Dagur - 05.04.1944, Blaðsíða 1
XXVII. árg.
'rá Leikfélagi Akureyrar:
LL
AGUR
Akureyri, miðvikudaginn 5. apríl 1944
14. tbl.
FRUMSYNING A GULLNÁ HLIÐINU
Á ÁNNÁN PÁSKADAG
Frk. Arndís Björnsdóttir leikur aðalhlutverkið sem
gestur Leikfélags Akureyrar
LEIKFELAG
AKUREYRAR
hefir síðastliðna
þrjá mánuði unn-
ið að því af miklu
kappi að koma
„Gullna hliðinu“,
eftir Davíð Stef-
ánsson frá Fagra-
skógi, á svið hér í
bænum. Er nú svo
komið, að öllum
undirbúningi er að
verða lokið og
frumsýning ákveð-
in 2. páskadag. —
Jón Norðfjörð,
leikstjóri, sagði
blaðinu þessi tíð-
indi, er „Dagur“
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
ÁRSFUNDUR MJÓLKURSAMLAGSINS
BÆNDUR FENGU113 AURA MEÐAL-
VERD FYRIR HJÓLKINA SL. ÁR
Mjólkurframleiðsla meiri og betri árið
1943 en nokkurn tíma fyrr
|
ANNALL
DAGS
Afli hefir glæðst í verstöðvun-
um hér við Eyjafjörð, er sums
staðar ágætur. Gæftir nokkuð
óstöðugar.
★
Landssamband iðnaðarmanna
efndi til fundar í Reykjavík dag-
ana 1.—3. þ. m. með skipasmið-
um víðs vegar af landinu. Til
umræðu voru skipasmíðamálin í
sambandi við fyrirhuguð skipa-
kaup frá Svíþjóð. Gunnar Jóns-
son skipasmíðameistari sótti
fundinn af hálfu skipasmiða hér
í bænum. Gerðar voru ályktanir
er hníga í þá átt, að fundurinn
telur að fremur beri að styrkja
og efla innlendan skipasmíða-
iðnað, en kaupa skip erléndis frá.
Verður fundarins væntanlega
getið nánar síðar.
★
Elías Tómasson bankagjald-
keri hjá útibúi Búnaðarbanka
íslands, átti fimmtugsafmæli sl.
mánudag. Margir vinir hans
heimsóttu hann á afmælisdaginn
og árnuðu honum heilla, enda
er Elías vinsæll með afbrigðum
í bæ og héraði.
★
Hjálmar Þorláksson, bóndi,
Ytri-Villingadal í Eyjafirði, varð
70 ára 27. marz sl. — í tilefni af
því heimsóttu hann um kvöldið
allmargir nágrannar hans og
nokkrir aðrir kunningjar. Veitti
Hjálmar þeim vel og skemmtu
menn sér lengi nætur við ræðu-
höld, söng og spil. — Sveitungar
Hjálmars færðu honum að gjöf
vandaðan göngustaf, og nokkrar
fleiri gjafir bárust honum.
Hjálmar er Skagfirðingur að
ætt og uppruna fæddur að Hofi
í Vesturdal 27. marz 1874. Er
hann af kunnu og merku fólki
kominn, t .d. Djúpadalsætt og
Goðdalaætt. Eigi naut hann
skólamenntunar í æsku, en
nokkurrar tilsagnar, fram yfir
venjulega barnafræðslu, aflaði
hann sér hjá prestum þar vestra,
eins og stundum var um nám-
fúsa unglinga á þeim tímum.
Laust fyrir síðustu aldamót
hóf Hjálmar búskap á Þorljóts-
stöðum, sem er syðsti bær í
Skagafirði og ærið afskekktur,
og erfitt um alla aðdrætti þang-
að. Hafði jörð þessi verið í eyði
undanfarin ár. Bjó Hjálmar
þarna í 9 ár og bætti jörðina
nokkuð.
Árið 1908 fluttist hann ti
Eyjafjarðar og hefir nú í sl. ald-
arþriðjung búið þar, fyrst í
Hólsgerði, þá í Syðri-Villingada
og loks í Ytri-Villingadal, en þá
jörð hefir hann nú keypt fyrir
nokkrum árum. Eru allar þessar
3 jarðir innstar í Eyjafjarðardöl-
um, sem kunnugt er. Annars
staðar hefir Hjálmar ekki unað,
þeirri tryggð tók hann við afdal-
inn og heiðarlöndin í æsku, enda
var hann nefndur „útvörður ís-
lenzkra bænda“ í ræðu, sem flutt
var á 70 ára afmælisdegi hans.
Jörð sína, Ytri-Villingadal, hef-
ir Hjálmar bætt stórum bæði að
(Frnmhald á 8, ilSu.)
leitaði frétta hjá
honum af fyrirætlunum Leik-
félagsins á þessu vori. Um sýn-
inguna á „Gullna hliðinu“ sagði
hann m. a.:
— Um leikritið þarf ekki að
fjölyrða. Ekkert leikrit hefir
hlotið aðra eins aðsókn í höfuð-
staðnum, þar sem það var sýnt
í 66 skipti fyrir fullu húsi áhorf-
enda. Mikill áhugi hefir verið
hér frá því fyrsta að koma
leiknum upp hér, og sjálfur hefi
eg enga ósk átt heitari en að
mega búa það til sýningar. —
Nú er sú von að rætast. Leikfé-
lagsstjórnin hefir ekkert til spar-
að til þess að sýningin megi
verða sem glæsilegust. — Flest-
ir beztu leikarar bæjarins koma
þar fram og auk þeirra fjöldi
nýliða. Frk. Arndís Björnsdótt-
ir leikur Kerlinguna, sem gest-
ur Leikfélagsins, en Jón bónda
leikur Björn Sigmundsson. Vil-
borgu grasakonu leikur frú Sig-
urjóna Jakobsdóttir, en eg fer
með hlutverk Óvinarins. Fjögra
manna hljómsveit, 18 manna
blandaður kór og 8 manna tal-
kór, aðstoða við sýninguna.
Er nokkur nýbreytni tekin
upp í sambandi við þessa sýn-
ingu?
— Já. Sá háttur verður nú
hafður, að sýningar hefjast kl.
8, eins og tíðkast hefir í höfuð-
staðnum, en ekki kl. 8.30, eins
og hér hefir verið venja til
þessa. Þá má geta þess, að dyr-
um salsins verður lokað í byrj-
un hvers þáttar og alls eigi opn-
aðar aftur fyrr en í þáttarlok.
Er því ástæða til þess að
áminna leikhúsgesti um, að
vera komna í sseti sín éður en
hver þáttur hefst. Þá munu
bæjarbúar fagna því, að á frum-
sýningunni mun höfundurinn
sjálfur lesa Prologus fyrir sýn-
ingunni. Gerum við okkur yfir-
leitt von um, að sýning leiksins
verði talin einn hinn merkasti
viðburður í leiklistarlífi norðan-
lands um langt skeið.
Stórbrani hér í bæ
sl. sunmidagsnótt
Húsið Túngata 1 brann til
kaldra kola á svipstundu
|JM KLUKKAN 1.35 aðfara-
nótt sl. sunnudags varslökkvi-
lið bæjarins kvatt að húsinu nr.
1 við Túngötu hér í bænum. —
Var þá mikill eldur laus í hús-
inu. Fólk, er í því bjó, hafði tek-
ið á sig náðir og varð ekki elds-
ins vart fyrr en menn, er séð
höfðu eldbjarmann sunnan úr
bæ, komu á vettvang og gerðu
fólkinu og slökkviliðinu aðvart.
Er slökkviliðið kom, var húsið
alelda og var horfið frá því, að
reyna að slökkva eldinn í því, en
öll áherzla lögð á að verja næstu
hús, sem voru í bráðri hættu, og
tókst það. Ilúsið brann til
grunns á röskri klukkustund.
Húsið var tvílyft timburhús,
á kjallara, með háu risi og kvisti,
eign dánarbús Sigurðar Bjarna-
sonar, og var ein af stærri og
vandaðri timburbyggingum í
bænum. Á neðstu hæð bjó Leo
Sigurðsson, útgrðarmaður, ásamt
(Fmroh, i 8, Díðu),
Undirbúningur sýn-
inga á „Gullna hlið-
imL sérlega vel af
hendi leystur
-Frk. Arndís Björnsdóttir
pRK. ARNDÍS BJÖRNS-
DÓTTIR leikkona frá Rvík
er nýlega komin hingað norður
til þess að leika aðalhlutverakið
í „Gullna hliðinu“, eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi, sem
gestur Leikfélags Akureyrar. —
Frk. Arndís fór með hlutverk
„Kerlingarinnar" þegar leikur-
i.nn var sýndur i Rvík á sl. ári
Frk. Arndís Björnsdóttir.
við fádæma góðar viðtökur, og
vakti leikur hennar mikla hrifn-
ingu þá.
Blaðamenn ræddu við frk.
Arndísi skömmu eftir komuna
hingað um væntanlega sýningu
„Gullna hliðsins".
„Það var mér sérstakur heið-
ur,“ sagði frk. Arndís, „að Leik-
félagið og höfundurinn skyldu
óska þess, að eg færi hér með
hlutverk Kerlingarinnar. Það
hlutverk er stærsta hlutverk sem
eg hefi farið með og eitt þeirra
hlutverka, sem mér hefir verið
mest ánæg ja að leika. Eg gat því
tekið hinu góða boði þeirra með
gleði og er nú hingað komin í
þeim erindum.“
— Og hvernig lízt yður á und-
irbúninginn, sem hér hefir farið
fram?
„Ágætlega. Það er auðséð, að
mikil rækt hefir verið lögð við
að æfa leikinn og tel eg allan
undirbúning alveg sérlega vel af
Ársfundur Mjólkursamlags K.
E. A. var haldinn á Akureyri
föstudaginn 31. marz sl. Á lund-
inum voru mættir, auk stjórnar-
og framkvæmdarstjóra, 73 full-
trúar mjólkurframleiðenda
ásamt fjölda annarra fundar-
gesta. Á árinu 1943 hafði Mjólk-
ursamlagið tekið ámóti 3.812.307
ltr. af mjólk með 3,57% fitu-
magni og var það 210.000 ltr.
meira en árið áður. — Af þessu
mjólkurmagni seldist 43% sem
gerilsneydd mjólk, en 57% fór
til smjör-, skyr- og ostagerðar.
Á árinu hafði bændum verið
útborgað að meðaltali um 84
aurar á ltr. Eftirstöðvar á rekst-
ursreikningi námu 29 aurum á
lítra. Var því meðalverð ársins
á hvern innveginn mjólkurlítra
samtals 113 aurar. Meðal útsölu-
verð mjólkur á Akureyri var á
árinu 132,2 aurar á ltr. Saman-
lagður reksturs- og sölukostnað-
'ir var 18,7 aurar á lítra.
Vegna þess, að allmikil verð-
hækkun hafði orðið á mjólk síð-
ustu þrjá mánuði ársins og sér-
stök verðuppbót greidd úr ríkis-
sjóði á mjólkurframleiðsluna á
þessu tímabili, ákvað fundurinn,
að verðuppbót á innvegna mjólk
fyrstu 9 mánuði ársins skyldi
greidd með 27 aurum á ltr.^ en
33 aura á lítra yfir síðustu 3
mánuði ársins.
Endanlegt verð mjólkurinnar
frá 1. jan. til 30. sept. varð 109
aurar á lítra og frá 1. okt. til 31.
des. 121.5 aurar á lítra.
Enda þótt síðastliðið ár hefði
reynst bændum á margan hátt
erfitt, bæði hvað tíðarfarið
áhrærði og einnig hinn mikli
hörgull á starfsfólki til þess að
vinna að framleiðslunni í sveit-
inni, hafði mjólkurframleiðslan
þó aukist um 6% og gæði mjólk-
urinnar höfðu einnig aukist til
muna, þannig, að af samanlögðu
mjólkurmagni voru aðeins 2.9%
3ja og 4. fl. mjólk.
Á fundinum kom fram ánægja
yfir því, að mjólkurframleiðslan
hafði reynst meiri og betri en
áður og einnig hinu, að mjólkin
hafði gefið bændum góðar tekj-
ur á árinu.
hendi leystan. Eg geri mér von
um, að leikurinn eigi eftir að
ná vinsældum hér, ekki síður en
fyrir sunnan, jafnt hjá þeim, sem
í bænum búa og fólkinu í nær-
liggjandi sveitum og héruðum,