Dagur - 13.07.1944, Side 1

Dagur - 13.07.1944, Side 1
 ANNALL DAGS .- —Ú= Vísitalan fyrir júlímánuð er 266, var 268 í júní. ★ Látinn er í Reykjavík Emil Thoroddsen tónskáld og pianó- leikari, einn af kunnustu lista- mönnum landsins. — Banamein hans var lungnabólga. ★ Handknattleiksmót Norðlend- inga hefst á Siglufirði næstk. sunnudag. KnattspyrnufélagAk- ureyrar og íþróttafélagið Þór hér í bæ senda þátttakendur á mótið. ★ Flokkur sundmanna úr Knatt- spyrnufélagi Reykjavíkur hefir verið hér á ferð. Sýndi sund og keppti við Akureyringa sl. laug- ardag og sunnudag. Reykvíking- arnir hafa sýnt víðar á Norður- landi, m. a. í Sundskála Svarf- dæla. ★ Leikflokkur úr Vestmannaeyj- um er á leikför um Norðurland. Sýnir revyuna „Leynimel 13“. Mun ekki sýna hér, þar eð Leik- félag Akureyrar hyggst taka gamartleik þennan til sýningar í haust. ★ Tíð hefir verið góð hér norð- anlands að undanförnu. Hey- skapur í héraðinu hefir gengið vel það sem af er. Slysfarir hér í bæn- um í s. 1/viku gÍÐASTL. föstudagskvöld varð árekstur rnilli drengs á reið- Iijóli og vörubifreiðar á gatna- mótum Oddeyrargötu og Krabbastígs. Drengurinn, Sig- tryggur Sigrtyggsson, Þorsteins- sonar, deildarstjóra, slasaðist hættulega og var fluttur í sjúkra- húsið samstundis. Er hann þar enn, þungt haldinn. Málið er í rannsókn. Síðastl iðið laugardagskvöld fannst Guðmundur Halldórs- 'son, Hafnarstræti 2 hér í bæn- um, meðvitundarlaus austan við veginn skammt norðan við Gróðrarstöðina. Hafði hann fallið af hesti. Guðnuindur var samstundis fluttur í sjúkrahúsið en þar andaðist hann litlu síðar. Ökunnugt er, með hverjum hætti sjys þetta bar að höndum. j sýnir í kvöld kl. 9: ! TIL VÍGSTÖÐVANNA. ÍFöstudag kl. 9: Ellery ræður gátuna. I Laugardag kl. 6: Ellery ræður gátuna. I Laugardag kl. 9: | TIL VÍGSTÖÐVANNA. j Sunnudaginn kl. 3: Smámyndir. j Kl. 9: Ellery ræður gátuna. : Sunnudag kl. 5.: | BROS GEGNUM TÁR. um HMnimtiuuii LL AGU i> XXVII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 13. júlí 1944 28. tbl. FJÖLGUN LENDINGARSTAÐA MEÐ FLEIRI FLUGVÉLUM Vferkfall í bæjarvinnunni boðað 19. þ. m. Aukabæjarstjórnarfundur í gær. Bak- arasveinar höfðu boðað verfall frá í gær kvöldi að telja. Verkamannafélag Akureyrar- kaupstaðar hefur boðað verkfall hjá bænum frá 19. þ. m., ef ekki verða konrnir á samningar fyrir þann tíma. Ágreiningurinn er um það, hvort meðlimir Verka- mannafél. skuli sitja fyrir bæjar- vinnunni. Bæjarstjórnin hafði á síðasta fundi sínuin samþykkt hinn n-ýja kaupsamning verka- manna við atvinnurekendur, sem greint er frá annars staðar í blaðinu í dag, að öllu leyti, nema þetta atriði. Töldu ýinsir bæjarfulltrúar óeðlilegt að bær- inn hefði svo bundnar hendur gagnvart borgurum bæjarins yfirleitt. Aukabæjarstjórnar fundur var kvaddur saman í gær til að ræða þessi mál og hafði blaðið ekki nánari fregnir af honum er þetta er ritað. Þá hafa bakarar boðað verk- fall hjá brauðgerðarhúsum hér frá kl. 12sl. nótt.Ágreiningurinn Elzti maður sýslunnar látinn. Nýlega er látin í Ólafsfirði Anna Lilja Jónsdóttir á Vatns- enda, fædd að Silfrastöðum í Skagafirði 2. febrúar árið 1844. Anna Lilja var því rösklega 100 ára gömul og elzta manneskja hér í sýslu a. m. k. — Hún átti lengst af heima í Héðinsfirði en fluttist til Ólafsfjarðar árið 1922. Hún hélt sálarþreki óskertu fram í andlátið, en ekki hafði hún ferlivist hin síðari ár. er um vísitölureikning í nýjum kaupsamningi. Bakarar áskilja, að kaup hækki með hækkaðri vísitölu mánaðarlega, lækki að- eins á 3ja mán. fresti, og það því aðeins, að lækkun vísitölu sé 5 stig.' Sættir voru ekki komnar á seinnihluta dags í gær, en málið var hjá héraðssáttasemjara, Þorsteini M. Jónssyni, og mtm fundur í málinu hafa verið hald- inn í gær. Nánar verður verður frá úr- slitum mála greint í næsta blaði. Fullnaðarúrslit þjóðaratkvæða greiðslunnar 98,6% kjósenda greiddu atkvæði; — 97,3% samþ. sambandsslit — 95 % stjórnarskrána. j SÍÐASTA Lögbirtingablaði er birt endanleg niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. —23. maí sl. Samkvæmt þeim tölum hafa 98,61% atkvæðis- bærra kjósenda neytt atkvæðis- réttar síns og af þeirn fylgdu 97,35% sambandsslitum, en 95,04 stjórnarskránni. Endanlegar tölur á Akvreyri og í Eyjafirði eru þessar: Akureyri. Sambandsslit. Já: (Framhald á 8. síðu). Frægur hershöfðingi IIHIIMHWH"«inHKMIMinHIHtllUW|MIM BÆÐIÍSLENZKU FLUGFÉLÖGIN ERL AÐ FÁ NÝJAR FLUCVÉLAR _ NAUÐSYN FYRIR HÚNAVATNS- SKAGAFJARÐAR- OG ÞINGEYJ- ARSÝSLUR AÐ FÁ LENDINGAR- BRAUTIR Mark Wayne Clark, yfirmaður 5. hersins ameríska á í(.alíu. Horfur eru á því, að á þessu ári fjölgi íslenzku flugvélunum svo, að flugsamgöngur um land- ið geti aukizt stórkostlega. Flug- félag Islands, sem nú starfrækir tvær farþegaflugrælar, mun í þann veginn að fá þriðju flug- vélina og lramkvæmdastjóri fé- lagsins, Örn Ó, Johnson, flug- maður, er fyrir skömmu floginn vestur um haf, væntanlega til þessað athuga um kaup á flug- vélum, þótt ekkert hafi verið til- kynnt um -tilgang farar hans ennþá. Heyrzt hefir þó, að Flug- félagið hafi m. a. í hyggju að fá sér stóran flugbát. Hið nýja flugfélag, Loftleiðir h.f., sem haldið hefir uppi flugi til Vestfjarða með lítilli Stinson- sjóflugvél, hefir nú fest kaup á annarri slíkri í Bandaríkjunum og að auki átta farþega flugbáti. Bíða flugvélar þessar nú skips- rúms fyrir vestan. Dágkaup verkamanna hækkar um 11% Nýir samningar við atvinnurekendur. Nýlega eru í gildi gengnir samningar milli verkamanna hér í bæ og atvinnurekenda um kaup og kjör. Dagkaup hækkar um ca. 11%. Marteinn Sigurðsson, form. Verkamannafélags Akureyrar- kaupstaðar, hefir látið blaðinu i té eftirfarandi greinargerð um samninga þessa: Samkvæmt samningi þeim um kaup og kjör, milli Verkamanna- félags Akureyrarkaupstaðar og atvinnurekenda, sem nýlega er í gildi genginn, er grunnkaup verkamanna á Akureyri, sem hér segir: 1. Alrnenn dagvinná kr. 2.50. 2. Skipavinna kr. 2.60. 3. Kolavinna, salt- og sements- vinna (uppskipun, hleðsla þess í pakkhús og samfelld vinna við afhendirigu úr pakkhúsi og vinna við að ryðberja skip) kr. 2.90. (Framhald á 8. síðu), Eins og sjá má af þessu, er líklegast að hingað korni 4 nýj- ar flugvélar áður en langt um líður, til viðbótar við þær sem fyrir eru. — Kunnugt er þegar, hversu stórfelld samgöngubót hefir verið að flugferðum þeim, sem Flugfél. Islands hefir haldið uppi frá Reykjavík hingað til Eyjafjarðar og til Austurlands. Þegar tíð er góð, fljúga flugvél- arnar dag eftir dag, stundum margar ferðir á dag, og flytja fjölda fólks. Þó háir það þessurn samgöngum, hversu lendingar- staðir eru fáir. Virðist augljóst, að það komi til þess að há inn- anlandsfluginu ennþá ineir, er flugvélunum fjölgar. Bygging flugbrauta í hinum ýmsu héruðum, er það stórt verkefni, að vonlaust er, að flug- félögin geti annað því upp á eigin spýtur, enda væri órétt- mætt að ætlast til slíks. Vitaskuld þarf ríkið að hafa þar hönd í bagga með og stuðla að því, eins og öðru, er til samgöngu- bóta horfir. En líklegasta aflið til þess að hrinda framkvæmd- um af stað í hverju héraði er þó áhugi innan héraðanna sjálfra. það má undarlegt heita, hversu lítið hefir verið um þessi mál rætt hér í nágrannahéruðum okkar. Það myndi stórkostleg samgöngubót fyrir Húnvetninga, Skagfirðinga og Þingeyinga, að flugvöllum yrði komið upp í sýslunum. Vestfirðingar hafa mikinn áhuga fyrir flugsam- göngum. Miklar umræður hafa farið fram um þau mál þar, bæði í blöðum og á mannfundum. Fyrir áhuga þeirra, er nú svo að sjá, að úr rætist eitthvað hjá þeim um slíkar samgöngur á næstunni, auk þess sem þeir hafa bundizt samtökum um að kaupa Heliocopterflugvél til sjúkra- flutninga, strax og tækifæri gefst. Það má með sanni segja, að tími sé til kominn fyrir Hún- vetninga, Skagfirðinga og Þing- eyinga, að hefja umræður um þessi mál, vekja áliuga meðal al- mennings og hrinda fram- kvæmdum af stað. Dagur vill gjarnan ljá rúmi greinum um þessi mál.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.