Dagur


Dagur - 30.11.1944, Qupperneq 1

Dagur - 30.11.1944, Qupperneq 1
 ANNALL DAGS Frá ræðismanni fslands í Edin- borg hefir borizt fregn um, að Valgarð Ólafsson, hálfbróðir Ragnars heit. Ólafssonar kon- súls, hafi farizt í umferðarslysi þar í borginni. Valgarð var fæddur á Akureyri 1897 og hafða verið búsettur í Edinborg um 20 ár. Hann var ókvæntur. ★ Ritstjóinin hefir ákveðið að birta ekki, að svo stöddu, meira af Strandamannasögu Gísla Kon- ráðssonar. Fellur birting sög- unnar því niður með þessu tbl. 0 AGLR XXVII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 30. nóvember 1944. 44. tbl. Nauðsynlegar umbætur á póstllutningakerfi landsins Vikulegar póstferðir árið um kring um öll héruð landsins. Daglegar póstferðir Smjörskömmtun og mjólkurhækkun um greiðfær byggðarlög. Póststjórnin komi upp póstkössum við hvern bæ við þjóðbraut. Álit milliþinganefndar í póstmálum. „Dagur“ hefir orðið þess var, að Mjólkursamlag K. E. A. hefir a'úglýst skömmtun á smjöri og verðhækkun á mjólk hér á Ak- ureyri frá 1. des. næstk. Þar sem þessar ráðstafanir varða mjög allan almenning í bænum, liefir blaðið snúið sér til Jónasar Kristjánssonar forstj. Mjólkur- samlagsins og hefir hann góðfús- lega látið blaðinu í té eftirfar- andi upplýsingar hér að lútandi: Smjörskömmtunin. Eins og flestir Akureyringar hafa orðið varir við að undan- förnu hefir eftirspurn eftir smjöri verið mjög míkil, og miklu meiri en hægt hefir verið að fullnægja. Þó hefir Mjólkur samlagið selt meira smjör hér í bæinn að undanförnu æn nokk- urn tíma áður, auk þess sem nokkuð af heimagerðu smjöri liefir komiðj verzlanir eða verið selt af einstaklingúm. — Srnjör- inu hefir verið dreift í 4—5 út- sölustaði í bænum og það selt einu sinni eða tvisvar í viku og aðeins J/2 kg .á mann í einu, í þeim tilgangi, að láta sem flesta fá einhverja úrlausn. Þrátt fyrir þetta hefir safnazt sívaxandi mannfjöldi að smjörútsölunum og troðningur þar orðið svo mik- ill, að ,-við slysum hefir legið. Menn hafa veitt því athygli, að sumar fjölskyldur hafa teflt fram allmiklu liði í hverjum „smjör- slag“ og hjá þeim hefir fengur- inn orðið að sama skapi stór sem fleiri fóru. Önnur heimili í bæn- um liafa aftur á móti ekki haft mannafla eða aðrar ástæður til þess að geta gengið hart fram á þessum stöðum og hafa þá orðið frá að hverfa án þess að fá nokk- urn smjörbita. Dreifing smjörs- ins á þennan hátt hefir því ekki gengið jafnt yfir, svo sem ætlazt var til, og það er því miður ekki útlit fyrir að þetta ástand breyt- ist neitt til batnaðar í nánustu framtíð, ef ekki er tekin upp ný aðferð við úthlutun smjörsins, einkum þar sem framleiðsla þess er mjög minnkandi á þessum tíma árs. Af framangreindum ástæðum liefir nú verið ákveðið, að hefja almenna smjörskömmtun til neytenda á Akureyri frá 1. des. næstk. Ætlast er til að hver mað- ur í bænum geti fengið 250 gr. af smjöri á mánuði fyrst um sinn, hvort sá skammtur hækkar eða lækkar þegar fram í sækir, verður tíminn að leiða í ljós. Fyrirkomulag skömmtunar þessarar verður með mjög svip- uðum hætti og verið hefir með hinar almennu skömmtunarvör- ur. Gefnir verða út smjör- skömmtunarseðlar, senr eiga að gilda fyrir 6—7 rnánaða tímabil. Skömmtunarskrifstofa Akureyr- arkaupstaðar annast úthlutun skömmtunarseðlanna gegn því að sýndir séu stofnmiðar mat- vælaskömmtunarinnar. — Eftir þessum smjörmiðum verður svo smjörið afhent alla daga á hin- um venjulegu útsölustöðum. Með þessu fyrirkomulagi mun smjörið dreifist jafnara en áður og allur troðningur við smjörút- sölurnar hverfa úr sögunni. Gert er ráð fyrir að fólk vitji smjörskammtar -síns á tímabil- inu frá 1. til 20. hvers mánaðar. • Nýmjólkurverðið liækkar. Sanrkvæmt auglýsingum, er festar hafa verið upp í öllum mjólkur- og brauðútsölum bæj- arins er ákveðið, að útsöluverð m jólkur á Akureyri hækki frá E des. næstk. um 5 aura á lítra og verði kr. E45, eða með sama verði og verið hefir á mjólk í öllum kaupstöðum landsins síð- an 15. september í fyrra. Mjólk- urverðlagsnefndir landsins ákváðu þá, að útsöluverð á mjólk skyldi vera kr. 1.65—1.70 á lítra. Hins vegar hafði ríkis- stjórnin mælt svo fyrir, að út- söluverðið skyldi vera kr. 1.45 á' lítra og verðmismunurinn greið- ast bændum úr ríkissójði. Þó því aðeins fá bændur þessa uppbót úr ríkissjóði greidda að fullu, að útsöluverði mjólkurinnar sé haldið í hámarksverði. En þetta hafa eyfirzkir hændur ekki gert að undanförnu. Mjólkin hefir verið seld hér á kr. 1.40 og af þessum ástæðum fá þeir ekki fulla uppbót úr ríkissjóði og fá þannig lægra heildarverð en áðr- ir bændur. Þetta kann sumum mönnum að þykja næsta einkennilegt, að bændur skuli ekki hafa selt mjólk sína hér á Akureyri með hámarksverði á sama hátt og gert hefir verið í öðrum kaup- stöðum landsins, en skýringin á þessu er sú, að bændum hér í Eyjafirði hefir alltaf staðið ógn (Framhald á 8. sfðu). Milliþinganefnd í póstmálum hefir gert ýtarlegar tillögur um nauðsynlegar umbætur á póstflutningakerfi landsins. Eru umbæt- urnar miðaðar við daglegar póstferðir um byggðalög, eins og Eyjafjarðarsýslu, þar sem góðir vegir eru greiðfærir að kalla allt ár- ið, — en vikulegar ferðir mlinnst til afskekktari byggðarlaga. Er ætlunin, að pósti verði skilað í póstkassa, sem póststjórnin láti koma upp við alla bæi, sem liggja váð þjóðbraut, og mjólkurbílar og önnur flutningatæki, sem daglega fara um þessi svæði, skilji eftir póst í pósthylkjum þessum. Af þeim nýmælum, sem felast í • tillögum nefndarinnar, mun ráðagerðin um þessa póstkassa við þjóðvegi vekja mesta athýgli hér um slóðir. Eins og nú standa sakir er póstflutningum hér í sýslunni og nálægum sveitum mjög ábótavant. Þótt samgöngur séu tíðar til bréfhirðingastöðv- anna í einstökum hreppum skortir á,. að póstur berist þaðan greiðlega til viðtakenda á ein- stökum bæjum. Liggur póstur- inn oft dögum saman, jafnvel vikum saman, á bréfhirðinga- stöðunum. Þetta hefir ekki sízt komið niður á blöðunum. Má nefna þar um mörg dæmi. Ef horfið verður að því ráði, að koma upp „vatiisheldum, og traustum kössum, tvíhólfuðum", þar sem bæir eiga sameiginlega viðkomustaði við vegina með mjólk sína, mundi stórlega úr þessu vandræðaástandi bætt, því að svo er ráð fyrir gert, að mjólkurbílstjórar afhendi póst- inn í kassa þessa jafnframt því er þeir skila mjólkurdunkum, en áður hafi pósturinn verið lesinn sundur og knippaður með tilliti til þessarar afgreiðslu, á aðal- bréf h irðingas töðvum. Þá gerir nefndin ráð fyiir því, að póstflutningar með sérleyfis- bifreiðum verði auknar frá því sem nú er, sérstaklega með tilliti til afgreiðslu póstsins á fleiri staði frá langferðabifreiðum. Má telja að nokkur nauðsyn sé á því, enda þótt erfitt nmni reyn- ast að samræma slíkt löngu og ærið erfiðu ferðalagi og nauðsyn farþega að komast fljótt og tafa- lítið á ákvörðunarstað. Nefndin ráðgerir, að aukinn kostnaður ríkisins af þessum umbótum muni nema rösklega hálfri milljón króna áilega. Enn- fremur ráðgerir nefndin, að kosta muni um 225000 krónur að koma upp nægilega mörgum póstkössum meðfram aðalvegum landsins. Frá nánari tilhögun póstflutn- inga í einstaka hreppa Eyjafjarð- arsýslu og nærliggjandi héraða, samkvæmt tillögu nefndarinnar, er greint á 3. síðu blaðsins í dag. Póstleiðin Akureyri—Reykjavík. Nefndin lítur svo á, að þann • ‘ tíma, sem ekki er hægt að hafa daglegt samband með* bílum milli Reykjavíkur og Akureyrar, þá megi alls ekki minna vera en að tvær fastar ferðir verði á hverri viku milli þessara staða. Auk þess verði stuðlað að reglu- bundnum flugferðum; þegar veður leyfir, eigi sjaldnar en tvisvar til þrisvar í viku. Eins og sjá má af þessu leggur nefndin næsta lítið til málanna um bættar samgöngur milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur. Því að í ofangreindri ályktun nefndar- innar felst ekkert nema almenn vitneskja og engin breyting á nú- verandi ásigkomulagi. Hins veg- ar er núverandi ástand ekki þannig, að ekki verði á betra kosið. Má þar fyrst til nefna, að ekkert fast skipulag virðist vera ríkjandi um flutning pósts með flugvélum, þegar aðstæður leyfa. Það ber oft við að vetrinum, að daglegar flugferðir eru hingað, stundum samfleytt í viku og lengur. Reynslan hefir sýnt, að þessar flugferðir eru ekki notað- ar eins og skyldi til þess að koma póstinum hingað. Sökin liggur hjá forráðamönnum póstmál- anna í Reykajvík. Þrátt fyrir yf- irlýsingar um að flugvélarnar skuli notaðar, eftir því sem fært er fil póstflutninga, kemur að- eins örsjaldan fyrir að t. d. blaðapóstur sé fluttur með þeim, þótt rúm væri fyrir hann. Nefnd- in nefnir bág afgreiðsluskilyrði við pósthúsið í Reykjavík og tef- ur að umbætur á því séu raunar undirstaða þess, að tillögur hennar nái tilætluðum árangri. Telja verður líklegt, aðíþrengsl- um á aðalpósthúsi landsins sé að finna lykilinn að ýmsu þvf, er miður fer í póstflutningum landsins, og er vitaskuld bráð nauðsyn að kippa því í lag. Virð- ist þó auðsafett, að fastara skipu- lagi mætti koma á flutning pósts með flugvélum milli höfuð- póststöðva eins og Reykjavíkur og Akureyrar nú þegar, þótt húsakynnum póstafgreiðslunn- ar syðra sé mjög áfátt og þrengsli þar úrLiófi fram. Póststjórnin hefir nýlpkið við myndarlegt átak til bættra skil- yrða fyrir póstafgreiðslu hér, með byggingu hins veglega póst- og símahúss hér í bænum, sem þegar er tekið í notkun. Slíkt átak ætti einmitt að verða til þess, að enn meiri áherzla en áð- ur sé lögð á bættar póstsam- göngur. Vissulega verður ekki komizt hjá því, að reisa hús fyrir afgreiðslu pósthússins í Reykja- vík, svo veglegt og rúmgott, sem hæfir aðalpósthúsi landsins og undirstöðu bættra póstsam- gangna, eins og segir í áliti nefndarinnar. En misráðið væri, að láta þær umbætur, sem þegar er mögulegt að gera, bíða þeirrar framkvæmdar. Ef tillögur nefndarinnar ná fram að ganga í höfuðatriðum er stórt spor stigið í framfara- og menningarátt. . Iðnaðarmannafél. Akureyrar minntist 40 ára afmælis síns með fjölmennu og veglegu hófi, er haldið var að Hótel Norður- landi sl. laugardag. Undir boið- um um kvöldið minntist formað- ur félagsins, Indriði Helgason rafvirkjameistari, félagsins og rakti sögu þess frá upphafi til þessa dags í allítarlegri ræðu. Jó- hann Frímann skólastjóri flutti ræðu fyrir minni Iðnskólans, er nú hefir starfað á vegum félags- ins í 39 ár. Stefán Árnason for- stjóri, gjaldkeri félagsins, minnt- ist fósturjarðarinnar og Kristján S. Sigurðsson trésmíðaameistari talaði fyrir minni Akureyrar. Þá fluttu þeir ræður Sigurður Egg- erz bæjarfógeti og Vigfús Friið- riksson Ijósmyndameistari, ritari Iðnaðarmannafélags Akureyrar, en að lokum söng „Smára-kvart- ettinn“ nokkur lög við ágætar undirtektir og hrifningu veizlu- gesta. Eftir að borð voru upp tekin,- stigu menn dans af miklu fjöri, unz skammt lifði enn næt- ur. Talsvert á 3. hundrað manns sat hóf þetta, og fór það hið bezta fram.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.