Dagur - 24.08.1944, Blaðsíða 6
6
Fimmtudaginn 24. ágúst 1944
Richard Halliburton:
Kóngavegur æfintýranna
(Framhald).
Meðan á öllu þessu stóð hafði dimm þoka byrgt alla útsýn til
fjallsins. En fjórðu nóttina, sent við gistum í þorpinu, brast á fár-
viðri mikið og geysileg regnskúr lireinsaði loftið. Þegar við vökn-
uðum um morguninn, þutum við út í gluggana, og sjá: — Þar
blasti Matterhorn við í allri sinni dýrð, gnæfandi skýjurn ofar við
himin, tindrandi, hvítt og fjarlægt í skini árdegissólarinnar.
Um hádegisbilið var loftið tært eins og vín og hvergi sást minnsti
skýhnökri á himni. Þeir Adolph og André hleyptu í sig kjarki,
lögðu klyfjarnar á bak sér og leiddu okkur félaga, Irvine og mig,
við hönd sér upp úr Zermatdalnum. Sé horft til fjallsins frá viss-
um stað á þessari leið, líkist það undarlega nákvæmlega tígrisdýri,
sem liggur í hnipri fyrir bráð sinni. Nú stefndum við rakleiðis í
klær þessa villidýrs.
Leið okkar lá framhjá kirkjugarði þorpsins. Leiðsögumenn okk-
ar sýndu okkur raðir af gröfum óheppinna fjallgöngumanna, sem
látið höfðu líf sitt í fangbrögðunum við Matterhorn á liðnum ár-
um. I sérstöku safnhúsi við kirkjugarðinn eru varðveittar ýmsar
ininjar um þessa menn, svo sem ísaxir og flíkur af Englendingun-
um frægu: Hudson, Hadow og Douglas lávarði, er fyrstir manna
komust alla leið upp á Matterhorn, í för með Mr. Whymper og
þremur fylgdarmönnum. Þetta gerðist árið 1865. Fram að þeim
tíma höfðu Svisslendingar ávallt talið, að engum mennskum
manni væri fært upp á tindinn. Og sannarlega undruðumst við oft
á ferðalagi okkar upp fjallið, hvernig fyrstu leiðangursmennirnir
hefðu komizt upp þangað. En Matterhorn hefndi sín líka geipi-
lega: Á niðurleið — rétt neðan við sjálfar ,,herðar“ f jallsins, á snar-
brattri hjarnberiðu, þar sem rnenn handstyrkja sig nú upp eftir
sterkri keðju — missti Mr. Hadow, yngsti leiðangursmaðurinn, há-
skólamaður frá Cambridge, fótanna á ísnum, og þar sem allir leið-
angursmennirnir voru bundnir saman með kaðli, dró hann. þá
með sér livern af öðrum niður í hyldýpið, unz Mr. Wliymper og
tveir fylgdarmannanna stóðu einir eftir. Þeir streittust í örvænt-
ingu gegn þunga félaga sinna, sem dingluðu í lausu lofti fjögur
þúsund fet yfir skriðjöklinum. Andartak lá kaðallinn eins og þan-
inn strengur mill.i lífs og dauða,’ en svo slitnaði hann og mennirn-
ir fjórir — liinir djörfu sigurvegarar Matterhorns — steyptust nið-
ur í hyldýpið og biðu þar bráðan bana.
Við hófum fjallgönguna með þessar hræðilegu minningar í
huga og gengum margar klukkustundir í ótal krákustígum upp
f jallshb'ðina. Við köstuðum mæðinni um stund á klettasnös og lit-
um um öxl niður í gljúfrið, sem lá í áttina niður að Rhónfljóti og
til mannabyggða. En við gátum ekki átt langa viðdvöl Jaarna, því að
við áttum tvö þúsund og fimm hundruð feta bratta fyrir höndum,
áður en við kæmumst upp í kofann, þar sem við ætluðum að gista
um nóttina. Við komumst loks upp þangað móðir og másandi,
þegar leið að kvöldi. Risavaxnir tindar Alpafjallanna slógu tröll’-
aukinn hálfhring umhverfis okkur — með skriðjökla í hlíðum og
beljandi jökulár í dölum og gljúfrum. En yfir okkur gnæfði hinn
geysilegi tindur Matterhorns í upphiminlegri órafjarlægð, að því
er virtist — djarfur og mikillátur einvaldsdrottinn í ríki háf jall-
anna með eldlega kórónu úr geislum hnígandi sólar á höfði.
Brátt logaði glaður eldur á arni þarna uppi í kofanum og hlýjar
rekkjur vermdu okkur og hvíldu. En þremur stundum eftir mið-
nætti bjuggumst við enn til ferðar. Við ætluðum okkur að kom-
ast sem hæst upp í brattann, áður en sólin tæki að bræða ísinn og
færðin gerðist ógreiðari. Við bundum okkur með köðlum, hvor
við sinn leiðsögumann, og þumlunguðumst áfram upp fjallið í
nístandi kulda næturinnar. Okkur fannst að við myndum þá og
þegar reka okkur upp undir stjörnurnar eða villast út á vetrar-
brautina, en umhverfis okkur djarfaði fyrir undarlegum og tröll-
auknum heimi í fölu skini haustmánans.
Mér fannst eg helzt líkjast litlum kjöltuhundi, sem togaður er
áfram í bandi, og þegar Adolph kallaði til mín, tók eg undir við
hann með glaðlegu gelti. Annars hengu reipin og dingluðu á milli
okkar og leiðsögumannanna svona fyrst í stað* því að við vorum
hressir og endurnærðir eftir hvíldina og tókst nokkurn veginn að
fylgja fylgdarmönnunum eftir með því að vega okkur með hönd-
um og fótum klett af kletti. Lengst af lásum við okkur upp hvöss-
ustu eggjarnar á sjálfri fj'allsröndinni með þrjú þúsund feta hyl-
dýpi til beggja handa, en á einum stað urðum við þó að leggja
leið okkar uþp snarbratta fjallshlíðina utan við eggjarnar. Það var
sérlega torfarinn og hættulegur spölur. Adolph varð að höggva
spor í freðann með ísöxinni sinni, svo að við gætum fótað okkur á
hörzlinu og hálkunni. Hvert klettabeltið tók við af öðru og hvert
öðru hærra og xnarbrattara eftir því, sem nær dró tindinum. Við
urðum að beita bæði olnbogum og knjám, tönnum og tám, ef allt
átti ekki að hjakka í sama farinu.
Leiðsögumennirnir komu okkur örugglega fyrir í einhverri
sprungunni, klifruðu síðan svo sem tuttugu eða þrjátíu fet áleið-
is upp snarbratta hlíðina. Þegar þangað var komið, gáfu þeir
merki og toguðu í reipin, sem bundin voru um herðar okkar. Og
k (Framhald).
DAGUR
Gestaþraut um stríðið
Margar eru spárnar og útreikningarnir orðnir um stríðs-
lokin. Nýjasta spáin, sem frétzt hefir um, er Jæssi (frá
Ameríku auðvitað).
1 Tojo Churchill Hitler Rooscvelt Mussolini Stalin
Fæddur 1884 1874 1889 1882 1883 1879
Aldur 60 70 55 62 61 65
Tók við völdum . . 1941 1940 1933 1933 1922 1924
Valdatími 3 4 11 11 22 20
3888 3888 3888 3888 ■3888 3888
Stríðslok • Ú2 af 3888 = 1944
XÁ af 1944 = 9-7-2
Níundi mánuður, 7. dagur, kl. 2.
Lesendur geta svo glímt við sér til gamans að finna út,
hvernig dæmið er búið til!
IDUNN AR-SKÓR
eru glæsilegasta tákn þeirrar undraverðu
framfara, sem orðið hafa nú síðustu árin
í íslenzkum iðnaði. —
Iðunnar-skór eru nú beztu skórnir, sem
fáanlegir eru í landinu. — Þar fer saman
lágt verð og gæði.
SKINNAVERKSMIÐJAN I Ð U N N.
BOLLAPÖR
fyrirliggjandi
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Járn- og glervörudeild
Ur erlendum bjöðum
(Framhald af 3. síðu).
Jeppinn verði á almennum
markaði eftir stríðið, verði hann
ekki í þeim búningi, sem nú er
þekktur víða um heim. Sú gerð
hans sé ekki hæf til almennings-
nota.
Til dærnis sé hann of við-
bragðsfljótur, og geti þess vegna
valdið slysum. Ýmsar breyting-
ar séu nauðsynlegar áður en
hann geti orðið almeningseign.
Nokkrar nýjar bækur, enskar og
ameriskar.
Fyrir þá, sem vilja lesa, hvað
frjálslyndir, amerískir stjórn-
málamenn hugsa og tala nú: ný
bók eftir Henry A. .Wallace,
varaforseta Bandaríkjanna: De-
mocracy Reborn (Lýðræðið end-
urfætt) 280 bls. útgef. Reynal &
Hitchcock í New York, verð
$ 3.00.
Brezki blaðamaðurinn Alex-
ander Werth hefir gefið út bók,
sem þykir frábær lýsing á þvi,
hvað rússneskur almenningur
hugsar og talar á þessu örlaga-
ríka stríðsári. Bókin heitir:
Leningrad. Útgef. Hamish.
Hamilton í London. Kostar
1 Os. 6 d.
Aðrar nýjar bækur, sem um
getur í nýlegum enskum og
amerískum blöðum:
Ný, skemmtileg og greinargóð
saga nýja heimsins, eftir franska
rithöfundinn heimsfræga, André
Maurois. Nefnist: The Miracle
of America, 428 bls. Útgef.
Harper Bros. Kostar $ 3.50.
Joseph tlie Provider heitir
nýjasta skáldsaga Thomas
Mann., 608 bls. Útgef. Alfr. A.
Knopf. Kostar $ 3.00.
F.in nýjasta fréttaritarabókin
iti
SKAK NR. 11.
Frá meistarakeppninni í Litháen
1943.
Sikileyjarleikur.
Hvítt: Hasseníus. — Svart: Teteris.
1. e4, c5. 2. Rf3, d6. 3. d4, cxd4. 4.
Rxd4, Rf6. 5. Rc3, g6. 6. Be2, Bg7. 7.
Be3, 0—0 (a). 8. g4, d5 (b). 9. e5,
Re4. 10. f4, Rxc3 (c). 11. bxc3, a6.
12. h4, Dc7. 13. Dd3, Rd7. 14. Rb3,
Staða eftir 14. leik hvíts:
Sv. lék hér: H—d8 og tapaði. —
Möguleiki hans var: Bxe5!
Hd8 (d). 15. Bd4, Rf8. 16. De3, Dc6.
17. h5, Be6. 18. 0—0—0, f5. 19.
e5xf6 í f. hl., exf6. 20. hxg6, hxg6. 21.
f5 (e), Bf7. 22. Hh3, He8. 23. Dd2,
g5 (f). 24. Hdhl, Dc7. 25. Dxg5!, Bg6.
26. fxg6, Hxe2. 27. Bxf6, Rxg6. 28.
Dxg6 og sv. gafst upp.
a. 7......Rc6 er betra hér.
b.......Betra var enn Rc6.
c. Þessi mannakaup eru röng. Tví-
peðið gerir hv. ekkert til.
d. Mieses hefir bent á, að 14.
Bxp sé miklu betri leikur og gefi
svörtum sóknarmöguleika. 14. leikur
sv. gefur hv. nú möguleika til afger-
andi sóknar.
e. Góð fórn. Svartur stenzt ekki
þessa leikjaröð: 21.....pxp. 22.
pxp, Bxp. 23. Hd—gl o. s. frv.
f. Dugar ekki.
g. hótar H—h8. Sterkt leikið af hv.
tim stríðið er eftir sænska blaða-
manninn Gunnar Pihl. Nýkom-
in út í Ameríku, og heitir: Ger-
many: The last Phase. ÚtgeL
Alfr. A. Knopf, kostar $ 3.00.
fiPh.il var blaðamaður fyrir Syd-
svenska Dagbladet og dvaldi í
Berlín árin 1938—1943, er hann
var gerður landrækur. Bókin
hlýtur góða dóma í amerískum
blöðúm.
Bækur um flugmál eru mikið
Sesnar vestan hafs um þessar
mundir. Ein hin nýjasta heitir:
Wings after the War. (Flugið
eftir stríðið) og er eftir Paul
Johnston. (129 bls. Útgef. Duell,
Sloan Pearce.-
Mest lesnu bækurnar í U.S.A.
í síðasta mánuði, eru þessar, skv.
N. Y. Times: ■
,,A Tree Grows in Brooklyn“,
skáldsaga eftir skáldkonuna
Betty Smith.
„Strange Fruit" skáldsaga eftir
Lilian Smith.
„The Razor’s fedge“, nýjasta
skáldsaga enska skáldsins W.
Sommerset Maugham. (Kom í
lélegri þýðingu í Morgunbl.
undir nafninu „í leit að lífs-
hamingju". |
„The Robe“, skáldsaga frá
Krists dögum eftir ameríska höf-
undinn Lloyd C. Douglas.
Af bókum um almenn efni
voru þessar mest lesnar:
„Good Night, Sweet Prince”,
æfisaga John Barrymore, eftir
Gene Fowler.
„The Curtain Rises“, blaða-
mannafrásögn um stríðið í
Evrópu, eftir Qxientin Reynolds.
(N. Y. Times).