Dagur - 27.04.1944, Page 1
ANNALL
DAGS
Flugfélag íslands h/f. hefir
fengið nýja ílugvél og er gert ráð
fyrir að hún geti tekið til starfa
á leiðinni milli Reykjavíkur og
Akureyrar í næsta mánuði. —
Verða þá tvær flugvélar starf-
ræktar á þeirri leið og til Aust-
urlands. Hin nýja flugvél er
brezk, smíðuð af De Havilland
verksmiðjunum, sem m. a. fram-
leiða hinar frægu Mosquito-
sprengjuflugvélar, og er eins og
þær, gerð úr tré. Nefnist hin
nýja vél Dragon Rapide. Hún
mun geta flutt 6—8 farþega.
Þá hefir hið nýstofnaða flug-
félag, Loftleiðir h/f. í Reykjavík,
sem þegar hefir éina litla flugvél
til umráða, gert ráðstafanir til
þess að fá aðra flugvél af svip-
aðri gerð. Er einn af stjómend-
um félagsins nýlega farinn vest-
ur um haf í þeim erindum.
_ ★
Laugardaginn 22. þ. m. kom
upp eldur í Verkamannaskýlinu
við Kaupvangstorg hér í bænum.
Slökkviliðinu tókst að slökkva
eldinn áður en nokkurt veru-
legt tjón hlauzt af. Líkur virðast
benda til, að hér hafi verið um
íkveikju af manna völdum að
ræða. Er málið í rannsókn og er
vonandi að takast megi að hafa
upp á sökudólginum og refsa
honum harðlega.
★
Vísitala framfærslukostnaðar í
aprílmánuði er 266 stig, eða 1
stigi hærri en í marz.
★ _
Agætur afli hefir verið í ey-
firzku verstöðvunum nú að und-
anfömu. Er vertíðin það sem af
er ein hin bezta um margra ára
skeið. Mestur hluti aflans er
fluttur út, ísvarinn.
★
Jarðarför Þorsteins Þorsteins-
sonar byggingameistara frá Lóni
fór fram síðasta vetrardag. —
Kveðjuathöfn fór fram í Akur-
eyrarkirkju. Sr. Friðrik J. Rafn-
ar, vígslubiskup, flutti kveðju-
orð, en Karlakórinn Geysir ann-
aðist söng. Karlakór Akureyrar
og Kantötukór Akureyrar heiðr-
uðu hinn látna með söng. Kirkj-
an var þéttsetin. Að kveðjuat-
liöfninni lokinni var haldið að
Möðmvöllum í Hörgárdal og
fylgdi fjöldi Akureyringa í 26
bifreiðum. Þar flutti sóknai-
presturinn, Sr. Sigurður Stefáns-
son, minningarræðu, en „Geys-
ir“ söng. Var jarðarförin mjög
hátíðleg og virðuleg.
LL
AGIJR
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 27. apríl 1944
17. tbl.
HEILDAR VÖRUSALA K. E. A. UM 37 MILJÓN KR. Á SÍÐÁSTLIÐNU ÁRI
6% arður af ágóðaskyldum vörum og
lyfjum — 8% arður af brauðum
ínnstæður félagsmanna rösklega 12.5 milj.
króna í árslok
Merkilegar framfarir í lælmavísindum
á styrjaldarárunum
Samtal við Guðmund Karl Pétursson yfirlækni, iim
dvöl hans í Bandaríkjunum
Eins og áður er frá skýrt, kom Guðm. Karl Pétursson yfirlæknir
hingað til bæjarins fyrra þriðjudagskvöld eftir sex mánaða dvöl í
Bandaríkjunum. Læknirinn fór vestur um haf snemma í október
fyrra ár, sótti þing skurðlækna í Philadelphiu sem fulltrúi íslands
seint í mánuðinum og ferðaðist síðan um vestra, dvaldi við sjúkra-
liús og vísindastofnanir og kynnt sér ýmsar nýungar á sviði skurð-
lækninga. „Dagur“ kom að máli við Guðm. Karl nú fyrir skemmstu
og fór þess á leit ,að fá að segja lesendum sínum eitthvað um för-
ina vestur og var það auðsótt.
Lýðveldiskosninganefnd
Eyjafjarðarsýslu skipuð
Sýslumaður, Sig. Eggerz, hef-
ir skipað eftirtalda menn í lýð-
veldiskosninganefnd Eyjafjarð-
arsýslu, samkv. tilnefningu
flokkanna:
Stefán Stefánsson, Fagra-
skógi, Hólmgeir Þorsteinsson,
Hrafnagili, Jón Sigurjónsson,
Byrgi, Glerárþorpi, Kristján Jó-
hannesson, Dalvík. Nefndin til-
nefndi síðan formann sinn, Sig.
Eggerz bæjarfógeta.
„Eg lagði upp héðan 9. októ-
ber sl.,“ sagði Guðm. Karl, „og
gekk ferðin vestur greiðlega. ís-
lenzku ríkisstjórninni hafði ver-
ið boðið að senda fulltrúa á 51.
þing sambands amerískra her-
skurðlækna, og var mér falið að
mæta þar. Þingið hófst í Phila-
delphiu seint í október og var
f jölsótt, m. a. sóttu það allmarg-
ir fulltrúar erlendra þjóða. Þar
voru til umræðu ýms vandamál
læknisfræðinnar og bar margt á
góma. Eins og að líkum lætur
dró þingið nokkurn dám af líð-
andi stund, þ. e. af stríðinu, og
snerist að miklu leyti um hlut-
verk læknisfræðinnar í styrjöld-
inni. Margt af því var sérstaks
eðlis, og varðaði hernaðarþjóð-
irnar mest, en þó var úr miklu
að velja, er hafði almennt gildi.
Því að í kjölfar stríðsins koma
ýmsar nýungar, sem miða að
því, að linna þjáningar særðra
manna - og auka möguleika
þeirra til bata, og ýmsar af þeim
nýungum munu vitaskuld koma
að góðu haldi meðal venjulegra
borgara, þá slys ber að höndum
eða meiðsli."
— Viltu ekki nefna einhver
dæmi slíkra nýunga?
„Eg á sérstaklega við þá stað-
reynd, að síðan fyrst var farið
að gera skýrslur um dánartölu
særðra hermanna hefir hún
lækkað úr 50% í 2Vfe% og
hefir verulegur hluti þeirra
framfara orðið á síðustu árum,
Þau atriði, sem þar hafa afrekað
mest eru blóðgjafir, sulfameðöl
og penicillin, hið nýja sára-
lyf, og svo ekki sízt hin stór-
aukna tækni til flutninga. Flug-
vélin flytur sjúklinginn á stuttri
stund af vígvellinum á fullkom-
in sjúkrahús að baki víglínunn-
ar, þar sem hann nýtur umönn-
unar góðra lækna, sem hafa góð
vinnuskilyrði. Auk þess, sem áð-
ur er nefnt, hefir tækni í gerfi-
limasmíði, skinnflutningi og
græðslu líkamshluta farið svo
mikið fram, að læknum tekst
nú að gera undraverða hluti við
særða hermenn, sem litla von
hefðu átt bata fyrir nokkrum
árum síðan. Þá er og þess að
geta, að það er ekki einungis
lögð áherzla á að lækna líkam-
ann, — heldur líka sálina, ef
svo má að orði kveða, — forða
því að sjúklingurinn missi
kjarkinn, álíti að hann géti ekki
gerzt góður starfsmaður þjóð-
félagsins. Þetta viðhorf gagn-
vart lömuðum mönnum er að
mörgu leyti nýtt, og með því er
reynt að spyrna gegn vonleysi
og eymd, og með góðri læknis-
aðstoð og æfingu veikra lima
(Framliald á 6. síðu).
Gunnar Hlíðar gegnir
dýralæknisstörfum til
bráðabirgða
Gunnar Hlíðar mun gegna
dýralæknisstörfum hér í hérað-
inu til bráðabirgða, frá næstu
mánaðamqtum, mánuðina maí
og júní. Verður hann til viðtals
eftir 1. maí að Hótel Goðafoss
hér í bænum.
Karlakór
Akureyrar
hélt samsöng í Nýja-Bíó hér í
bænum sl. sunnudag. Söngstjóri
kórsins er Áskell Jónsson, en ein-
söngvarar á hljómleikum þess-
um voru þeir Sverrir Magnússon
°g Jóhann Konráðsson, báðir
raddmenn góðir. Á söngskránni
voru 8 lög eftir íslenzka höf-
unda: Björgvin Guðmundsson,
Áskel Snorrason, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Sigfús Einars-
son, auk nokkurra laga eftir er-
lend tónskáld. Hvert' sæti var
skipað í húsinu og tóku.áheyr-
endur söng kórsins með kostum
og kynjum, enda virtist söng-
flokkurinn ágæta vel þjálfaður
og honum örugglega stjórnað.
Varð kórinn að endurtaka ýmis
laganna og syngja aukalag að
lokum.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirð-
inga hófst hér í bænum sl.
þriðjudagsmorgun og lauk í gær-
kvöldi. Fundinn sóttu um 185
fulltrúar frá 21 félagsdeild, auk
stjórnai', framkvæmdastjóra og
endurskoðenda.
Formaður félagsins, Einar
Árnason á Evrarlandi, og fram-
kvæmdastjóri þess, Jakob Frí-
mannsson, fluttu ítarlegar skýrsl-
ur á fundinum um afkomu fé-
lagsins og framkvæmdir á sl. ári.
Eru þessi atriði helzt úr ræðum
þeirra:
Vörusala félagsins í búðum
bess á Akureyri og í útibúunum
við fjörðinn nam alls unr kr.
14.000.000.00. Þar að auki er sala
miðstöðvar- og hreinlætistækja
um kr. 950.000.00. Sala kjötbúð-
arinnar kr. 1.800.000.00. Lýfja-
búðarinnar kr. 450.000.00. Kol
og salt kr. 1.160.000.00. Brauð-
gerðarvörur, ásamt mjólk í
brauðútsölum kr. 1.125.000.00.
— Smjörlíki og efnagerðarvörur
kr'. 1.220.000.00. Vörur frá sápu-
verksnriðjunru og kaffibætisverk-
smiðjunni kr. 1.260.000.00. Síld
armjöl kr. 200.000.00. Saman-
lögð sala allra þessara starfs-
greina nernur því rúmlega 22
milljónum kiróna, sem er um
30% aukning frá árinu 1942.
Þar að auki er svo sala lelags-
ins á innlendum afurðum, kjöti,
gærum, ull o .s. frv., svo að heild-
arvörusala félagsins og allra
stofnana þess nemur rösklega 37
milljónum króna á árinu 1943.
miðað við 30 milljónir á árinu
1942.
Hagur félagsins og félags-
manna gagnvart félaginu hefir
enn farið batnandi á árinu. 1
árslok voru innstæður félags-
manna í reikningum, stofnsjóð-
um og innálnsdeild kr. 12.719.-
399.27, en skuldir þeirra samtals
kr. 1-50.4,50.40. 1 árslok 1942
voru inneignir 8.193.521.01, en
skuldir 160.746.54 og hafa ástæð-
ur félagsmanna gagnvart félag-
inu batnað á árinu urn kr.
4.536.174.40. Ástæður félagsins
sjálfs út á við höfðu batnað að
sama skapi og nárnu innstæður
félagsins hjá Sís og hjá bönkum
um 9 milljónum króna.
‘Arður. — Innstæða ágóða-
reiknings var kr. 296.139.12 og
var samþykkt tillaga stjórnar og
endurskoðenda um 6% arð af
ágóðaskyldum vörum, 6% af
' lyfjum og 8% af brauðum.
YFIR HIMALAYA-FJÖLL.
Myndin er tekin um borð i ameriskri
flutningafluévél á leið yfir Himalaya-
fjött, hæzta fjallgarð veraldar. Flug-
mennirnir verða að hafa súrefnis-
grímur til þess að þola hið þunna loft
þar uppi.
Framkvæmdir á árinu. — Sam-
kvæmt skýrslu stjórnarinnar
voru helztu nýjar franrkvæmdir
á árinu:
1. Félagsstjórnin ákvað að láns-
verzlun við félagið félli niður frá árs-
byrjun 1943 og tekin skyldu upp
staðgreiðsluviðskipti. Jafnframt voru
deildarábyrgðir felldar niður og hætt
að láta úti vöruávísanir, en innstæður
manna greiddar í peningum eftir þörf-
um þeirra. Þá var og sett á stofn út-
lánadeild með 500 þús. kr. framlagi
frá félaginu. Hefir félagið rekið verzl-
un undir þessu skipulagi á árinu.
2. Stjórnin keypti fyrir félagsins
hönd úrvals kynbótahest til afnota í
héraðinu. Verðið var 3500 kr.
3. Keyptur 1/3 hluti úr bryggju á
Grenivík af Oddgeiri Jóhannssyni.
Kaupverðið var 3500 kr.
4. Keyt'10 þús. kr. hlutabréf í h.f.
Sindri, sem starfrækir kolsýruverk-
smiðju á Akureyri.
5. Samþykkt að leigja Sambandi
ísl. samvinnufélaga lóðarspildu undir
vörugeymsluhús nyrzt á lóð félagsins
vestan Sjávargötu.
6. Reist vérzlunar- og íbúðarhús á
horninu milli Hamarstígs og Hlíðar-
götu, þar sem hið nýjasta af útibúum
K. E. A. er tekið til starfa.
7. Þar sem komið hefir í ljós, að
frystihús félagsins á Dalvík er of lítið
til að geta fullnægt þörfum útgerðar-
innar þar, ákvað stjórnin að baett
skyldi við frystihúsið tveim frysti-
klefum og jafnframt að bæta úr þörf
útgerðarmanna um húsrúm til beit-
inga.
(Framhald á 8. síðu.