Dagur - 30.03.1944, Side 1
ANNALL
DAGS
ÁRSÞING U. M. S. E.
0
Dagana 11. og 12. marz sl. var
23. ársþing Ungmennasambands
Eyjafjarðar haldíð að Árskógi á
Árskógsströnd.
U. M. F. Reynir tók á móti
þingmönnum og sá þeim fyrir
gistingu og beina á þingstaðn-
um, meðan á þinginu stóð.
Sex eftirtalin félög gengu í U.
M. S. E. á þinginu: U. M. F.
„Vísir“, Ólafsfirði, U. M. F.
„Atli“, Svarfaðardal, U. M. F.
„Skíði“, Skíðadal, U. M. F.
Skriðuhrepps, Bindindisfél. Vak-
andi, Hörgárdal og Bindindisfél.
Dalbúinn, Saurbæjarhreppi.
Alls voru mættir 44 fulltrúar
frá 14 sambandsfélögum, en U.
M. S. E. telur nú um sex hundr-
uð meðlima innan sinna vé-
banda.
Á þinginu var rætt um: íþrótt-
ir, bindindismál, fánamál, lýð-
veklisstofnun á íslandi, hátíða-
höld 17. júní o. m. fl.
★
í lýðveldismálinu var sam-
þykkt svohljóðandi ályktun:
A) „23. þing U. M. S. E., háð
að Árskógi dagana 11. og 12.
marz 1944, lýsir eindregnu fylgi
sínu við ákvörðun Alþingis um
stofnun lýðveldis á íslandi ekki
síðar en 17. júní 1944 og þjóð-
kjör forseta. Ennfremur leggur
þingið áherzlu á, að 17. júní
verði lögfestur þjóðhátíðardagur
íslendinga."
★
B) „23. þing U. M. S. E. beinir
þeirri áskorun til ungmennafé-
laganna, að þau geri sitt ýtrasta
til þess, að hver einasti kjósandi
neyti réttar síns við þjóðarat-
kvæðagreiðslu um niðurfelling
dansk-íslenzka sambandslaga-
samningsins.“
★
Á þinginu kom fram eindreg-
inn vilji til að vinna að bættri
aðstöðu til íþróttaiðkana og efl-
ingu íþróttalífs á sambandssvæð-
inu. Ákveðið var að ráða fastan
íþróttakennara hjá sambandinu,
er hefði á hendi umferðakennslu
vetur, vor og haust. Var lögð
áherzla á að til þess yrði valinn
maður með fjölhæfa þekkingu á
íþróttum, gæti kennt flestar al-
gengar íþróttagreinir og yrði
jafnframt ráðunautur sambands-
ins í íþróttamálum.
Sú breyting var gerð á lögum
U. M. S. E. með einróma sam-
þykki þingsins, að tekið var upp
skýlaust vín- og bindindisákvæði
í samræmi við það er fyrir gilti
hjá U. M. F. f.
★
Þingið skoraði á félög sam-
handsins að beita áhrifum sínum
til að auka virðingu fyrir íslenzka
fánanum og vinna að því, að
sem flest heimíli eignist hann og
noti lögum samkvæmt.
Sambandið ákvað að efna til
hátíðahalda 17. júní, ef tök
yrðu á.
Samþ. var að skora á félög
sambandsins, að beita sér fvrir
söfnun hvers konar þjóðlegra
verðmæta er kynnu að geymast
á hverju félagssvæði.
(Framh. á 8. sí$u).
LL
AG Ll R
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 30. marz 1944
13. tbl.
Sleif arlag á póstsam-
göngum við Rvík
Flugvélin f lýgur dag eftir
dag, en lítill sem enginn
póstur kemur með henni
j VIÐTALI við „Dag“ fyrir
skemmstu fórust póst- ogsíma-
málastjóranum orð á þá leið, að
póststjórnin hefði fullan hug á
að styðja innanlandsflugið og
léti ævinlega flytja póst með ís-
lenzku flugvélinni, þegar póstur
væri fyrir hendi, jafnt blaða- sem
bréfapóst. Þótt póstmálastjórinn
muni af þessu að dæma hafa gef-
ið fyrirmæli um, að svo skuli
gert, fer því fjarri að undirmenn
lians framkvæmi þau fyrirmæli.
Undanfarna daga hefir ís-
lenzka flugvélin komið hér dag
eftir dag, stundum tvisvar á dag,
liefir að játnaði haft nægilegt
rúm fyrir nrikinn póst, en hefir
aðeins flutt htið eitt af bréfa-
pósti annað slagið, en alls engin
blöð. Þetta er óþolandi sleifarlag
og óþarft með öllu.JÞað er eins
og viljann til þess að hraða póst-
flutningum vanti hjá einhverj-
um þeirra manna, er eiga að sjá
um dreifingu póstsins frá
Reykjavík. Vonandi tekur póst-
nrálastjómin þetta mál til end-
urskoðunar og tryggir það í
framkvæmd, að pósturinn sé
sendur flugleiðis norður, hvenær
sem færi gefst.
900 bæjarbúar skora á
bæjarstjórn að banna
fugladráp á Pollinum
UM 900 bæjarbúar hafa undir-
ritað áskomn til bæjarstjórnar-
innar um að friða Pollinn fyrir
fugladrápi. Verður erindið sent
bæjarstjórninni nú á næstunni.
Er vonandi að það verði tekið
fyrir á næsta bæjarstjórnarfundi
og að friðunin komizt á á þessu
vori. Það eitt, að samþykkja frið-
unina er ekki nægilegt til þess
að Pollurinn megi verða frið-
land fuglanna. Almenningur
þarf að takast á hendur eftirlits-
og lögreglustavf og láta undir
engurn kringunistæðum neinum
haldast uppi, að brjóta reglur,
þær, sem settar verða.
UT AF ÞEIM
ummælum í síðasta tbl.
„Verkamannsins“ hér, að rit-
stjórn Dags hafi fellt niður
kafla úr greinum Jónasar
Jónssonar, er birzt hafa hér í
blaðinu, skal það fram tekið,
að þetta em tilhæfulaus
ósannindi og af sama toga
spunnin eins og annar frétta-
flutningur þessa blaðs um op-
inber mál.
Ritstjóm Dags.
VINNA BYRJUÐ VIÐ HAFNAR-
GARÐINN Á ODDEYRARTANGA
Skákjiing íslands verður
háð hér um páskana
J^KVEDIÐ ER að Skákþing
fyrir meistara-, fyrsta- og
annan flokk fari fram hér í bæn-
um um páskana. Hefst væntan-
lega 5. apríl.
Landsliðskeppni fer síðan
fram í Reykjavík eftir páskana
og hefir sigurvegarinn í meist-
araflokki hér rétt til þátttöku í
þeirri keppni. — Guðm. S. Guð-
mundsson og Sturla Pétursson.
eru væntanlegir hingað norður
á þingið — Aðalfundur Skáksam-
bands íslands fer og fram hér í
bænum samtímis.
Sjúkrasamlag stofnað
í Arnarneshreppi
Sjúkrasamlag Amarneshrepp-
tekur til virkra starfa 1. apríl n
k.,-og er það fyrsta sjúkrasamlag-
ið í héraðinu, utan Akureyrar,
sem stofnað hefir verið til sam-
kvæmt lögum um alþýðutrygg-
ingar. Iðgald er ákveðið kr. 40.00
á ári. — Stjórn sjúkrasamlagsins
skipa: Síra Sig. Stefánsson,
Möðruvöllum. formaður, Svavar
Björnsson, verkstjóri, Hjalteyri,
gjaldkeri, Halldór Ólafsson,
bóndi, Búlandi, Stefán hrepp-
stjóri Stefánsson, Fagraskógi og
Viggó Jessen, vélstjóri, Hjalteyri.
Skýrsla Mæðrastyrks-
nefndar Akureyrar
árið 1943
Eins og að undanförnu starf-
aði Mæðrastyrksnefndin að því,
að koma þreyttum mæðrunt ;'t
hvíldarheimili yfir stuttan tíma
að sumrinu, ásarnt ungum börn-
um þeirra, senr þær óska að bafa
með sér, bæði þeim til heilsu-
bótar og einnig af því, að án
þess kærnust þær alls ekki að
heiman. Að þessu sinni fékk
nefndin stað fyrir konurnar og
börn þeirra á sumargistihúsinu
að Laugum í Reykjadal. Reynd-
ist það mjög hentugur staður, að
flestu leyti, og voru konurnar
mjög ánægðar. Viljum við hér
með votta þakklæti okkar til
hlutaðeigenda (forstöðumanns
og starfsfólks gistihússins). — Að
þessu sinni hafði nefndin á sín-
um vegum 19 konur og 11 börn.
r
Ogurlegasta
eyðileggingartækið
Mynclin sýnir stacrð 1000 punda sprengju,
eins og þeirra, er nú rignir yfir Þýzkaland
dag og nótt. Uni það bil 2200 pund af
þunga sprengjunnar cr svokallað TNT
iprengiefni, en gerð þess og annarra efna
í sprengjunni er hcrnaðarleyndannál.
Skelin og kvcikjurnar vega um 1800 pund.
Ef sprengjuuni cr varpað úr 20000 feta
hæð, er hraði hennar, þcgar hún sncrtir
jiirðina, orðinn 600 mílur á klst. Sprengj-
an tvístrar hverju, scm fyrir er og grefur
sig djúpt í jörð. I>ví næst springur hún,
fcr í meira en 6000 mola, sem þcytast út í
loftið, með 4—7000 feta hraða á sekúndu.
prengingin eyðir öllu innan 120 feta
hrings, og stundum eru heil borgahverfi
í rústuni.
Hverri konu voru ætlaðir 7—14
dagar eftir vilja þeirra og þörf.
Beinn kostnaður við dvöl þeirra
á heimilinu var 3051.00 kr. og
ferðakostnaður 311.25 Voru þó
nokkrar konur, sefn borguðu lít-
ils háttar upp í ferðakostnað. —
Auk þess styrks, sem nefndinni
hefir verið veittur, bæði frá bæ
og ríki, er einn dagur á ári sér-
staklega fjáröflunardagur fyrir
mæðrastyrkinn, það er „mæðra-
dagurinn“, sem er 4. sunnudag-
urinn í maí ár hvert. Nú í ár ber
þessi dagur upp á hvítasunnu-
dag, svo að f járöflunin verður að
fara fram einhvern annan dag,
sem tilkynntur verður síðar. En
hvenær, sem fjársöfnunin fer
fram, treystum við bæjarbúum
til þess að sýna skilning og góð-
vilja og rétta hjálparhönd.
Starfssvið nefndarinnar þarf
að stækka. Verkefnin eru mörg.
Enginn þjpðfélagsþegn á betra
skilið en mæðurnar og enginn
þjóðfélagsþegn þarfnast meir
skilnings, nærgætni og aðstoðar
en mæðurnar. Styrkið okkur því
í starfinu.
Nefndin.
BYRJAÐ var að byggja nýja
hafnargarðinn á Oddeyrartanga
fyrra miðvikudag. Er tekinn fyr-
ir 60 metra kafli og vinna um 30
nranns við bygginguna. Grjótið
í þennan hluta garðsins er
sprengt úr Klöppunum.
Ennþá er ekkert ákveðið um
það, hversu mikið verður unnið
við hin fyrirhuguðu hafnar-
mannvirki á næstunni, en sam-
þykkt var á síðasta bæjarstjórn-
arfundi, að hefja byggingu
garðsins.
Þá var samþykkt á sama fundi,
til 2. umræðu, að étska heimild-
ar til þess, að hækka hafnargjöld
Akureyrarhafnar um helming,
til þess að efla hafnarsjóð til
þessara framkvæmda.
Dalvíkurbátar hafa þegar
aflað meira en á allri vor-
vertíðinni í fyrra
TÍÐARFAR hefir verið stillt
að undanförnu og hafa bátar á
verstöðvunum hér við Eyjafjörð
róið að staðaldri. Afli hefir
glæðst aftur og er nú góður. —
Hafa sumir Dalvíkurbátar. t. d.
þegar aflað meira en á allri vor-
vertíðinni í fyrra. Eru miklar
líkur til að yfirstandandi vertíð
verði ágæt. Fiskurinn er nú ým-
ist lagður í hraðfrystihús eða
fisktökuskip.
Greinargerð
um íslenzk stjórnmál
nefnist nýútkominn bækling-
ur, er Jónas Jónsson alþm. hefir
skrifað, en Árna Bjarnarson gef-
ið i'it. Lætur J. J. skammt höggva
á milli um stjórnmála-ritstörfin.
Þessi nýi bæklingur fjallar um
viðhorf Framsóknarflokksins til
þjóðmálanna í nútíð og framtíð,
einkum atvinnumálanna, og af-
stöðu flokksins til annara flokka.
Meginatriði hafa áður birzt í
greinum J. J. í þessu blaði. En
auk þess ræðir höf. bæklingsins í
alllöngn máli um innra skipulag
Framsóknarflokksins og umbæt-
ur á því, er hann kveðst nruni
bera fram á næsta flokksþingi.
Porter MaeKeever
á förum af landi burt.
Forstöðumaður upplýsinga-
skrifstofu Bandaríkjanna á ís-
landi, Porter MacKeever, hefir
verið kvaddur til annars starfs
(Framhald á 8. slðu.