Dagur - 20.12.1934, Side 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.'
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XVII
. ár. j
Áfgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 20. desember 1934.
146. tbl.
Quðmundur G. Hagalfn :
Einn af postulunum.
Útgefandi Þorsteinn M.
Jónsson. Akureyri 1934.
Prentsmiðja Odds Björns-
sona/r.
í þessari síðustu bók Hagalíns
eru fjórar sögur, ein löng og
þrjár stuttar. Fyrsta og lengsta
sagan, sem bókin dregur nafnið
af, er sagan af Einari gamla Guð-
mundssyni, bláfátækum barna-
manni, — í eigin augum, sem hins
opinbera, lítilmagna í sinni sveit,
en sæmdai- og dánumanni allt
um það, óðalsbónda og refaskyttu
á Móeyri, ekki svo sem afsajörð
en notadrjúgu koti í Hamrafirði,
sem kynni að vera engan óraveg
frá henni Hamravík.
Það er í stuttum, óskeikulum
dráttum sagan af Einari gamla
og hans kvinnu Sigui’fljóð, hvern-
ig þau fara að því að hlýða því
boði Drottins, að aukast, marg-
faldast og uppfylla jörðina — og
það án þess að leita til hins opin-
bera — með því að koma á legg
tólf börnum af fimmtán, (»sex
af hvorri sortinni«), tilvonandi
forfeðrum mikilla kynkvísla, —
mennilegu dólpungsfólki, sem
flykkist jafnharðan á »plönin« og
togarana í Reykjavík, og geldur
þar keisaranum það sem keisar-
ans er, o. s. frv., og gleymir ekki
gömlu hjónunum heima, en er þó
bærilega stéttvíst og fært að sjá
um sig.
Frá þessu æfilanga skyldustriti,
tvinnuðu takmarkalausum starfs-
fögnuði hins frumstæða braut-
ryðjanda, er sagt afbrigðavel í
ótrúlega stuttu máli. — En til er
barátta þessari erfiðari, fyrir
frumrænar einstæðingssálir, bar-
áttan við »arkarkrummana«, hina
sj álf sánægðu, fyrirgefningar-
snauðu brennisteinsboðbera.
Meiri hluti sögunnar er um á-
tök Einars gamla, þessa sauð-
fróma öldungs, um sál sína, við
einn slíkan brennisteinsnámu-
mann, hinn nýja prest í sókninni.
— Hagalín hefir áður sýnt að
hann ann ekki þeirri manntegund
né virðir hana sérlega. En hann
er of mikill listamaður til þess
að láta það freista sín til þess að
svala sér á þessari tegund presta
og manna. Sagan öll, ekki sízt
einvígislýsing þeirra Einars og
prests, sem fullur hneykslunav
hefur sóknina með hroðalegri
vandlætingu yfir framhjátekt
gamla mannsins með »viðhald-
inu«, er allt í senn, »humorist-
isk« og átakanlega dramatísk,
með frábrigðum skemmtileg af-
lestrar.
Þessi saga er skrifuð af varm-
hjörtuðu skáldi, sem er mikill
listamaður á stíl. Hagalín hefir
orðið fyrir áhrifum af Hamsun,
eins og flestir yngri rithöfundar,
t.d’. Laxness,—svonefndur sé ann-
ar afbragðs listamaður, — en þó
ekki algerlega á sama hátt. Báðir
hafa skapað sér sjálfstæðan stíl.
Jafnvel þar sem still Hagalíns
minnir mest á Hamsun, er þó alls
ekki um stælingu að ræða, held-
ur hitt, að Hagalín er einnig
gæddur óvenju næmu eyra og ó-
svikulli endursköpunargáfu á úr-
dráttar-málvenjur frumstæðrar,
íslenzkrar alþýðu, sem Jón Thor-
oddsen leggur sjálfsagt fyrstur
íslenzkra höfunda eyrað við (sbr.
Hjálmar í Manni og konu), en
sem eru sameiginlegar frum-
stæðri, norrænni alþýðu,* og ber-
sýnilega afar líkar hér og í Nor-
egi, sem er þá heldur ekki stór-
furðulegt.
Einar gamli er samtíðarmaður
Kristrúnar og — eins og ég tók
fram áðan — ekki ýkjalangt frá
henni staddur hér á jörðu. En þó
tal þeirra virðist mörgum máske
í fljótu bragði nauðalíkt, þá er þó
töluverður mismunur á, sem stíl-
vissu Hagalíns ekki fatast að
halda aðskildum.
Hagalín er sami listamaðurinn
í næstu sögu »Steinninn«, sem
hann segir mállýzkulaust, Hann
* Og reyndar fleiri landa. Skyldi ekki
upprunans vera að leita í árþúsunda
gamalli ótrú á því að stæra sig af
meðlætinu, eða blátt áfram skýra
frá því opinberlega, af ótta við öf-
undsýki æðri máttarvalda, sbr. að
drepa högg undir borðið (líklega ný-
lega komið hingað frá Danmörku og
»to touch woodz (snerta tré) sér til
heilla, að enskum sið?
er svo innilega heima hjá sér,
svo hjartanlega á bandi óðals-
bóndans, postula uggvissra erfða-
kenninga, að hann dregur lesand-
ann með sér — jafnvel hinn van-
trúaða, líkt og sauðkind, er
spyrnir við öllum klaufum en
hlýtur þó að ganga að vilja þess,
sem ferðinni stýrir. Já, ætli ekki
það ? — *Það getur að vísu verið
hending, ef við slysi liggur, eða
slys hendir, jafnharðan -og brotið
er í bág við erfðakenningarnar og
blessunarskilyrði ættföðurins, en
—- ekki tjáir heldur að neita því,
að einkennileg er þá sú hending
í meira lagi. — Jú, við finnum
líka til þess, sem vantrúaðir erum
á hindurvitnin, unz hnúturinn er
leystur á frumlegan, en í rauninni
mjög eðlilegan hátt — framúr-
skarandi skemmtilega eðlilega —
svona ekki alveg ólíkt því, sem
Kolumbus heitinn fór með eggið.
Ég hirði ekki að fjölyrða meira
um þessa nýju bók Hagalíns.
Hinar sögurnar tvær »Við foss-
inn« og »Sætleiki syndarinnar«,
eru ágætar hvor á sína vísu og
»humor« og »dramatík« máske
öllu áþreifanlegri þar þeim, sem
ekki eru vel kunnugir höfundin-
um, — ef þeir finnast þá nokkrir
meðal þeirra er bækur lesa. Þetta
er nóg að segja: — Guðmundur
Gíslason Hagalín er skáld og mik-
ill íþróttamaður um list sína. En
hann er ekki einungis mikill í-
þróttamaður, hann er líka
skemmtilegur íþróttamaður í
beztu merkingu þess orðs, en það
tvennt fer því miður oft ekki
endilega saman.
S. H. f. H.
Guðmundur Matthíasson, prests í
Grímsey, lauk stúdentsprófi við M. A.
nú um helgina.
Nýja-Bíó BS
sýnir föstudag, laugardag ug
sunnudag kvikmyndina
Hefðarkona
heilan dag.
Tal- og hljómmynd í 10 þáttum,
Aðalhlutverkin leika:
May Robson,
Warren Wllliam,
fean Parker og
Quy Kobbee.
Þessi ljómandi skemmtilega
mynd segir frá eplasölukerl-
ingu í New York, sem
neyddist til að »gefa greif-
ann* í nokkra daga. Myndin
er gerð af þeirri snilld, aö
kvikmyndastjórinn Lubitsch
telur hana einhverja beztu
mynd, s'em hann hafi séð og
öll helztu blöð heimsborganna
hafa keppst við að hrósa henni.
Ný bók eftir Sigurð Eggerz bæjai’-
fógeta er komin fyrir fáum dögum á
bókamarkaðinn í Reykjavík og kvað
iiafa þegar hlotið mikið lof þar. Er bók
þessi að mestu ljóð. Kemur hún hingað
í bókabúðirnar rétt fyrir jólin.
Varðskip kemur hingað frá Reykja-
vík 22. eða 23. þ. m.
GEYSIR: ENGIN söngæfing í kvöld.
Jólaaamkomur í Zion. — Á Þorláks-
messu, 23. des. kl. 4 e. h.: Sunnudaga-
skólinn. öll böm eru velkomin. — Á
aðfangadagskvöld kl. 5Vz- Aftansöngur.
Á jóladag kl. 8% e. h. Almenn sam-
koma. Á annan jóladag kl. 4 e. li. Al-
menn samkoma. Allir eru hjartanlega
velkomnir á allar þessar samkomur.
A i:G LÝSIXG.
Aðfaranótt miðvikudagsins 19. þ. m., var brotist inn í geymslu-
skúr, sem bærinn á, og þaðan stolið nokkru af sprengiefni, dyna-
mit-patrónum, hvellhettum og kveikiþræði. — Par sem stór-
kostleg hætta getur stafað af því, ef sprengiefnið er í höndum
unglinga, eða annara, sem ekki kunna með það að fara, eru
bæjarbúar alvarlega áminntir um að segja lögreglunni tafarlaust
til, ef þeir hafa einhvern grun um það, hvar nefnt sprengiefni
er niður komið.
Lögreglustjórinn á Akureyri, 20. desember 1934.
S. Eggerz. Settur.
Endurgjöf MARCONI-viðtækjanna er annáluð.