Dagur - 27.07.1944, Blaðsíða 1
ANNALL
DAGS
Nýr sagnaþáttur liefst hér í
blaðinu í dag. Er það Stranda-
mannasaga Gísla Konráðssonar,
hins þjóðkunna sagnfræðings og
æfisagnaritara. Eru þættir þessir
búnir til prentunar af séra Jóni
Guðnasyni á Prestsbakka, og
hafa þeir aldrei verið prentaðir
áður. Fyrri hluti Strandamanna-
sögu segir frá mönnum og mál-
efnum vestur þar á 18. öld, og
kennir þar margra grasa,
skemmtilegra og fróðlegra.
★
Fréttir úr Saurbæjarhreppi
23. júlí.
Jafnhliða þjóðaratkvæða-
greiðslunni í maí sl., var greitt
atkv. um stofnun sjúkrasamlags
hér í hreppnum, eins og lög
mæltu fyrir að skyldi gera, alls
staðar ,á landinu nú á þessu ári,
þar sem þau ekki voru stofnuð.
Við þá atkvæðagreiðslu fór það
svo, að mikill meiri hluta atkv.
var fylgjandi stofnun þess, en
samt vantaði fá atkv. til, að það
yrði löglega samþykkt. Varð því
að fram fara önnur atkvæða-
greiðsla, og fór hún fram á
hreppaskilum í júní sl., og var
samþykkt að stofna það. Er ekki
enn búið að skipa stjóm þess, og
tekur það sennilega ekki til
starfa fyrr en í haust eða um n.k.
áramót.
★
Hinn 5. maí sl. andaðist að
heimili sínu Auður Þorsteins-
dóttir, húsfreyja að Gnúpufelli.
Var hún jarðsungin að Saurbæ
að viðstöddu miklu fjölmenni
þahn 10. sama mánaðar.
★
Tíminn getur þess 7. júlí sl.,
að Kjósar- og Gullbringusýslur
hafi stofnað raforkusjóð, og er
það mjög lofsvert, og ættu sem
flest sýslu- og hreppsfélög lands-
ins . að safna fé í slíka sjóði, til
þess að eiga til, þegar þetta
nauðsynjamál allra landsmanna
og ekki sízt sveitanna, verður
framkvæmt. Fyrir nokkrum ár
um var slíkur sjóður stofnaður
hér, og var það með þeim hætti,
að gömul kona gaf dálitla upp-
hæð til stofnunar hans, og sýnir
þetta dæmi, að eldra fólkið hefir
eins mikinn áhuga fyrir fram
faramálum landsins og það
yngra. Á gamla korian miklar
þakkir skyldar fyrir að verða
upphafsmaður að stofnun þessa
sjóðs. Síðan hefir með frjálsitm
samskotum verið safnað fé í
hann, og voru undirtektir mjög
góðar. Einnig hefir sveitarsjóður
hreppsins lagt fram fé í hann, og
mun gera framvegis. Er því sjóð-
urinn nú orðinn nokkrar þús-
undir.
★
Mikill áhugi hefir verið
meðal bænda hér í hreppnum
um jarðrækt síðan jarðtæktar-
lögin gengu í gildi. Á árunum
1926—1927 var þúfnabaninn
fenginn hingað, og vann hann
þessi sumur mikið land fyrir
bændur, en ekki eru þær sléttur,
sem unnar voru með honum á
stórþýfðu landi, vel gerðar og
(Framhald á 6. ilöu).
iAGUR
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 27. júlí 1944
30. tbl.
NAZISTAVELDID I FJRRBROTUNUM
HITLER FYRIRSKIPAR „NÝJA ALLSHERJAR HERVÆÐINGU" og „ALGERA
STYR]ÖLD;í
Væringar milli
Rússa og Pólverja
DAUÐASLYS I VAÐLAHEIÐI
Einn maður bíður þegar í stað
bana, en hinir sleppa án alvar-
legra meiðsla
TÍUNDA TÍMANUM á laugardagskvöldið
var ók bifreiðin A. 328 út af þjóðveginum
hér vestan í Vaðlaheiðínni og valt hálfa aðra
veitu. Var bifreiðin á leið austur að Laugaskóla
með ölföng frá Öl- og gosdrykkjaverksmiðju Ak-
ureyrar til sumargistihússins þar. 2 menn voru í
stýrishúsi bifreiðarinnar, en 4 á palli og sátu þeir
á ölkössunum. Einn þeirra, Bolli Eggertsson,
Brekkugötu 8 hér í bænum, eigandi Öl- og gos-
drykkjaverksmiðju Ak.‘ varð undir bifreiðinni í
veltunni og beið þegar bana. Aíun hann hafa
ætlað að stökkva af hlassinu, þegar bíllinn rann
út af veginum, en orðið þá undir honum. Hinir
þrír, er á palli bifreiðarinnar voru, sluppu með
lítilsháttar meiðsli, en bifreiðastjórann^og þann,
er með honum var i' stýrishúsinu, sakaði ekki.
Bolli heitinn mun hafa slegizt í förina með
mörinum þeim, er á pallinum sátu, á síðustu
stundu. Ætluðu þeir austur í
Vaglaskóg. Hann var aðeins 24
ára að aldri og lætur eftir sig
ekkju og tvö börn. Læknir og
lögreglumenn voru þegar í stað
kvaddir á slysstaðinn. — Sterkur
grunur leikur á því, að maður
sá, er stýrði bifreiðinni, hafi ver-
ið undir áhrifum víns. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglúnn-
ar hafði hann nýskeð hlotið dóm,
er hljóðaði upp á sviptingu öku-
leyfis m. a., fyrir sams konar af-
brot fyrr í surnar, en hafði enn
ekki verið birtur dómurinn. —
Málið er nú í rannsókn.
Bað keisarann afsökunar!
Skuggi dauðans og hefndarinnar hefir
enn ekki hremmt hann til fulls, en vofir
stöðugt yfir honum.
Frækileg sundraun
15 ára stúlku
pYRRA MIÐVIKUDAG synti
Sigrún Sigtryggsdóttir frá
Breiðabóli á Svalbarðsströnd yf-
ir Akureyrarhöfn þvera — úr
svokölluðum Veigastaðabás hér
á austurlandinu og að hafnar-
bryggjunni á Torfunefi. Er
vegalengd þe$si talin að vera allt
að því tveir kílÓmetrar, og var
Sigrún aðeins röska klukku-
stund á sundinu. Mun hún ekki
hafa ætlað sér að synda svo langt,
er hún lagði af stað um kl. 6 á
miðvikudagskvöld í för með báti
liéðan, er komið liafði austur yf-
ir að austurlandinu af hendingu.
að því er sagan segir, þegar Sig-
rún var að leggjast þar til sunds
í æfingaskyni. Fylgdist báturinn
með henni á sundinu, og varð
það þá úr, að hún synti alla leið.
Sigrún var hinn hressasta, er
hún steig á land eftir sundraun
þessa. Hú ner aðeins 15 ára að
aldri, og hefir numið sund á
suridnámskeiðum þeim, er ung-
mennafélagið „Æskan“ á Sval-
barðsströnd hefir efnt til árlega
liin síðustu árin.
Myndin er af Tojo forsætisráðherra
Japana, sem sagði af sér í sl. viku og
bað keisarann jatnframt afsökunar á
því, að striðsreksturinn hefði gengið
slysaleéar en skyldi upp á síðkastið.
Tojo var frumkvöðull árásarinnar á
Pearl Harbor 1941. Bandaríkjamenn
eru nlí í sókn á Kyrrahafssvœðinu.
Áttræðui*
varð 21. f. mán. Benedikt Jónsson
fyrrum bóndi að Breiðabóli á Sval-
barðsströnd, faðir Jóhannesar bónda
þar, Jóns yfirlögregluþjóns hér í bæ
og þeirra systkina.
Benedikt er furðu ern eftir aldri
en er orðinn blindur. Hann hefir ætíð
verið sómamaðvjr og vel kynntur.
M.s. KOLBRUNU
sökkt á Húnaflóa
SL. LAUGARDAG varð
írekstur á síidarmiðum vestur á
Húnaflóa milli línuveiðarans
,Jökuls“ frá Hafnarfirði og m/s.
,Kolbrúnar“ héðan frá Akur-
eyri. Sökk „Kolbrún“ þegar, en
áhöfninni, 17 manns, var bjarg-
að, og voru skipverjar fluttir til
Eyrar við Ingólfsfjörð. Munu
þeir nú komnir hingað til bæj-
arins. Náriari atvik eru blaðinu
ókunn, en heyrzt hefir, að þoka
hafi verið á miðunum, þegar
slysið vildi til. „Kolbrún“ var
eign Leós Sigurðssonar útgerðar-
manns hér í bænum, og var hún
talin gott og happasælt veiði-
skip..— Skipstjóri var Jóhann
Halldórsson.
^NDSPYRNAN gegn Nazista-
stjórninni í Þýzkalandi, sem
kom upp á yfirborðið í hinni
sögulegu morðárás á Hitler og
nánustu samstarfsmenn hans sl.
fimmtudag, virðist sízt hafa ver-
ið bæld niður, þrátt fyrir
grimmilegar hefndarráðstafanir
valdhafanna. Hitler hefir nú fyr-
irskipað „nýja allsherjar her-
væðingu", bæði í Þýzkalandi
sjálfu og hernumdu löndunum,
til undirbúnings undir „algera
styrjöld", þótt hvorugt sýnist
mögulegt, fram yfir það, sem
þegar er orðið. Hefir „foring-
inn“ skipað Göring flugmar-
skálk sem aðalmann til þess að
annast framkvæmd þessara nýju
örþrifaráða og sett dr. Göbbels
næst honum til aðstoðar.
Talið er, að ýmsir helztu her-
leiðtogar Þjóðverja, svo sem von
Keitel, von Brauchitsch og von
Bock ,standi bak við uppreisn-
artilraunina gegn Hitler, og
hefir stjórnin ekki haft hendur í
hári þeirra. Nú hafa 16 þýzkir
hershöfðingjar, sem sitja í fanga-
búðurn í Rússlandi, skorað á
þýzka herinn að gefast upp, þar
sem aðstaða lians sé vonlaus orð-
in, og talið er, að fjöldi annarra
hershöfðingja Þjóðverja muni
sörnu skoðunar, og bíði þeir að-
eins færis að velta nazistastjórn-
inni úr sessi. Fregnir, sem síast
út úr þýzkalandi gegnum hlut-
lausu löndin, herma að víða sé
barizt í landinu, og hafi upp-
reisnarmennirnir jafnvel þegar
heilar borgir og héruð á sínu
valdi. Það þykir nokkrum tíð-
indum sæta, að Ditmar, formæl-
(Framhald á 8. líðu.
Kappreiðar Hestamannafél. „LÉTTIS44
Fjöldi gæðinga og um 700 áhorfendur á hinum nýja
skeiðvelli Léttis í Stekkjarhólma sl. sunnudag.
Fullgerður verður völlurinn hinn prýðilegasti.
Sunnudaginn 23. júlí efndi
Hestamannafélagið „Léttir", Ak-
ureyri, til kappreiða á hinum
nýja skeiðvelli sínum í Stekkjar-
hólma, skammt fyrir sunnan
vestustu brúna á Eyjafjarðará.
Völlinn hefir félagið látið gera
síðastliðið vor og vetur og lítur
út fyrir að hann muni verða
hinn prýðilegasti, þegar hann er
fullgerður, en til þess þarf að
lengja hann um 50 metra og
fylla síkin sunnan og norðan við
hólmann.
Á mótinu keþptu 10 hestaf í
300 rnetra hlaupi, 5 úr Eyja-
fjarðarsýslu, 2 úr Húnavatns-
sýslu, 1 úr Borgarf jarðarsýslu og
2 úr Skagafjarðarsýslu. I. verð-
laun hlaut Haukur, skagfirzkur,
eigandi Gunnbjörn Arnljótsson,
Akureyri, rann hann skeiðið á
23,3 sek. Fálki, eyfirzkur, eig-
(Pramhald á 8. aídu).