Dagur - 31.08.1944, Side 1
Snorri Sigfússon
hefur sagt af ser skóla-
stjóraembættinu
Verður námsstjóri og
skólaeftirlitsmaður í
Norðlendingafjórðungi
Snorri Sigfússon, skólastjóri
Barnaskóla Akureyrar, hefir sagt
af sér skólastjóraembættinu frá
1. október' næstk. Jafnframt mun
hann, að ósk fræðslumálastjórn-
arinnar hafa tekið að sér að
gegna embætti námsstjóra og
skóaléftirlitsmanns í Norðlend-
ingafjórðungi frá sama tíma.
Nýja-Bió
;;sýnir í kvöld kl. 9: !;
Orlof flugmannsins.
I; Föstudaginn kl. 9: |!
i i Leyndarmál Rommels. ;|
;; Laugardaginn kl. 6 og 9: ! |
Orlof flugmannsins.
!; Sunnudaginn kl. 3: !;
Orlof flugmannsins.
!; Sunnudaginn kl. 5:
: Tarzan hinn ósigrandi. ;|
;Sunnudaginn kl. 9:
; Leyndarmál Rommels. :;
FRÁ SVISS
Dömukragar,
Smádúkar,
Ifellur,
Vasaklútar.
Mjög vandaðar vörur.
Hannyrðaverzl.
Ragnh. O. Björnsson.
BANNAÐ
er hér með að taka sand í
landi mínu — áður tilheyr-
andi Króksstöðum — sem
liggur norðan þjóðvegarins,
austanvert við austustu
Eyjafjarðarárbrú.
Arnarhóli, 29. ágúst 1944.
KRISTINN SIGMUNDSSON.
RITVÉL
til sölu og sýnis á afgr.
blaðsins.
Að gefnu tilefni
skal á það minnt, að berja-
tínsla er stranglega bönnuð
í girðingum Skógræktarfél.
Eyfirðinga.
GÓÐ STÚLKA
óskast frá 1. október næstk.
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
læknir. Sími 268.
Dugleg og ábyggileg
STÚLKA
vel fær í reikningi, get-
ur fengið atvinnu nú
þegar.
BALDUIN RYEL H,F.
0AGLIR
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 31. ágúst 1944
35. tbl.
Konur hefja nýja sókn ísjúkrahús-
málum Norðlendinga
Fjöldi alþingiskjósenda í 14 byggðarlögum í 4 sýslum
skora á Alþingi, að reisa fjórðungssjúkrahús
á Akureyri
Leitað verður undirskrifta á Akureyri um helgina
Kvenfélagið Framtíðin hér í bænum hefir enn haf-
ið sókn í sjúkrahússmálum Norðlendingafjórðungs
með því, að vinna að söfnun undirskrifta á áskorun til
Alþingis um að hefja þegar byggingu ríkissjúkrahúss
fyrir Norðlendingafjórðung hér á Akureyri. — Hafa
konurnar þegar í höndum áskoranir, undirritaðar af
nær tvö þúsund kjósendum í 14 byggðalögum í Eyja-
fjarðar-, Skagafjarðar- og Þingeyjarsýslum. Þátttakan í
þessum sýslum á enn eftir að aukast. Undirskrifta til
styrktar þessu nauðsynjamáli verður leitað hér í Akur-
eyrarbæ nú um helgina og mun vart standa á Akureyr-
ingum að fjölmenna á undirskriftalistana.
j UMBURÐARBRÉFI, sem
stjórn Kvenfélagsins Framtíð-
in hefir sent kvenfélögnm í
sveitunum hér norðanlands, er
bent á skipulagsleysi og órétt-
læti það, sem nú ríkir í sjúkra-
hússrekstri ríkisins. Lesendum
Dags er kunn skipan þe.ssara
mála hér um slóðir af margend-
urteknum skrifum blaðsins um
þau. í umburðarbréfi kvenfé-
lagsins er komizt svo að orði:
„Eins og ykkur er kunnugt,
þá er aðeins einn ríkisspítali fyr-
ir almenna sjúklinga, Landsspí-
talinn í Reykjavík. Hann er rek-
inn á kostnað ríkissjóðs með
mjög lágum daggjöldum, og
miklum reksturshalla, sem ríkis-
sjóður síðan greiðir. Hér norð-
anlands er á Akureyri aðeins
einn spítali, sem orðinn er allt of
lítill fyrir Akureyri og nærliggj-
andi sýslur. Þessi spítali er rek-
inn með mjög háum daggjöld-
um á kostnað sjúklinganna
sjálfra. Er sá munur svo mikill,
að sjúklingur, sem liggur 10
daga' vegna botnlangauppskurð-
ar verður að greiða á Landsspí-
talanutn um kr. 200.00, en á Ak-
ureyrarspítala kr. 460.00. —
Reykjavík á engan spítala, þess
vegna er nú svo komið, að
Landsspítalinn er mest orðinn
fyrir Reykjavík og umhverfi
hennar. Niðurstaðan er því svi,
að ríkissjóður rekur spítala fyrir
Reykjavík. Nú hefir Kvenfélagið
,,Framtíðin“ á Akureyri hafizt
handa með að beita sér fvrir því,
að þetta misrétti verði afnumið
og ríkið látið reisa hér á Akur-
eyri stóran og fullkominn spí-
tala, sem fullnægi Akureyri og
nærliggjandi sýslum, og tak-
markið á að vera, að einn slíkur
spítali verði reistur og rekinn í
hverjum landsf jórðungi.
Þetta er sanngjörn krafa. Send-
um við ykkur því meðfylgjandi
lista til undirskriftar, þar sem
skorað er á ríkisvaldið að það
hefjist handa nú þegar með und-
irbúning þess, að reist verði svo
fljótt og hægt er, fullkomið
fjórðungssjúkrahús á Akureyri“.
Eins og fyrr segir, eru undir-
tektir almennings til stuðnings
málinu hinar beztu, og hafa fé-
’aginu þegar borizt listar úr
þessum hreppum:
Eyjafjarðarsýsla:
Glæsibæjarhreppur, Skriðu-
hreppur, Arskógshreppur, Öxna-
dalshreppur, Arnarnesshreppur,
Öngidsstaðahreppur, Hrafna-
gilshreppur, Svarfaðardalshrepp-
ur, Dalvík, Hrísev.
Suður-I>in geyjarsýsla:
Svalbarðsströnd, Grýtubakka
hreppur.
N orður-Þingeyjarsýsla:
Svalbarðsstrandarhreppur.
Skagfjörður:
Skefilsstaðahreppur.
Verið að reyna nýju
vélarnar við Laxá
gYRJAÐ VAR AÐ REYNA
vélarnar riýju við Laxár-
virkjunina 25. þ. m. og er haldið
áfram við það þessa dagana. —
Hefir allt gengið að óskum til
þessa, að því er rafveitustjórinn
hefir tjáð blaðinu. Búist er við,
að vélarnar verði fullreyndar
um aðra helgi og hægt verði þá
að tengja þær við aðallínukerfið,
Ekkert hefur komið fram af opinberri
hálfu, sem bendir til annars
Viðræður Forseta íslands og utanríkis-
ráðherra við blaðamenn í Washington
Skrif Morgunbl. og Þjóðviljans um vesturför
forsetans vekja furðu um land allt
gLAÐASKRIFIN í HÖFUÐSTAÐNUM um vesturför forset-
ans vekja furðu um land allt. Morgunblaðið og Þjóðviljinn
hafa að undanförnu dylgjað um það, á mjög óviðurkvæmilegan
hátt, að för utanríkisráðherrans með forsetanum standi í sam-
bandi við „pólitískar viðræður“, um afstöðu íslands eftir stríðið,
og hafa í þessu sambandi haldið uppi ruddalegum árásum á utan-
ríkisráðherrann. Hafa þessi málgögn smjattað á hvers konar slúð-
ursögum um vesturförina og dylgjað um, að ráðherrann hafi far-
ið í förina óboðinn o .s. frv. Þessi skrif öll bera á sér einkenni
slíks skorts á háttvísi og siðmennilegrar framkomu, að furðu gegn-
ir. Bandaríkjaforseti bauð Forseta íslands í vináttuheimsókn,
ásamt því föruneyti, er hann kynni að óska að hafa með sér. Það
er altítt, er þjóðhöfðingi fer í slíka för, að hann kveðji til fylgis
við sig ábyrgan ráðherra, og þá eðlilegast að utanríkisráðherr-
ann verði fyrir valinu. Ekkert kom fram í sambandi við förina,
sem benti til þess, að neinai |
pólitískar viðræður mundu eiga
ær stað og skrif blaðanna því í
;enn hvatvísleg og ósæmileg,
bæði gagnvart forseta og Banda-
ríkjáþjóðinni. Jafnframt hafa
þau, með þessu framferði reynt
að varpa rýrð á þessa fyrstu
heimsókn forsetans til erlends
ríkis. Allur almenningur furðar
sig á þessari framkomu og vítir
harðlega.
Á meðan þessu hefir farið
fram hér heima, hefir forsetan-
um verið vel fagnað í Banda-
ríkjunum. Hefir hann, ásamt
cöruneyti, setið kvöldverðarboð
Floosevelts í Hvíta lnisinu, en
sar gisti hann fyrstu nóttina. —
lann hefir heimsótt báðar
leildir Bandaríkjaþings og setið
reizlu Cordell Hulls, utanríkis-
áðherra Bandaríkjanna, Sjálfur
hafði hann síðdegisboð fyrir
sendimenn erlendra ríkja að
Blair House, sem hefir verið að-
setursstaður hans í borginni. Þá
hefir hann komið til New York
og setið boð íslenzka ræðis-
mannsins þar, ásamt íslending-
um í borginni, og heimsótt La
Guardia borgarstjóra. — Síðastl.
laugard. tók hann á móti blaða-
mönnum í Washington og ræddi
við þá um stund.
Utanríkisráðherrann var við-
staddur og ræddi hann og við
blaðamennina. — Forsetinn sagði
m. a.:
„Fyrir rúmum þremur árum
tók-u Bandaríkin að sér hervernd
íslands. Það er óvenjúlegt að
sjálfstætt ríki feli stórveldi her-
vernd sína. Eg get hiklaust full-
yrt að íslendingar gerðu það
vegna þess, að þeir báru full-
komið traust til Bandaríkjanna
og mér er ánægja að segja, að í
þessu efni hafa vonir okkar ekki
brugðist.
Bandaríkin voru fyrsta stór-
veldið, sem viðurkenndi hið
endurreista lýðveldi Islands með
því að senda sérstakan ambassa-
dor ti! að vcra við stofnun lýð-
veldisins. I'vrir þetta er mér
ánægja að bera fram innilegustu
þakkir fyrir hönd íslenzku þjóð-
arinnar til forseta Bandaríkj-
anna, stjórnar þeirra, þings og
þjóðar".
Utanríkisráðherra, .Vilhjálmm
Þór, átti því næst viðtal við
blaðamenn og sagði m. a.:
,,í sambandi við blaðaskrif hé
í Bandaríkjunum um framtíðar-
bækistöðvar Bandaríkjanna á ís-
landi vil eg gjarnan taka fram
þetta:
Vér íslendmgar höfum nvlega
öðlast fullt stjórnmálasjáI Ista.ði
með endurstofnun hins íslenzka
lýðveldis. Vér höfum ríka sjálf-
stæðiskennd og vérsLolnuðum
ekki lýðveldi vort í beim til-
gangi að verða ósjálfstæðari en
áður. Vér ætlum oss að eiga land
vort allt og án erlendrar íhiut-
unar.
Samkvæmt samningi milli
Bandaríkjanna og íslands tóku
Bandaríkin að sér hervernd ís-
(Framhald á 8, d9u).