Dagur - 16.11.1944, Síða 6
6
DAGUR
Fimmtudaginn 16. nóvember 1944.
HROSUN
EOU)í)RD§
BERIMÍIRD.
(Framhald).
ist af heimþrá. Hann óskaði einskis frekar, en hverfa heim til Chi-
cago aftur. Hún þráði heimkomu hans, en umhyggjan fyrir hon-
um var svo mikil, að hún skrifaði honum hvert hvatningarbréfið
af öðru um það, að veraltyrr og hafna ekki þessu ágæta tækifæri til
frama, sem honum hefði fallið í skaut. Hún óskaði ekki að það
vitnaðist, að elskhugi hennar ætti ekki karlmennsku og þrótt til
þess að þola fjarvistirnar.
Eftir nokkra hríð virtist svo sem hann færi að kunna bærilega
við sig á eyjunni. Isabella tók eftir því, að áhugi hans fyrir verzl-
unarmálum virtist vaxandi og að hann fann til gleði yfir því, að
stuðla að útbreiðslu amerískra viðskiptaaðferða í þessum afkima
veraldar. En þrátt fyrir þetta átti hún fastlega von á því, að innan
eins árs, en það var allra stytzti tími sem hann gat búizt við að
þurfa að dvelja á Tahiti, — mundi hún þurfa að tala mjög um fyr-
ir honum til þess að aftra honum frá því að hlaupa þaðan á brott.
Hún áleit alveg sjálfsagt, áð hann notaði tækifærið og lærði til
hlítar allt viðkomandi viðskiptum fyrirtækisins vestur þar og fyrir
sitt leyti taldi hún ekki eftir sér að bíða annað ár eftir heimkomu
hans. Hún ræddi um þetta allt við Bateman Hunter, sem var alltaf
tryggasti vinur hennar, og þeim kom hjartanlega saman um, að
framtíð og frama Edwards bæri að setja ofar öllu öðru. Það vakti
því óblandna ánægju í brjósti hennar, að tíminn leið án þess að
hann ympraði nokkru sinni á því, að hann hefði í hyggju að
hverfa heim.
„Er hann ekki dásamlegur?" spurði hún Bateman.
„Víst eru þið það bæði,“ svaraði hann.
„Eg les það í milli línanna í bréfunum hans, að hann þjáist af-
heimþrá, en harkar hana af sér vegna. . . . “
Hún roðnaði lítið eitt, og Bateman, alvörugefinn og lijálpsam-
ur eins og ævinlega, lauk við setninguna fyrir hana:
„. . . . Vegna þess, að hann elskar þig.“
- „Þú ert dásamleg, Isabella, blátt áfram dásamleg.“_
Og annað árið leið. í hverjum einasta mánuði fékk Isabella bréf
frá Edward og þar kom, að henni fór að finnast það undarlegt, að
hann minntist aldrei á heimkomuna til Chicago. Hann skrifaði
eins og hann væri setztur að fyrir fullt og allt á Tahiti. Hann virt-
ist una sér hið bezta þar. Óttablandin undrun greip um sig í huga
hennar. Hún las öll bréfin hans aftur, sum oft. Við þennan yfirlest-
ur varð henni ljóst, að Edward hafði breytzt. Hún las það í milli
línanna. Síðustu bréfin voru eins einlæg og ástúðleg og þau fyrstu,
en andinn var breyttur. Hún undraðist með sjálfri sér, að hún
skyldi ekki hafa tekið eftir þessu fyrr. Hún þóttist skilja, að sá
Edward, sem nú skrifaði henni, var ekki sami maðurinn, sem
hafði kvatt hana fyrir nær því tveimur árum.
Dag einn, þegar pósturinn frá Tahiti var nýkominn, sagði Baté-
man við hana: „Sagði Edward nokkuð um heimför sína?“
„Nei, hann minntist ekkert á hana. Eg hélt kannske að hann
hefði nefnt eitthvað í þínu bréfi.“
„Nei, ekki orð.“
„Þú veizt hvernig Edward er,“ sagSi hún, kát í bragði, „hann
veit aldrei hvað tímanum líður. En þú gætir spurt hann að því,
næst þegar þú skrifar, hvenær hann ætli sér að koma heim.“
Hún varpaði þessu fram léttilega, eins og það skipti raunar engu
máli hvort hann færi að vilja hennar eða ekki. En Bateman þekkti
hana og vissi, að í þessum yfirlætislausu orðaskiptum bjó heit bæn.
„Já. Eg skal gera það," sagði hann. „Eg skil ekki hvað drengur-
inn hugsar."
Nokkrum dögum síðar bar fundum þeirra saman á nýjan leik.
Hún tók fljótt eftir því, að honum lá eitthvað á hjarta. Þau höfðu
verið saman mörgum stundum eftir brottför Edwards, höfðu talað
um hann og framtíð þeirra svo oft, að hún skildi þegar, að áhyggj-
ur Batemans mundu snerta þau Edward. Það tjóaði ekki fyrir hann
að neita því, er hún gekk á hann, og hann varð að segja henni allt
af létta.
„Sannleikurinn er sá,“ sagði hann loksins, „að eg hefi frétt, að
Edward er ekki lengur í þjónustu Braunschmidt &: Co. Eg vildi
vita vissu mína um þetta, svo að eg fór í gær á fund Braunschmidts
sjálfs og spurði hann um það.“
„Og hvað svo?“
„Edward fór úr þjónustu félagsins fyrir meira en ári síðan.“
„Það er undarlega, að Edward skuli ekkert hafa minnst á þetta í
bréfum sínum."
Bateman hikaði í frásögn sinni, en úr því að hann var búinn að
segja upphafið var bezt að hún fengi að heyra alla söguna.
„Hann var rekinn."
„Drottinn minn dýri, — og hvers vegna?"
„Mér er sagt, að þeir hafi aðvarað hann einu sinni eða tvisvar,
(Framhald).
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við and-
lát og jarðarför okkar hjartkæru móður og fósturmóður,
HÓLMFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR.
Fyrir hönd fjarstadds sonar, foreldra, systkina og annarra
vandamanna.
Sólveig Axelsdóttir. Björg Kofoed-Hansen.
María Pétursdóttir.
Dýpstu þakkir fyrir höfðinglegar gjafir og alla veitta vin-
semd á sjötugsafmæli mínu þann 17. október síðastliðinn.
Heilir virúr mínir.
ÓLAFUR PÁLSSON, Sörlastöðum.
Snyrtivörur,
amerískar, fjölbreytt úrval.
Stjörnu-apotek
NÝKOMIÐ:
Blandað grænmeti í
dósum
Gulrætur í dósum
Tómatsósa
Jarðarberjasulta
Verðið mikið lægra en
annars staðar þekkist
KAUPFÉLAG
EYFIRDIHGA
Nýlenduvörudeild og útibú.
Nýtt frá Ame-
ríku:
Rommdropar
Kirsuberjadropar
Jarðarberjadropar
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.
AUGLYSING
GUÐMUNDUR KJERULF
fyrrum bóndi á Hafursá í Fljóts-
dalshéraði, varð áttræður 26. okt.
sl. Guðmundur bjó 45 ár í
Vallahr^ppi í S.-Múlasýslu,
lengst á Hafursá, og gegndi þar
ýmsum trúnaðarstörfum. Hann
er giftur Vilborgu Jónsdóttur frá
Kleif í Fljótsdal, og hafa þau nú
verið 55 ár í hjónabandi. Guð-
mundur er vel ern og gengur
enn að vinnu, enda hefir hann
ætíð verið mikill eljumaður.
Guðmundur er prýðilega greind-
ur og margfróður, hefir lagt
mikla stund á lestur fræðirita og
er stálminnugur.
Hann er nú fluttur hingað til
Akureýrar ásamt konu sinni;
dveljá þau hjón á vegum dóttur
sinnar, Solveigar. sem gift er
Gunnari Jónssyni spítalaráðs-
manni.
Börn þeirra hjóna, auk fyrr-
greindrar dóttur, eru: Anna, gift
Sveini Pálssyni bónda í Hábæ í
Vogum, Guðbjörg, gift Oddi
Kristjánssyni, byggingameistara
á Akureyri, Jón Kjerulf á Eski-
firði og Andrés bóndi í Reyk-
holti.
Niðursoðið
grænmefi:
Blandað grænmeti 3.25
Gnlrætur 2.90
Rauðrófur 2.80
Tomatpurre 4.35
Kjötbúð K.E.A.
GIFTIN G ARHRINGUR
með fangamarki fundinn í
Ásbyrgi sl. sumar.
Björn Jóhannsson, Ásbyrgi,
pr. Skinnastað.
Hveifiklíð
í dósum,
nýkomið
Kaupfélag
EyfirÖinga
N)lenduvörudeild og útibú.
0
FRÍMERKI ERU
VERÐMÆTI. KASTIÐ
EKKI VERÐMÆTUM
Á GLÆ.
Kaupi íslenzk frímerki hæsta
verði eftir innkaupslista, sem
sendur er hvert á land sem er, ef
óskað er. Leitið tilböða. — Upp-
lýsingar greiðlega látnar í té. —
Duglegir umboðsmenn óskast
víðs vegar um land.
ÓMAKSLAUN!
SIG. HELGASON,
P. O. Box 121. -
Reykjavík.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦i
RUGGUSTÓLL,
rná vera notaður, en í góðu
standi, óskast til kaups.
Afgr. vísar á.
VETRARFRAKKI,
lítið notaður, til sölu.
Afgr. vísar á.
Auglýsið í
DEGI
<4