er mótor-
báturinn »Dan«, sem verið hefir
í. mjólkurflutningum fyrir K. E.
A. til Siglufjarðar í sumar,
strandaði norðvestan við Siglu-
nes, á leið frá Akureyri til Siglu-
fjarðar. Tveir menn voru á bátn-
um, formaður hans og eigandi
Herluf Hansen og Alfreð Sumar-
liðason, báðir héðan úr bæ.
Drukknaði Alfreð, en hinn komst
af. — Ekki hafði verið hvasst, en
dálítil kvika.
Tíðindamaður »Dags« á Siglu-
firði kveður bátinn hafa komið
og stefnt svo grunnt austan með
landi, þótt bjart væri, að fólk á
Siglunesi hafi þegar séð slys fyr-
ir, og hlaupið niður í fjöru.
Stóðst á endum að fólkið kom
ofan í fjoru og að báturinn
kenndi grunns og veltist í brot-
sjóum. Var þarna, í »Norðari-
Krók«, töluverður súgur að
venju, þótt gott væri annara. Al-
Föstudags-, laugardags- os
sunnudagskvöld kl. 9.
Ifið lifuoi ídag.
Tal- og hljómmynd 111 páttum.
Aðalhlutverkin leika:
Joan Grawford og
Cary Cooper.
«
Pessi hrífandi fagra ástarsaga er
iátin gerast í stríðinu. Hún lýsir
fyrir okkur karlmennsku, dreng-
skap og göfuglyndi, drengjanna
í stríðinu, sem var það Ijóst að
hver stundin var kannske sú síð-
asta í Iífi þeirra. Myndin er að-
dáanlega vel leikin og af útlend-
um blöðum talin með beztu
myndum.
Sunnudaginn kl. 5. illpýðusýning.
Niðursett verð.
Konungur ijönanna.
freð heitinn skolaðist þegar út og
var ómögulegt að ná til hans.
Skipstjórinn kveðst hafa sofið
niðri og ekkert vitað fyrr en bát-
urinn hjó. Var komið til hans
kaðli og komst hann ómeiddur f
land. Vitaskipið Hermóður og
vélbáturinn »Þór« frá ólafsfirði
fóru til hjálpar, en fengu ekkert
að gert, er báturinn lá uppi i
fjöru. Er hann talinn ónýtur, en
farmurinn náðist í nótt að mestu
Öskemmdur, annað en mjölvara,
er blotnaði meir eða minna. Lík
Alfreðs heitins rak á land í
morgun skammt frá strandstaðn-
um. . ,í
11 brnggami1 ieknir
liéi’ ái Akiifeyri.
Um það leyti sem »Dagur« er
að fara í prentun, er lögreglan á
ferð og flugi um bæinn, að hand-
taka bruggara. Mun rannsókn
hafa farið fram allvíða og ekki
færri en ellefu bruggarar verið
teknir í þessari fyrstu atrennu.
Verður sennilega færi á að skýra
nánar frá þessu síðar.
Geysir. Söngæfing og fundur í Skjald-
borg í kvöld kl. 8% stundvíslega.
Frá bæjarstjórn.
♦
\