Dagur - 12.03.1936, Blaðsíða 1

Dagur - 12.03.1936, Blaðsíða 1
D AGUR íemur út á hverjtim fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Ámi Jóhanng- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júli. lAfgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞÓR. Norðurgötu3. Talsími 112- Uppsögn, bundin við áxa- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XVIV. ár Akureyri 12. marz 1936. 11. tbl. Að utao. ítalir telja sig hafa unnið mikinn sigur á norðurvígstöðvunum í Abes- siníu og að heilar herfylkingar hafi gefizt upp fyrir jaeim. Abessiníu- menn neita ekki sigri ítala á þess- um slóðum, en telja undanhald sitt einkum gert til þess að ná betri hernaðaraðstöðu. ítalir hafa enn á ný gert loftárás á brezku Rauða kross stöðina í Abessiníu og gjöreyðilagt hana. Mælast þessar aðfarir hið versta fyrir og hafa Bretar mótmælt þeim harðlega. Viðsjár fara vaxandi milli ítala annarsvegar og Frakka og Eng- lendinga hinsvegar. Hefir Musso- lini heimtað skýringu á vígbúnaði Breta í Miðjarðarhafi, en þeir svara fáu til. í Englandi eru nú miklar ráðagerðir um aukinn vígbúnað og rætt um þær af miklum krafti. Fyrir nokkru gerðu Frakkar og Rússar með sér svonefndan vin- áttusamning«. Þetta þoldi Hitler ekki; flutti hann ræðu í ríkisþing- inu, þar sem hann tilkynnti, að hér eftir hefði Þýzkaland að engu hinn svonefnda »Locarnosáttmála«, þar sem Frakkar hefðu gert samning við Rússa. Jafnframt tilkynnti Hit- ler, að þýzka þingið væri rofið, og að nýjar kosningar færu fram 29. marz næstk. Á laugardaginn var gerðust s'íðan þau tíðindi, að þýzkar hersveitir voru sendar inn í Rínarhéruðin, og tóku þær sér þar bólfestu. Var nu Frökkum nóg boðið og töldu, eins og rétt er, þessar aðfarir skýlaust brot á fyrrnefndum Locarnosátt- mála. Hafa síðan verið stöðugar ráðstefnur i París út af þessu til- tæki Hitlers. Hafa Frakkar kært yf- ir þessu framferði til Þjóðabanda- lagsins. Auk þessa hafa Frakkar sent her til austurlandamæranna. Fyrir fáunr dögum sást þýzk flugvél á sveimi innan landamæra Frakklands. Þegar það vitnaðist, fóru franskar flugvélar þegar á vettvang, en þá var þýzka flugvélin horfin. Víkur nú sögunni til Englands. Anthony Eden lýsti yfir því í ræðu, er hann hélt í enska þinginu, að brezka stjórnin hlyti að telja það skyldu sína að sitja ekki hjá, ef Þjóðverjar réðust á Frakkland og Belgíu, heldur veita þeim ríkj- um liðsinni, og aðhylltist þingið þá stefnu hans. Er af öllu þessu auðsætt, að ó- friðvænlega lítur nú út í Norður- álfunni. Kosningar gengu um garð á Spáni í síðasta mánuði, og vöktu úrslit þeirra mikla athygli um alla Norðurálfu. Jafnaðarnrenn og frjálslyndir menn unnu feikilegan kosningasigur og rneiri hluta I þinginu, en að sama skapi fóru fasistar, sem undanfarið hafa ráðið stjórn landsins, hinar mestu hrak- farir. Hafa rniklar æsingar verið á Spáni í sambandi við þessar kosn- ingar og hlutust víða af meiðingar og sumstaðar manndráp. I fréttum frá Japan hér á dögun- um var frá því skýrt, að í uppreist- inni þar hefði forsætisráðherrann verið einn meðal þeirra, er myrtur var af uppreistarmönnum. Seinna var þetta borið til baka. Forsætis- ráðherrann slapp og það meira að segja ómeiddur. Var annar maður drepinn í hans stað í misgripum. Nýjustu fréttir herma, að fundur Þjóðabandalagsins komi saman næstk. laugardag í London. ítalir telja það blygðunarleysi að halda fund Þjóðabandalagsins þar. Á laugardaginn lögðu verkamenn við Sogsvirkjunina niður vinnu. Ástæðan var sú, að yfirverkfræð- ingurinn hafði rekið einn verka- mann úr vinnunni út af ágreiningi um það hvar losa skyldi grjót úr flutningavagni. Verkamennirnir ósk- uðu þess, að hinn brottrekni maður væri aftur- tekinn í vinnuna, en því var ekki anzað. Samþykktu þá verkamenn á fundi sínurn að fela Dagsbrún þetta mál, og lýsti stjórn félagsins yfir verkfalli kl. 3 e. h. sl. laugardag. Stjórn Dagsbrúnar tekur það fram, að verkfall þetta stafi ekki eingöngu af framkomu verkfræð- ingsins við þenna eina mann, held- ur einnig vegna framkomu hans yf- irleitt við verkamennina. Fyrsta fiðla verður leikin í síðasta sinn næstkomandi simnudag. Dáncurdægw. Aðfaranótt ö. þ. m. andaðist hér á sjúkrahúsinu Hólmfríð- ur Jónasdóttir frá Kjarna, 58 ára að aldri. Banamein hennar var krabbi. Hólmfríður sál. var mesta gæðakona, sem ekki vildi vamm sitt vita í neinu. ■»> Alþýðusa/mband fslands er 20 ára í dag. Er þess minnst á ýmsan hátt í Reykjavík. t Amsrímur Einarssoi. Óx ungur sveinn, íturvaxinn. Hló móti heiðrikum degi. Brosti veröld víð. Veitti gjöful hönd. Angaði ilmur í blænum. Ástsælu naut allra, sem hann þekktu. Allstaðar gleði jók. Greind og góðlyndi, glæsimanns yfirbragð gefið var horskum hal. Árum fjölgaði. Atorka og vilji efldust í ungri sál. Fulltíðamaður fór um foldar-rann. Lífið var leikur einn. Kjarkur, karlmennska, kapp og fjör, forsjá oft til fylgdar. Hjarta heitt, hjálpfús hönd hans var óskift eðli. * * * Er ást mætir ást í ungs manns hjarta, uppfyllast óskir og þrár. Hillir undir framtíðar fagurt land. Blikar heiður himinn. Alvara lifs er oft á ferð, eins um bjartan dag. Skyggir í lofti. Sköpum má ei renna. Örlög sínar rúnir rista. Hvarf sól af himni. Heyrðist veðra-dynur. Hrundi heimur nýr. Harmi lostið hjarta hans, er tállaust unni. Heitmey var hulin moldu. Viðkvæmum manni veittisí aftur finna vin, er aldrei brást. Hafist var handa. Heimur byggður nýr. Hlýtt var í heimilis-ranni. Oft er örðug ganga eftir áföll stór. Ýmsum illt að rata, Villugjarnt er víða vegum mannlífs á-------- Breisk er barnalundin. sýnir í kvöld fimmtudaginn 12. þ.m. k .9 Fagurl er á fjölliiin Sleppið ekki tækifærinu og. sjáið þessa skemmtilegu mynd í kvöld. Mikið blés á móti. Margskift kjör reyndu á karlmennsku þor. Áfram að halda, ekki gefast upp, einkunnarorð hans voru. Lifði og naut, leið og gladdist liðinn ágætis maður. Sakna börn og frændur, sakna vinir allir. Svo — er gott að deyja. F r áe n d i. Hvernis vindbelgir springa. Mörgum er í minni þegar full- trúar íhaldsins á Alþingi fundu upp á því fáránlega tiltæki, að mæta ekki við þingslit. Þetta var í þing- lokin 1934. Þetta ólýðræðislega og fruntalega framferði mæltist illa fyrir um land allt, einnig meðal íhaldsmanna. Margir sögðu, að þessa ósvinnu myndi Jón Þorláksson aldrei hafa þolað. Þá gugnaði Kveldúlfskfikan fyrir almenningsálitinu. Og 1935 mætti íhaldsflokkurinn við þingslit og sat á strák sínum. En rétt áður hafði Ól. Th. hleypt flokknum út á nýtt gönuskeið: Öl. Th. og menn hans höfðu í bræði sinni hlaupizt á brott úr utanrikis- málanefnd og neitað að mæta á lokuðum þingfundum um utanríkis- mál. Nú á hinu nýbyrjaða þingi átti að kjósa nýja utanríkismálanefnd. Ýmsir héldu, að Ó. Th. myndi þá neita að leggja til menn í nefndina. En íhaldsmennirnir tóku allir við endurkosningu. Almenningsálitið hefir kennt þeim að taka sönsum í annað sinn. (N. dagbl.). KIRKJAN. Messað á Akureyri n. k. sunnudag (16. marz), kl. 2 e. h.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.