Dagur - 04.02.1948, Side 2
z
DAGUR
Miðvikudaginn 4. febrúar 1948
Skemmdarverk kommúnisla
og leyniskjal M
UTAN ÚR HEIMI:
Anders Jalire í Sandefiord er mestur
útgerðarmaður á Norðurlöndum
Tankskip hans eru samtals 225.000 smálestir
í síðasta blaði var getið um
leyniplagg nokkurt, sem Bretar
komust yfir og utanríkisstjórn
Bretlands hefir birt fyrir
skömmu.
í „leyniskjali M“, en svo er
þetta plagg nefnt, eru ráðagerðir
kommúnista um að koma á al-
gerri stöðvun alls iðnaðar í Ruhr-
héruðunum í Þýzkalandi. Er
þetta einn þáttur af allsherjar
skemmdarverkum alþjóðafélags-
skapar kommúnista gegn Mars-
hall- aðstoðinni handa Evrópu.
Stefna kommúnista er að koma
öllum iðnaði og framleiðslu í Vest
ur-Evrópu í kalda kol með sundr
ungarstarfi og verkföllum. Allt
miðar þetta að því að valdhöfum
Rússlands veitist léttara að ná þar
yfirráðum, þegar þjóðirnar eru
orðnar nægilega aðþrengdar af
hungri og harðrétti. Þegar svo er
komið, er ætlast til að þjóðirnar í
Vestur-Evrópu verði fegnar að
skríða undir verndarvæng hins
„austræna lýðræðis".
Eitt dæmi um dásemd hins
„austræna lýðræðis“ kom nýlega
greinilega í ljós á þingi Búlgara.
Nokkrir þingmenn gerðu athuga-
semdir við fjáriagafrumvarp
stjórnai'innar og lýstu yfir því,
að þeir myndu greiða atkvæði
gegn því, nema að því yrði breytt
til batnaðar. Stóð þá upp Dimit-
rov, leiðtogi kommúnista og for-
sætisráðherra Búlgaríu af náð
rússnesku stjórnarinnar, og benti
þéssum þingmönnum á, að ef þeir
hyggðust að taka upp á því að
gagnrýna gerðir stjórnarinnar,
mættu þeir vera við því búnir,
að fara sömu leiðina og Petkov,
leiðtogi frjálslyndra manna í
Búlgaríu, sem var hengdur á síð-
astliðnu hausti fyrir það eitt, að
vera andvígur þrælslegri harð-
stjórn komúnista þar í landi.
Það er þessi tegund lýðræðis,
sem íslenzkir kommúnistar vilja
koma á hér á landi, en þó aðeins
með því skilyrði, að þeir hafi
völdin, en ekki andstæðingar
þeirra.
í fyrrgreindu leyniskjali kemur
greinilega fram hin glæpsam-
lega skemmdarfýsn kommúnista.
Hér fara á eftir nokkrar glefsur
úr innihaldi þess.
,,Það er óhjákvæmilegt skil-
yrði fyrir sigri verðalýðsins í þess
ari sókn, að allir félagar lúti járn-
aga, og allir starfsmenn færi þær
fórnir, sem af þeim er krafizt,
hversu miskunnarlausar sem
þær eru.
Enginn má efast um það, að til
þess að vinna lokasigurinn, verð-
ur að beita öllum þeim vopnum,
sem verkalýðurinn á yfir að ráða.
Land Sósíalismans, Sovétríkja-
sambandið, mun og styðja verka-
lýðinn í þessari baráttu gegn stór-
veldum einokunarauðvaldsins
með öllum þeim ráðum, sem í
þess valdi eru.“
Hér um má segja, að mikið
stendur nú til fyrir kommúnist-
um. En að hverju miðar þessi á-
róður um nauðsyn járnagans og
miskunnai'lausar fórnir félaga og
starfsmanna kommúnismans?
Það kemur síðar í ljós, að áróð-
urinn miðar að því að koma í veg
fyrir að hægt verði að vinna bug
á hungrinu og neyðinni, sem
heimsstyrjöldin hefir eftir sig lát-
ið. Þetta telja kommúnistar á-
kaflega mikilvægt fyrir hina
rússnesku húsbændur sína, enda
segja þeir, að ekki standi á stuðn-
ingi frá Sovétríkjasambandinu.
Enn segir í.leyniskjalinu:
„Upplýsingaskrifstofa komm-
únista í Belgrad mun samræma
hina sameiginlegu baráttu sósíal-
ista um alla Evrópu.... Höfuð-
markmiðið með þessari baráttu
verkalýðsins verður að hrinda
þeirri árás, sem einokunarauð-
valdið er að hefja með hinni svo-
kölluðu Marshalls-áætlun.“
Síðan eru svo lögð á ráðin um
það, hvernig haga skuli barátt-
unni fyrir „frelsi“ verkalýðsins.
Um það segir svo:
„Af taktískum ástæðum er
nauðsynlegt, að fulltrúar flokks-
ins séu ekki í fylkingarbrjósti í
þeim verkföllum, sem í aðsigi
eru. Hins vegar verður að tryggja
það ... að að verkföllin byrji
samtímis í samgöngum og fram-
léiðslu". Til frekári áréttingar er
svo enn tekið fram:
,;Flokkurinn verður að forðast
beina þátttöku undir öllum
kringumstæðum.“
Samkvæmt þessu eiga komm-
únistar ekki að berjast djarf-
lega fyrir „frelsi" verkalýðsins.
Þeiveiga að haldá sig í skuggan-
um en siga-öðrum í laumi fram á
vígvöll verkfalla og skemmdar-
verka. Einkum er lögð áherzla á
þetta tvennt: Vel skipulögð og
samræmd verkföll méðal 'flutn-
ingaverkamanna og málmiðnað-
armanna, þar sem hvert verkfall-
ið reki annað, og eyðilegging
samgöngukerfisins. Er þar sér-
staklega bent á þýðingu járn-
brautarlínanna fyrir greiðar sam-
göngur á vegum hernámsstjórn-
anna. Um þetta segir svo í leyni-
skjalinu:
„Það er ekki nauðsynlegt að
eyðileggja matvælabirgðir; það
þarf aðeins að hindra, að þær
komizt á ákvörðunarstað í tæka
tíð. Tímabærar og samræmdar
ráðstafanir til þess að seinka
matvælaflutningum og skipu-
leggja ólögleg verkföll til þess að
draga úr framleiðslunni eru höf-
uðatriði í allri baráttunni.“
Þarna hafa menn höfuðatriðin
í hernaðaráætlun leiðtoga komm-
únista. Matvælin mega ekki kom-
ast til neytendanna í tæka tíð,
hungrið verður að sverfa betur að
þeim. Auk þess eiga „ólögleg
verkföllin" að draga úr fram-
leiðslunni, til þess að tryggja enn
betur hungur og vesaldóm verka-
lýðsins.
Undarlega hlýtur leiðtogum
kommúnista að vera fariðj er þeir
halda að þessi boðskapur þeirra
gangi í heilbrigðan verkalýð.
Þeir gera líka ráð fyrir því í
leyniskjali sínu, að beita þurfi
gegndai'lausum áróðri, eigi þeim
að verð asigurs auðið. Þeir segja:
„Áróðursstarfið mun verða
rekið og samræmt af miðstjórn-
inni. í því ber að leggja höfuð-
áherzlu á eftirfarandi:
a) Marshalláætlunin miðar að
því að hneppa þjóðirnar í þræl-
dóm einokunarauðvaldsins í
Bandaríkj unum.
b) Verkföllin í öllum þeim
löndum, sem einokunarauðvaldið
hefir tangarhald á, eru merki
hinnar ört vaxandi hnignunar
auðvaldsþjóðfélagsins.
c) Atvinnulíf Austur-Evrópu
er í stöðugum og vaxandi upp-
gangi undir verndarvæng Sovét-
ríkjanna.
Menn taki eftir því, að komm-
únistar ætlast til þess, að verk-
föll í Vestur-Evrópu sanni hnign-
unina í auðvaldsþjóðfélögum.
Nú vita það allir, að verkföllin
eru yfirleitt afleiðing undirróð-
urs og áróðurs kommúnista. Það
er því þeirra verk að búa til þessi
hnignunarmerki. Kommúnistar
benda á, að auðvelt sé að afmá
verkföllin. Þetta hnignunarmerki,
ekki þurfi annað en að Vestur-
Evrópa smjúgi „undir verndar-
væng Sovétríkjanna“. Þar eru
nefnilega verkföll bönnuð að við-
lagðri fangelsisvist. eða lífláti.
Það er hætt við að verkalýð
Vestur-Evrópu langi ekki til að
búa undir þeim verndarvæng.
Af leyniskjalinu er það bert, að
kommúnistar ætla sér miklu
meiri rétt en öllum öðrum. Þeir
segja á einum stað í þessu daema-
lausa og blygðunarlaúsa plaggi:
„í blöðum verður að mótmæla
öllum brottflutningi á vélum og
verksmiðjum á Vestur-Þýzka-
landi, svo fremi að aðrir standi
að honum en kommúnistar."
Standi kommúnistar að honum,
þá er allt gott og blessað!
„Leyniskjal M“ er ekki lengur
leyniskjal. Það er þegar kunnugt
víða um heim. Kommúnistum
hefir mistekist hin lævísa hernað-
aráætlun. En birting kjalsins
flettir ofan af kommúnistum og
sýnir og sannar, hvers konar
manntegund komniúnistar allra
landa er.
Notuð
íslenzk frímerki
kaupi ég hæsta verði. —
Sendið eða komið með
íTímerkin til mín.
BALDUIN RYEL,
■ Akureyri.
Tvíbura-barnavagn
til sölu. — Upplýsingar í
síma 85.
r
Oskilahestur
Jarpur hestur, um 8 vetra,
mark: hangfjöður olar, l)iti
neðar a. h., er í óskilum að
Glerá í Glæsibæjarhreppi. --
Eigandi getur vitjað Iians
þangað. — Hestur þessi verð-
ur seldur að þrem vikum liðn-
um frá auglýsingu þessari.
Hreppsl jóri
Glæsibœjarhrepps.
Um áramótin síðastliðnu breytti
Anders Jahre útgerðarmaður í
Sandefjord í Noregi fyrirtæki
sínu í hlutafélag og tók nokkra
ættingja sína og samstarfsmenn í
félagið með sér. í tilefni af þess-
ari breytingu hafa norsk blöð
rætt nokkuð um útgerðarstarf-
semi hans á undanförnum árum,
og má af þessum umræðum sjá,
að þarna er enginn hversdags-
maður á ferð.
25 ára starf.
Jahre hóf útgerðarstarf sitt
fyrir 25 árum. Þá keypti hann
fyrsta flutningaskipið. Á 25 ára
starfsafmælinu gat hann litið yfir
risavaxna framför. Hann var orð-
inn mestur útgerðarmaður á
Norðurlöndum. Skipastóll hans
var talinn í hundruðum þúsunda
smálesta. Tankskipin eru samtals
225,000 lestir, þar með talin 2
hvalveiðimóðurskip, annað þeirra
Kosmos III stærst sinnar tegund-
ai' í heimi. Jahre á 30 hvalfang-
ara, samtals 10,500 lestir, og enn
er hann að auka við skipastólinn.
í smíðum eru fjögur skip fyrir
hann. í sambandi við hvalveiðar
þær, er skip hans stunda, rekur
hann viðgerðarstöð í Suður-Af-
í’íku og vinna þar um 200 manns.
Alls starfa á. hvalveiðiflota hans
eða í landi vegna hvalveiðanna
um 1500 manns. Jahre annast ol-
íuflutninga í stórum stíl með
tankskipum sínum, og í milli
•landa og heimsálfa.
Frásögn norsku blaðanna ber
þess, að Anders Jahre er einn af
hinum duglegu og .útsjónarsömu
útgerðarmönnum Noregs, sem
hafa átt drjúgan þátt í að efla
hinn mikla skipastól Norðmanna
á undanförnum árum og koma
fótunum undir siglingar þeirra,
sem nú eru aftur orðnar einn
hinn þýðingarmesti og fjárafla-
sælasti atvinnuvegur landsins.
Amcrískt-brezkt Gíbraltar
í Benghazi?
Yms blöð hafa birt fregnir um
það, að Bandaríkjastjórn hafi
leitað hófanna hjá Bretum um
það, hvort þeir vilji taka þátt í
því með Bandaríkjamönnum, að
auka öryggi Afríkulanda, með því
að byggja nýtt Gíbraltar — þ. e.
sterkt varnarvirki — í Benghazi.
Verði komið upp þar stórum
þurrkvíum fyrir flugvélamóður-
skip og önnur herskip, ásamt
stórum flugvöllum. Þessar ráð-
stafanir mundu þá- verða svar
Vesturveldanna við árás komm-
únista á Grikkland. Benghazi er
í Libyu, sem var áður ítölsk ný-
lenda, en eins og kunnugt er, er
ennþá ósamið um framtíð ítölsku
nýlendanna í milli stórveldanna.
í áframhaldi þessara fregna, er
nú vitað, að Bandaríkjamenn hafa
tekið í nothkun flugstöðvar í Li-
byu. Hefir rússneska stjórnin
sent opinber mótmæli við þeirri
ráðstöfun, en Bandaríkjamenn
svara því til, að stöðvar þessar
séu ekki hernaðarlegar, heldur
ætlaðar til þess, að auka örygg-
ið í samgönguleiðum Bandaríkja-
manna til Austurlanda. Það vek-
ur sérstaka athygli í sambandi við
þessar fregnir — þennan þátt
„kalda stríðsins", eins og nú er
fai'ið að kalla átökin í milli aust-
urs og vesturs — að þessar fregn-
ir komust á kreik um svipað
leyti og Bandaríkin sendu flota-
deild í heimsókn til Miðjarðar-
hafslanda og í sama mund og
uppreistarmenn í Grikklandi
hófu sókn sína til borgarinnar
Konitza, sem nú hefir mistekist, í
bráðina a. m. k.
Klofningur franska
Alþýðusambandsins.
Verkföllin, sem kommúnistar
efndu til í Frakklandi upp úr
nýjárinu, hafa haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir styrkleika og bar-
áttuhæfni flokksins. Afleiðing
þeirra varð m. a. sú, að franska
Alþýðusambandið klofnaði. —
Nokkur hluti sambandsins sagði
sig úr lögum við hina kommúnis-
tisku stjórn sambandsins og
ákvað að ganga í flokk óháðra
iðnfélagasambanda, sem þegar
töldu 250.000 menn. Er talið að
um 1 milljón verkamanna, sem
áður tilheyi'ðu hinu kommúnis-
tiska sambandi CGT, hafi gengið
inn í nýju samtökin. Unnið er að
því, að sameina hið nýja sarri-
band og kristilega verklýðssam-
bandið, sem einnig er í andstöðu
við kommúnista, og telur um'
900.000 menn. Ef þessir samning-
ar takast, er risið upp öflugt
verklýðssamband í landinu, sem
hefur losað sig við kommúnistísk
yfirráð. Þessi hefir orðið afleið-
ingin fyrir kommúnista af því at-
hæfi, að nota verklýðssamtökin
til pólitískra átaka og verkfalla.
Norðmcnn sclja Dönum rafmagn.
Umfangsmikilr samningar eiga
sér stað í milli Norðmanna og
Dana um rafmagnssölu og er
þeim langt komið. Aðalatriði
samninganna eru þau, að leiða
víxlstraum frá Noregi til Dan-
merkur, með loftlínu frá Noregi,
eftir vesturströnd Svíþjóðar til
Helsingjaborgar, í sækabal til
Helsingjaeyrar og síðan í loftlínu
um Sjáland. Vegalengdin er 550
km. o'g kostnaðurinn er áætlaður
60 millj. króna, og er þá miðað við
að allt Sjáland geti fengið raf-
magn með þessum hætti. Loftlín-
an á að geta flutt 220.000 Kw.-
stundir og sækaballinn 120.000
Kw. Ráðgert er, að flutt verði ár-
lega 6—7 millj. kw.stundir yfir
Eyrarsund. Þegar þessi áætlun er
framkvæmd, er ætlunin að halda
áfram á sömu braut, unz allri raf-
magnsþörf Danmerkur er full-
nægt, með rafmagni frá fossum
Noregs. Rafmagnið frá Noregi
mun kosta um 13 millj. kr. á ári,
en Danir spara sér 40 millj. kr.
reksturskostnað á rafmagnsver-
um sínum og 400 þús. kr. á ári í
kolakaupum.