Dagur - 14.04.1944, Side 1
..
ANNÁLL
DAGS
~==ix==^-^-~-~
Nýr sagnaþáttur hefst í blað-
inu í dag. Er hann af Þórði sýslu-
manni Björnssyni í Garði í Að-
aldal, skráður af Konráð Vil-
hjálmssyni. Hefir þessi þáttur
hvergi verið prentaður áður.
★
Bílar hafa ekið yfir Öxnadals-
heiði a. m. k. tvisvar í þessari
viku. Færi hefir verið erfitt, en
þó mun það einsdæmi, að bílfært
hafi verið talið alla leið milli
Reykjavíkur og Akureyrar á
þessum tíma árs.
XXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 14. apríl 1944 15. tbl.
Leikfélag Akureyrar:
var selt
Frú Chiang Kai-Shek
„GULLNA HLIÐIÐ46
Frumsýningin annan páskadag
★
Flugferð var norður hingað s.
1. miðvikudag, og er það síðasta
ferð nú um sinn, meðan skipt er
um hreyfla í flugunni. Hefjast
flugferðir væntanlega aftur eftir
viku til tíu daga.
★
Frk. Jóninna Sigurðardóttir,
hóteleigandi, átti 65 ára afmæli
sl. þriðjudag. Hún er löngu
landskunn orðin fyrir ritstöif sín
um málefni kvenna og áhuga á
framfaramálum kvenþjóðarinn-
ar. Frk. Jóninna hefir lengi rek-
ið fyrirmyndar gisti- og matsölu-
stað á Hótel Goðafoss hér í bæn-
um.
★
Heimilisiðnaðarfélag Norður-
lands óskar þess getið, að það
sýni ýmsar gerðir vefnaðar frá
nýafstöðnu námsskeiði sínu hér
í bænum n.k. sunnudag kl. 2—7
á Hótel Norðurlandi.
★
Auka-bæjarstjómarfundur var
var haldinn í gær. Á dagskrá
vom þrjú mál: 1. Fundargerð
kjörskrá og undirritun kjörskrár
Akureyrarkaupstaðar við þjóð-
aratkvæðagreiðslu í maí. 2.
Kosning nefndar til að hafa með
höndum undirbúning að þjóð-
aratkvæðagreiðslu. 3. Kosning
nefndar til að hafa með höndum
undirbúning hátíðahalda vegna
lýðveldisstofnunar á íslandi.
★
Dagur kemur næst út á mið-
vikudaginn 19. apríl, þar sem
fimmtudagurinn, hinn reglulegi
útkomudagur blaðsins, er sum-
ardagurinn fyrsti.
★
Guðm. Karl Pétursson, yfir-
læknir við Akureyrarspítala, sem
dvalið hefir í Ameríku undan-
farna mánuði, er væntanlegur til
landsins nú næstu daga. Guðm.
Karl var fulltrúi íslands á sl$urð-
læknaþingi í Philadelphia á sl.
hausti, en að því loknu ferðaðist
hann um vestra og kynnti sér ný-
ungar á sviði handlækninga.
Hvert sæti í leikhúsinu var
skipað á mánudagskvöldið, er
Daví'ð skáld frá Fagraskógi hóf
að lesa „prologus" sinn 'fyt'ir
„Gullna hliðinu“. Áheyrendurn-
ir hylltu skáldið með áköfu lófa-
taki, en að því búnu hófst tjaldið
og menn skyggndust inn í hugar-
heima íornrar, íslenzkrar þjóð-
trúar og þjóðsagna, þar sem tví-
veldiskenningin situr í öndvegi
og djöfullinn og hans útsendarar
ganga ljósum logum um tilver-
una og leitast við að hremma
hverja sál um leið og hún slepp-
ur með harmkvælum úr búkn-
um. En kerlingin á kotbænum
er staðráðin í því, að bjarga „sál-
inni hans Jóns míns“ — svo
breyzk og brotleg sem hún þó er
— frá logum hinnar eilífu út-
skúfunar og skila henni heilli á
húfi inn fyrir dyrastaf Himna-
Guðmundur S. Guð-
mundsson úr Reykja-
vík sigraði á Skák-
þinginu.
gKÁKÞING fSLENDINGA,
sem hófst hér í bænum 5. þ.
m., lýkur í kvöld. Meistara-
flokkskeppni lauk á þriðjudags-
kvöld og urðu úrslit þar þessi:
1. Guðmundur S. Guðmunds-
son, Reykjavík, 3J/2 v.
2. Kristján Sylveríusson, Rvík,
3 v.
3. -4. Jóhann Snorrason, Ak-
ureyri, 2Vi v.
3.-4. Sturla Pétursson, Rvík,
21/2 v.
5. Júlíus Bogason, Ak„ 2 v.
6. Margeir Steingrímsson, Ak„
11/2 v.
í fyrsta flokki stóðu leikar
þannig í gær: Steingr. Bern-
harðsson, Ak„ 4 v. — Albert Sig-
urðsson, Ak„ 3 v. — Steinþór
Helgason, Ak„ 3 v. og voru þá
tvær umferðir eftir.
ríkis. Og hún kernur karli sínum
fyrir í skjóðu sinni, snarar henni
á bak sér og leggur ótrauð á
brattann, sent liggurAtpp að hinu
gullna ldiði. Og þótt kerlingin
sé ekki mikil fyrir sér, fyrit
mannanna sjónum, er ást henn-
ar og umhyggja fyrir Jóni sínunt
seig og ódrepandi eins og erl'ða-
synclin, og hún lætur hvergi bug-
ast á hverju sem gengur, — hvort
sem púkar og drýsildjöflar eða
englar og kerúbar leitast við að
varna henni vegarins, — unz hún
hefir potað bónda sínum inn fyr-
ir hið gullna hlið — í trássi við
guð og menn. — En „það er löng ■
leið frá íslandi til Himnaríkis“,
og margt ber til tíðinda á þessu
ferðalagi kerlingar, svo seni að
líkum lætur.
Ungfrú Arndis Björnsdóttir,
leikkona úr Reykjavík, leikur
aðalhlutverkið, kerlingu Jóns
bónda, með hinni mestu prýði
og skörungsskap. Ungfrú Arndís
er, svo sem kunnugt er, ein af
þekktustu leikkonum hér á
landi. Okkur Akureyringum er
auðvitað ekki síður en öðrum
landsmönnum kunnugt um orðs-
tír þann, er hún hefir getið sér
ýrir íþrótt sína á leiksviði höfuð-
staðarins nú um langt skeið. Við
höfum oft hlýtt á leik hennar í
Ríkisútvarpið, og síðast en ekki
sízt munum við minnast hinnar
ágætu og ógleymanlegu frammi-
stöðu ungfrúarinnar, er hún lék
eitt aðalhlutverkið í „Orðinu“
hér á okkar eigin leiksviði síðast-
liðið sumar.
Leikhússgestir munu því vissu-
lega hafa vænzt mikils af leik
ungfrú Arndísar á mánudags-
kvöldið, og óhætt mun að full-
yrða, að jreir hafa ekki orðið fyrir
vonbrigðum. Leikur ungfrúar-
innar er látlaus og eðlilegur, en
þó sterkur og markviss, enda var
henni vel fagnað af leikhússgest-
um, og margir fagrir blómsveigar
bárust henni upp á sviðið í við-
urkenningarskyni fyrir íþrótt
hennar.
Björn Sigmundsson lék annað
aðalhlutverk leiksins, Jón bónda
— í skjóðunni og utan hennar.
Betri frammistöðu er varla hægt
að kjósa sér í því hlutverki. Leik-
ur Björns er myndugur og'hnit-
miðaður frá upphafi til enda,
(Framhald n 8. síðu.)
Myndin er af frú Chiang Kai-Shek, konu
hins þrautseiga foringja Kínverja í barátt-
unni gegn Japan. Frú Chiang er faedd og
menntuð í U.S.A. Hún er mjög mikilhæf
og mikilsmetin kona.
M/s „Snæfeil“ bjargar
skipi á Atlantshafi
j SÍÐUSTU ferð m/s „Snæfells"
hins nýja skips Utgerðarfél.
K. E. A„ til Englands, bjargaði
það íslenzka fiskiskipinu „Rifs-
nes“, er jrá var statt 180 mílur
frá landi á útleið og dró það til
skozkrar hafnar. Rifsnes var vél-
arvana er „Snæfell“ kom að því,
en fullfermt fiski.
Skipstjóri á „Snæfelli" er Egill
Jóhannsson.
gKÖMMU eftir að vinna hófst
við byggingu skjólgarðsins á
Oddeyri fór að bera á )>ví, að
ýmsir verkamenn töldu, að jreim
bæri að fá greiddan svokallaðan
grjótvinnutaxta við vinnuna, en
hann er allmikið hærri en hin
venjulegi dagvinnutaxti. Hinn
svokallaði grjótvinnutaxti var
upphaflega miðaður við grjót-
mulnings- og grjótsprengingar-
j vinnu bæjarins. Var talið eðlilegt
Þingið sækir fjöldi
fulltrúa, úr öBlum
héruðum landsins
7. þing Framsóknarflokksins
var sett af formanni flokksins,
Jónasi Jónssyni, að Hótel Borg
í Reykjavík kl. 4 e. h. sl. mið-
vikudag.
Voru þá komnir til þings l'ull-
trúar úr öllum héruðum lands-
ins og eru á þinginu alls um 280
manns. Fyrsti fundarstjóri var
kjörinn Einar Árnason á Eyrar-
landi.
Héðan að norðan fór fjöldi
fulltrúa með bifreiðum á annan
páskadag, þar á meðal eftirtaldir
fulltrúar héðan frá Akureyri:
Árni Jóhannsson, forseti bæjar-
stjórnar, Árni Bjamarson, bók-
sali, Arnþór Þorsteinsson, sölu-
stjóri, Elías Tómasson, banka-
gjaldkeri, Guðrn. Guðlaugsson,
verksmiðjustjóri, Gunnar Jóns-
son, spítalaráðsmaður, Halldór
Ásgeirsson, sölustjóri, Haraldur
Þorvaldsson, verkamaður, Jakob
Frímannsson, framkvæmdastjóri,
Marteinn Sigurðsson, formaður
Verkamannafélags Akureyrár-
kaupstaðar og auk þess mætir
Vilhjálmur Þór, atvinnumála-
ráðherra, sem fulltrúi Framsókn-
arfélags Akureyrar á þinginu.
Á miðvikudaginn var kosið
að sú vinna væri betur borguð en
alm. vinna, þar sem hún er sér-
staks eðlis, svo sem kunnugt er.
í prentuðum töxtum verka-
mannafélaganna í bænum hefir
þetta jafnan verið kölluð „grjót-
vinna* aðeins og skilið sem
vinna við grjótsprengingu og
grjótmulning.
Eigi að síður var samþykkt á
fundi í Verkamannafélagi Akur-
(Framhald á 8. síðu).
Jarðarför ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR frá Lóni
fer, að öllu forfallalausu, fram miðvikudaginn 19. þ. m., og
hefst með kveðjuathöfn frá Akureyrarkirkju kl. 1 e. h. Síðan
verður haldið að Möðruvöllum í Hörgárdal og jarðsett þar.
F. h. vandamanna.
Karlakórinn „GEYSIR“.
(Framhald á 8. síðu.)
VERKAMENN KREFJAST CRJÓT-
VINNUTAXTA VIÐ HAFNARGERÐINA
Á ODDEYRI
Bæjarstjórnin heimilar hafnarnefnd að hætta við
verkið, ef kröfunni verður haldið til streitu
Grjótvinnutaxtinn svokallaði var upphaflega sam-
inn fyrir grjótmulningsvinnu bæjarins