Dagur - 28.01.1948, Side 1
F orustugreinin:
Aflabrögðin að undanförnu,
afkoma útgerðarinnar og
afstaða kommúnista.
Fimmta síðan:
Þriðja og síðasta grein Gísla
Kristjánssonar, ritstjóra, um
málefna bænda í Eyjafirði.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 28. janúar 1948
4. tbL
Fyrsta veiðiskipið með alúmmíum-yfirbyggingii
Fyrir nokkru var hlcypt af stokkunum skipi í Lowestoft á Bretlandi,
sem mikla athygd hefir valtið meðal fiskimanna. Þetta skip er 208
lesta togari og er öll yfirbyggingin gerð úr alúminíum. Eftir því, sem
brezka blaðið Fishing News upplýsir, er yfirbygging þessi talin ákaf-
lega sterk og líkleg til þcss að standa betur af sér veður og slit en þau
cfni, sem áður hafa verið notuð í yfirbyggingar. Myndin hér að ofan
er af hinu nýja skipi, er bað var fullbúið til framsetningar.
Kommúnisfar innleiBa austrænar
kösningavenjur
Við stjÓFnarkosningu í „Þrótti4" í Reykjavík
komu fram fleiri kjörseðlar en fundar-
menn voru!
Aðalfundur félagsins leystist upp
Bandalag Vesfur-Evrópuþjóðanna
gegn yfirgangsstefnu Rússa
Ernest Bevin, iitanríkisráðherra Breta, hoðar
nýja stefnu í utanríkismálum
Síðastliðinn fimmtudag flutti Ernest Bevin, utanríkisráðherra
Breta, stórpólitíska ræðu í neðri málstofu bvezka bingsins, er hann
hóf umræður um utanríkismál í þinginu. Þessi ræða hefir vakið
heimsathygli, því að í henni er lýst utanríkisstefnu Breta og þeim
nýju viðhorfum, sem sköpuðust við bað, að utanríkisráðherrafundur
stórveldanna í London fyrir jólin, fór út um búfur.
Ymislegt bendir nú til þess, að
kommúnistar hafi yfirleitt tekið
upp austrænar kosningavenjur í
félögum þeim, er þeir hafa stjórn-
að, til þess að tryggja völd sín í
framtíðinni. Má í þessu sambandi
minna á nýafstaðna stjórnar-
kosningu í Dagsbrún, þar sem
kommúnistar héldu kjörskránni
leyndri og neituöu Alþýðuflokks-
mönnum um aðgang að henni,
og þó sérstaklega nýlegan aðal-
fund í vörubílstjórafélaginu
Þrótti í Reykjavík, sem allsögu-
legur er talinn. Birtust starfsað-
ferðir kommúnista greinilega á
þessum fundi.
Fleiri kjörseðlar en fundar-
menn.
Fundur þessi var haldinn í nýju
mjólkurstöðinni í Reykjavík sl.
sunnudag. Var hann allfjölmenn-
ur og tókust þegar í upphafi ýf-
ingar með kommúnistum og öðr-
um fundarmönnum. Loksins þeg-
ar fundur var settur, gerðist það,
að einn fundarmanna þreif
mikrofón þann, er fundarstjóri
talaði í, af honum, og hélt með
hann út í sal og tók að fly.tja ræðu
í hann. Eftir nokkurt þóf- komst
friður á aftur og litlu síðar hófst
stjórnarkosning. Var kosinn for-
maður Einar Ogmundsson, úr liði
kommúnista. Við talningu at-
kvæðanna kom í ljós, að fleiri
kjörseðlum hafði verið skilað en
fundarmenn voru. Varð háreisti
mikið af þessum sökum. Þegar
lokið var við kosningu fjögurra
manna með þessum hætti, varð
einn fundarmanna til þess að
þrífa hattinn með atkvæðaseðlun-
um af fundarstjóranum og hlaupa
með hann fram í sal. Varð þá
hark mikið í salnum og handalög-
mál. Var hringt til lögreglunnar
og kom hún á vettvang, en áður
en hún léti til sín taka, leystist
fundurinn upp. Voru því aldrei
kosnir nema 4 stjórnarnefndar-
menn, með þeim hætti er fyrr er
lýst, en fimmti maðurinn er ókos-
inn ennþá. Allar þessar aðfarir
minna mjög á „lýðræðiskosning-
arnar“ í Ungverjalandi í haust,
þar sem flokksmenn kommúnista
fengu tækifæri til þess að kjósa
mörgum sinnum og tryggja þann-
ig ,,sigur“ flokksins og einræði
kommúnista í landinu.
Otto TuÍíiiíes
látmii
Otto Tulinius útgerðarmaður
og fyrrv. konsúll, andaðist í
Sjúkrahúsi Akureyrar sl.
fimmtudag. Hann varð 78 ára
gamall. Otto Tulinius var um
langt skeið í hópi kunnustu at-
hafnamanna hér í bænum, stund-
aði verzlun og útgerð og ýmsan
annan atvinnurekstur. Hann átti
sæti í bæjarstjórn Akureyrar um
skeið og var eitt sinn förseti bæj -
arstjórnarinnar.
Samskot til fólksins
I í Sigluvík
| Rauðikrossinn hér í bænuni
gengst fyrir f jársöfnun til
fólksins, sem missti aleigu sína
í eldsvoðanum í Sigluvík í sl.
viku. Liggja samskotalistar
frammi hjá öllum blöðunum í
bænum, á skrifstofum KEA,
og hjá gjaldkera Rauðakross-
ins, Páli Sigurgeirssyni, í
Braunverzlun og Vöruhúsinu.
— Mun þegar hafa safnast
nokkurt fé. Ónefndur maður
hér í bænum hóf samskotin
með því að afhenda Degi 1000
kr. Allmargir aðrir hafa skrifað
sig fyrir peningum á lista, sem
liggur frammi á afgreiðslu
blaðsins.
Eínisskortur tefur
tengingu Iltisa-
víkur við Laxár-
veituna
Fréttaritari blaðsins í Húsavík
skýrir svo frá, að lítið hafi mið-
að raforkuframkvæmdunum í
Húsavík síðan í desember, er
nokkur hluti þorpsins var tengd-
ur við Laxárveituna. Hefir efnis-
skortur hamlað og mun ekki vera
von til þess að verkinu verði full-
lokið fyrr en seint í vetur eða
vor. — Bílfært er nú fyrir stóra
bíla og jeppa um Aðaldal og
Reykjadal og berst talsverð mjólk
til mjólkurbúsins í Húsavík.
Heiðar allar eru ófærar. —
Nokkrir bátar róa frá Húsavík og
hefir afli verið sæmilegur, en
gæftir hafa verið mjög litlar. Tíð-
arfar er stirt og umhleypinga-
samt.
Mannslát í Þingevjar-
sýslu
Frá fréttaritara blaðsins
í Húsávík.
Hinn 22. janúar lézt að Klömbr-
urn í Aðáldal húsfrú Hildur
Baldvinsdóttir, kona Oskars
Jónssonar bónda þar, mikilsvirt
og velgefin kona. Þá er nýlega
látin hér Regína Helgadóttir frá
Múla. Síðastl. sunnudag lézt í
Sjúkrahúsi Húsavíkur Skarphéð-
inn Stefánsson skósmiður hér í
bæ.
Jeppabíl var stolið hér í bæn-
um aðfaranótt sl. sunnudags og
honum ekið út í Gefjunarlæk og
skilinn þar eftir. — Einhverjar
skemmdir urðu á bílnum. Ekki
hefir tekizt að ná í sökudólgana,
en málið er til meðferðar hjá lög-
reglunni.
Bandalag Vestur-Evrópu.
Það, sem einna mesta athygli
vakti í ræðu Bevins, var, að hann
skýrði frá því, að Bretar myndu
beita sér fyrir
bandalagiþjóða
í Vestur-Ev-
rópu gegn yfir-
gangs ste.fnu
R ú s s a, e n
Rússar hefðu á
p r j ó n u n um
margvísl e g a n
áróður um að
gera alla Ev-
rópu sér háða
stjórna r f a rs-
lega, og væri nú svo komið, að
hin raunverulegu landamæri
kommúnismans væru við Trieste,
Stettin og Elbu. Unnið væri að
því að koma á þessu sambandi
vestrænna þjóða í Evrópu með
samningum og væru samningar
við Belgíu, Holland og Luxem-
burg mjög æskilegir í þessu sam-
bandi.
Yfirgangur Rússa.
Bevin sagði, að allt frá því, að
styrjöldin hófst hefðu Rússar
beitt
ö 11 u m
löndum,se
hefðu haJ
hver flc
ítök í. Þa
kunnara
þyrfti að
hvernig
þei r r a
verið í
uni næst fyrir
Spaak.
/estan sig. Enn
virtsit langt frá því, að valdafýkn
þeirra væri svalað. Það skipti í
sjálfu sér ekki miklu máli, hvaða
aðferðir Bretar notuðu héðan af
gegn þessari útþennslustefnu
Rússa, en aðalatriðið væri, að
ekki væri unnt að halda áfram á
sömu braut og að undanförnu —
að láta Rússa sölsa undir sig
fleiri og fleiri lönd með hreinum
ofbeldisaðgerðum.
Starfsemi Rússa vel skipulögð.
Ráðherrann sagði, að starfsemi
Rússa í löndunum í Vestur-Ev-
rópu virtist vera vel skipulögð og
fullkomnu hlífðarleysi beitt af
þeirra hálfu í því augnamiði að
vinna ný lönd og nota kommún-
istaflokkana í þessum löndum.
sem tæki til þess. Bretar hefðu
komizt yfir upplýsingar, er sýndu.
hvernig kommúnistar hefðu
hugsað sér að egna til hinna
svæsnu verkfalla í Frakklandi.
En þau 'áttu srnátt og smátt að
verða til þess að eyðileggja" alla
lýðræðislega stjórnarmöguleika í
landinu, og þá var ætlunin að
taka landið og gera það að öflug-
asta vígi kommúnista í Vestur-
Evrópu.
Balkanmálin.
Ráðherrann minntist á Balkan-
málin. Giæðgi Rússa virtist vera
óseðjandi, og stefndu þeir ein-
dregið að yfirráðum í allri álf-
unni. Hann kvað allt benda til
þess, að Rússar hefðu gert sér
vonir um að í Grikklandi færu
leikar þannig, að stjórn uppreisn-
armanna fengi viðurkenningu
annai-ra ríkja. — Hann kvað það
hafa verið mjög hættulegan leik,
er Júgóslavía, Búlgaría og Al-
banía hefðu leikið fyrir Rússa, er
bau höfðu að engu fyrirmæli
Sameinuðu þjóðanna varðandi
bann gegn aðstoð við gríska
skæruliða.
Undirtektir annarra þjóða.
Ræða Bevins og stefnuyfirlýs-
ingu hefir hvarvetna verið vel
tekið nemá í málgögnum komm-
únista. Talsmenn lýðræðisþjóð-
anna í Vestur-Evrópu hafa fagn-
að henni og lýst sig fylgjandi.
hinu vestur-evrópska bandalagi.
Má þar einkum lilnefna Paul
Henri Spaak, forsætisráðherra
Belgíu, sem lýsti fylgi belgísku.
stjórnarinnar í ræðu um sl. helgi.
„Kaldbakiur44 seldi
fyrir 11.000
sterlingspund
Akureyrartogarinn ..Kaldbak-
ur“ seldi afla sinn í Fleetwood sl.
laugardagsmorgun. Var aflinn.
3413 kit fiskjar og söluverðið
11.053 sterlingspund. Er þetta tal-
in mjög góð sala.
Bevin.