Dagur - 22.06.1944, Blaðsíða 1
ANNALL
DAGS
75 ára afmæli átti Ottó Tuli-
nius kaupm. hér í bæ 20. þ. m.
Hann hefir ekki sézt á faralds-
fæti nú um langan tíma, vegna
fótaveiki, sem hann er haldinn
af. Hann hefir jafnan verið
hressilegur maður og drengileg-
ur og munað hefir um hann,
hvar sem hann lagðist á. Ottó
Tulinius tók hér áður mikinn
þátt í bæjarlífinu og voru hon-
um falin ýmis trúnaðarstörf, sem
hann leysti af hendi með rösk-
leika. Tvívegis hefir hann átt
sæti í bæjarstjórn um skeið og
var þar vel liðtækur eins og á
öðrum sviðum. Hánn var fyrsti
forseti bæjarstjórnar, eftir að
bæjarstjóraembættið var stofn-
að, og bæjarfógeti hætti að vera
oddviti hennar.
★
Blaðinu hefir borizt eftirfar-
andi frétt um afla Dalvíkurbáta
á vorvertíðinni sl., eða frá því
um miðjan febrúar til maíloka.
Fjórir bátar taldir hér á eftir
voru gerðir út á vetrarvertíð
annars staðar frá en af Dalvík:
m/b „Gunnar Pálsson" og m/b
„Nói“ frá Siglufirði og m/b
„Leifur Eiríksson“ og m/b
„Baldvin Þorvaldsson“ frá Sand
gerði.
Heildaraflinn er 1204 tonn og
skiptist þannig:
M/b „Jón Stefánsson“ byrjar
veiði 5. marz, heildarafli 160
tonn. M/b „Hannes Hafstein"
byrjar veiði 21. febr., heildarafli
790 tonn. M/b „Arngrímur
Jónsson“ byrjar veiði 14. febr,
heildarafli 163 tonn. M/b
„Björgvin“ byrjar veiði 11. marz,
heildarafli 132 tonn. T/b
„Yalur“, opinn bátur, byrjar
veiði 22. febr., heildarafli 102
tonn. M/b „Björg“ ,lítill dekkb.,
byrjar veiði 7. marz, heildarafli
90 tonn. T/b „Heimir“, opinn
bátur, byrjar veiði 8. apríl, heild-
arafli 16 tonn. M/b „Nói“ byrjar
veiði 14. apríl, heildarafli 108
tonn. M/b „Gupnar Páls“ byrjar
veiði 14. apríl, heildarafli 90
tonn. T/b „Reynir“, opinn bát-
ur, byrjár veiði 15. apríl, heild-
arafli 18 tonn. M/b „Leifur Ei-
ríksson byrjar veiði 25. maí,
heildarafli 23 tonn. M/b „Bald-
vin Þorvaldsson“ byrjar veiði 25.
maí, heildarafli 18 tonn. T/b
„Sæbjörg“, opinn bátur, byrjar
veiði 29 maí, heildarafli 1 tonn.
Árabátar og einstakir menn 83
tonn. — Úr þessum afla hafa
fengist 64,071 lítrar af lifur.
HIÐ NÝJA GISTIHUS K.
E. A. ER TEKIÐ TIL
STARFA
Hið veglega, nýja gistihús
Kaupfélags Eyfirðinga er tekið
til starfa. Fulltrúar á aðalfundi
Sambands ísl. samvinnufélaga,
sem hefst hér í bænum í dag,
voru fyrstu gestir.
Lýsing á gistihúsinu og fyrir-
huguðum rekstri þess verður
birt £ næsta blaði.
LL
AGUR
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 22. júní 1944
25. tbl.
LYÐVELDIÐ EKDURREIST AÐ LÖGBERGI
SVEINN BJÖRNSSON KJÖRINN FYRSTIFORSETIÍSLANDS
Þjóöhátíö um allar íslands hyggÖir
Sól og sumar signdu þjóÖ-
hátiÖarhöld Norölinga
Lýðveldinu fagnað með fjölmennum hátíðahöldum
í bæ og byggð
gUMAR OG SÓL heilsuðu lýðveldinu víðast hvar norðanlands.
Hér á Akureyri risu menn árla úr rekkjum til þess að fagna
miklum degi og draga fána að hún. Var veður þá fagurt, sunnan-
gola og sólskin annað veifið og útlit ágætt. Hlýnaði og glaðnaði
enn meir er á daginn leið, og mátti með sanni segja, að náttúran
heilsaði lýðveldinu eins vingjarnlega og bezt varð á kosið.
Hátíðahöldin hér í bænum og
í sýslunni fóru fram með mikl-
um myndarbrag og að öllu leyti
„samkvæmt áætlun". Voru dag-
skrár birtar í síðasta blaði.
Hér á Akureyri safnaðist fólk
saman á Ráðhústorgi laust fyrir
klukkan 10 og lék Lúðrasveit
bæjarins, undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar, ættjarðarlög, en
menn röðuðu sér í skrúðgöng-
una til kirkju. Lúðrasveitin fór
fyrst, þá skátar og síðan ýmis fé-
lög bæjarins, undir fánum sín-
um, og loks allur almenningur
og var gangan afar fjölmenn. —
Var gengið af torginu norður
Brekkugötu, niður Gránufélags-
götu, suður Glerárgötu, upp
Strandgötu, um Hafnarstræti,
upp Spítalaveg og niður Eyrar-
landsveg til kirkju. Þar prédik-
aði sóknarpresturinn, sr. Friðrik
J. Rafnar, vígslubiskup. Hófst
guðsþjónustan laust eftir kl. 11.
Stórstúkuþingið hefst í
Akureyri næstkomandi
mánudag
Eftir hádegi safnaðist fólk sam-
an á Ráðhústorgi og hlýddi á út-
varp frá Þingvöllum, en gjallar-
hoi'ni hafði verið fyrirkomið á
torginu, svo að. heyrast mátti um
allt svæðið. Heyrðu menn þar
lýst gildistöku lýðveldisstjórnar-
skrárinnar og lýst kjöri forseta
og var hann hylltur. Að því
loknu hófst hátíðin hér. For-
maður hátíðarnefndar, síra
Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup,
setti hana með stuttri ræðu. Þor-
steinn M. Jónsson skólastjóri
flutti aðalhátíðarræðuna og
minntist fullveldisins. Stein-
grímur Jónsson, fyrrv. bæjarfó-
geti, flutti minni Jóns Sigurðs-
sonar forseta. Einar Árnason,
fyrrv. alþingismaður, minni hér-
aðsins, en Sigurður Róbertsson,
rithöf., minni fánans. Lúðra-
sveitin lék og karlakórar bæjar-
ins, „Geysir“, undir stjórn Ingi-
mundar Árnasonar, og Karlakór
Akureyrar, undir stjórn Jóhanns
Ö. Haraldssonar, sungu. Þar á
meðal söng Karlakór Akureyrar
nýtt lag við hátíðarkvæði Jó-
hannesar úr Kötlum, er söng-
stjórinn, Jóhann Ó. Haraldsson,
liafði samið.
Um kvöldið safnaðist mikill
mannfjöldi saman á Ráðhús-
torgi. Var þar fyrirkomið gjall-
arhorni og var leikin dansmúsik
Eins og kunnugt er átti Góð-
templarareglan á íslandi 60 ára
afmæli 10. jan. sl. Var þessa af-
mælis. þá rninnst allrækilega og var dans. stiginn á torginu um
bæði í blöðum og útvarpi. j stund. Lúðrasveitin lék síðan
í tilefni þessara merku tíma- nokkur lög og lauk hátíðinni
móta í sögu Reglunnar hefir ver- um miðnætti. Var veður jafn
ið ákveðið að halda þing Stór-
stúkunnar að þessu sinni á Akur-
eyri, þar eð fyrsta Góðtemplara-
stúka landsins, stúkan ísafold nr.
1 var stofnuð hér fyrir rúmurn
60 árum, og er gjört ráð fyrir
að þing þetta muni verða sótt
víðs vegar að af landinu og verða
mjög fjölmennt.
Þingið verður sett mánudag-
inn 26. júní og hefst með guðs-
(Framhald á 3. síðu).
fagurt allan daginn, bærinn var
í hátíðarbúningi og fólk í hátíð-
arskapi. Fánar blöktu um gjör-
vallan bæinn og á skipum í höfn-
inni.
Kaupfélag Eyfirðinga hafði
efnt til fallegra gluggasýninga í
verzlunarhúsi sínu við Hafnar-
stræti. Var einn gluggi helgaður
Jóni Sigurðssyni, en aðrir sýndu
iðnað félagsins hér á Akureyri.
Vakti sýning þessi mikla athygli.
REGN OG DIMMVIDRI HINDRUDU
El DÝRLEGA HÁTÍÐ Á WNGVÖLLUM
Þingvöllum 17. júní. Eítir HALLDÓR SIGURÐSSON.
þEGAR SÁ, er þetta ritar, kom til Þingvallla á föstudagskvöld, var
þegar mikill fjöldi fólks kominn á staðinn og tjöldin á efri
völlunum orðin yfir 1000. Var þá geysiþröng gangandi fólks og
bifreiða, alla leið ofan úr gjá og inn fyrir velli. Kom þá strax í ljós,
hve bagalegt er, að ekki skuli vera hægt að hafa einstefnuakstur
um staðinn á slíkum stórhátíðum sem þessum. Um kvöldið fjölgaði
tjöldunum svo ört, að undrun sætti. Sá, sem tók að reisa tjald sitt í
ró og næði í útjaðri tjaldborgarinnar kl. 7, var umkringdur af
tjöldum áður en hann lauk verkinu, og um miðnætti var hann ekki
lengur í útjaðri, heldur bjó nú í „miðbænum". Er ekki ósennilegt
að allt að 3000 tjöld hafi staðið á völlunum um nóttina og að næt-
urgestir hafi ekki verið færri en 10 þúsund. Tjöldin voru skipu-
lega sett lengi vel, en nokkuð brá út af því síðast, enda var þá löngu
hætt við tölusetningu gatna og tjalda.
Veður var gott framan af
kvöldi, en brátt tók að rigna og
hélzt svo mestallá nóttina. Gerð-
ust menn uggandi um veðrið og
spáðu á ýmsa vegu, en menn
voru í hátíðaskapi og erindið á
Þingvöll var í þetta sinn hátíð-
legra en á venjulega samkomu,
því skipti veðrið ekki öllu máli.
Sökum rigningarinnar um
nóttina, urðu ýmsir fyrir vosbúð.
Litlu tjöldin láku og voru köld.
Mikill vöxtur hljóp í Öxará, svo
að hún þrengdi sér í gegnum
lægri gjábarminn á stöku stað,
og rann í lækjum ofan á vellina.
Sum tjöldin blotnuðu og varð
að taka upp. Eitthvað af fólki,
sem ekki þoldi vosbúðina var
flutt í sjúkrabílum til Rvíkur.
Að morgni hins 17. júní, þeg-
ar menn risu á fætur, mátti heita
rigningarlaust, en ekki vildi þó
birta upp. Glaðir voru menn þó
AÐALFUNDUR S. I. S.
hefst hér í bænum í dag.
Aðalfundur Sambands ísl.
samvinnufélaga verður settur í
Skjaldborg hér í bænum í dag
kl. 9.30 f. h. Stendur fundurinn
til sunnudags.
Á laugardaginn sækja fulltrú-
ar og stjórn Sambandsins sam-
vinnuhátíðina að Hrafnagili,
þar sem 100 ára afmælis sam-
vinnuhreyfingarinnar * verður
. minnzt.
i Fulltrúar frá öllum sýslum
landsins eru komnir hingað til
bæjarins.
Greint verður frá störfum
fundarins í næsta blaði.
og reifir, í þeirri von, að eitthvað
kynni að rætast úr um hádegið.
Menn fóru nú í pósthúsið til að
ná sér í hátíðarfrímerkin. Þar
var jafnan þröng á þingi, hús-
rúm allt of lítið og póstmenn of
fáir. Eyddu menn jafnvel 2
klukkustundum í það að ná sér
í frímerki og skila bréfum.
Ver tókst þó með hátíðar-
merkið sjálft. Eftir klukkan 8 á
föstudagskvöld var ekki hægt að
fá það á staðnum. En á laugar-
dagsmorgun mun eitthvað hafa
verið til sölu frarn yfir kl. 10.
Nokkrar þúsundir manna báru
þvi ekki þetta merki á Þingvöll-
urn. Mér er sagt, að 25 þús.
merki hafi komið til landsins,
eða 1 merki á hverja 5 íbúa. —
Sönnu nær hefði verið að fá 100
þús. merki, því að flesta lands-
menn mun langa til að eignast
merkið til minningar um þenn-
an einstæða dag.
Allan morguninn var vegur-
inn um hátíðásvæðið, ofan úr
gjá og inn undir Leirur, þakinn
fólki og bifreiðum. Gekk því
seint að komast áfram, einkum
fyrir bifreiðarnar. Vegna rign-
ingarinnar seinkaði líka bif-
reiðalestunum úr Reykjavík, og
þegar mannfjöldinn tók að
streyma til Lögbergs upp úr há-
deginu, var allur vegurinn þak-
inn bifreiðum, sem þá áttu að
vera komnar inn á Leirur, „sam-
kvæmt áætlun“.
Að Lögbergi hafði verið kom-
ið fyrir miklum pöllum og sæt-
um fyrir þingmenn og ríkis-
stjórn, ríkisstjóra, erlenda full-
trúa og aðra gesti þingsins. Heill
(Framhald á 3. síðu).