Dagur - 24.08.1944, Page 1
:Z\i
ANNALL
DAGS
:-Ú=
FRÁ VESTFJÖRÐUM.
(Framhald).
Félags- og íþróttalíf má heita
að standi með góðum blóma. —
íþróttakennarinn Bjarni Bach-
mann frá Borgarnesi, sem starf-
að hefir hjá okkur tvo sl. vetur,
hefir stutt mjög að framgangi
íþróttamálanna. Þrjú íþróttafé-
lög — á Þingeyri, Flateyri og
Suðureyri — gengu í Héraðs-
samband U. M. F. Vestfjarða í
vor og tóku þátt í héraðsmótinu
að Núpi 9. júlí. Sem dæmi um
íþróttaáhuga og framtakssemi í
þágu félagsmála, vil eg geta þess,
að elzta félagið í sambandinu
okkar, U. M. F. Vorblóm á
Ingjaldssandi, réðst í það stór-
virki í fyrravor, að koma sér upp
samkomuhúsi, sem jafnframt er
skólahús fyrir dalinn með styrk
frá hrepp og ríki. — I dalnum er
ekki fleira en 60 manns og er
um það bil 1/3 íbúanna ung-
mennafélagar, en allir, sem vettl-
ingi gátu valdið, unnu að hús-
byggingunni, enda stóðu veggir
hússins fullsteyptir eftir tveggja
daga vinna.*) Því nær allt ann-
að en verkstjórn nokkra daga við
uppstillingu hefir verið unnið
af heimamönnum. Húsið verð-
ur fullgert og vígt til afnota í
haust. — U. M. F. Vorblóm hefir
fengið langflest stig í íþrótta
keppninni á héraðsmótunum i
fyrrasumar og nú í vor. Eiga þeir
efnalega íþróttamenn, sem efa-
laust munu taka þátt í keppni á
næsta landsmóti. — Það er erfitt
að búa afskekkt, — en „margt er
það í koti karls, sem kóngs er
ekki í ranni“.
Samgöngurnar á Vestfjörðum
og þaðan til meginlandsins eru
nú orðnar mjög á eftir samgöng-
um annars staðar á landinu. Er
unnið kappsamlega að vegagerð
á Þorskafjarðarheiði, Hrafnseyr-
arheiði og víðar.Þóttbílleiðopn
ist til Amgerðareyrar, er sjóleið-
in löng þaðan til ísafjarðar. Því
er nú talað um, að bílleiðin ætti
að liggja út með Djúpinu aust-
anverðu til Melgraseyrar eða
jafnvel út að Bæjum á Snæfjalla-
strönd, því þangað er stytzta leið-
in yfir Djúpið frá ísafirði eða
um það bil einnar stundar ferð
með sæmilega hraðskreiðum bát
Þá verður þess ekki langt að bíða
að fært verði með bíl frá Isafirði
til Stykkisliólms, með því að
ferjað verði yfir Dýrafjörð, Arn
arfjörð og Breiðafjörð frá
Brjánslæk. Verður þetta, ef til
vill, aðgengilegasta leiðin frá
ísafirði, ef völ er á góðum og
hraðskreiðum ferjubátum yfir
firðina. — En eflaust verða flug-
vélarnar framtíðarfarartæki
Vesturlandi og víðar. Flugbátur
er nú væntanlegur þangað innan
skamms.
Bj. Guðmundsson.
(Framhald í næsta blaði).
*) Þegar þúið var að stilla upp,
UL
AGUR
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 24. ágúst 1944
34. tbl.
Parísarbúar reka Pjóðverja af höndnm sér.
FORINGIHERRAÐS
FRAKKA.
Myndin er af Bethouard hershöfð-
ingja, sem er formaður herráðs
frjálsra Frakka.
Lögreglan snerist þegar í lið
með heimaliernum o°' var barizt
Sjúkradeild fyrir
geðveikt fólk
Bæjarstjórn Akureyrar
lætur hefja undirbúning
Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðju-
dag var til umræðu fundargerðir
spítalanefndar og fjárhagsnefnd-
ar, um nauðsyn þess að koma
upp hér í bænum sérstakri
sjúkradeild fyrir geðveikt fólk.
Eins og lesendum er kunnugt af
fyrri umræðum hér í blaðinu,
um sjúkrahúsmál, Akureyrar,
lrefir ríkt hér hið mesta vand-
ræðaástand að þessu leyti. Geð-
veikt fólk, sem ekki hefir fengið
inni á Klepþi, hefir dvalið á
sjúkrahúsi bæjarins, sem erfiða
aðstöðu hefir til þess að annast
slíka sjúklinga. Þar við bætist
svo óréttlæti það, sem aðstand-
endur þessara sjúklinga verða
fyrir, þar sem ríkið greiðir ein-
göngu fyrir þá geðveikissjúkl-
inga, sem fá vist á Kleppi, en að-
standendur verða að kosta þá,
sem annars staðar dveljast.
Ráðstafanir til úr'bóta í þess-
lyn efnum eru því bráð nauðsyn.
Bæjarstjórnin samþykkti að fela
byggingafulltrúa, að gera sem
fyrst uppdrátt og áætlun í sam-
ráði við héraðs- og spítalalækna,
að bygging sjúkradeildar fyrir
geðbilað fólk, er rúmi a. m. k. 10
sjúklinga, og sé spítalanefnd
heimilt að hefja framkvæmdir,
fengnum þessum áætlunum. —
Jafnframt sé leitað samþykkis
heilbrigðisstjórnarinnar fyrir
hinni fyrirhuguðu byggingu.
Kaupfélag Norður-
Þingeyinga 50 ára.
Hátíðahöld í Axarfirði.
Kaupfélag Norður-Þingeyinga,
sem er næst elzta kaupfélag
landsins, en 50 ára á þessu ári;
stofnað 1894. Afmælisins var
minnst nýlega með fjölmennri
samkomu að Lundi í Öxarfirði,
sem er barnaskólasetur og er að
verða nýbýli, örstutt frá Skinna-
stað.
Afmælisdaginn var glampandi
sólskin yfir þessurn yndislega
stað, og það var líka óvenjulega
bjart yfir hugum manna og yfir-
bragði. Þarna var mikið um
ræðuhöld og kvæði flutt. í ræð-
unum var saga félagsins rakin í
aðaldráttum, en hún á að koma
út nokkuð viðameiri á þessu ári.
Á fundinum voru þeir kjörnir
heiðursfélagar, Tón Jónsson frá, .. , , _ , , .
n , e ■ ,v T af grimrnd viðsvegar i borginm.
Gautlondum og Sigurður Þor- T . , . . ö . ö
. • , , j- , T 1 Lauk þeirri viðureign svo, sem
steinsson bondi í Holsseli. Þeir i r r.
,,.c , ■ I tyrr segir, að Þ oðver ar hörtuðu
nulitandi menn, er / . ° . ■ J r , .
■ ur borginni. Þykir þetta fræki-
legt afrek og hefir fregnin um
það vakið mikinn fögnuð um
gjörvallan frjálsan heim. Með
þessu dirfskubragði er og senni-
legt, að Frakkar hafi forðað
borginni frá stórkostlegri eyði-
leggingu.
Sókn Bandamanna á Frakk-
landsvígstöðvunum hefir verið
geysihröð s.l. viku. Orrustunum
í Falaise-herkvínni svonefndu,
sunnan við Caen, er nú lokið og
hafa Þjóðverjar misst þar um
100.000 menn, að því er talið er
j í brezkum fregnum. Leifar 7.
þýzka hersins leita nú undan til
Signu, en Bretar og Kanada-
menn sækja fast eftir og nálgast
fljótið á breiðri víglínu. Sunnar
eru Bandaríkjamenn komnir yf-
ir fljótið, fyrir norðan og sunn-
an París, en aðrar sveitir þeirra,
sem fóru yfir Leiru hjá Nantes
Franski heimaherinn hafði
borgina á valdi sínu í gær.
Bandamenn vinna fleiri stór-
sigra á vesturvígstöðvunum.
•**
í gærmorgun var birt sérstök tilkynning frá aðal-
stöðvum KÖNIGS hershöfðingja, yfirmanns franska
heimahersins, þess efnis, að PARÍS væri nú á valdi
Frakka og hefðu Þjóðverjar verið hraktir burt úr borg-
inni. Tildrög þessa frækilega sigurs eru þau, að síðast-
liðinn laugardag, er Bandaríkjaherinn hafði sótt allt
til VERSAILLES og komizt yfir SIGNUFLJÓT
norðan og sunnan við höfuðborgina, ákvað franski
heimaherinn í PARÍS að láta til skarar skríða. Fimm-
tíu þúsund manna lið var til reiðu í borginni, búið
vopnum og hóf það uppreistina í dögun og hundruð
þúsunda annarra borgarbúa aðstoðuðu eftir föngum.
eru einu
stóðu að stofnun félagsins, og
Jón var fyrsti formaður þess og
framkvæmdastjóri í 22 ár. Þarna
var einnig minnst eins aðalstarfs-
manns félagsins, Árna Ingi-
mundarsonar á Kópaskeri. En
það starf hans er jafngamalt fé-
laginu. Voru honum veitt 5000
kr. heiðurslaun. sem viðurkenn-
ing fyrir langa og farsæla þjón-
ustu félaginu til lianda. Árni er
og landnámsmaður á Kópaskeri,
byggði þar og stofnaði heimili
fyrstur manna.
Dagur árnar Kaupfélagi N,-
Þingeyinga lieilla með starf sitt
á þessum tímamótum í æfi þess.
Samvinnuhátíð
Þingeyinga
í Vaglaskógi
100 ÁRA AFMÆLIS SAM-
VINNUHREYFINGARINN-
AR MINNST.
Kaupfélag Þingeyinga og
Kaupfélag Svalbarðsstrandar
héldu í félagi almenna samkomu
í Vaglaskógi 6. þ. m. og minntust
þannig aldarafmælis samvinnu-
hreyfingarinnar. — Samkonmna
sóttu á fjórða þúsund manna.
Vaglaskógur er framúrskar-
andi samkomustaður á hásumar-
degi, þegar vel viðrar.
Hinn 6. ágúst var yndislegt
veður. Margir liöfðu gist í tjöld-
um í skóginum nóttina áður og
snemma morguns liófust mann-
flutningar í skóginn úr hérað-
inu, því að bílakostur var ekki
meiri en svo, að fara þurfti
(Fratnh. á 8. síðu),
Héraðshátíð að
Varmahlíð.
pRAMSÓKNARFÉLÖGIN
Skagafirði héldu árshátíð
sína að Varmahlíð sl. sunnudag.
Form. héraðssambands Frarn-
sóknarmanna í Skagafirði, Gísli
bóndi Magnússon í Eyhildar
holti, setti samkonmna og stjórn-
aði henni. Ræður fluttu Ey-
steinn Jónsson fyrrv. ráðherra,
Jóhann Frímann skólastjóri á
Akureyri og Sigurður Þórðarson
alþingismaður á Sauðárkróki.
Friðfinnur Guðjónsson leikari
frá Reykjavík skemmti með upp-
lestri, en að lokum var stiginn
dans langt fram eftir nóttu. Sam-
koman fór vel fram og var fjöl-
sótt.
sækja suður á bóginn og er ekki
kunnugt um hvert þær eru
komnar. Óstaðfestar fregnir í
gær hermdu, að Bandaríkja-
menn hefðu gengið á land hjá
Bordeux.
Á vígstöðvunum í Suður-
Frakklandi, þar sem gengið var
á land í s.l. viku hefir framsókn
Bandamannaherjanna einnig
verið mjög hröð. Hafa jieir tekið
borgirnar Cannes og Touloun
og eru komnir að borgarhliðum
Marseilles. Lengst eru Jreir
komnir til Grenóble og er þá
ekki nema 380 km. bil á milli
þeirra og herjanna, sem sækja
suður frá París. Virðast allar lík-
ur til, að varnir Þjóðverja í
Frakklandi séu að bresta og
Bandamenn nái landinu öllu á
vald sitt á skömmum tíma.
Litlar breytingar hafa orðið á
austur-vígstöðvunum í s.l. viku.
Rússar hófu sfbrsókn við Jassy
í Rúmeníu og hefir orðið tals-
vert ágengt Jrar.
Forseti Islands fer til
Bandaríkjanna í boði
Roosevelts
Forseti íslands fer í þessari
viku í stutta ferð til Bandaríkj-
anna. Mun hann sitja boð Roose-
velts forseta í Hvíta húsinu í
Washington og verða gestur
Bandaríkjastjórnar meðan hann
dvelur þar í landi.
Vilhjálmur Þór, utanríkisháð-
lierra, verður í för með forseta
og auk hans Pétur Eggerz for-
setaritari og Bjarni Guðmunds-
son blaðafulltrúi.
Af þessum sökum verður för
forseta íslands um Suðurland,
sem ráðgerð hafði verið, frestað
fram í næsta mánuð.
(Samkv. tilk. frá utanríkisráðu-
neytinw).