Dagur - 19.04.1944, Page 1
ANNÁLL
DAGS
•••.’&—...
Úr Austur-Húnavatnssýslu er
skrifað:
Veturinn hefir lengst af verið
mildur. Tíð var ágæt frá vetur-
nóttum til jóla. Þann tíma leið
útigangspeningi vel og jafnaði
hann sig nokkuð eftir hrakviðri
haustsins, Fé var víða ekki tekið
á gjöf fyrr en seint í nóvember. .
Eftir sólstöður brá til um-
hleypinga, er héldust til þona-
loka. I janúarmánuði skiptust á
blotar og fannkomur með all-
miklu frosti. Var áttin oftast suð-
vestlæg, en norðanhríðar engar,
sem þó er sjaldgæft um þennan
tíma ársins. Fannkomur vom því
mestar í framsveitum sýslunnar,
þar sem veðrátta er venjulegast
mildust og að jafnaði snjóléttast.
f nokkrum sveitum varð með
öllu haglaust, og er jörð þar ný-
lega komin undan fönn. Tíð
hefir verið ágæt, síðan í fyrstu
viku góu, og örísa í lágsveitum.
★
Menn urðu allskelkaðir, er
ísafréttir tóku að berast. Sem bet-
ur fór voru þær mjög ýktar. En
víða hefði orðið fóðurskortur, ef
hagleysa hefði haldizt lengi, því
að hross eru hér víðast mörg, en
heyafli var fremur lítill frá sl.
sumri.
★
Fjárpestin geisar hér í sumum
sveitum sýslunnar meiri en
nokkru sinni, og er nú skæðust
þar, sem hún virtist vera í rénun
síðastliðið ár.
★
Fiskazt hefir frá Skagaströnd
í allan vetur, en gæftir hafa litl-
ar verið. Þó liefir nú um tíma
verið stillt veður og hefir þann
tíma verið mokafli.
★
Félags- og menningarmál. —
Samband ungmennafélaganna
hér í sýslunni gekkst fyrir
skemmtisamkomum og málfund-
um hér á Blönduósi dagana 11.
—12. marz síðastliðna, í sam-
bandi við ársþing sitt. A mál-
fundunum fluttu erindi: Sr.
Gunnar Árnason um kirkju og
trúmál og Steingrímur Davíðs-
son, er hann nefndi: framtíðar-
málin. Út af því erindi var sam-
þykkt .ávarp . til .Húnvetninga
um að minnast lýðveldisstofnun-
arinnar með því að stofna öflug-
an sjóð, er varið verði til að
reisa, svo fljótt sem verða má
íþróttaskóla á Reykjum á
Reykjabraut. Eru þar hin ágæt-
ustu skilyrði fyrir slíka stofnun.
Staðurinn heitur stöðuvatn og
skíðabrekkur rétt við túngarð-
inn. Á Reykjum hefir verið
kennt sund fjöldamörg ár. Er
þar steypt sundlaug, stór og all-
góð, en opin.
Á fundi þessum var rætt um
stofnun skógræktarfélags í sýsl-
unni, stofnun framfarasjóða í
sveitum o. fl.
★
Kvennaskólinn á Blönduósi er
að venju fullskipaður. Er aðsókn
að skólanum alltaf miklu meiri
(Framhald á 8. sfðu).
Flokksþing Framsóknarmanna
STÖRAUKHAR FRAMKVÆMDIR RÍKISiNS í RAFORKUMÁLUM
ENDURSKOÐUN Á TOLLAÁKVÆÐUM UM IÐNAÐARVÖRUR
ALYKTANIR FLOKKSÞINGSINS
I
Greint frá kosningu í Miðstjórnina
Sjöunda flokksþingi Framsóknarmanna, sem hófst í Reykjavík
12. þ. m., lauk í gærkvöldi. Þingið var fjölmennasta og glæsilegasta
þing, sem Framsóknarflokkurinn hefir nokkru sinni haldið, sóttu
það alls um 290 fulltrúar úr öllum héruðum landsins.
Voru til umræðu ýms helztu
þjóðmál og,voru gerðar ályktan-
ir í þeim. Vegna þess að þinginu
lauk fyrst í gærkvöldi hefir Dag-
ur ekki tök á því að þessu sinni,
að rekja ályktanir þéss ítarlega.
Skal aðeins þessa getið að sinni:
RAFORKUMÁL:
Þingið lagði áherzlu á, að það
teldi aukna vatnavirkjun eitt
þýðingarmesta málið, sem nú er
á döfinni ,til eflingar iðnaði og
atvinnu í landinu. Skorað var á
þingmenn flokksins að vinna að
málinu á eftirfarandi grundvelli:
Hraðað verði svo sem frekast er
unt rannsókn á skilyrðum til
vatnavirkjunar víðs vegar um
land. Grundvöllur að starf-
rækslu rafveitnanna verði sá, að
ríkið byggi þær og reki og selji
raforkuna sama verði til allra,
hvort heldur þeir búa í þéttbýli
eða dreifbýli.
IÐNAÐARMÁL:
Þingið samþykkti óbreytt álit
Iðnaðarnefndar þingsins. Lýst
var ánægju yfir undirbúnings-
framkvæmdum atvinnumálaráð-
herra í áburðarverksmiðjumál-
inu og lögð áherzla á, að reisa
bæri þetta nauðsynjafyrirtæki
þar á landinu, sem álit sérfræð-
inga teldi, að bygging og rekst-
ur væri hagkvæmastur. Þá var
þess óskað, að gagnger athugun
færi fram á því hvort ekki sé
tímabært að hefja raunveruleg-
an undirbúning að byggingu se-
mentsverksmiðju hér á landi.
Talið var nauðsynlegt, að
tollalöggjöf ríkisins verði endur-
skoðuð með sérstöku tilliti til
iðnaðarins og lögin urn iðnað og
iðju verði einnig endurskoðuð.
Auk þessara ályktana, sem eru
birtar hér í mjög stuttum út-
drætti, gerði þingið ályktanir í
sjávarútvegsmálum, landbúnað-
armálum og markaði stefnu
flokksins í þjóðmáladeilum yfir-
standandi tíma. Verða ályktanir
þingsins birtar í heild í næsta
tölublaði.
MIÐST J ÓRN ARKOSNIN G:
Kosning í Miðstjórn Fram-
sóknarflokksins fór fram í gær.
Var talningu atkvæða lokið í
gærkvöldi og urðu úrslit þessi:
Reykjavík: Bjarni Ásgeirsson,
alþm., Eysteinn Jónsson, alþm.,
Gísli Guðmundsson, alþm., Guð-
brandur Magnússon, forstjóri,
Hermann Jónasson, alþm., Jón
Árnason, framkv.stj., Páll Zóp-
hóníasson, alþm., Pálmi Hann-
esson, rektor, Sig. Kristinsson,
forstjóri, Steingr. Steinþórsson,
Búnaðarmálastjóra, Sveinbjörn
Högnason, alþrn., Vigfi'is Guð-
mundsson, gestgjafi, Vilhjálmur
Þór, atvinnumálaráðherra, Þór-
arinn Þórarinsson, ristjóri. —
Borgarfjarðarsýsla: Jón Hannes-
son, Deildartungu. — Mýras.:
Sverrir Gíslason, Hvammi. —
Snæfells- og Hnappad.ss.: Stefán
jónsson, Stykkishólmi. — Dalas.:
Ásgeir Bjarnason, Ásgarði. —
Baiðastrandas.: Jóhann Skapta-
son, Patreksfirði. V.-ísafj.s.: Jó-
hannes Davíðsson, Neðri-Hjarð-
ardal. — N.-ísafj.s.: Kristján
Jónsson frá Garðsstöðum. —
Strandas.: Gunnar Þórðarson,
Grænumýrartungu. — V.-Hún.:
Skúli Guðmundsson, Hvamms-
tanga. — A.-Hún.: Hannes Páls-
son, Undirfelli. — Skagafj.s.:
Gísli Magnússon, Eyhildarliolti.
— Eyjafj.s.: Einar Árnason, Eyr-
arlandi. — Akureyri: Bernharð
Stefánsson, alþm. — S.-Þing.:
Karl Kristjánsson, Húsavík. —
N.-Þing.: Björn Kristjánsson,
Kópaskeri. — N.-Múl.: Halldór
Ásgrímsson, Vopnafirði. — S.-
Múl.: Bened. Guttormsson,
Eskifirði. — A.-Skaft.: Sig. Jóns-
son, Staðarfelli. — V.-Skaft.: Sig-
geir Lárusson, Kirkjubæjar-
klaustri. — Vestm.eyjar: Sveinn
Guðmundsson. — Rangárv.s.:
Sigurþór Ólafsson, Kollabæ. —
Árness.: Bjarni Bjarnason, Laug-
arvatni.
í gærkvöldi kaus miðstjórnin
sér stjórnarnefnd og féll kosning
þannig:
Formaður: Hermann Jónas-
son. Ritari: Eysteinn Jónsson.
gjaldkeri: Jens Hólmgeirsson. —
Varaformaður: Bjarni Ásgeirs-
son.
Fregnir frá hlutlausum liindum scgja
vaxandi misklíð milli konungs og Anton-
cscu forsætisráðhcrra. Er mcðal annars
sagt, að konungur hafi neitað að skrifa
unclir tilskipun ráðherrans, þar scin sagt
var, að Rúmcnar myndu berjast með
Þjóðverjum, unz yfir lyki. Rússncskur
her sækir nú imi í Rúmeníu.
NÁMSSKEIÐ |Mikael Rúmenakonungur
verour haldið í Háskólanum
dagana 15. maí til 1. júní þ. á.
Kennslan verður með náms-
flokkasniði. I hverri námsgrein
verða haldnir fáeinir fyrirlestr-
ar og síðan hafðar æfingar og
samtalstímar um námsefnið. —
Þessar námsgreinar verða
stundaðar:
Lestur bókmennta. Kennari
dr. phil. Steingrímur J. Þor-
steinsson.
Leikstarísemi. Kennari Lár-
us Pálsson leikari.
Félagsstarf. Leiðbeinendur
Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi og Ágúst Sigurðsson cand.
mag.
Islenzka. Kennari Sveinbjörn
Sigurjónsson magister.
Þættir út atvinnu- og menn-
ingarsögu Islands. Kennari Þor-
kell Jóhannesson dr. phil.
Hjálp í viðlögum. Rauði
Kross íslands gengst fyrir þess-
um þætti.
Ennfremur mun dr. phil.
Guðm. Finnbogason flytja er-
indi á námsskeiðinu.
Ef þátttakendur óska ekki
eftir að taka þátt í öllum náms-
greinum, skal þess getið í um-
sóknum.
Þátttökugjald er 50 kr.
Þeim þátttakendum, sem þess
óska, mun verða séð fyrir gist-
ingu í Stúdentagarðinum eða í
Stýrimannaskólanum. Gisting-
in kostar 8 kr. á dag í tveggja
manna herbergjum í Stúdenta-
garðinum, en kr. 4 á dag í
fleirbýlisstofum í Stýrimanna-
skólanum. Búist er við því, að
hægt muni verða að útvega
nokkrum fæði í mötuneyti
stúdenta. Fæðið kostar 10 kr. á
dag. Þeir, sem óska eftir gist-
ing eða fæði, þurfa að taka það
fram.
Umsóknir sendist Ágúst Sig-
urðssyni, Freyjugötu 35, Rvík,
eigi síðar en 25. apríl.
Nýstárleg gluggasýning
Á morgun og um helgina verð-
ur nýstárleg gluggasýning í
K. E. A. við Kaupvangs-
torg. Þeir Edvard Sigurgeirsson,
ljósmyndari, og Kristján Geir-
mundsson, sýna þar útstoppað-
an haus af íslenzkum hreintarfi,
hreindýrsfeld og hom af hrein-
dýrskú. Hefir Kristján Geir-
mundsson stoppað hausinn. —
Tarfur þessi var skotinn á
Vestur-Öræfum á sl. hausti af
Frá bæjarstjórn:
Undirbúningsnefnd
lýðveldshátíðar
kosin
Á aukafundi bæjarstjórnar
Akureyrar sl. fimmtudag var
kosin nefnd til þess að undirbúa
og sjá um hátíðahöld í bænum í
tilefni lýðeldisstofnunar 17.
júní næstk. Þessir menn eiga
sæti í nefndinni:
Þorsteinn M. Jónsson, skóla-
stjóri.
Friðrik J. Rafnar, vígslu-
biskup.
Áskell Snorrason, tónskáld.
Þá voru eftirtaldir menn
kjörnir til þess að vinna að þátt-
töku í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 20.—23. maí næstk.:
Guðm. Guðlaugsson, verk-
smiðjustjóri.
Steingr. Aðalsteinsson, alþm.
Jens Eyjólfsson, skrifst.m.
Jón Hinriksson, vélstjóri.
Nefndin sjálf tilnefnir fimmta
mann.
Fr. Stefánssyni, en hann hefir
eftirlit af ríkisins hálfu með
hreindýrastofninum. — Mun
marga fýsa að sjá sýningu
þessa, því að þeir munu fáir hér
um slóðir, sem séð hafa íslenzkt
hreindýr. — Eigandi muna
þessara er Edvard Sigurgeirs-
son, en hann hefir, svo sem
kunnugt er, farið rannsóknar-
ferðir á hreindýraslóðir á Öræf-
um ásamt Helga Valtýssyni, á
undanförnum árum.