Dagur - 03.08.1944, Side 1

Dagur - 03.08.1944, Side 1
OAGUR XXVII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 3. ágúst 1944 31. tbl. FYRSTA OPINBER HEIMSOKN INNLENDS ÞJÖDHÖFÐ- ~ INGJA TIL AKUREYRAR / Forseti Islands, hr. Sveinn Björnsson, er væntan- legur hingað til bæjarins kl. 10 í kvöid Eyjafjarðarsýsla og Akureyrarbær halda samsæti for- setanum til heiðurs í Samkomuhúsi bæjarins kl. 1 e. h. á morgun. Almenn samkoma í Lystigarði bæjarins í tilefni af komu forsetans, og hefst hún væntanlega kl. 4 síðdegis á morgun. Sveinn Björnsson, fyrsti forseti hins íslenzka lýðveldis, vinnur eið að stjórnarskrá ríkisins á Þingvöllum 17. júní sl. .. - ......... .... - ANNÁLL DAGS Framhaldssögunni „Gislar" eítir Stefan Heym var lokið í síðasta blaði, og ný framhalds- saga mun hefjast í blaðinu innan skamms. En í þessu og nokkrum hinna næstu tbl. birtast tveir fyrstu kaflar bókarinnar: „Kóngavegur æfintýranna“, en það er fyrsta ferðasaga Iiins víð- kunna ferða- og æfintýramanns RICHARDS HALLIBUR- TONS. Með þeirri bók gat hann sér þegar mikla frægð sem bráð- snjali og óvenjulega skemmtileg- ur rithöfundur. Síðasta ferðabók Halliburtons: „SJÖ MÍLNA SKÓRNIR" kom, svo sem kunn- ugt er, iit í íslenzkri þýðingu fyr- ir jólin í vetur og hdfir vakið mikla atliygli og verið svo eftir- spurð, að hún mun nú uppseld að mestu. — í köflum þeim úr „Kóngavegi æfintýranna“, er birtir verða hér í blaðinu, segir m. a. frá fyrstu Evrópuför Halli- burtons og leiðangri hans upp á Matterhorn — tindinn fræga og illræmda í Alpafjölllunum. ★ Síldveiðarnar hafa gengið mjög treglega, það sem af er ver- tíðinni, og hafa sumar síldar- verksmiðjanna naumast verið hreyfðar enn af þeim ástæðum. Horfir mjög þunglega um þenn- an atvinnuveg, ef ekki rætist hráðlega úr þessu. ★ Heyskapartíð hefir verið hin ákjósanlegasta nú að undan- förnu og mun víðast alhirt að ljánum. Grasspretta mun og víðast í góðu meðallagi og sums staðar ágæt. Ein frostnótt nú fyrir skemmstu mun hins vegar hafa spillt mjög horfum um góða kartöfluuppskeru. T. d. gjörféll kartöflugrasið í mörgum görðum hér um slóðir. ★ Samkv. nýjum fregnum frá New York liefir amerískt flug- félag, Pensylvaníu-flugfélagið, birt áætlanir um flugferðir, sem félagið hyggst að halda uppi millli heimsálfa að ófriðnum loknum. Er í þeim áætlunum gert ráð fyrir flugsamgöngum milli Evrópu og Ameríku um Nýfundnaland, Grænland og ís- land. Fleiri flugfélög munu óg hafa svipaðar áætlanir á prjón- unum. ★ Lárus Eggertsson, Stefánsson- ar kaupmanns hér í bæ, hefir nú dvalið vestan hafs um eins árs skeið og kynnt sér slysavarnir og alllar almennar aðferðir við björgun úr sjávarháska hjá Strandvarnarliði Bandaríkjanna (U. S. Coast Guard). Lárus stundar þetta nám sitt á vegum ísl. ríkisstjórnarinnar að nokkru leyti, og mun meiningin, að hann aðstoði við umbætur á björgunarstöðvum hér heima, að námi loknu. ★ Aðalsteinn Eiríksson skóla- stjóri Héraðsskólans á Revkja- nesi við ísafjarðardjúp hefir sagt starfi sínu lausu, og heyrzt hefir, að fleiri kennarar skólans muni einnig vera á förum þaðan. Stjórn Landssambands iðnaðarmanna hefir að undanförnu verið á ferð hér norðanlands og rætt við stjórnir' iðnfélaganna í bæjun- um um ýmis málefni iðnaðarins og iðnaðarmanna í landinu. Sl. sunnudag fóru þeir í Mývatns- sveit ásamt stjórfi Iðnaðar- ntannafélagsins hér og formanni Iðnráðs Akureyrar. — Landssam- bandsstjórnin mun hafa haldið heimleiðis í gærmorgun. Sjúkrasamlag stofn- að á Svalbarðsstr. Á síðastliðnu voru fór fram atkvæðagreiðsla í Svalbarðs- strandarhreppi um það, hvort lofnað skyldi þar sjúkrasamlag eða ekki. Féll atkvæðagreiðslan þannig, að 104 greiddu atkvæði af 158, sem á kjörskrá voru. Af þessum 104 greiddu 90 atkvæði með því að stofna sjúkrasamlag, en 8 á móti, en 6 skiluðu auðu. Atkvæðagreiðslan sýndi því ótví- ræðan vilja meiri hluta kjósenda sveitarinnar með sjúkrasamlags- stofnun. Hefir nú verið kosin stjórn fyrir sjúkrasamlagið þannig, að llenedikt Baldvinsson, bóndi á Efri-Dálksstöðum, er skipaður formaður af félagsmálaráðuneyt- inu, en hreppsnqjnd Svalbarðs- strandar hefir kosið sem með- stjórnendur þá Sigurjón Valdi- marsson bónda í Leifshúsum, Jó- hannes Laxdal hreppstjóra í Tungu, Halldór Albertsson bónda á Neðri-Dálksstöðum og Jóhannes Benediktsson bónda á Breiðabóli, Frækilegt björgimarafrek Páll Pálsson bjargar af frá- bæru snarræði og vaskleika manni frá bráðum bana. Sl. föstudag vildi það slys til við Hafralónsbrú í Lónsfirði við Langanes austur, að vörubifreið rann aftur á bak út í ána. Þrír menn stóðu á palli bifreið- arinnar, og tókst bifreiðarstjór- •anum að bjarga tveim þeirra úr ánni, en Valdimar Björnsson. vérkamaður frá Þórshöfn, náðist ekki. Enginn þeirra, sem við staddir voru, kunnu nokkuð til sunds, og gátu þeir því ekkert aðliafzt. Skömmu síðar bar þar að í bifreið Pál Pálsson, verzlun- armann héðan úr bænum. Stakk hann sér þegar til sunds, er hann varð þess áskynja, hvernig kom ið var, kafaði eftir manninum á allmiklu dýpi og barg honum meðvitundarlausum til lands. Mun Valdimar þá hafa legið hér um bil 10 mínútur í vatni og var að bana kominn. Páll hóf þegar á honum björgunartilraunir og hélt þeim látlaust. áfram, unz héraðslæknirinn í Þórshöfn kom á vettvang. Urðu þá séð lífsmörk með Valdimar og náði hann skjótt rænu. Er hér raunar um tvöfalda björgun'að ræða, og hefir Páli farizt óvenjulega vasklega og giftusaiplega í þessari raun. HNEFALEIKAR. 10 hnefaleikamenn úr glímufélag- inu „Ármarm”, Rvík, eru komnir hing- að til bæjarins og munu halda hnefa- leikasýningu í Samkomuhúsi bæjarins næstk. mánudagskvöld. Aðeins þessi eina sýning. 1 sveit þessari eru 5 nú- verandi íslandsmeistarar í hnefaleik. p*ORSETINN hóf för sína um Vestur- og Norðurlands sl. sunnudag og hefir nú gist Akra- nes, Borgarnes, Búðardal, Blönduós og Húsavík og ferðast um héruðin hér að sunnan og vestan, ennfremur Þingeyjar- sýslur. Hefir honum — sem að líkum lætur — alls staðar ver- ið sérlega vel fagnað, þar sem hann hefir komið, og fólkið Frá Ferðafélagi Akureyrar: Fyrsti bifreiðaleiðangur til Dyngjufjalla og annar að Urðarvötnum g JÚLÍ S. L. var í fyrsta sinn ekið á bílum frá Svartárkoti í Bárðarda) um Ödáðahraun til Dyngjufjalla. Þátttakendur voru 25 karlmenn og 1 stúlka. Farar- stjóri var Þorsteinn Þorsteinsson. Með í förinn var Páll Arason úr Reykjavík, á sínum eigin bíl. — Þann 10. júlí gekk Þorsteinn við 18. mann um Jónsskarð að Oskuvatni og til baka um Suð- itrskörð og Dyngjuf jalladal. Tel- (Framhald á 8. aiSu). FUNDJ bæja.rstjórnar Aknr- eyrar sl. þriðjudag var sam- þykkt, samkv. tillögum íþrótta- svæðisnefndar, að nýjum æfine arvöllum fyrir útiíþróttir verði ætlaður staður norður við Glerá austan við fyrirhugaða brú á ánni við Hörgárbraut. Nefndin ltugsar sér, að svæðið þurfi að vera ca. 350 tn. frá austri til vest- urs og ca. 100 m. frá norðri til suðurs, þar sem það er mjóst, eða samtals 3—4 hektarar. Þá er ráðgert, að norðurhlut- inn af Krókeyrinni, norðan við tiinið, sem jrar er, verði ætlaður fyrir æfingavöll fyrir innbæinga. Svæðið sunnan við sundstæðið, þann veg sýnt, að það kann að meta þá heill og sæmd að eiga innlendan þjóðhöfðingja yfir sér í fyrsta skipti í sögu þjóð- arinnar* Síðar í sumar ráðgerir for- setinn opinbert ferðalag til ann- arra landshluta. í för með hon- um er einkaritari hans, Pétur Eggerz. JJINGAÐ TIL BÆJARINS er forsetinn væntanlegur kl. 10 í kvöld, og kemur þá austaa úr Þingeyjarsýslum. Akureyrar- bær og Eyjafjarðarsýsla annast sameiginlega móttöku forseta hér, og hefir sérstök nefnd þess- ara aðilja framkvæmdirnar á hendi. Á morgun snæðir forset- inn árdegisverð í boði sýslu og bæjar, og munu um 150 áhrifa- og ráðamenn úr bæ og héraði sitja hóf þetta forsetanum til heiðurs. Almenn samkoma í til- efni af komu forsetans verður haldin hér í Lystigarðinum á morgun, og mun forsetinn væntanlega ávarpa samkomu- gesti. Ennfremur verða þar flutt önnur ávörp, Lúðrasveit Akur- (Eramhald á 8. síðu). austan Þórunnarstrætis, suðuv að Skólastíg og Hrafnagilsstræti, verður ætlað til leik- og íþrótta- valla fyrir gagnfræðaskólann, iðnskólann og kvennaskólann rýja, tennisvelli og e. t. v. enn- fremur fyrir aðrar æfingar bæj- arbúa að einhverju leyti. í þessu sambandi þykir tíma- bært að minna á það, að núver- andi golfvöllur á Oddeyrinni norðanverðri hlýtur að hverfa, þegar skipulag á fyrirhuguðu hafnarsvæði þar kemur til fram- kvæmda. Er því nauðsynlegt, að hugsa í tæka tíð fyrir nýjum golfvelli á hentugum stað. Nýjum íþróttavöllum ætlað svæði norður við Glerá Nauðsynlegt að hugsað verði í tæka tíð fyrir nýjum golfvelli á hentugum stað.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.