Dagur - 11.01.1945, Side 1

Dagur - 11.01.1945, Side 1
ANNALL DAGS ■ ... ERLENDUR. 5. janúar. Montgomery tekur við yfirherstjórn norðan Ar- dennafleygs Þjóðverja, en Brad- ley sunnan fleygsins. Báðir lúta yfirstjórn Eisenliowers. Banda- menn sækja á við norðurhlið fleygsins, vörn Þjóðverja mjög hörð. Bilið milli herjanna sunn- an og norðan fleygsins 22 km. — Ghurchill kemur heim úr Frakk- landsferð. Riissar viðurkenna Lublinnefndina, sem bráða- birgðastjórn Póllands. Bretar og Bandaríkjamenn viðurkenna áfram útlagastjórnina í London. Þetta mál talið eitt alvarlegasta ágreiningsefni Bandamanna. — Þjóðverjar hefja gagnsókn fyrir vestan Búdapest. 6. janúar. Hæg sókn Banda- m^nna á Ardennasvæðinu. Þjóðverjar sækja á fyrir norðan og austan Strasbourg. — Mót- spyrnu Elas-flokkanna í Aþenu og Pireus lýkur. — Roosevelt ávarjiar þjóð sína. Ræðir um styrjaldarhorfur og ágreinings- mál heima og erlendis. — Franski rithöfundurinn Romain Rolland látinn. 7. janúar. Amerískar risaflug- vélar og herskip hefja árásir á stöðvar Japana á Luzoney, Fil- ippseyjum og á Formosa. Japan- ar telja árásirnar upphaf innrás- ar Bandaríkjamanna á Luzon. Ekkert sagt um þetta efni meðal Bandamanna. Lítil breyting á vesturvígstöðvunum. Þjóðverjar koma framsveitum yfir Rín, skammt frá Strasbourg. Banda- menn sækja á norðan og sunnan fleygs Þjóðverja. Bilið milli herja þeitra 19 km. Þjóðverjar taka samgöngumiðstöðvar vestan Budapest. Áframhald á bardög- um í borginni. 8. janúar. Frakkar kveðja sex árganga til vopna. Miklar loft- árásir á Þýzkaland, 12. loftárásar- dagurinn í röð. Lítil breyting á vígstöðunni í Ardennafjöllum og við Budapest. 9. janúar. Lítil breyting á vesturvígstöðvunum. Banda- menn vinna þó lítið eittá á Ar- dennasvæðinu, þrátt fyrir hríð- arveður og ofsalega andspvrnu Þjóðverja. Bandaríkjamenn gera loftáiás á Tokyo og fleiri staði í Japan. Áframhald á árásum á Formosa. 10. janúar. MacArthur til- kynnir að innxás Bandaríkja- manna á Luzon, sem er mest Filippseyja, sé hafin. Hernaðar- útgjöld USA næsta fjárhagsár áætl. 70 milljarðar dollara. Friðrik Þorgrímsson úrsmiður, 75 ára Einn af elztu og velmetnustu borgurum bæjarins, Friðrik Þor- grímsson, úrsmiður, verður 75 ára næstk. þriðjudag. — Friðrik / hefir dvalið hér í bænum mest- allan aldur sinn og stundað úr- smíðar um áratugi. Þessa merka borgara og iðnaðarmanns verð- ur nánar minnzt hér í blaðinu Siðav, XXVIII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 11. janúar 1945. 2 tbl. Undarlegur málflulningur sljórnarflokkanna i hneykslis- Nýju vegargerðinni yiir Öxnadals- heildsalanna heiði og um Norðurárdai væntaniega lokið á næstu 4-5 árum Kommúnistar beina örvum sínum að fyrrv. ríkis- stjórn aðallega, en ekki hinum ákærðu heildsölum. Sjálfstæðisblöðin ræða ekki málið. Líklegt að sú leið verði þá jafnaðarlega bílfær allt árið. Úr greinargerð vegamálastjóra um vega- og brú- argerðir 1944. Ríkisstjórnin hefir ennþá ekki fyrirskipað opinbera rannsókn. Eins og lauslega var frá greint í síðasta blaði hóf verðlagseftir- litið aðgerðir nú um áramótin til þess að stemma stigu við óhæfi- legu okri á neyzluvörum almennings af hálfu heildsölufyrirtækja í Reykjavík. Eitt fyirirtæki var kært fyrir sakadómara í Reykjavík fyrir áramótin. Var það fyrirtækið G. Helgason & Melsted og laust eftir nýjár sendi verðlagseftirlitið kæru á heildsölufirmað O. John- son & Kaaber. Báðum fyrirtækjunum er gefið að sök, að þau hafi pjÁRVEITINGAR í fjárlög- um til vegamála voru rúmar 14 millj. kir., en samtals hefir heildarkostnaður orðið hátt á 17. millj. króna. Hér af ervorueftir- stöðvar frá árinu 1943 um 1,5 millj. kr. og um 1,7 millj. kr. greiðslur frá setuliðinu til við- halds þjóðvega. Er þetta hærri upphæð en nokkru sinni fyrr, en aðgætandi er, að vegna verð- hækkunar á öllum sviðum eru framkvæmdir ekki mjög miklu meiri en áður, og jafnvel nokkru minni en 1943, en þá nam heild- areyðslan urn 16,4 millj. kr. Að nýbyggingu á þjóðvegum var unnið á um 100 vegaköflum víðs vegar um land allt fyrir samtals nær 6 millj. kr. Frestað var vinnu á nokkrum köflum, sumpart vegna lítils framboðs verkamanna, en sumpart vegna vöntunar á stórvirkum vélum. Geymast þær fjlrveitingar til næsta árs. Margar stórvirkar vélar hafa verið í pöntun, surnar meir en árlangt, en vegna þess að út- flutningsleyfi hafa ekki fengist, hafa engar slíkar vélar bætzt við til afnota 1944. Hafa-því aðeins verið í notkun þær 3 jarðýtur, sem vegagerðin á, auk 2—3 annarra, sem leigðar hafa verið um tíma og nokkurra véla, sem setuliðið hefir lánað um tíma. Virðist nú nokkur von um að eittbvað rýmkist um útflutn- ingsleyfi. Samtals eru meir en 30 slíkar vélar í pöntun, bæði jarð-1 ýtur, vegheflar, grafvélar og ámokstrarvélar. Fjárveitingar 1944 og 1945 til vélakaupa eru samtals 2,4 millj. kr. Er vitan- lega gert allt sem unnt er til þess að ná sem flestum vélanna fyrir vorið, enda veltur mjög á því um framkvæmdir á næsta ári, svo mjög, að sjálfsagt þykir Aðalfundur miðstjórnar F ramsóknarf lokksins. Ákveðið hefir verið, að aðal- fundur miðstjórnar Framsókn- arflokksins hefjist i Reykjavík hinrn 6, febrúar naestkomandi, að fresta ýmsum nýbyggingum, nema lientugar vélar fáist, þar eð kostnaður myndi ella fara fram úr öllu hófi. Á Norðurlandsleið var mest unnið í þessum köflum: Hafnar- fjallsvegi í Vatnsskarði og í Öxnadal. Nýgerði kaflinn í Hafnarfjallsvegi kemur ekki að notum nema að nokkru leyti fyrr en fullgerður er tæplega 5 km. kafli til viðbótar í Hafnar- skógi, sem gerður verður á næsta ári. Þegar ennfremur er lokið þar, væntanlega 1945, tæplega 5 km. kafla um Fiskilækjarmela, verður fullgerður upphleyptur vegur frá Akranesi til Borgar- fjarðarhéraðs og á þá að vera fengin þar örugg vetrarleið. Vatnsskarðsvegur er nú kominn svo langt, að vænta má, að full- gerður verði á næsta ári nema e. t. v. smákaflar hjá Bólstaðarhlíð og Víðimýri. Á Öxnadalsheiði er fullgerður kaflinn upp brekk- una hjá Bakkaseli að Grjótá og nokkuð byrjuð vegagerð vestar. Vegurinn frá Silfrastöðum um Norðurárdal norður að Grjótá er um 22 km. að lengd og tepp- ist venjulega þegar kemur fram á haust og fram í júníbyrjun. Þarf að leggja áherzlu á að ljúka honum sem fyrst, og fá til hans hærri fjárveitingar, en nú, þegar lokið er Vatnsskarðsvegi. í ár var mest unnið í Öxnadal innan- verðum og lokið þar kaflanum innan við Öxnadalsá, ennfremur nokkurn kafla utar. Eru þar þó enn ólagðir 3,5 km., sem væntan- lega verða fullgerðir á næsta ári. Þegar lokið er vegagerð um Norðurárdal og Öxnadalsheiði, væntanlega eftir 4—5 ár má gera sér von um, að leiðin til Akur- eyrar verði jafnaðarlega bílfær í snjóléttum vetrum. Á Norður- landsleið var ennfremur unnið að nýlagningu í Húnavatnssýslu hjá Enniskoti og hjá Bólstaðar- hlíð. Verða þeir kaflar fullgerðir á næsta ári og mun þá batna all- verulega vetrarleiðin. Á Norðurlandi var auk aðal- (Fminhnid i 7. »íðu), látið umboðsmenn sína eða úti- hú í Ameríku reikna sér stórum hærri umboðslaun en heimilt er, eða með öðrum orðum, falsa þá innkaupsreikninga, sem lagð- ir eru íslenzkum yfirvöldum í liendur. Jal'nframt var upplýst, að mörg önnur fyrirtæki hefðu þrjóskazt við að senda verðlags- eftirlitinu . frumrit innkaups- reikninga og leikur því grunur á að þau séu einnig sek í þessu efni. Viðskiptaráðið hefir gefið þessum fyrirtækjum frest til 20. febrúar til þess að skila reikn- ingum og verður þeim ekki út- hlutað innflutningsleyfum á meðan. Talið er í sunnanblöðunum, að hér sé um stórfelld hneykslis- mál að ræða. Hafa orðið snarp- ar umræður um þau í öllum blöðum höfuðstaðarins, nema Morgunblaðinu og Vísir. Morg- unblaðið hafði þegar síðast frétt- ist tekið þann kostinn að leiða málið að mestu hjá sér og hafði aðeins birt greinargerð Við- skiptaráðs athugasemdalaust og réttina um kæruna til sakadóm- íra, einnig athugasemdalaust af olaðsins hálfu. Verkamannafélagið skor- ar á bæjarstjórn að hefja atvinmiframkvæmdir nú þegar yERKAMANNAFÉLAG Akureyarrkaupstaðar hefir sent bæjarstjórn Akureyrar áskorun um, að láta þegar hefja atvinnuhótavinnu fyrir 80—100 manns. Telur félagið a. m. k. svo marga verkamenn í bænum at- vinnulausa um þessar mundir. Félagið bendir á eftirfarandi verkefni: Grjótsprenging og mölun á grjóti, áframhald vinnu við hafnargarðinn á Oddeyri og útgröftur á lóðum þeim, sem bærinn á við vestanvert Hafnar- stnpti. Kommúnistar undirbúa undan- hald. Af hálfu stjórnarliðsins er því svo að sjá, sem kommúnistum sé ætlað að ræða málið á opinber- um vettvangi og marka þá stefnu, sem ríkisvaldið tekur í málinu. Skrif kommúnista eru með undarlegum og nær óskilj- anlegum hætti, nema að tilgang- urinn sé sá, að hjálpa til þess að kveða það niður og fyrirbyggja opinbera rannsókn málsins. Þyk- ir nú margt benda til þess, að þeir ætli að þægjast Sjálfstæðis- forystunni og bjarga stjórnar- samvinnunni í bráð með því að leiða málið inn á annarlegan vettvang og þagga það síðan niður. Það, sem. einkum bendir til (Framhald á 8. síðu). Bílstjórar vilja að bærinn kaupi veghefil gÍLSTJÓRAFÉLAG AKUR- . EYRAR hefir skorað á bæj- arstjórn Akureyrar að gera nú þegar ráðstafanir til þess að kaupa nýjan veghefil til notkun- ar í bænum. í erindi sínu benda bílstjórarnir á það, að til þessa hafi einum veghefli verið ætlað að hefla alla vegi frá Akureyri, þ. e. Eyjafjraðarbraut, Vaðlaheíði, Dalvíkurveg, Kræklingahlíð og Öxnadal, að Bakkaseli. Auk þess göturnar í bænum. Hefillinn var í ólagi í sumar og annaði þá ekki nær því öllu þessu svæði og um miðjan september bilaði hann alveg og komst ekki í lag í tæka tíð í haust. Af þessu leiddi meðal annars það, að göturnar í bæn- um voru mjög slæmar yfirferðar í sumar og haust, svo að til stór- vandræða horfði. Bílstjórarnir halda því fram, að þetta verkefni sé ofviða einum hefli, þótt i lagi væri, og þess vegna sé nauðsyn- legt, að bærinn eigi veghefil til þess að halda vegum í bænum og Frarohalú á 8. siðu.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.