Dagur


Dagur - 17.05.1944, Qupperneq 1

Dagur - 17.05.1944, Qupperneq 1
 ANNALL DAGS Á bæjarstjómarfundi í gær var tekið fyrir erindi Atvinnu- málaráðuneytisins, þar sem lagt var til, að athugað yrði, hvort ekki væri hagkvæmt, að leggja störf Vinnumiðlunarskrifstof- unnar hér undir skrifstofur bæj- arins. Fjárhagsnefnd kaupstað- arins hafði tekið málið til með- ferðar og var svofelld ályktun samþykkt: Nefndin telur tæpast fært, að taka störf Vinnumiðl- unarskrifstofunnar inn á skrif- ’stofur bæjarins, þótt henni sé ljóst, að talsvert mætti spara með því, þegar jafnlkið er um umsóknir um vinnu og verið hefir síðastl. ár. Jafnframt lítur bæjarstjómin svo á, að hún hafi ekki heimild til að breyta þeirri ákvörðun vinnumiðlunarstjórn- ar, að ráðá sérstakan skrifstofu- stjóra og setja upp sérstaka skrif- stofu, en Vinnumiðlunarskrif- stofan á Akureyri var fyrst sett á stofn eftir fyrirmælum atvinnu- málaráðherra, en ekki eftir ósk bæjarstjórnar. • ★ Fyrir sama bæjarstjórnarfund- inum vom drög að skipulags- skrá fyrir íþróttahús Akureyrar frá íþróttafulltrúa ríkisins. Er þar gert ráð fyrir, að 3ja manna húsnefnd annist rekstur eignarinnar, sem verði sjálfs- eignarstofnun, og verði nefndin kosin þannig: 2 af bæjarstjóm Akureyrar og 1 af héraðsþingi íþróttamanna, eða þangað til það verður stofnað, af fþrótta- ráði Akureyrar. LL Mil XXVII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 17. maí 1944 20. tbl. STÚRKOSTLEGUR GRÖÐIEIMSKIPAFELAGSINS Á S. L. ÁRI Viðskiptaráðið lækkar farmgjöld félagsins um 45% Ríkisstjórnin byrjar eftirlit með nauð- synjabirgðum Norðurlands, til öryggis, ef ís legðist að landinu Telur innkaup verzlana aðalatriðið, en virðist ganga fram hjá siglingamálunum / Fyrir bæjarstjórnarfundinum í gær lá m. a. erindi, sem settur bæjarfógeti, G. Eggerz, hafði sent bæjarstjóminni, um nauðsynja- birgðir héraðisns, er Viðskiptamálaráðtíneytið hafði sent Oddvita sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu. Fer bæjarfógeti fram á, að bæjar- sijómin taki afstöðu til málsins. Ný r amerískur sendiherra Leland B. Morris fer til Iran Fréttatilkyrminé írá utanríkis- réðuneytinu: Samkvæmt tilkynningu frá sendinefnd Bandaríkjanna, hef ir Mr. Leland B. Morris sendi- herra, af forseta Bandaríkjanna verið skipaður Ambassador í Iran, og lætur hann því af störf- um hér. Mr. Morris mun fara héðan mjög bráðlega. í stað hans hefir Mr. Louis Goethe Dreyfus sendiherra í Iran verið skipaður sendiherra Bandaríkj- anna hér, og mun hann væntan- legur hingað til lands innan skamms. Erindi ráðuneytisins er svo- hljóðandi: — Ráðuneytinu hafa borist áskoranir um, að það hlutist til um, að nægilegar birgðir elds- neytis og annarra lífsnauðsynja séu ævinlega fyrirliggjandi á þeim Stöðum, sem hætta er á að ís . geti lagst að landi og tafið samgöngur. Skilyrði til þess að ráðuneytinu sé fært að aðstoða í þessu efni er, að hlutaðeigandi héraðsstjómir hafi eftirlit með að verzlanir á héraðssvæðinu geri nægilega mikil innkaup eft- ir eftir því sem héraðsstjórn álítur. Verða hlutaðeigandi sýslunefndir og bæjarstjórnir því að fylgjast með innkaupum verzlana í héraðinu eða bænum og brýna fyrir þeim, að hafa nægar birgðir fyrirliggjandi. - - Það er fyrst ef þetta reynist ekki bera árangur, að ríkis- stjómin hefir ástæðu til þess að grípa í taumana. Er því hór með beint til yðar, að rannsaka hvort verzlanir í bænum eru viljugar til þess að kaupa og eiga þær birgðir af slíkum vör- um, sem bæjarstjómin álítur hæfilegar og láta ráðuneytinu í té vitneskju um þetta eigi síðár en 20. þ .m. Eins og sjá má af þessu, telur ráðuneytið það aðalatriðið þessu máli, hvort verzlanir hér um slóðir séu viljugar til þess að kaupa og eiga nægar birgðir af vömm til þess að fyrirbyggja skort, ef samgöngur tefðust. -— Þessi mál öll hafa oft verið til umræðu lér í blaðinu og er lesendum íunnugt um skoðanir blaðsins á þessu. Vér höfum alltaf talið, að aldrei hafi staðið á því, að verzlanir vildu eiga nægar birgðir, væri þeim það íært. Það er aðalatriði málsins. Hættan á skorti hefir stafað af ófullnægj- andi siglingum til Norðurlands og fyrst og fremst af umhleðslu- fargani því, sem Eimskipafélag- (Framhald á 8. síðu. Pétur Benediktsson gengur á fund Kalinins ' Fréttatilkynniné frá utanríkis- ráðuneytinu: Utanríkisráðuneytinu hefir borizt frétt um það, að sendi- herra íslands í Moskva, Pétur Benediktsson, hafi þann 10. maí afhent Kalinin forseta æðsta ráðs Sovétríkjanna em- beettisskilríki sín. Nýstárleg málverkasýning Á morgun hefst nýstárleg málverkasýning í Zíon hér í bænum. 14 nemendur Hauks Stefánssonar málara sýna þar um 80 olíumálverk af fjöl- breyttum viðfangsefnum. Sýn- ingin verður opin frá kl. 10 í fyrramálið, til 21. þ. m., frá kl. 10 til 22 dag hvern. Ólöglegur innflutn- ingur fólks í bæinn 400 manns hafa komið síð- an 1941, og meirihlutinn ólöglega GUNNAR JÓNSSON, spí talaráðsmaður hefir sagt sig úi húsnæðisnefnd Akureyrar. — bréfi er hann hefir ritað bæjar stjórninni og lá frammi á síð- asta fundi segir m. a.: Höfuð ástæðan (fyrir úrsögn úr nefnd inni) er, að eg hefi ekki fengið því framgengt, að hafnar yrðu athuganir og aðgerðir gegn inn flutningi fólks í bæinn. Það er álit mitt að ef tekið væri fyrir innflutning fólks, eins og húsa- leigulögin heimila, þá væri ekki um neitt húsnæðisleysi að ræða. — Eg tel óverjandi, að aðflutt fólk taki húsnæði frá bæjarbú- um og komi svo á eftir inn í at- vinnuleysingjahópinn. Eg hefi lagt innflytjendaskýrslu fyrir fasteignanefnd, og síðan húsa- leigunefnd, um innflutning (Framhald i 8. líðu. Viðskiptaráð hefir tilkynnt, að frá og með 9. maí s.l. lækki öll íarmgjöld með skipum Eimskipafélagsins í Ameríkusiglingum um 45%. Þessi ákvörðun vekur gííurlega athygli hvarvetna um land, því að af henni og greinargerð, sem fylgdi, er ljóst orðið, að gróði Eim- skipafélagsins á síðastliðnu ári aí óhæfilega háum farmgjöldum hlýtur að vera stórkostlegur, enda þótt engar opinberar tölur liggi fyrir að svo komnu máli. I greinargerð Viðskiptaráðsins er aðeins sagt, að reikn- ingar félagsins sýni svo góða afkomu á s.l. ári, að fært hafi þótt að gera þessa ráðstöfun. YFIRMAÐUR AMERISKA FLUGHERSINS. Myrtdin er af Henry H. Arnold hershöfSinéja. Barnaskóla Akur- eyrar slitið 300 börn í vorskólanum BARNASKÓLA AKUREYR- AR var slitið 10. þ. m. Skóla- stjórinn, Snorri Sigfússon, flutti ýtarlega skýrslu um störf skól- ans í vetur og ávarpaði fullnaðarprófsbörnin og við- tadda foreldra. Um 720 börn stunduðu nám í skólanum í 28 deildum. Luku 106 þeirra fullnaðarprófi og þar af 83 með ágætiseinkunn og fyrstu einkunn. Flest börnin höfðu lokið sundprófi og allar stúlkurnar prófi í matreiðslu. í bókasöfpum skólans eru nú 560Ö bindi bóka. í sparisjóðinn höfðu safnast 2400 krónur. Fjölmennur foreldrafundur var haldinn á árinu og blað sent inn í heimilin fyrir jólin. Margt for- eldra höfðu heimsótt skól'ann til viðtals og kynningar. Hin árlega skemmtun, sem börnin halda jafnan fyrir bæjar- búa, var óvenjulega fjölsótt og varð að sýna í fimm kvöld sam- fleytt. Ágóðinn gekk að nokkru til Barnahjálparinnar, en ann- (Framhald á 8. sfðu.) Óstaðfestar fregnir herma, að gróði félagsins á síðastl. ári nemi 18—20 milljónum króna. Ef þessar tölur eru nærri lægi, og það verður að teljast líklegt af þeim ráðstöfunum sem hið opinbera hefir þegar gert, er augljóst hvern þátt forráða- menn félagsins eiga í yfirstand- andi dýrtíð með óhæfilega há- um farmgjöldum, því að ofan á þau bætist síðan tollur og á- lagning verzlana. Þess má geta til samanburðar, að öll sala á mjólk og mjólkurvörum til Reykjavíkur og Hafnarfjarðar á s. 1. ári nam svipaðri upphæð, og hefir mikið verið rætt um þátt þeirrar sölu í dýrtíðinni i Reykjavíkurblöðunum. Hins vegar virðist þáttur farmgjald- anna hafa farið fram hjá þess- um blöðum að mestu til þessa. Það vekur nokkra furðu, að forráðamönnum félagsins skuli hafa haldizt svo lengi uppi að ■ (Framhald á 8. síðu). Skortur á varahlut- um í landbúnaðar- vélar Járnsmíðaverkstæði Magnúsar Arnasonar hér í hænum tekur að sér við- gerðir og nýsmíði, eftir j)ví sem fönú verða á Magnús Á. Árnason járn- smiður, Lundargötu 2 hér í bænum, er nýlega kominn heim úr ferð til Reykjavíkur, þar sem hann leitaðist við að kynna sér hvað til væri af varahlutum í landbúnaðarvélar, en verkstæði Magnúsar hefir á undanförnum árum sérstaklega lagt stund á viðgerðir þessara véla. Þar sem Degi var kunnugt, að margir bændur eru í vanda staddir vegna bilana á landbúnaðarvél- um, sneri blaðið sér til Magnús- ar og spurðist frétta um útlit í þessum málum. Fórust Magnúsi svo orð m. a.: „Eg komst að raun um, að mikill skortur er á ýmiss konar (Framhald á 8. síðu),

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.