Dagur - 16.11.1944, Side 1
i
■$>
ANNALL
DAGS •
-..-ú=-- -T
Frá hinu mikla Goðafoss-slysi
er grein á 3. síðu blaðsins í dag.
Fánar blöktu í hálfa stöng um
gjörvallan bæinn sl. laugardag
og allar opinberar skemmtanir
féllu niður hér svo sem í öðrum
kaupstöðum landsins.
★
M/b. Sæunn frá Litla-Arskógs-
sandi, eigandi Jóhann Ásmunds-
son, sökk á Haganesvík aðfara-
nótt sl. mánudags. Var báturinn
með fullfermi af kolum er áttu
að fara til Hofsós. Mannbjörg
varð.
★
Stefán Guðnason, fyrrv. hér-
aðslæknir í Svaifaðaxdalshéraði
er nýlega fluttur hingað til bæj-
arins og hefir opnað lækninga-
stofu hér, skv. auglýsingu í blað-
inu í dag. — Daníel S. Daníels-
son hefir verið skipaður héraðs-
iæknir í Svarfaðaidalslæknishér-
aði. -
Akureyrarkaupstaður
kaupir Hamra af ríkinu
j^BÆJARSTJÓRNARFUNDI
fyrra þriðjudag var sainþykkt
álit Jaxðeignanefndar, Jxess efn-
is, að bærinn skuli sæta tilboði
frá dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu um kaup á jörðinni
Hömmm við Akureyri fyrir sam-
tals kr. 11.880.00. — Jörðin er
seld í því ástandi sem hún er í,
með mannvirkjum, en kúgildi
fylgja engin. Með kaupum þess-
um hefir ba?rinn fengið umráð
yfir landi, sem fyrir margra
hluta sakir er nauðsynlegt að
hann eigi. Tún er tæpir 6 ha.,
en engi og b.eitiland er talsvert,
til fjalls. Verðið, sem bærinn hef-
ir greitt fyrir jörðina, er mjög
lágt, miðað við migildandi verð-
lag.
Öxnadalsheiði fær bif-
reiðum aftur
Stórar farþegabifreiðir frá B.
S. A. hér í bænum komu sl.
þriðjudag frá Akranesi Iiingað
til Akureyrar í einum áfanga.
Voru bifreiðirnar kornnar hing-
að um kl. 11 e. h. og má af því
sjá, að færið hefir verið gott. —
Vaðlaheiði er einnig fær bifreið-
um aftur, og greiðfært að kalla
til Húsavíkur.
NYJA BÍÓ
i
! sýnir í kvöld kl. 9:
FLÓTT AFÓLK
! Föstudaginn kl. 9:
j HETJUR Á HELJARSLÓÐ
| Laugardaginn kl. 6:
STJÖRNUREVÝAN
: Laugardaginn kl. 9:
FLÓTTAFÓLK
j Sunnudaginn kl. 3:
STJÖRNUREVÝAN
j Kl. 5:
j HETJUR Á HELJARSLÓÐ
j Kl. 9:
FLÓTTAFÓLK
I
..
\
XXVII. árg.
AGLR
Akureyri, fimmtudaginn' 16. nóvember 1944 42. tbl.
V
Iðnaður, siglingar og verzlun verða hornsleinar atvinnu
9UMBARTON OAKS.
A ráðstefnu stórveldanna í Dumbarton Oaks voru lögð drög að samtökum
sameinuðu þjóðanna til verndar friðinum, — undirbúnings stofnunar hins
nýja þjóðabandalaés. Mennirnir á myndinni voru mestu ráðandi á ráðstefn-
tlnni. Þeir eru, t. frá vinstri: Cromyko, fulltrúi Rússa, Stettinius, fulltrúi
U. S. A. oé SirAIexander Cadoéan, iulltrúi Breta.
FRÁ ALÞINGI
Alþingi kom saman til funda
á ný sl. föstudag, eftir hlé það
sem gert var að ósk stjórnarinn-
ar, til þess að henni gæfist tími
til að undirbúa mál þau er af
málefnasamningnum leiða og
leggja þarf fyrir þingið.
Fátt éitt er ennþá sjáanlegt af
störfum stjórnarinnar. Helzt
þetta:
Frumvafp um nýsköpunarráð.
Skal ráð þetta hafa með höndum
undirbúning og ákvarðanir um
framkvæmdir ríkisins við ný-
sköpun atvinnulífs í landinu. Á
það að ákveða um ráðstöfun
þeirra 300 millj. króna af inn-
stæðu bankanna erlendis, sem
ákveðið er að setja á sérstakan
reikning. Skal ráð þetta taka til
starfa nú þegar.
Þá hefir stjórnin skipað þá Jón
Blöndal, hagfr. og Jóhann Sæ-
mundsson, lækni, til þess að vera
til aðstoðar þingnefnd þeirri,
sem hefir tryggingarmálin til at-
hugunar. Er ráðgert að hægt
verði að leggja frumvarp að nýj-
um tryggingalögum fyrir Al-
þingi í febrúar næstkomandi.
Þá hefir stjórnin lagt fram
frumvarp um þátttöku íslands í
I. L. O. (Alþjóðaverkamálaskrif-
stofunni) og lagt til, að Lands-
smiðjunni verði heimilt að verja
til vélakaupa og húsabygginga
allt að 1 mill j. kr. í stað 100 þús.
kr., sem ráðgert er í. frumvarpi
er nú liggur fyrir þinginu.
Eru þá talin helztu afrek
stjórnarinnar til þessa.
Eysteinn Jónsson flytur tillögu
til þingsályktunar um hlutleysi
útvarpsins í fréttaflutningi, þar
sem lagt er til að Alþingi reisi
skorður við því, er útvarpið hef-
ir að tindanförnu birt skrum-
kenndar ályktanir og auglýsing-
ar uin ríkisstjórnina, mengaðai;
ádeilum og ásökunumígarðand-
stæðinga hennar. Jafnframt neit-
aði útvarpið að birta yfirlýsingu
fimm-menninganna úr Sjálfstæð-
isflokknum, um að þeir væru
ekki stuðningsmenn ríkisstjórn-
arinnar!
,.Nonni“ (Jón Sveinsson)
dvelur nú í Þýzkalandi
Utanríkisráðuneytið hefir und-
anfayið gert fyrirspurnir um líð-
an íslendinga í Mið-Evrópu. —
Hafa þegar borizt upplýsingar
fyá allmörgum þeirra. Er líðan
þeirra yfirleitt góð segjast
þeir ekki þurfa á fjárhagslegri
aðstoð að halda.
í bréfi frá Jóni Sveinssyni rit-
höfundi (Nonna) segir að hann
dvelji nú á sjúkrahúsi í Escli-
weil'er nálægt Aachen í Þýzka-
landi, en hann er nú nærri 87
ára. Skýrir hann einnig frá því
að hann hafi nýlega liaft sam-
bancl við skyldfólk sitt hér með
aðstoð Rauðakrossins. — Nonni
er heiðursborgari Akureyrar-
kaupstaðar.
„Tíminnu stækkaður
um helming
Hinn 10. þ. m, kom ,,Tím-
inn“ fyrst út í hinum nýja bún-
ingi, sem honum hefir verið val-
inn. Er blaðið 8 bls. og kemur út
lífs Akureyrar
Áframhald á auknin«;u orkuversins við
Laxá og bygging nvrra hafnarmann-
virkja á Oddeyri, nauðsynlegir áfangar
Frá umræðufundi Framsóknarmanna s.l. mánu-
dagskvöld.
pRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAll efndi til umræðu-
fundar um bæjarmál í Samkomuhúsi bæjaiins sl. mánudags-
kvöld. Var lunduiinn fjölsóttur og urðu fjörugar umræður um
atvinnumál bæjarfélagsins og fiamtíðaihorfur. Málshefjandi var
Jakob Frímannsson, framkvæmdastjóri, en auk hans tóku til máls
Guðmundur Guðlaugsson, form. félagsins, Þorsteinn M. Jónsson,
skólastjóri, Ámi Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar, dr. Kristinn
Guðmundsson, skattstjóri, Haukur Snorrason, ritstj., Haraldur
Þorvaldsson, verkam., Þorsteinn Stefánsson, bæjargjaldkeri og
Árni Jóhannsson, skipstjóri.
Hér fer á eftir útdráttur úr ræðu Jakobs Frímannssonar.
AKUREYRI Á „NYSKÖPUN-
ARTÍMIBILINU*.
Það er ljóst öllum þeim, sem
hugsa um framtíð bæjarfélagsins,
að mikil verkefni bíða Akureyr-
inga, ef þeim á að takast að
tryggja framtíð bæjarins á
traustum grundvelli í því tíma-
bili nýrra framkvæmda og tæki-
færa, sem framundan er.
Akureyri yrði að byggja fram-
tíðaráætlanir sínar aðallega á
iðnaði, siglingum og verzlun.
Bærinn ætti þegar aðstöðu til
þess að gera ný átök í þessurn
greinum. Mætti þar til nefna
legu hans, í miðjú auðugasta
landbúnaðarhéraði Norðurlands
og ágæt hafnarskilyrði, sem
hlunnindi frá náttúrunnar
hendi — en raforkuverið við
Laxá, sem mikla framtíð ætti
fyrir sér, sem tilbúin gæði, er
mikla þýðingu hefði \ þessum
málum. Má því með sanni segja,
að bærinn hafi nú þegar allgóð
skilyrði til þessa alls, iðnaðar,
verzlunar og siglinga og það sem
mestu máli skipti nú, væri að
notfæra sér þessi gæði og bæta
við jrau svo að Jrau gefi enn
aukna möguleika til starfs og
framkvæmda. Er þá að gera sér
1 jóst, hvað það er, sem við eigum
að stefna að.
SIGLINGAR.
Ofarlega í þeim flokki mætti
telja siglingar. Eins og nú standa
sakir, eiga Akureyringar ekkert
skip til vöruflutninga. Mætti að
tvisvar í viku. Ýmsum nýjum
liðum hefir verið bætt í efni
blaðsins til þess að gera það fast-
ára í formi og fjölbreyttara. Rit-
stjóri er hinn sami og áður, Þór-
arinn Þórarinsspn.
nokkru leyti líkja því ástandi,
sem nú ríkir í verzlun manna hér
um slóðir) við þ átíma, er íslend-
ingar áttu ekkert skip og urðu í
öllu að sæta boði og banni út-
lendinga í þeim efnum. Því að
þótt íslendingar eigi nú skip, og
hafi átt um áratugi, þá hefir sá
galli fylgt jjessari skipaeign, að
hún hefir nær öll verið í hönd-
um Reykvíkinga og skipunum
stjórnað fyrst og fremst með hag
þess bæjai'félags fyrir augum.
Þetta ástand hefir valdið okkur
þungum búsifjum, sérstaklega
eftir að styrjöldin hófst og Eim-
skipafélagið varð einrátt um all-
ar siglingar og hafði einkarétt
til þess að leigja skip í Ameríku-
siglingum. Fyrir stríðið áttum
við þess kost hér að leigja erlend
skip til vöruflutninga hingað,
auk þess sem þá var hér til eitt
slíkt skip og svo þyrfti það einn-
ig að verða strax að stríðslokum,
að Akureyri réði sjálf að meira
eða minna leyti um erlendar
siglingar hingað til bæjarins.
✓
HAFNARMANNVIRKIN
NÝJU.
Á sl. vori var hafizt handa um
byggingu hafnargarðsins á Odd-
eyri. Þessi hafnargerð hefir feng-
ið ómilda dóma hjá ýmsum
afturhaldssömum bæjarbúum. —
En framtíðin mun leiða í ljós, að
svo framarlega sem Akureyri er
nokkur veruleg framtíð búin,
jrarf hún að eignast dráttarbraut-
ir, skipakvíar og olíu- og köla-
höfn með því sniði, sem ráðgert
er með hinum fyrirhuguðu
mannvirkjum á Oddeyri.
Það er langt frá því, að það sé
hugmyndin, að við eigum að
leggja nú Jregar í stórfram-
kvæmdir á Oddeyri. „Að mín-
(Frmmhald á 8. tlBu).