Dagur - 20.11.1934, Síða 1

Dagur - 20.11.1934, Síða 1
DAGUR kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga Gjalddagi fyrir 1. júlf. XVII . ár. | Afgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞÓR. Norðurgötu3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. • ♦ ♦ ♦ * • • • c • • • • <, Akureyri 20. nóvember 1934. 134, tbl. Sápu- Bg efnaoerðin Haustið 1932 juku Kaupfélag Eyfirðinga og Samband ísl. sam- vinnufélaga nýjum þætti í uppi- stöðu sinna stórfelldu fram- kvæmda, er komið var fótum und- ir »Sjöfn«, nýja verksmiðju til sápu og efnagerðar. Húsnæði fékk verksmiðjan í kjallara og skúr áföstum við smjörlíkisgerðina. Var gætilega á stað farið, en ötullega unnið, svo að verksmiðjan reyndist brátt samkeppnisfær við aðrar verk- sápu- og efnagerðar. í fyrrahaust, 1933, var ráðinn til verksmiðjunnar ungur sér- fræðingur þýzkur, pharmacoke- miker, Frank Hiiter. óx verk- smiðjunni nú svo fiskur um brygg, að henni nægði hvergi nærri það rúm, er hún hafði. Var því byggt yfir gærurotunina úti við »Gefjunni«, en gærurotunar- húsið tekið undir vélar og vinnu- stofur sápu- og efnagerðarinnar. Varð þá líka fyrst færi á því, að koma fullkomnu nýtizku sniði á framleiðsluna, er hæfilegt hús- rúm var fengið, og með því unnt að færa sér fullkomlega í nyt kunnáttu hins unga sérfræðings, er hefir þann feril að baki sér, sem gott vitni er_ um færni hans auk framleiðslunnar nú með hin- um nýju tækjum, þar sem verkið lofar meistarann. Frank Húter er ættaður úr Austur-Prússlandi, frá Königs- berg, og er að vísu borinn til iðn- ar sinnar, þar sem faðir hans er meðeigandi og stjórnandi mestu sápu- og efnagerðar Austur- Þýzkalands, verksmiðjunnar »L. Gamm und Sohn«, sem stofnuð er 1812. Húter yngri fór ungur að nema iðngrein sína, og fór að loknu sveinsprófi til Dresden, en síðar á tilsettum tíma á Iðnaðar-háskól- ann í Múnchen. Þar starfaði hann, auk bóknáms, að ilmbyrlun hjá hinu þekkta firma »H. Schwartz«, en að efnafræði á hinni frægu rannsóknarstofu Dr. Steiner og vann sérstaklega að fiturannsóknum. — Að loknu fullnaðarprófi, bóklegu og verk- legu, vistaðist herra Húter sem aðstoðarmaður forstjóra við »Danske Oliemöller og Sæbefa- brikker« í Valby, einu af út- hverfum Kaupmannahafnar. Er þetta eitt hið mesta fyrirtæki sinnar tegundar í Danmörku, og vann hr. Húter þar II/2 ár. Síðan gerðist hann staðgengill þýzks sápu- og efnagerðarmeistara í Málmhaugum í Svíþjóð, er hvarf heim til Þýzkalands um hríð, en eftir það fór hr. Húter heim til föður síns í Königsberg og vann sem meistari við verksmiðjur hans eitt ár, unz hann tók að sér forstöðu »Sjafnar«, og fluttist hingað haustið 1933. * * . * »Sjöfn« er nýlega flutt í hin nýju heimkynni, og framleiðslan þegar hafin með hinum nýju vél- um. — Mér dettur í hug að knýja á dyr, til þess að geta skýrt les- endum »Dags« frá því sem þarna fer fram. Ungur maður, bjartleitur opn- ar fyrir mér. Það er hr. Húter sjálfur. Hann býður mig velkom- inn, er hann veit erindið, fer með mér sjálfur um alla verksmiðj- una og skýrir hvað eina fyrir méi', en ella hefði mín saga það- an lítil orðið. ScSiuberts-myndin Óiullseíða hljfimkviðan. „Leise ileheu meine Licder". Myndin, sem ber nafn þessa gullfagra Schuberts-lags verður sýnd næstu kvöld í Nýja Bíó. Hún á að gefa skýringu á því hvers vegna Schubert lauk eigi við að semja H-moll Symfoniu sína. Mynd þessi er að öllu sam- anlögðu ein fegursta hljóm- og söngmynd, sem tekin hefir verið. Um myndina skrifar einn gagn- rýnandi meðal annars: »Ég minn- ist ekki að hafa séð kvikmynd er hafi snert mig dýpra en þessi — þar hjálpast allt að: meðferð efn- isins, leikurinn í aðalhlutverkun- um og hin yndislegu Schuberts- lög. Það stendur á sama, hvar gripið er niður í myndina, hvort heldur í skólastofunni þar sem Schubert er að kenna reikning, en fer að semja alkunna lagið um »rósina smá á heiði«, eða þegar hann fer að kenna ástmey sinni hrynjanda, með því að raula fyr- ir henni lagið »Leise flehen mei* Ég þarf þó ekki aðstoð hans til þess að taka eftir því, hve hátt er undir loft, þegar inn í verk- smiðjuna er komið, hve bjai't allstaðar er og þrifalegt, jafnt í verkstæðunum sem í baðherbergi með vatnssalerni, og í fataskipta- stofu starfsfólksins. Allstaðar er auðsætt hið heilbrigðilega sjónar- mið, allstaðar auðsær vottur um þýzka iðnaðarhirðu, en til meiri lofstírs á því sviði verður ekki jafnað. Er það vel, að verksmiðj- ur mesta samvinnufélagsskapar á íslandi eigi það lof skilið. * * * Loft er í verksmiðjunni, og fer sú starfsemi verksmiðjunnar, sem að sápugerðinni lýtur, fram bæði uppi og niðri, en þeirri starfsemi einni verður hér lýst að sinni. Til þess að byrja á upphafinu, eins og þar stendur, segir hr. Húter að við verðum fyrst að leita í hæðirnar til þess að athuga sápusuðuna, enda leggjum við tafarlaust á brattann. ne Lieder«, eða að lokum, þegar Schubert snýr vonsvikinn frá Czeles og staðnæmist fyrir fram- an Maríumyndina, en tónamir úr Ave Maria berast áheyrendunum. — Ailstaðar er sama snilldin og alistaðar vekur myndin jafn ríka samúð með hinum ógæfusama undrasnilling, Franz Schubert«. Hiutverk Schuberts í myndinni leikur Hans Jaray, Karoline greifadóttur leikur söngkonan Marta Eggerth ~g Emmi veðiáu- aradóttur leikur Louise Ulrich. Myndin er tekin undir stjórn Willy Forst, en Filharmoniska hljómsveitin í Wien, ásamt söng- sveitum Wienar-óperunnar og Wienar Sángerknaben aðstoða í myndinni. □ ISÚn 503411238 — I. Fösfudags-, laugardags- og sunnudagskvöid kl. 9. »Jennie Gerhardk Tal- og hljömmynd í 10 páttum- Aðalhlutverkin leika : Sylvia Sydney, Donald Oook, Mary Astor og H. B. Warner. Mynd þessi er tekin eftir hinni frægu og víðlesnu skáldsögu Theodore Dreisers. Segir hún frá ástaraunum ungrar og um- komulausrar stúlku. Það er Sylvia Sidney sem leikur hlutverk Jennie Gerhardt og þykir henni hafa tekizt það með ágætum. Nær leikurinn yfir 30 ára tímabil, en hún virðist eiga jafnvel heima í hlutverkinu hvort sem hún leikur 17 ára stúlku eða fimmtuga konu. Myndin er mjög áhrifarík og Iistavel leikin, Músík'kennsla Björgvin Guðmundsson. MESSAÐ verður í Akureyrarkirkju n. k. sunnudag (25. nóv.), kl, 5 e. h. Séra Benjamín Kristjánsson stígur í stólinn. Messað verður í Kaupangs- kirkju n. k. sunnudag (25. nóv.) k]. 12 á hádegi. Síra Friðrik J. Rafnar stígur í stólinn. NÆTURLÆKNAR: Föstudagsnótt Jón Steffensen. T a’^ardagsnótt: Pétur Jónsson. Geysir. Söngæfing í kvöld. Áríðandi að allir mæti, þar sem tekin verður ákvörðun um tvö mikilsvarðandi mál. Sigurður Bjarklind kaupfélagsstjóri á Húsavík og Ingólfur Bjarnwrson, fyrrverandi alþm. frá Fjósatungu hafa staddir verið í bænum undan- farna daga. — Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að jaiðarför mannsins míns, Sigtryggs Friðrikssonar frá Sellandi, fer fram þriðjudaginn 27. þ. m., að Illugastöðum kl. 12 á hádegi. Sigurbjörg Benediktsdóttir. (Framh. á 3. síðu). allskonar. Kennslustofa Hafnarstræti 83.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.