Dagur - 31.08.1944, Page 1

Dagur - 31.08.1944, Page 1
Snorri Sigfússon hefur sagt af ser skóla- stjóraembættinu Verður námsstjóri og skólaeftirlitsmaður í Norðlendingafjórðungi Snorri Sigfússon, skólastjóri Barnaskóla Akureyrar, hefir sagt af sér skólastjóraembættinu frá 1. október' næstk. Jafnframt mun hann, að ósk fræðslumálastjórn- arinnar hafa tekið að sér að gegna embætti námsstjóra og skóaléftirlitsmanns í Norðlend- ingafjórðungi frá sama tíma. Nýja-Bió ;;sýnir í kvöld kl. 9: !; Orlof flugmannsins. I; Föstudaginn kl. 9: |! i i Leyndarmál Rommels. ;| ;; Laugardaginn kl. 6 og 9: ! | Orlof flugmannsins. !; Sunnudaginn kl. 3: !; Orlof flugmannsins. !; Sunnudaginn kl. 5: : Tarzan hinn ósigrandi. ;| ;Sunnudaginn kl. 9: ; Leyndarmál Rommels. :; FRÁ SVISS Dömukragar, Smádúkar, Ifellur, Vasaklútar. Mjög vandaðar vörur. Hannyrðaverzl. Ragnh. O. Björnsson. BANNAÐ er hér með að taka sand í landi mínu — áður tilheyr- andi Króksstöðum — sem liggur norðan þjóðvegarins, austanvert við austustu Eyjafjarðarárbrú. Arnarhóli, 29. ágúst 1944. KRISTINN SIGMUNDSSON. RITVÉL til sölu og sýnis á afgr. blaðsins. Að gefnu tilefni skal á það minnt, að berja- tínsla er stranglega bönnuð í girðingum Skógræktarfél. Eyfirðinga. GÓÐ STÚLKA óskast frá 1. október næstk. ÁRNI GUÐMUNDSSON, læknir. Sími 268. Dugleg og ábyggileg STÚLKA vel fær í reikningi, get- ur fengið atvinnu nú þegar. BALDUIN RYEL H,F. 0AGLIR XXVII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 31. ágúst 1944 35. tbl. Konur hefja nýja sókn ísjúkrahús- málum Norðlendinga Fjöldi alþingiskjósenda í 14 byggðarlögum í 4 sýslum skora á Alþingi, að reisa fjórðungssjúkrahús á Akureyri Leitað verður undirskrifta á Akureyri um helgina Kvenfélagið Framtíðin hér í bænum hefir enn haf- ið sókn í sjúkrahússmálum Norðlendingafjórðungs með því, að vinna að söfnun undirskrifta á áskorun til Alþingis um að hefja þegar byggingu ríkissjúkrahúss fyrir Norðlendingafjórðung hér á Akureyri. — Hafa konurnar þegar í höndum áskoranir, undirritaðar af nær tvö þúsund kjósendum í 14 byggðalögum í Eyja- fjarðar-, Skagafjarðar- og Þingeyjarsýslum. Þátttakan í þessum sýslum á enn eftir að aukast. Undirskrifta til styrktar þessu nauðsynjamáli verður leitað hér í Akur- eyrarbæ nú um helgina og mun vart standa á Akureyr- ingum að fjölmenna á undirskriftalistana. j UMBURÐARBRÉFI, sem stjórn Kvenfélagsins Framtíð- in hefir sent kvenfélögnm í sveitunum hér norðanlands, er bent á skipulagsleysi og órétt- læti það, sem nú ríkir í sjúkra- hússrekstri ríkisins. Lesendum Dags er kunn skipan þe.ssara mála hér um slóðir af margend- urteknum skrifum blaðsins um þau. í umburðarbréfi kvenfé- lagsins er komizt svo að orði: „Eins og ykkur er kunnugt, þá er aðeins einn ríkisspítali fyr- ir almenna sjúklinga, Landsspí- talinn í Reykjavík. Hann er rek- inn á kostnað ríkissjóðs með mjög lágum daggjöldum, og miklum reksturshalla, sem ríkis- sjóður síðan greiðir. Hér norð- anlands er á Akureyri aðeins einn spítali, sem orðinn er allt of lítill fyrir Akureyri og nærliggj- andi sýslur. Þessi spítali er rek- inn með mjög háum daggjöld- um á kostnað sjúklinganna sjálfra. Er sá munur svo mikill, að sjúklingur, sem liggur 10 daga' vegna botnlangauppskurð- ar verður að greiða á Landsspí- talanutn um kr. 200.00, en á Ak- ureyrarspítala kr. 460.00. — Reykjavík á engan spítala, þess vegna er nú svo komið, að Landsspítalinn er mest orðinn fyrir Reykjavík og umhverfi hennar. Niðurstaðan er því svi, að ríkissjóður rekur spítala fyrir Reykjavík. Nú hefir Kvenfélagið ,,Framtíðin“ á Akureyri hafizt handa með að beita sér fvrir því, að þetta misrétti verði afnumið og ríkið látið reisa hér á Akur- eyri stóran og fullkominn spí- tala, sem fullnægi Akureyri og nærliggjandi sýslum, og tak- markið á að vera, að einn slíkur spítali verði reistur og rekinn í hverjum landsf jórðungi. Þetta er sanngjörn krafa. Send- um við ykkur því meðfylgjandi lista til undirskriftar, þar sem skorað er á ríkisvaldið að það hefjist handa nú þegar með und- irbúning þess, að reist verði svo fljótt og hægt er, fullkomið fjórðungssjúkrahús á Akureyri“. Eins og fyrr segir, eru undir- tektir almennings til stuðnings málinu hinar beztu, og hafa fé- ’aginu þegar borizt listar úr þessum hreppum: Eyjafjarðarsýsla: Glæsibæjarhreppur, Skriðu- hreppur, Arskógshreppur, Öxna- dalshreppur, Arnarnesshreppur, Öngidsstaðahreppur, Hrafna- gilshreppur, Svarfaðardalshrepp- ur, Dalvík, Hrísev. Suður-I>in geyjarsýsla: Svalbarðsströnd, Grýtubakka hreppur. N orður-Þingeyjarsýsla: Svalbarðsstrandarhreppur. Skagfjörður: Skefilsstaðahreppur. Verið að reyna nýju vélarnar við Laxá gYRJAÐ VAR AÐ REYNA vélarnar riýju við Laxár- virkjunina 25. þ. m. og er haldið áfram við það þessa dagana. — Hefir allt gengið að óskum til þessa, að því er rafveitustjórinn hefir tjáð blaðinu. Búist er við, að vélarnar verði fullreyndar um aðra helgi og hægt verði þá að tengja þær við aðallínukerfið, Ekkert hefur komið fram af opinberri hálfu, sem bendir til annars Viðræður Forseta íslands og utanríkis- ráðherra við blaðamenn í Washington Skrif Morgunbl. og Þjóðviljans um vesturför forsetans vekja furðu um land allt gLAÐASKRIFIN í HÖFUÐSTAÐNUM um vesturför forset- ans vekja furðu um land allt. Morgunblaðið og Þjóðviljinn hafa að undanförnu dylgjað um það, á mjög óviðurkvæmilegan hátt, að för utanríkisráðherrans með forsetanum standi í sam- bandi við „pólitískar viðræður“, um afstöðu íslands eftir stríðið, og hafa í þessu sambandi haldið uppi ruddalegum árásum á utan- ríkisráðherrann. Hafa þessi málgögn smjattað á hvers konar slúð- ursögum um vesturförina og dylgjað um, að ráðherrann hafi far- ið í förina óboðinn o .s. frv. Þessi skrif öll bera á sér einkenni slíks skorts á háttvísi og siðmennilegrar framkomu, að furðu gegn- ir. Bandaríkjaforseti bauð Forseta íslands í vináttuheimsókn, ásamt því föruneyti, er hann kynni að óska að hafa með sér. Það er altítt, er þjóðhöfðingi fer í slíka för, að hann kveðji til fylgis við sig ábyrgan ráðherra, og þá eðlilegast að utanríkisráðherr- ann verði fyrir valinu. Ekkert kom fram í sambandi við förina, sem benti til þess, að neinai | pólitískar viðræður mundu eiga ær stað og skrif blaðanna því í ;enn hvatvísleg og ósæmileg, bæði gagnvart forseta og Banda- ríkjáþjóðinni. Jafnframt hafa þau, með þessu framferði reynt að varpa rýrð á þessa fyrstu heimsókn forsetans til erlends ríkis. Allur almenningur furðar sig á þessari framkomu og vítir harðlega. Á meðan þessu hefir farið fram hér heima, hefir forsetan- um verið vel fagnað í Banda- ríkjunum. Hefir hann, ásamt cöruneyti, setið kvöldverðarboð Floosevelts í Hvíta lnisinu, en sar gisti hann fyrstu nóttina. — lann hefir heimsótt báðar leildir Bandaríkjaþings og setið reizlu Cordell Hulls, utanríkis- áðherra Bandaríkjanna, Sjálfur hafði hann síðdegisboð fyrir sendimenn erlendra ríkja að Blair House, sem hefir verið að- setursstaður hans í borginni. Þá hefir hann komið til New York og setið boð íslenzka ræðis- mannsins þar, ásamt íslending- um í borginni, og heimsótt La Guardia borgarstjóra. — Síðastl. laugard. tók hann á móti blaða- mönnum í Washington og ræddi við þá um stund. Utanríkisráðherrann var við- staddur og ræddi hann og við blaðamennina. — Forsetinn sagði m. a.: „Fyrir rúmum þremur árum tók-u Bandaríkin að sér hervernd íslands. Það er óvenjúlegt að sjálfstætt ríki feli stórveldi her- vernd sína. Eg get hiklaust full- yrt að íslendingar gerðu það vegna þess, að þeir báru full- komið traust til Bandaríkjanna og mér er ánægja að segja, að í þessu efni hafa vonir okkar ekki brugðist. Bandaríkin voru fyrsta stór- veldið, sem viðurkenndi hið endurreista lýðveldi Islands með því að senda sérstakan ambassa- dor ti! að vcra við stofnun lýð- veldisins. I'vrir þetta er mér ánægja að bera fram innilegustu þakkir fyrir hönd íslenzku þjóð- arinnar til forseta Bandaríkj- anna, stjórnar þeirra, þings og þjóðar". Utanríkisráðherra, .Vilhjálmm Þór, átti því næst viðtal við blaðamenn og sagði m. a.: ,,í sambandi við blaðaskrif hé í Bandaríkjunum um framtíðar- bækistöðvar Bandaríkjanna á ís- landi vil eg gjarnan taka fram þetta: Vér íslendmgar höfum nvlega öðlast fullt stjórnmálasjáI Ista.ði með endurstofnun hins íslenzka lýðveldis. Vér höfum ríka sjálf- stæðiskennd og vérsLolnuðum ekki lýðveldi vort í beim til- gangi að verða ósjálfstæðari en áður. Vér ætlum oss að eiga land vort allt og án erlendrar íhiut- unar. Samkvæmt samningi milli Bandaríkjanna og íslands tóku Bandaríkin að sér hervernd ís- (Framhald á 8, d9u).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.