Dagur - 01.03.1945, Qupperneq 8
8
D A © U R
Fimmtudaginn I. marz 1945
Cl BÆ OC BYGGD
I. O. O. F. 1263281/2
KIRKJAN. Messað á Akur-
eyri næstk .sunnudag kl. 2 e. h.
Bókaforlaé Pélma H. Jónssonar
sendir nú þessa dagana á markaðinn
hina frægu og ágætu skáldsögu „Síð-
asti víkingurinrí' eftir norska stór-
skáldið Johan Bojer. Hefir Steindór
skáld Sigurðsson þýtt söguna á ís-
lenzku. Þessarar merku bókar verður
nánar getið hér í bíaðinu innan
skamms.
Framsóknarmenn! Munið árshátíð-
ina. Aðgöngum. til föstudags í Timb-
urhúsi KEA.
Arsskemmtun skplabarna á Akur-
eyri verður í Samkomuhúsi bæjariins
annað kvöld (föstud.) kl. 8.30 e. h. —
Aðgöngumiðar fást í Bókaverzl. Þ.
Thorlacius. Skemmtunin verður end-
urtekin á laugardags- og sunnudags-
kvöld á sama tíma og kl. 4 e. h. á
sunnudaginn (og er sú sýning aðal-
lega ætluð börnum). — Allur ágóði
rennur í ferðasjóð skólabarnanna.
Harmonikuhljómleikar. Ormalóns-
bræður, þeir Jóhann og Pétur Jósefs-
synir frá Ormalóni i N.-Þingeyjar-
sýslu eru nýkomnir til bæjarins og
ætla að halda hér harmoniikuhljóm-
leika, en þeir bræður eru þjóðfrægir
harmonikuleikarar. — Hljómleikarnir
verða í Nýja-Bíó næstk. sunnudag kl.
1.30 e. h. Bræðumir héldu hljóm-
leika hér í bænum árið 1938 og síðar
í Reykjavík. Héðan fara þeir til
Siglufjarðar og Reykjavíkur. Meðal
verkefna á hljómleikum þeirra eru
ýms klassisk lög, svo sem kaflar úr
Rigoletto eftir Verdi, Pílagrímskór úr
Tannhauser eftir Wagner o. fl.
Dánardægur. Hinn 25. febr. lézt að
Kristneshæli Hjalti Antonsson, sjó-
maður, Tómassonar verkamanns á
Akureyri. Aðfaranótt 27. f. m. lézt í
Sjúkrahúsi Akureyrar Guðrún Jónas-
dóttir, húsfreyja á Sílastöðum í
Glæsibæjarhreppi, gift Ágústi Jónas-
syni bónda og deildarstjóra þar. Sama
dag lézt að’heimili sínu hér í bænum,
Þuríður Sigurðardóttir, ekkja Jóns
Friðfinnssonar verkam. hér, móðr
Finns ráðherra og þeirra systkina.
Stúkan Isafold-Fjallkonan nr. 1
og stúkan Brynja nr. 99 halda sam-
eiginlegan fund í Skjaldborg næstk.
þriðjudag kl. 8.30 e. h. — Fundar-
efni: Lagðir fram reikningar Skjald-
borgar. — Kosið í húsráð. — Erindi:
Láms Thorarensen o. fl. — Félagar!
Fjölmennið!
Zíon næstkomandi sunnudag: —
Barnasamkoma kl. 10.30 f. h. — Al-
menn samkoma kl. 8.30 e. h. — Allir
velkomnir.
Kvenfélagið „Voröld“ heldur hluta-
veltu og dans laugardaginn 3. marz að
Munkaþverá kl. 8.30 e. h. Veitingar á
staðnum.
Harmonikuhljómleika
halda bræðurnir Jóhann og
Pétur Jósepssynir frá Orma-
lóni, í Nýja-Bíó, sunnud. 4.
marz kl. 13.30. Aðgöngumiðar
seldir hjá Þorst. Thorlacius,
Bókaverzl. Eddu og við inn-
ganginn á sunnud.
Iflönel
| NÝKOMIÐ |
| Brauns Verzlun I
I Páll Sigurgeirsson. 1
Stríðsyf irlýsingin
(Framhald af 1. síðu).
hefði samþykkt svar við orð-
sendingunni í loðnum og óá-
kveðnum tón, þar sem sótzt. sé
eftir því, að íslaird fái þátttöku
í San Fransisco-ráðstefnunni, án
þess að lýsa yfir beinu stríðs-
ástandi við Möndulveldin. Mikl-
ar líkur eru til að þessi orðróm-
ur sé réttur, þótt ekki sé hægt að
fullyrða það, þar sem allt gerð-
ist fyrir lokuðum dyrum. Enn-
fremur gengur sterkur orðrómur
tim, að kommúnistar hafi verið
manna vígfúsastir og hafi heimt-
að berorðar yfirlýsingar um
styrjöld við Möndulveldin. —
Kemur þetta heim við fiegn
amerísku blaðanna úm það, að
krafan sé upphaflega komin frá
Rússum, og ennfremur heim við
skrif Þjóðviljans, sem birti í gær
ritstjórnargrein um fordæmi
Sýrlendinga, sem hafa sagt
Möndulveldunum stríð á hend-
ur, og taldi það til fyrirmyndar.
Ekkert verður um það sagt
hér, hvers hafi verið krafizt af
íslendingum í einstökum atrið-
um, né heldur, hvort orða-
sveimur sá, sem að ofan getur, sé
að öllu leyti réttur, enda þótt
m jög sterkar líkur mæli með því
að svo sé. En hversu sem því
kann að vera háttað, er fram-
koíná ríkisstjórnarinnar algjör-
lega óþolandi og furðulegt, að
slíkt skuli gerast í ríki, sem telur
sig hafa lýðræðisstjórn og halda
í heiðri málfrelsi og ritfr^lsi.
Ö.ll leynd um þetta stórmál af
stjórnarinnar hálfu var óþörf
Sýslufundur Eyjafjarðarsýsh’.
(Framhald af 1. síðu).
ið vinsælan og réttlátan dómara
í málum héraðsmanna og örugg-
an framkvæmdastjóra í málefn-
um sýslunnar. Margþætt störf
sem þau, er Sig. Eggerz hefði
innt af höndum á langri æfi,
krefðust mikilla fórna. Þetta
ætti sérstaklega við Sig. Eggerz,
því að hann hefði hlotið skáld-
gáfu í vöggugjöf. Annir hans í
margháttuðum ‘störfum hefðu
orðið þess vaidandi, að hann
hefði orðið að víkja þeirri
hneigð sinni tii hliðar. Ræðu-
maður sagðist ekki vilja leggja
neinn dóm á, hversu þungbært
það hefði verið, né heldur dæma
þau ritverk, sem Sig. Eggerz
hefði unnist tími til að vinna að,
en hitt taldi hann óyggjandi, að
sá maður, sem hefði ort „Alfaðir
ræður“, hann væri skáld, þótt
hann hefði ekkert annað ort.
Margháttaður sómi fyrir mikil
störf væri mikils virði, en þó
réði það ekki úrslitum um eftir-
mæli. Þar réði manngildi. Um
það yrði ekki deilt, að Sig. Egg-
erz væri drengur góður. Ræðu-
maður gat þess ennfremur, hve
gleðilegt það lilyti að hafa verið
fyrir Sig. Eggerz að sjá sitt
stærsta mál, sjálfstæðismálið, sem
hann hefði manna mest borið á
oddi, komast svo glæsilega í höfn
sem raun varð á sl. sumar.
Sýslumaður þakkaði kveðjuna
með snjallri ræðu.
Hófið var mjög virðulegt og
skildu allir glaðir og reifir.
eftir að Bretar höfðu birt fregn-
ina í ppinberu útvarpi sínu. Bar
ríkisstjórninni þá skylda til að
birta almenningi tilkynningu um
málið. Stjórnaryöklin hafa blátt
áfram enga heimild til þess að
dylja þetta stórmál fyrir þjóð-
inni; sömuleiðis á þjóðin fulla
heimting á að vita hvað hefiir
gerzt á hinum lokuðu fundum
og liver afstaða þingmanna heíir
verið. Fremstu lýðræðisþjóðir,
svo sem Bretar, ræða um utan-
ríkismál sín fyrir opnum dyrum.
Allt pukur og leynd um slíkt
mál, sem þetta, er óhafandi. —
Þjóðin mun krefjast þess, að
skjölin verði lögð á borðið!
Óveður og snjóþyngsli
í Reykjavík
Um síðustu Iielgi gerði
vonzkuveður með mikilli snjó-
komu á suðvesturlandi. Lokuð-
ust þá bifreiðavegirnir báðir frá
Reykjavík austur yfir fjall og
svo mikla ófærð gerði á Reykja-
víkurgötum, að ekki var akfært
nema um helztu göturnar og
strætisvagnar stöðvuðust.
Síðastl.. þriðjudag gerði upp-
styttu og var þá hafizt handa um
að ryðja göturnar, en ennþá er
ekki akfært austur yfir fjall frá
Reykjavík; komast mjólkur-
flutningabílar því ekki til bæjar-
ins og hefir ríkt algjör skortur á
mjólk nú um nokkurra daga
skeið. Sl. þriðjudag komu t. d.
ekki nema 4000 ltr. af mjólk til
höfuðstaðarins, en venjulega
berast þangað 28—30.000 ltr. í
gær var unnið að því að gera ak-
færa leið að skíðaskálanum í
Hveradölum, en bændur munu
reyna að flytja mjólk þangað á
sleðum.
3 heildsölufyrirtæki
kærð
Verðlagseftirlitið liefir enn
sent sakadómaranum í Reykja-
vík kærur á þrjú reykvísk heild-
sölu fyrirtæki fynir brot á verð-
lagsákvæðum: . .
Guðm. Ólafsson & Co.
Heildverzlunin Berg.
Jóhann Karlsson & Co.
Hefir Verðlagseftirlitið þá alls
kært 9 fyrirtæki fyrir verðlags-
brot í sambandi við Ameríku-
viðskipti.
Málningarvörur:
Utanborðsmálning
Lestamálning
Botnfarfi á tré- og
járnskip
Vélaglasúr
Lökk ýmiss konar
og alls konar inn-
an- og utanhúss-
málning
Vöruhúsið h.f.
Það tilkynnist hér mecj, að
Guðrún Jónasdóttir frá Sílastöðum
andaðist í Sjúkrahúsi Akureyrar þriðjudaginn 27. íebrúar s. 1.
Jarðarförin fer fram laugardaginn 10. marz n. k.. og hefst með
bæn að heimili hennar, Sílastöðum, kl. 11 f. h. Jarðað verður í
Lögmannshlíð kl. 1 e. h.
Ágúst Jónasson. Þórunn Ágústsdóttir. Eggert Þorkelsson.
Nýir avexfir
Athygli félagsmanna skal vakin á því,
að skömmtun á nýjum ávöxtum stend-
ur yfir frá 2. til 10. marz n. k., að báðum
dögum meðtöldum.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Nýlenduvörudeild og útibú.
Býlið Hlíð
við Akureyrir ásamt fjósi, heyhlöðu og velræktuðu
túni að stærð 24 dagsláttur, er til sölu á næsta vori.
Tilboð óskast, en réttur áskilinn til að taka hverju
sem er, eða hafna öllum. Allar upplýsingar gefa
Friðþjófur Pétursson, Hainarstræti 18B, sí.mi .398
og undirritaður
Helgi Schiöth
ANNÁLL DAGS
(Framhald af 1. síðu).
segja Rússa komna yfir Neisse-
fljót fyrir suð-vestan Berlín.
Samkvæmt sömu fregnum geys-
ar skriðdrekaonnsta þar. Rúss-
ar liafa brotið á bak aftur til-
raunir setuliðsins í Königsberg
til þess að brjótast úr herkvinni.
Umræður um Krím-ráðstefnuna
í brezka þinginu. Chu^chill bið-
ur neðri málstofuna að sam-
þykkja yfirlýsingu ráðstefnunn-
ar. Bandaríkjamenn 19 km. frá
Köln. Bandamenn hafa tekið
40.000 þýzka fanga á vesturvíg-
stöðvunum í ffebrúar. Sýrland
segir Möndulveldunum stríð á
hendur.
E.s. Dettifoss sökkt við
Bretlandsstrendur.
(Framhald af 1. síðu).
Ameríku. Dettifoss var yngsta
skip Eimskipafélags íslands,
byggður í Danmörku 1930.
Grimmd ófriðarins lætur nú
skammt stórra höggá í milli í
garð íslenzku þjóðarinnar. Miss-
ir skipanna er sár, en verður
bættur. Manntjónið verður
aldyei bætt okkar fámennu þjóð.
Ófriðurinn hefir þegar heimtað
blóðfórnir af okkur, sem jafnast
hlutfallslega á við manntjón
stærstu styrjaldarþjóðánna. Þeir
áverkar á dugmesta þjóðarstofn-
inn mun fylgja okkur um ókom-
in ár.
Parker-penni
fundinn. Vitjist í
Prentverk Odds Björnssonar
Nýkomið!
Léreft
hvítt
Flónel
hvítt og mislitt
Pópelín
Dragtaefni
Nolde leistar
á kr. 8.80 parið
Hlírabönd
tnargar breiddir
Kvennaérfötin
ódýru cru komin aftur .. .
PÖNTUNARFÉLAG
VERKALÝÐSINS
Prjónasilkigarn
n ý k o m i ð :
svart, hvítt, dökkbrúnt, ljós-
brúnt, gulrautt, plómulitt,
fjólublátt, rósrautt, rósbleikt,
gulbleikt, silfurgrátt, grænt.
BEZTA TEGUND
Sendum í póstkröfu.
Sími 364.
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Björnsson