Dagur - 04.02.1948, Síða 8

Dagur - 04.02.1948, Síða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 4. febrúar 1948 Reykjalimdur þriggja ára: Stórhýsi vinnuheimilisins verður tekið fil noíkunar é sumar r Islendingar fremstir Norðurlandaþjóðanna Að Reykjalundi í Mosfellssveit er unnið merkilegt menningarstarf á vegum Sambands íslenzkra berklasjúklinga. Þessi merkilega stofn- un, vinnuheimili S.Í.B.S., á þriggja ára starfsafmæli um þessi mán- aðamót. I tilefni af afmælinu hefir tíðindamaður blaðsins snúið sér til Þórðar Benediktssonar, framkvæmdastjóra sambandsins, og spurt hann frétta af rekstri Reykjalundar. Vistmenn að Reykjalundi við járnsmíði Mikii eftirspurn er eftir vörum þeim, sem framleiddar eru í vinnu- heimilinu og hafa þær þegar hlotið gott orð fyrir vandað,a vinnu og smekklegan frágang. Búnððarsamband Eyjafjarðar vill aukið effirlif með síldarmjöli til skepnufóðurs Frá aðalfundi Sambandsins s. 1. föstudag Vonir, sem urðu að veruleika. — Það eru á þessu ári liðin 10 ár síðan- sambandið var stofnað, sagði Þórður. Upphaflega gerðu stofnendurnir sér ekki mjög háar hugmyndir um það, hvað hægt væri að gera, en þegar séð var, að öll þjóðin fylgdi þessu nauð- synjamáli, var ákveðið að ráðizt yrði í að safna fé og reisa vinnu- heimili handa bei'klaveiku fólki óg skapa því þannig skilyrði til starfs og lífs. Skömmu eftir 1940 var ákveðið að reyna að ráðast í þetta glæsi- lega menningarfyrirtæki. Árang- urinn er alþjóð kunnur. Undir- tektir almennings voru með ein- dæmum góðar, og á miðju ári 1944 hófust byggingafram- kvæmdir að Reykjalundi. Sjö mánuðum seinna, 1. febrúar 1945, voru fimm íbúðarhús tilbúin handa vistmönnum, og einnig var þá búið að ganga frá nokkrum hermannaskálum, þar sem reka skyldi verkstæði. Stórhýsi í smíðum. Þegar heimilið hóf starfsemina, voru vistmennirnir 20. Skömmu seinna fjölgaði þeim upp í 40, og nú eru þeir 45. Búið er að reisa 11 íbúðarhús handa vistmönnum að Reykjalundi og 21 hermanna- skáli er notaður, meðan aðal- byggingu heimilsins, sem nú er í smíðum, hefir ekki verið lokið. í þeirri byggingu verður mið- stöð allrar starfseminnar að Reykjalundi. Er byggingin stór- hýsi, 10 þúsund rúmmetrar að stærð. Þar verða vinnustofur, birgðageymslur, borðsalur og eldhús, lækningastofur og sjúkrastofur, íbúð yfirhjúkrunar- koriu og fleira. Þegar þetta hús er komið í notkun, verður merki- legum áfanga og kærkomnum náð í sögu vinnuheimilisins. Þá verður hægt að flytja starfsemina úr bröggunum í gott húsnæði. Gert er ráð fyrir, að húsið verði tilbúið til notkunar um mitt næsta sumar. Efnt var til bílahappdrættis til að standast straum af kostnaðin- um við þessa stórbyggingu, að nokkru leyti. Hefir sala happ- drættismiðanna gengið vel hing- að til, og er búið að draga um 10 bíla af 20, sem dregið verður um. Framleiðsluvörur heimilisins eru eftirsóttar. Með starfsemi vinnuheimilisins er hagnýtt mikil vinnuorka fólks, sem annars færi forgörðum, þjóðfélaginu og því sjálfu til mik- ils tjóns. Er það einkum þrenns konar iðnaður, sem starfað er að í Reykjalundi — trésmíði, járn- smíði og saumar. Framleiðsla vistmanna er svo eftirsótt, að ekki er nálægt því hægt að fullnægja eftirspurninni. í trésmíðavei'k- stæðinu ei'u smíðaðar margar tegundir leikfanga og bólstraðar setur á stóla, sem járnsmíðavei'k- stæðið smíðar. Hefir það hafið smíði á stálhúsgögnum handa skólum og samkomuhúsum, og líka þau mjög vel. Hafa mai’gir látið í ljósi ánægju sína yfir gæð- um þessarar vöru. Þá er heimilið nýlega búið að fá stói’vii'ka vél, sem býr til fjaði'ir í legubekki og stóla, og getur hún fullnægt þöi'fum allra landsmanna í þessu efni. Starfsemi saumaverkstæðisins hefir aftur á móti verið miklum öi'ðugleikum háð, sökum efnis- skorts, en þar hafa ýmsar vörur verið unnar, svo sem kjólar, sængui'föt, dúkar og margt fleii-a. Gjaldeyrisyfh'völdin hafa stutt sambandið af í'óðum og dáð til að afla nauðsynlegra hráefna til stai'fseminnar, og hefir hagur vinnuheimilisins verið góður þau ár, sem það hefir stai'fað. Árið 1946 voru fi-amleiddar á Reykja- lundi vörur fyrir hálfa aði'a mill- jón ki'óna, en í-ekstur heimilisins kostaði þá um 100 þúsund krón- um minna. íslendingar fremstir Norður- landaþjóða á þessu sviði. í sumar verður haldið stofn- þing bei'klavai'nasambands Noi'ð- urlanda, en bei’klavai'nafélög hafa um langt skeið verið starf- andi í öllum hinum Norðurlönd- unum, nema Fæi'eyjum. Verður stofnþingið haldið hér á landi í heiðui'sskyni við stai'fsemi S. í: B. S., því að þetta starf þykir í meiri blóma hér en á nokkru hinna Norðurlandanna. Er ætl- unin, að hægt vei'ði að taka á móti þessum erlendu gestum í hinu nýja húsnæði að Reykja- lundi. Hægt að bæta við. Þegar hægt verður að taka nýja húsið í notkun, verður hægt að bæta við nokkrum vistmönnum, og verður þá fyrst hægt að líta á hinn langa biðlista berklaveiks fólks, sem vill komast að Reykja- lundi til að vinna þar við nytsam- leg fi-amleiðslustöi'f, undir ná- kvæmu eftirliti sérfræðinga. Stórhríðarmót skíðamaima hefst n. k, sunnudag Skíðamót íslands um- páskana Stjórn Skíðasambands íslands hefir falið Skíðaráði Akureyrar að sjá um framkvæmd Skíðamóts íslands 1948. Fer mótið fi'am um páskana og hamli ekki veður eða annað, er það áformað á þessa leið: Laugai'daginn 27. mai’z: Brun kai'la og kvenna í öllum flokkum. — Svig kvenna í öllum flokkum. — Svig karla, C-flokkur. — Sveitakeppni karla í svigi. Páskadagur 28. mai'z: Messa, skíðastökk, svig karla A- og B- 2. páskadagur 29. marz: Skíða- ganga. Þann dag er og fyrirhug- að að halda keppnir,' sem orðið hefur að fresta. Líklegt er að keppnii-nar fari flestar fram í Snæhólum. Næstkomandi sunnudag þ. 8. febr. er áformað að Stórhríðar- mót 1948 hefst með stökkkeppni við Miðhúsaklappir, ef færi vei'ð- ur, og sunnud. þ. 15. febr. verður því móti haldið áfram með svig- og brunkeppni kai'la og kvenna. Verður sú keppni sennilega í brekkunum við Fálkafell. Skíðamót Akureyrar 1948 verð ur haldið um fyrstu eða aði'a helgi í marz. St. Moritz: r Islendingar kepptu í fyrsta sinn á mánudag Samkvæmt frétt, sem blaðinu barst frá Reykjavík í gær, kepptu íslendingar í fyi'sta sinn í bruni í St. Moritz í gær. Varð Magnús Brynjólfsson nr. 64, Þói'ir Jóns- son 98 og Guðmundur Guð- mundsson nr. 100 Þói'ir Jónsson er Reykvíkingur, sem stundar nám í Frakklandi, góður skíða- maður. Hefur hann bætzt í hóp keppenda. Svíar unnu glæsilega í 18 km. göngu, áttu 4 fyrstu menn. Einnig unnu þeir 4x10 km boðgöngu. Norðmenn eiga flesta sigurvegara í skautahlaupi. Eftir mánudagskeppnina voru Svíar hæstir að stigatölu með 37 stig, Norðmenn höfðu 35V2 stig, Sviss- lendingar 22 stig ogFinnar20 stig. Aukið félagsstarf kvenna 1 fyrrakvöld hafði KEA fund fyrir félagskonur og aðrar konur, sem áhuga hafa á samvinnumál- um, í Gildaskála KEA. Á annað hundrað konur sóttu fundinn. — Fi’k. Anna Snorradóttir, sem ráðin hefir verið til þess að vinna að auknu félagsstai'fi kvenna á félagssvæðinu, flutti erindi um félagsstarf samvinnukvenna í Svíþjóð, Danmöi-ku og Bretlandi, og ræddi um möguleika til þess að koma á svipaðri starfsemi hér á landi. Vh'tist ríkja mikill áhugi meðal kvenþjóðai'innar fyrir þessum málum. Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjai'ðar var haldinn hér í bænum sl. föstudag. Fundinn sóttu 13 fulltrúar sambandsfélag- anna, auk stjórnar sambandsins og búnaðarþingsfulltrúa. Fjár- hagsáætlun sambandsins, er sam- þykkt var á fundinum nemur 43.200 krónum. Helztu tekjuliðir eru:, Styrkur frá Búnaðai-félagi íslands 22.500, frá Eyjafjai'ðai-sýslu 6000 og mælingai'gjöld 2700 kr. Helztu útgjaldaliðir eru: Laun í'áðunauts 14000 og til ræktunai'fram- kvæmda 24000. Er í'áðgert að veita þá upphæð til verkfæi'a- kaupa og ræktunarframkvæmda á jarðræktarsamþykktasvæðum sýslunnar. . Fóðurbætiskaup. Allmiklar umræður urðu á fundinum um síldai'mjölskaup bænda og var að lokum samþykkt tillaga, þar sem skorað er á Kaupfélag Eyfirðinga, annað hvort eitt fyrir sig, eða í sambandi við önnur kaupfélög, að hafa sér- stakan trúnaðarmanna við inn- kaup á síldarmjöli því, er keypt er til skepnufóðurs á félágssvæð- iriu. Þá var mælst til þess, að At- vinnudeild Háskólans taki til rannsóknar hvei'nig síldax-mjöl þai’f að vera framleitt svo að það geti talizt gott og lystugt skepnu- fóður og að hún beiti sér fyrir því, að tekið sé tijlit til þeiri-a rann- sókna við framleiðslu síldai'mjöls sem nota á til skepnufóðui's inn- anlands. Var kjörin þriggja manna nefnd til þess að vinna að málinu. Ólafur Jónsson fi'am- kvæmdastjóri var endurkjörinn formaður sambandsins. f tilefni af ei'inai frá Gísla Kristjánssyni ritstjóra um bú- fjái'sýningar í héi’aðinu á næstk. sumri, taldi fundurinn ekki hægt að takast slíkar sýningar á hend- ur vegna banns við flutningi búfjár í milli hreppa. Leiðbeiningar um notkun tilbúins áburðar Olafur Jónsson, framkvæmdastjóri, hefur samið leiðbein- ingar um notkun þess tilbúna áburðar, sem á boðstólum er nú, og hefir góðfúslega leyft Degi að birta bær. Notkunaráætl- un Olafs er miðuð við 1 ha. lands og tvenns konar áburðar- samsetningu (I. og II.), og það, að vel sé borið á, ella verður að hafa hliðsjón af ræktunarástandi á hverjum stað og hvern- ig borið hefir verið á að undanförnu. A HA. KARTÖFLUGARÐAR EINVÖRÐUNGU: I. 150 kg. Ammoníaksaltpétur, 250 kg. Þrífosfat, 300 kg. Bennisteinssúrt kalí. II. 750 kg. Kalkanunonsaltpétur, 250 kg. Þrífosfat, 300 kg. Brennisteinssúrt kalí. Á TÚN EINVÖRÐUNGU: I. 250 kg. Ammoníaksaltpétur, 150 kg .Þrífosfat, 150 kg. Klórkalí. II. 400 kg. Kalkainmonsalt- pétur, 150 Kg. Þrífosfat, 150 kg. Klórkalí. Á TÚN MEÐ 1/2 ÞVAGBREIÐSLU: I. 125 kg. Ammoníak- saltpétur, 150 kg. Þrífosfat. II. 400 kg. Kalkammonsaltpétur, 150 kg. Þrífosfat. Á TÚN MEÐ MYKJUBREIÐSLU: 1.150 kg. Anunoníaksalt- pétur. II. 250 kg. Kalkammonsaltpétur.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.