Dagur - 30.10.1934, Qupperneq 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÖR.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII
♦' # «»--
. ár. j
Akureyri 30. október 1Q34,
| 125. tbl.
Stjórnarfrumvörp
lögð fyrir Alþingi.
Réttindi skipulags-
nefndar.
Frv. til laga um heimild handa
skipulagsnefnd atvinnumála til
þess að krefjast skýrslna o. fl.
Svohljóðandi greinargerð fylgir
ir frv.:
»Skipulagsnefnd atvinnumála
er ætlað að hafa með höndum
rannsókn á fjármálum ríkis og
þjóðar og á hverskonar atvinnu-
rekstri í landinu, framkvæmdum
og framleiðslu, svo og á sölu og
dreifingu afurða innanlands og
utan og verzlun með aðfluttar
vörur. Rannsókn þessi á jafnt að
ná til framkvæmda og atvinnu-
reksturs ríkis og bæja sem ein-
stakra manna og félagsfyrir-
tækja. Á grundvelli þessara rann-
sókna er nefndinni ætlað að koma
fram með rökstuddar tillögur og
nákvæmar áætlanir um aukinn
atvinnurekstur, framkvæmdir og
framleiðslu í landinu. Svo og um
það, hvernig komið verði á föstu
skipulagi á allan þjóðarbúskap-
inn.
Til þess að nefnd þessi geti á
fullnægjandi hátt unnið þetta
umfangsmiþla ætlunarverk ber
nauðsyn til að henni sé fengið
vald til þess að heimta skýrslur
af embættismönnum og einstök-
um mönnum, félögum og stofn-
unum, eftir því, sem henni þykir
þörf á. — Hinsvegar verður að
telja sjálfsagt að farið verði með
þær upplýsingar, sem nefndin
fær á þennan hátt, sem trúnaðar-
mák.
Bréf ti
(Pramh.).
Gasgrímurnar, sem stöðugt eru
framleiddar, duga heldur ekki,
því þó þær útiloki þær eiturgas-
tegundir, sem eyðileggja öndun-
arfærin og valda skjótum dauða,
eru þær (grímurnar) gagnslaus-
ar, er verjast skal ýmsum nýrri
eiturgastegundum, sem efnasmiðj-
ur framleiða og finna upp, og
sem sumar eru svo banvænar, að
þær sem ósýnilegar lofttegundir
eyðileggja allt líf samstundis án
innöndunar.
Það er sízt að undra, þó geig-
ur fari um þá, sem morðvopnin
þekkja, en engin ráð vita til að
verjast þeim. Því verður ráðið
helzt þetta, að birgja sig að
samskonar vopnum og aðrir. Þó
mun það mála sannast, að alþýða
manna vill ekkert annað frekar
en frið og algera afvopnun, því
flestum mun í fersku minni síð-
asta styrjöld og afleiðingar henn-
ar. Alþýðan á sannarlega við svo
marga óvini að etja, að hún
finnur enga hvöt til að skapa
fleiri, en það eru valdhafar og
auðmenn, sem óttast að aðrir
komi og steypi þeim af hásæti
sínu, og það eru fyrst og fremst
þeir, sem hæst kalla á her og her-
yaroir í hverju þjóðfélagi.
1 Dags.
Síðasta styrjöld var barnaleik-
ur samanborið við þá, sem næst
kemur. Um það eru allir sam-
mála. Hún stóð í rúm fjögur ár,
10 miljónir manna féllu á víg-
stöðvum; annað eins særðist og
auk þess dó fjöldi með ýmsu móti
beint og óbeint af hennar völdum.
Næsta styrjöld getur á tólf sinn-
um skemmri tíma, eða rúmum
fjórum mánuðum eyðilagt tólf
sinnum fleiri mannslíf, og hundr-
að sinnum meiri verðmæti-
Er svo ekki von að almenningur
fyllist geig við þá tilhugsun? I
nóvembermánuði 1918 voru vopn-
in lögð niður eftir fjögurra ára
stríð. Ellefu árum síðar, eða
1929, byrjar heimskreppan að
leggjast af þunga sínum á þjóð-
irnar, eins og mara á sofandi
mann.
Ýmsir vilja halda því fram, að
kreppan standi í engu sambandi
við síðasta stríð, en þegar öllu er
á botninn hvolft, kennir þó alltaf
grunns á gömlum væringum og
atburðum frá heimsstyrjöldinni,
þar sem þjóðirnar mætast til
þess að ræða og reyna að leysa
kreppumálin.
Kreppan er fyrst og fremst
viðskiftakreppa, með sífelldum
flutningi og fljótandi gengi góð-
íhaldsmenn hæla sér mikið fyr-
ir sparnað. Hér skulu nefnd
nokkur dæmi um sparnað Magn-
úsar Guðmundssonar, á meðan
hann var ráðherra.
M. G. réð Arnljót nokkurn
Jónsson, er var nýsloppinn frá
prófborðinu, til þess að rannsaka
svonefnt Gjábakkamál, og var
þar um að ræða brot á áfengis-
löggjöfinni. Arnljótur fram-
kvæmdi einhverja málaanyndar-
rannsókn og dæmdi síðan í mál-
inu, þó að hann hefði enga heim-
ild til þess. Hæstiréttur ómerkti
síðan dóminn.
Eftir að annar maður hefir
haft mál þetta til rannsóknar, er
það komið í ljós, að öll meðferð
Arnljóts á því hefir verið lítils
eða einskis virði. En fyrir þetta
ónýta verk voru honum greiddar
2260 kr.
Þá fól M. G. sama Arnljóti
rannsókn á kosningahneykslis-
máli í Vestur-Skaftafellssýslu.
Stóð mál þetta í sambandi við
fylgisöflun til handa Gísla Sveins-
syni þar í kjördæminu. Málið var
málmanna, skiftandi myntfæti og
af því leiðandi óreiðu í öllum við-
skiftamálum. Stríðsskuldirnar og
meðferð þeirra eiga öllu öðru
fremur sinn þátt í þessum atrið-
um, og fyrr en skaðabótakröfur
og stríðsskldir eru algerlega yfir-
strikaðar, kemst viðskiftalífið
varla í gott og fast horf. En að
því mun koma, og ef til vill ekki
svo langt eftir því að bíða. Það
er heldur engin vanþörf að úr
fari að rætast þeim vandræðum
sem kreppan hefir haft í för með
sér. öfugstreymi það, sem ríkt
hefir um síðastliðin fjögur ár, er
að færast mjög í rétt horf nú á
síðustu mánuðum, og vonandi að
í áttina miði betur.
Atvinnuleysi er almennt langt-
um minna á þessu ári en í fyrra,
og kaupgeta verður því meiri,
eftirspurn eftir vörum meiri og
verðið fer hækkandi.
Einstakar vörutegundir hafa
náð sama verði og fyrir krepp-
una, t. d- er verð á dönsku fleski
á enska markaðinum sem næst
það sama nú og 1929, og er því
ástæða fyrir íslenzka bændur að
gera sér vonir um að lambakjöt-
að vísu einfalt og umfangslítið,
en það mun þó hafa tekið upp
mikinn tíma fyrir Arnljóti, því
fyrir verkið voru honum greiddar
3478 krónur eða sem svarar
sæmilegum árstekjum fyrir eina
verkamannsfjölskyldu. Starf
þetta er þó ekki talið nema ör-
fárra daga verk fyrir ötulan og
skynugan lögfræðing.
Þá er ótalið hið svonefnda
»kollumál«, sem alræmt er orðið
og miðaði að því tvennu frá
hendi íhaldsins, að skemma
mannorð Hermanns Jónassonar
og tryggja íhaldinu kosningasig-
ur. Hvorttveggja mistókst og
varð íhaldsmönnum til varanlegr-
ar hneisu. En fyrir þjónustu sína
í þessu máli var Arnljóti Jóns-
syni greidd fjárhæð, er nam 2125
krónum.
Magnús Guðmundsson hefir
þannig greitt Arnljóti Jónssyni
nær 8000 kr. á 10 mánuðum,
mestmegnis fyrir ónýt og óþörf
störf, en M. G. mun hafa talið
mann þenna upprennandi stjömu
í íhaldsflokknum og því viljað
hlynna sem bezt að honum.
En ekki bendir þessi §000 kr.
greiðsla M. G. á sérstakan sparn-
aðaranda hjá íhaldinu, þegar það
sjálft eða gæðingar þess eiga í
hlut.
ið þeirra seljist frosið á enskum
markaði fyrir mun hærra verð en
verið hefir á undanförnum árum.
Já, vöruverö hækkar, en vöru-
magnið, sem keypt er og selt, er
tilfinnanlega takmarkað enn, og
verður á meðan þjóðirnar reyna
að halda vemdarhendi yfir eigin
atvinnugreinum með því að tak-
marka eða banna innflutning á
þeim vörum, sem framleiða má í
landinu sjálfu. Menn hrópa há-
stöfum á verzlunarfrelsi. Látum
menn kalla og hrópa, en þau
hróp, sem koma frá smáþjóðun-
um, bera bara engan árangur,
svo lengi sem stórþjóðirnar halda
uppi innflutningshöftum. Það eru
þær sem ákveða hraðann. Ég hefi
ekki séð annað barnalegra og
hlægilegra í þeim íslenzkum
blöðum, sem mér hafa borizt á
síðastliðnum tveim árum, en hróp
þeirra manna, sem heimta inn-
flutningshöftin afnumin, og segja
að þá muni kreppunni létta á Is-
landi. Aumingja menn, sem slíku
veifið úti á íslandi! Þið farið
skakkt að. Fyrst þið álítið ykkur
fjármálaspekinga meiri en ann-
arsstaðar finnast í heiminum, því