Dagur - 14.09.1944, Síða 1

Dagur - 14.09.1944, Síða 1
«9* ANNALL DAGS Útgerðarmenn í Hrísey og Ól- afsfirði hafa hafizt handa um stofnun olíusamlaga samkvæmt nýjum lögum þar um. Hafa þeir þegar fest kaup á olíugeymum til þess að setja upp á þessum stöðum. Ef til vill verður hið þriðja samlag hér við Eyjafjörð stofnað á næstunni. Er vonandi, að þessar ráðstafanir verði til hagsbóta fyrir útgerðina. ★ Enn berast blaðinu fregnir af laxveiði í Eyjafjarðará. Fyrir nokkrum dögum veiddist t. d. 15 punda lax í ánni skammt fyrir framan Torfufell. — Það er full- sannað orðið, að klak það, sem KEA efndi til í ánni fyrir nokkrum árum hefir borið glæsi- legan árangtjr, þar sem hér var aðeins um byrjunartilraun að ræða. Sýnist því sjálfsagður hlut- ur Og hagsmunamál fyrir ey- firzka bændur, að hefjast nú þeg- ar handa um stofnun fiskirækt- arfélags, efna til áframhaldandi klaks í ánni og alfriða á og ósa fyrir netaveiði og fyrirdrætti. ★ Nýtt fyrirtæki hefir hafið starf hér á Akureyri. Er það niður- suðuverksmiðjan Síld li/f. Vinn- ur verksmiðjan ýmsar niður- suðuvörur og eru þær þegíjr á boðstólum í verzlunum og þykja reynast ágætlega. ★ Kartöfluuppskerán virðist ætla að verða rýr hér norðanlands að þessu sinni, þrátt fyrir gott sum- ar. Stafar uppskerubresturinn af næturfrostum snemma í ágúst og um mánaðamótin síðustu. Féll gras þá að mestu. Vinna við að taka upp úr görðum er almennt hafin hér í nágrenninu. Ármann Dalmannsson íþrótta- kennari varð fimmtugur 12. þ. m. Hann er Borgfirðingur að ætt, nam búfræði á Hvanneyri 1916—’18 og stundaði íþrótta- og fimleikanám í Ollerup á Fjóni 1924—25 og kom hingað til Ak- ureyrar þá um vorið. Síðan hefir hann dvalið liér sem starfsmað- ur Ræktunarfélags Norðurl. Um skeið kenndi hann hér fimleika og íþróttir, kenndi hér fyrstur manna handknattleik, æfði kvenfimleikaflokk um skeið og fór með hann til Rvíkur í sýn- ingarför 1929 og hlaut maklegt- lof fyrir. Um íþróttamál hér í bæ hefir hann verið mjög áhuga- samur, var í íþróttaráði Akur- eyrar um langt skeið og í stjórn U. M. S. E. um hríð. Ármann er einn þeirra manna, sem ólst upp innan vébanda ungmennafélaganna á blóma- tíma þeirra, gerði hugsjónir þeirra að sínum liugsjónum og þroskaði skapgerð sína og starfs- hæfni við þegnskyldustörf þeirra. Hann er ræktunarmaður í beztu merkingu þess orðs. Eyfirzkir bændur þekkja nákvæmni lians og samvizkusemi við jarðræktar- störf. — íþróttavinir þekkja störf hans í þágu æsku- og líkamsmenntunar. Ármann er hljóðlátur maður, sem heill gengur að hverju starfi, og þann- ig vinna okkar beztu menn. DAGLIR XXVII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 14. september 1944. 37. tbl. Aukafundur sýslunefndarEyjafjaröarsýslu skor- ar á Alþingi aðreisa ríkissjúkrahús á Akureyri Bandalag til að vinna að framförum og menningarmálum á Norðurlandi Frá 3. ársfundi presta, kennara og leikmanua Sunnudaginn 10. septemher var settur hér í bænum 3. ársfundur kennara og annarra leikmanna norðanlands, og hófst með guðs- þjónustu í Akureyrarkirkju kl. 1 síðd. Prédikun flutti séra Hall- dór Kolbeins að Mælifelli, en vígslubiskup, Friðrik J. Rafnar, þjónaði fyrir altari. Kl. 4 var svo settur fundur í kapellu kirkjunn- ar af formanni undirbúningsnefndar, Friðriki A. Friðrikssyni, pró- fasti í Húsavík og kvaddi hann til fundarstjóra SnoiTa Sigfússon, skólastjóra, en fundarritara Hannes J. Magnússon kennara. Chester W. Nimitz Þá flutt Páll Þorleifsson prest- ur að Skinnastað erindi, er hann nefndi: Fjórðungsbandalag Norðlendinga. Kom hann þar fram með þá tillögu, að fundur- inn hefði forustu um stofnun f jórðungssambands í Norðlend- ingaf jórðungi. Skyldi höfuðhlut- vei'k þess vera að vinna að fram- fara- og menningarmálum á Norðurlandi, bæði á sviði verk- legra framkvæmda og einnig í uppeldismálum, skóla- ogkirkju- málum. Kosin var þriggja manna nefnd til að leita sam- vinnu við sýslunefndir og bæjar- stjórnir um að hrinda hugmynd þessari í framkvæmd. Kosnir voru í neifndina: séra PálJ Þorleifsson, Snorri Sigfús- son og Friðrik J. Rafnar, vígslu- biskup. Viðskipti þings og stjórn- ar i dýrtiðarmálunum 1 útvarpstimræðum um dýrtíð- arfrumvarp ríkisstjórnarinnar sl. mánudagskvöld lýsti forsætisráð- herra, dr. Björn Þórðarson, yfir því, að svo fremi, að Alþingi kæmi sér ekki saman um ráðstaf- anir í dýrtíðarmálunum fyrir 15. þ. m., á svipuðum grundvelli og gert væri ráð fyrir í frumvarp- inu og sem stjórnin gæti eftir ástæðum sætt sig við, mundi hún leggja lausnarbeiðni sína fyrir forsetann. Ennþá er eigi fullljóst hvern- ig Alþingi muni snúast við þess- um úrslitakostum, en dýrtíðar- frumvarpið virðist ekki eiga miklu fylgi að fagna á Alþingi. Sennilegt er þó, að ekki komi til stjórnarskipta, heldur muni Al- þingi fá stjórninni fé í hendur til þess að verðbæta þær vörur, sem lyrirsjá'anlegt er að ella myndu valda hækkun á vísitöl- unni nú í haustkauptíðinni. Er talið að stjórnin muni „eftir ástæðum“ sætta sig við þá lausn og sitja áfram, Kl. 9 síðd. flutti séra Ben jamín Kristjánsson á Laugalandi er- indi, er liann nefndi: Börnin og guðs ríki, snjallt erindi og merkilegt um uppeldis- og krist- indómsmál. Fyrri hluta mánudags fóru svo fram umræður um áðurnefnd er- indi og voru þar margar snjallar ræður fluttar, en kl. 1 síðd. var tekið fyrir málið: Hvert stefnir? Frummælendur voru séra Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup og EgiH Þórláksson kennari. Bæði þessi erindi fjöll- uðu um kristindóms- og uppeld- ismál og urðu um þau miklar umfæður. Mættur var á fundinum bisk- upinn yfir íslandi, herra Sigur- geir Sigurðsson og flutti hann snjallt ávarp til fundarins. Á mánudagskvöld fór fram sameiginleg kaffidrykkja á Hótel (FTamhald á 8. dOu). Sýslunefndin samþykkir fyrir sitt leyti skilnað Eyjafjarðarsýslu og Ól- afsfjarðarhrepps flotaforingi, stjórnar sókn Bandaríkja- manna á Kyrrahafi. Umferð um Jökulsárbrú í Axarfirði hættuleg? Vegamálastjóri birtir þessa dagana í útvarpi aðvaranir til landsmanna um að fara varlega yfir hengibrýr. Er þetta gert í lil- efni af falli Ölvusárbrúar nú á dögunum. Vegamálastjóri varar sérstak- lega óvarlegri umferð um Jök- ulsárbrú í Axarfirði. Skulu aldr- ei fara 2 bifreiðar á brúna í einu og aldrei jTyngri bifreið en 5000 kg. Farþegar með stóru áætlunarbifreiðunum skulu ganga yfir brúna. Þessar ráðstaf- anir allar gefa til kynna, að um- ferð um brúna sé hættuleg, og er þess að vænta, að hafizt verði handa um styrkingu hennar, áð- ur en rekur í slóð Ölvusárbrúar. — Jafnframt væri gott að fá upp- lýst hvort ekki er ástæða til styrk- ingar Hörgárbrúar, í tilefni af áðvörun v^gamálastjóra um var- kárni á hengibrúm landsins yfir- leitt. HannesJ.Magnússon settur skólastjóri Barnaskólans Bæjarstjórnin og ^kóla- nefndin skora á Snorra Sigfússon að starfa áfram við skólann £|INS OG SKÝRT var frá hér X blaðinu fyrir skemmstu sagði Snorri Sigfússon skólastjóri af sér embætti skólastjóra barna- skólans hér frá 1. okt. og tók að sér námsstjóiastarf á Norður- landi frá sama tíma. I bréfi, dags. 9. þ. íru, skorar bæjarstjórn Akureyrar og skóla- nefnd á Snorra Sigfússon að halda áfram störfum við skól- ann. Segir svo í bréfinu: „Um leið og skólanefnd barna- skólans og bæjarstjórn Akureyr- ar þakka Snorra Sigfússyni ágæta stjórn og kennslu um langt skeið og votta honum fyllsta traust sitt, skora þær fastlega á liann, ef hann telur sér ekki tjón að, vegna framtíðarfyrirætlana sinna, að starfa áfram við skól- ann“. Undir bréfið rita: Bryn- jólfur Sveinsson, Þórarinn Björnsson, Þorsteinn M. Jóns- son, Friðrik J. Rafnar, Elísabet Eiríksdóttir, Áskell Snorrason, Á. Jóhannsson, Ó. Thorarensen, Friðrik Magnússon, Erlir^ur Friðjónsson, Jakob Frímanns- son, Jakob Arnason, Indr. , Helgason og Steinn Steinsen. Sn. Sigfússon svaraði þessari i (Framh. á 8, tiQu), Aukafundur sýslunefndar Eyja- fjarðarsýslu var haldinn hér í bænum sl. laugardag. Tilefni fundarins yoiu tvö mál: Sjúkra- húsmál Norðlendinga og skiln- aður Ólafsfjarðarhrepps og Eyja- fjarðarsýslu. Sýslunefnd Þingey- inga hafði þegar samþykkt áskor- un til Alþingis um að reist verði hið bráðasta fullkomið sjúkra- hús hér í bænum. Sýslumaðurinn, Sig. Eggerz, lagði fram eftirfarandi tillögu, sem samþykkt var einum rómi: „Það eru allir sammála um, að sjúkrahúsið á Akureyri sé með öllu ófullnægjandi, bæði gamalt og úr sér gengið, og auk þess allt of lítið. Hitt er víst, að Akureyrarbær og aðliggjandi sýslur, eru á eng- an hátt færar um að byggja ný- tízku sjúkrahús. Er því ein leið, sem fær er í þessu máli, að ríkis- sjóður byggi sjúkrahús og reki það. — Verður ékki annað séð en að það sé sjálfsogð skylda hins op- inbera, að taka forystuna í svo þýðingarmiklu heilbrigðismáli. Akureyrarbær er nú næst stærsti bær á þessu landi og vh'ðist því eðilegt að ríkissjúkrahús sé byggt hér. Mundi þetta hafa mjög víðtæk áhrif fyrir heil- brigðismál þjóðarinnar. Ef hér yrði byggt nýtízku sjúkrahús, myndu læknar Norðurlands allt- af við og við geta komið hér og verið hér á sjúkrahúsinu og lært ýmislegt ,svo að þeir yrðu færari að gegna störfum ,sínum. — Myndast mundi með bygg- ingu sjúkrahúss eins konar heil- brigðismiðstöð fyrir Noiðurland, og því meiri nauðsyn er á þessu, þar sem Landspítalinn er ekki nógu stór fyrir allt landið. — Sýslunefndin skorar því á Al- þingi að taka mál þetta að sér, nú þegar og láta byrja á bygg- ingu sjúkrahússins, sem allra fyrst". Þá var rætt um skilnað Ólafs- f jaiðarhrepps, sem nú leitar ettir að fá kaupstaðari'éttindi, og Eyjafjarðarsýslu. Féllst sýslu- nefndin á skilnaðinn lyrir sitt leyti, ef Alþingi samþykkir lög um bæjai'stjórn í Ólafsfirði, að (Framh. á 8, sí8u).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.