Dagur - 23.03.1944, Side 1

Dagur - 23.03.1944, Side 1
ANNALL DAGS Vorinngöngudagur var sl. þriðjudag. Veður var þá lagurt, sunnan andvari og glaða sólskin. ★ Almennur hreppsfundur var haldinn í Dalvík fyrir skemmstu til þess að ræða skiptingu Svarf- aðardalshrepps. Beiðni um með- mæli með skiptingunni lá fyrir síðasta sýslunefndarfundi, en var vísað heim vegna ónógs undir- búnings, — þurfti að halda al- mennan hreppsfund. A fundin- um fyrir skemmstu var sam- þykkt mótatkvæðalaust að skipta hreppnum, og fer skipt- ingin því sennilega fram áður en langt um líður. ★ Aflahviðu gerði á verstöðvun- um hér út með firðinum í fyrri viku, en nú er henni lokið og afli rýr. Fiskurinn er mestallur lagður inn á hraðfrystihús K. E. A. á verstöðvunum. ★ Vísitalan í yfirstandandi mán- uði er 265 stig, 2 stigum hærri en í febrúar. ★ Frá bæjarstjóm. — Bæjarstjóm hélt fund sl. þriðjudag. Skipu- lagsuppdrátturinn nýi var m. a. til umræðu og hafði Bygginga- nefnd samþykkt hann fyrir sitt leyti. Uppdrættinum var vísað til álitsgerðar Veganefndar. ★ Talsverðar viðsjár urðu á milli Erlings Friðjónssonar og komm- únista um lán Samkomuhúss bæjarins 1. maí næstk. Hús- eignanefnd hafði falið Guðbirni Bjömssyni, húsverði, að ráðstafa sölum bæjarins. (Einn kommún isti í sæti í nefndinni). Verklýðs- félag Akureyrar (E. F.) hefir haft húsið til umráða 1. maí ár hvert í sl. 11 ár. Nú hafði fulltrúaráð verklýðsfélaganna sótt um það til húsnefndar, að það fengi hús ið 1. maí. Nefndin vísaði til fyrri ákvarðana um það, að Guðbjöm Bjömsson ráðstafaði húsinu þann dag, sem aðra, og hafði hann þegar gefið Verklýðsfélagi Ak. loforð um húsið. Bæjarstj. sá ekki ástæðu til þess að gera undantekningu með það, að skipta sér af húsráðstöfuninni Hefir Verklýðsfélag Akureyrar því Samkomuhúsið 1. maí n.k., eins og undanfarin ár. < > < > NÝJA BÍÓ sýnir í kvöld kl. 9: : Grænadalsfjölskyldan< J JFöstudaginn kl. 9: ‘ ’ Eg giftist galdrakind J JLaugardag kl. 6: Eg giftist galdrakind < > < >K1. 9: ! > Grænadalsfjölskyldan J JSunnudaginn kl. 3: <>/ hjarta og hug >K1. 5: Grænadalsfjölskyldan ^Kl. 9: Eg giftist galdrakind >♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ LL XXVII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 23. marz 1944 12. tbl. AKUREYRI ER MESTI SKI PASMlÐABÆR LANDSINS Skipasmíðastöðvar hér hafa smíðað 449 smálestir skipastóls síðan 1940 Framtíð þessa iðnaðar mikið hagsmuna- mál fyrir bæ og hérað ^TVINNUMÁLARÁÐU- NEYTIÐ hefir nýlega gert fyrirspurn til skipasmiða og skipasmíðastöðva um það, hver sé að þeirra áliti aðalorsök þess, að vélskipasmíðar hér á landi séu svo dýrar, sem raun ber vitni, samanborið við verð skipa erlendis og hvaða ráðstafanir þurfi að gera til þess að tryggja framtíð innlendra skipasmíða. 1 tilefni þessarar fyrirspurnar, svo og vegna ráðstafana ríkis- valdsins til þess að útvega fiski- skip fyrir íslendinga í Svíþjóð, eru skipasmíðamálin mjög á dagskrá á meðal iðnaðarmanna hér, svo sem sjá má af frásögn af fundi Iðnaðarmannafélags Ak- ureyrar, sem birt er í blaðinu í dag. Akureyri er orðinn mesti skipasmíðabær landsins, og hefir alla aðstöðu til þess að halda áfram að auka þennan iðnað, ef þannig er búið að honum í landinu, að lrann eigi sér lífs von. Islendingar hafa smíðað 1505 smálestir skipastóls á árun- Aðalfundur Iðnaðar mannafélags Akur- eyrar mótmælir styrkveitingum af almannafé til skipa- kaupa erlendis frá ^ÐALFUNDUR Iðnaðar- mannafélags Akureyrar var haldinn sl. sunnudag. Ritari fé- lagsins, Vigfús Friðriksson, átti að ganga úr stjórninni að þessu sinni, en var endurkosinn. Stjórn fél. skipa nú, auk hans, Indriði Helgason, formaður og Stefán Árnason, gjaldkeri, en varastjórn Guðmundur Guð- laugsson (form.), Þorsteinn Da- víðsson og Gaston Asmundsson. Eggert Melstað er aðstoðar- gjaldkeri félagsins. — í skóla- nefnd félagsins eiga sæti: Guð- jón Bernharðsson, Gaston Ás- mundsson og Guðm. Guðlaugs- son. Endurskoðendur reikninga félagsins og iðnskólans voru endurkosnir: Halldór Halldórs- son og Þorst. Davíðsson. Fjárhagur félagsins stendur nú með miklum blóma. Nam (Framh. á 8. sltfu). Verður hann í kjöri við forsetakosningarnar? um 1940—1943 og skiptist smá- lestatalan þannig ntilli helztu skipasmíðabæjanna: Akureyri ......... 449 smálsetir ísafjörður ....... 332 smálestir Akranes .......... 192 smálestir Hafriarfjörður . . 152 smáestir Vestm.eyjar .... 143 smálestir Samtals 1268 smálestir Auk þess hafa 8 bátar, samtals 237 smálestir verið smíðaðir á ýmsum öðrtim stöðum. Þessar tölur eru samkvæmt skipa- skránni. Af henni er ekki að sjá, að Reykjavík hafi neina skipa- smíðastöð eða hafi byggt eiti einasta skip á þessum árum. Af þessu verður ljóst, að það er ekkert aukaatriði fyrir bæ og hérað, hvernig búið verður að skipaiðnaðinum í framtíðinni, ekki sízt, þar sem Akureyrarbær er nú að undirbúa sköpun nýrra hafnarmannvirkja, þar á meðal dráttarbrauta á Oddeyrartanga, og aukin skipasmíði og útgerð liér í bænum, er vitaskuld bezta tryggingin fyrir því, að þessi mannvirki beri sig þá tímar líða. Útlitið fyrir iðnaðinn er þó allt annað en glæsilegt. Dýrtíð og skipulagsleysi eru höfuðorsakirnar fyrir því, að ís- lenzkar skipasmíðar fá ekki stað- izt samkeppnina við erlendar stöðvar, og mun það bezt koma í ljós, ef horfið verður að því ráði, að kaupa fjölda fiskiskipa frá Svíþjóð, með aðstoð ríkisins, því að þá má teljast líklegt, að ís- lenzkar skipasmíðar falli alveg niður á næstu árum, nema ríkið ívilni þessum iðnaði stórkost- lega. Málum er þannig háttað nú, að hár tollur er tekinn af flestöllu efni, er til skipasmíð- anna þarf, og er reiknaður ofan á há farmgjöld, svo sem af öðr- um vörum. Fullur þungi dýrtíð- arinnar fellur því á þessar vörur. Gunnar Jónsson, yfirsmiður við Skipasmíðastöð K. E. A. hér í bænum, lét eitt sinn svo .um- mælt í viðtali við ,,Dag“, að það væri fullkomið áhyggjuefni, að tækni í skipasmíði erlendis fleygði frarn með ári hverju meðan við byggjum við sömu vinnubrögð hér ár eftir ár. Lagði hann til, að valdir íslenzk- ir skipasmiðir yrðu sendir til Ameríku til þess að kynna sér hagnýtari vinnuaðferðir. Þessari tillögu var vel tekið, m. a. í sum- um sunnanblöðunum, en síðan (Framhald á 8. sííta.) Talsverð hreyfing er tyrir því í Bauda ríkjunum að fá Douglas MacArthur hers höfðingja til þess að vera í kjöri af hálfu Rcpúblíkana við forsetakosningamar á þcssti ári, Karlakórinn Geysir hélt samsöng, undir stjórn Ingi- mundar Árnasonar, í Nýja-Bíó sl. sunnudag fyrir troðfullu húsi áheyrenda. Á söngskránni voru 12 lög eftir íslenzka og erlenda höfunda. Síðasti kafli söng- skrárinnar var með píanóundir- leik og annaðist frú Þyri Eydal hann. Einsöngvarar kórsins voru að þessu sinni: Ragnar Stefánsson, Henning Kondrup, Kristinn Þorsteinsson og Her- mann Stefánsson. Gerðu þeir allir hlutverkum sínum góð og ágæt skil. Söng kórsins var vel fagnað, og varð hann að endurtaka mörg laganna og syngja auka- lag. —Þótt stundum hafi verið þýðari og samræmari blær yfir söng kórsins — einkum 1. ten- órs — en að þessu sinni, var þróttur Geysis og raddfylling hin sama og áður. Hin mikla og sívaxandi aðsókn að sam- söngvum kórsins sýnir og ljós- lega, að bæjarbúar kunna vel að meta hvers virði það er fyrir menningar- og skemmtanalíf hér í bænum að eiga svo ágæt- an karlakór eins og Geysir er, enda mun það sannast orða, að hann stendur í fremstu röð meðal hinna mörgu karlakóra hér á landi. Ego. Fjársöfnun um land allt til hjálpar nauðstöddum börnum Brautryðjendastart Akureyrarbarnanna ber góðan árangur pRA því hefir verið skýrt hér í blaðinu í s. 1. desember- mánuði, að skólabörnin hér á Akureyri, undir Jeiðsögn skóla- stjóra og kennara, heíðu byrjað fjársöfnun til styrktar nauð- stöddum börnum meðal ná- grannaþjóðanna. Börnin lögðu vasaura í sjóð- inn, unnu við að búa til alls konar muni, sem þau seldu til ágóða fyrir sjóðinn o. s. frv. Ar- angurinn hefir orðið ágætur. Sjóður barnanna er nú orðinn röskar 7000 kr. Börnin hafa sýnt málinu mikinn og lofsverð- an áhuga. Foreldrar og aðstand- endur hafa réttilega skilið, að með þessu starfi unnu þau mannúðarstarf, sem jafnframt hafði nokkuð uppeldislegt gildi fyrir þau sjálf. Starf barnanna hér vakti nokkra og verðskuld- aða athygli. Leitað var eftir tækifæri til þess að koma ein- hverri hjálp þegar til norskra barna, í gegnum sænsku hjálp- arstarfsemina og mun von um að takist að koma einhverri hjálp, t. d. íslenzku þorskalýsi, til þeirra á næstu mánuðum. Þótt áhugi hér hafi verið lofs- verður, dugar það vitaskuld skammt, ef engir nema Akur- eyrarbörnin hefðu sinnt málinu. En nú hafa þau tíðindi gerzt, að Samband islenzkra barnakenn- ara hefir, fyrir tilmæli héðan, tekið málið upp og kosið fram- kvæmdanefnd til þess að annast söfnunina um land allt. Er þess að vænta, að kennarar og for- eldrar annars staðar á landinu taki málinu jafn vel og vinsam- lega og hér hefir verið gert, og að sjóðurinn megi verða þess umkominn, að linna þjáningar og auka lífsvon margra barna meðal hinna^ hartleiknu ná- grannaþjóða okkar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.