Dagur - 16.11.1944, Side 3

Dagur - 16.11.1944, Side 3
Fimmtudaginn 16. nóvember 1944. ÐAGUR Þýzkt tundurskeyti grandar e. s. Goðalossi. 24 menn láta lifftð. KLUKKAN 6 e. h., laugardaginn 11. nóv., birtu hernaðaryfirvöldin blöðunum svofellda tilkynningu: „LAUST FYRIR HÁDEGI, föstudaginn 10. nóvember, skaut þýzkur kafbátur tundurskeyti á e.s. GOÐA- FOSS, er skipið var statt á Faxaflóa, innan ísl. landhelgi, um það bil tveggja stunda siglingu frá Reykjavík, og fórst skipið af völdum tundurskeytisins. Björgunarskip fór þegar á vettvang, og kom þáð til Reykjavíkur í gærkvöldi með 19 manns af e.s. Goðafossi innanborðs — 2 farþega og 17 skipsmenn. 24 menn fórust, lOfarþegarog 14skipsmenn. Hér á eftir fara nöfn þeirra, sem fórust: FARÞEGAR: Dr. Friðgeir Ólason, Rvík. Dr. Sigrún Briem, kona hans. Böm þeirra: Óli, 7 ára. Sverrir, 4 ára. Óskírð dóttir, 5 mánaða gömul. Frú Ellen Wagle Downey, (gift Capt. Downey). Sonur hennar: William, á þriðja ári. Halldór Sigurðsson, Freyjugötu 43, Rvík. Steinþór Loftsson, Akureyri. Sigríður Þormar (Pálsdóttir), Hringbraut 134. SKIPSMENN: Þórir ólafsson, 3. stýrimaður, Miðtún 15, Rvík. Hafliði Jónsson, 1. vélstj., Hringbraut 148. Pétur Hafliðason, kyndari, Hringbraut 148. Sig. Haraldsson, 3. vélstjóri. Víðimel 54. Guðmundur Guðlaugsson, 4. vélstjóri, Kjós. Eyjólfur Edvaldsson, 1. loftsk.m. (dó á leið til lands). Sig. Ingimundarson, háseti, Skólavörðustíg 38. Sig. Sveinsson, háseti, Leifsgötu 25. Ragnar Kærnested, háseti, Grettisgötu 77. Randver Hallsson, 1. kyndari. Öldugötu 47. Jón Kristjónsson, kyndari, Þingholtsstræti 12. Sig. Oddsson, matsveinn, Laugavegi 44. Jakob Einarsson, þjónn, Stað, Laugarnesvegi. Lára Ingjaldsdóttir, þerna, Bollagötu 7. Engin orð fá nógsamlega lýst því drengskaparleysi og grimmdaræði, sem birtist í þessari síðustu morðárás þýzkra vopna á friðsamlegt íslenzkt kaupfar og varnarlausa farþega og sjómenn. Sú staðreynd, að slíkt verk er unnið þegar styrjaldarlokin eru í augsýn og vald kúgxmar og ofbeldis er í fjörbrotunum, fæíir okkur heim sanninn um það, að nazisminn er kominn á nýtt stig eyðileggingar og villimennsku, slíkt sem fáa mun hafa órað fyrir að fæðst gæti á þessari öld. / Þjóðarsorg ríkir í landinu af völdum þessara hörmulegu tíðinda.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.