Dagur - 18.02.1948, Síða 1

Dagur - 18.02.1948, Síða 1
F orustugreinin: Löggjöf „nýsköpunarflokk- anna“ um aðstoð við húsa- byggingar í kaupstöðum — og efndir þeirra loforða. Fimmta síðan: Lífskjör verkamanna í Rúss- landi og á Vesturlöndum. — Athyglisveerður samanburð- ur. XXXI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 18. febrúar 1948 ! | 7. tbl. Véiarnar tii símastöðvarínnar hér senn tiibúner I Svíþjóð Vinnum líknarstarf! l>essi mynd er eftir þýzku listakonuna Kathe Kolhvitz og heitir „Börn þjást af hungri“. Hún var nýlega sýnd á listasýningu í New York, sem hafði bað markmið að vekja menn til umhugsunar um nauðsyn barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þessi hjálparstarfsemi er nú hafin hér á landi. Hefir þú gefið þinn skerf? Fjárfestingarlcyfi til framkvæmdanna enn þá ófengið. - Vélar til 2000 númera viðbótar við Reykjavíkurstöðina þegar komnar til landsins Blaðið hafði fregnir af því í sl. viku, að nú mundi loksins að því komið, að sænska verksmiðjan, sem á að afgreiða vélarnar til sjálívirku símastöðvarinnar hér á Akurcyri, hefði þær tilbúnar til afgreiðslu. Mun verksmiðjan geta afgreitt þær innan tveggja mánaða. Tíðindamaður blaðsins í R.vík sneri sér í gær til símamálastjór- ans og spurðist fyrir um það.hve- nær vélarnar væru væntanlegar til landsins. Upplýsti símamála- stjóri, að um það yrði ekki'feagt að svo stöddu, þar sem fjárfest- ingarleyfi til þessara -fram- kvæmda væri ennþá óafgredtt hjá Fjárhagsráði. Eftir þeim upþlýs- ingum að dæma, sem blaðifLgat aflað sér hjá Fjárhagsraði, er ekki farið að taka þetta maj fyrir ennþá. Bíða þar úrlauhnar um- sóknir símamálastjórnarimjar um ýmsar framkvæmdir Landsímans þar á meðal að koma upp 'sjálf- virku stöðinni hér. 2000 númera viðbót í Rvíkj Ekki er kunnugt um afstöðu 4i, , ; - ráðsins til málsins að svo stoddu, en undarlegt má það þó kallast, sem í ljós kemur við þessar eftir- grennslanir, að vélar til 2000 númera viðbótar við Reykjavík- urstöðina eru þegar komnar til landsins. Þetta er önnur stóra viðbótin, sem gerð er við Reykja- víkursímann á skömmum tíma. Virðist ekki hafa staðið á fjár- festingarleyíum eða öðrum opin- berum leyfum til þessarar stækk- unar. Hins vegar eru Akureyr- ingar búnir að bíða eftir sjálf- virkri stöð hér í mörg ál', hið nýja hús símans hér hefir lengi verið tilbúið að taka á móti stöðinni og verulegar endurbæt- ur hafa verið gerðar á símakerf- inu innanbæjar með hliðsjón af hinni væntanlegu stöð. Eftir alla þessa bið, þreytandi sambúð við gamalt og úr sér gengið símakerfi og miklar álögur á símanotendur, verður því ekki unað, að þessar framkvæmdir stöðvist á tregðu opinberra aðila til þess að veita nauðsynleg leyfi. Allra sízt væri slíkt réttlætanlegt þegar aðgætt er hversu greiðlega hefir gengið að stækka Reykjavíkurstöðina á undanförnum árum. svars Irá Siglt á eyfirzkt skip í Hvalfirði Síðastl. mánudag vildi það óhapp til í Hvalfirði að m/s. „Siglunes“ frá Siglufirði sigldi á m/s. „Andey“ héðan úr bænum með þeim afleiðingum, að Andey skemmdist talsvert og verður að hætta síldveiðum um sinn, meðan viðgerð fer fram. „Siglunes“ mun ekki hafa laskast. Ekki er blaðinu kunnugt um nánari atvik þessa atburðar. Þorst. M. Jónsson endurkjörinn for- seti bæjarstjórnar Á síðasta bæjarstjórnarfundi hér fór fram kosning forseta og nefnda. Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri var endurkjörinn for- seti bæjarstjórnarinnar og Indriði Helgason varaforseti. Nefndir voru endurkosnar, yfirleitt án breytinga, að undanskildu því, að Steindór Steindórsson tekur nú sæti í bæjarráði af hálfu Alþýðu- flokksins í stað Friðjóns Skarp- héðinssonar bæjaifógeta. Aðalfundur miðstjórnar F ramsóknarf lokksins Aðalfundui' miðstjórnar Fram- sóknarflokksins var settur í Rvík sl. mánudag. Fundinn sækja full- trúar úr. flestum byggðum lands- ins. Formaður flokksins, Her- mann Jónasson, ritarinn, Ey- steinn Jónsson, og gjaldkerinn, Sigurjón Guðmundsson, hafa all- ir flutt skýrslur. Ályktana fund- arins verður síðar getið. Krafðist endurreisiiar imiflutniiigsverzlimar í fjórðungunuin, beinna siglinga frá íitlöndum og réttlátari skipunar gjaldeyrismálanna Ráðstcfna kaupstaða og verzlunarstaða, á svæðinu frá Austfjörðum til ísafjarðar, sem kom saman í Rcykiavík í sl. viku, hefir komið sér sanian um álitsgerð um innflutnings-, gjaldeyris- og siglingamál, sem lögð hefir vcrið fyrir Fjárhagsráð, Viðskiptanefnd og Eimskipa- félag íslands. Þegar blaðið átti tal við Reykiavík í gær, var ekki bú- izt við því að ráðstefnunni mundi liúka fyrr en eftir miðja vikuna, þar sem svör frá þessum aðilum við málaleitunum ráðstefnunnar voru ókomin. Alls sækja ráðstefnu þessa 23 fulitrúar frá 13 verzlunarstöðum á fyrrgreindu svæði. Ráðstefnan hefir haldið fundi sína á Hótel Borg. Á fyrsta fundinum var Jakob Frímannsson "kaupfélags- stjóri kjörinn fundarstjóri, en Svavar Guðmundsson bankastjóri ritari. Nefnd var kjörin til þess að samræma álit fulltrúanna. í henni eiga sæti: Jakob Frímanns- son, Akureyri, Pétur Björnsson, Siglufirði, Erlendur Björnsson, Seyðisfirði og Steingrímur Da- víðsson, Blönduósi. Þessi nefnd hefir átt ýtarlegar viðræður við hin opinberu ráð og við forstjóra Eimskipaféálags íslands. Yfirleitt hefir ríkt samhugur á ráðstefn- unni og mikill áhugi fyrir því að koma fram réttlætismálum dreif- býlisins. Hver verður árangurinn? Engu er hægt að spá um það að svo stöddu, hver muni verða árangurinn af þessum fundi. Yf- irleitt mun það skoðun manna, að ekki verði létt verk að sækja það vald í hendur opinberra ráða, er þau hafa tekið af landsbyggðinni. En hvort sem sýnilegur árangur af störfum ráðstefnunnar verður mikill eða lítill, er augljóst, að hún markar tímamót í viðhorfi landsbyggðarinnar til höfuðstað- arvaldsins, færir stjórnarvöldum heim sanninn um það, að hreyf- ing sú, sem nú er uppi um meira sjálfsforræði byggðanna, er ekk- ert stundarfyrirbrigði, heldur mun baráttu fyrir meira réttlæti verða haldið áfram, unz fullur sigur er fenginn. Fjölraenni við átför Tryggva Kristinssonar Nýlega andaðist í Siglufirði kunnur Eyfirðingur, Tryggvi Kristinsson, kennari og söng- stjóri frá Yztabæ í Hrísey. Var hann um langt skeið kennari í Svarfaðardal og Siglufirði og kunnur söngstjóri og organleik- ari á báðum stöðunum. — Útför hans fór frarn að Völlum í Svarf- aðardal sl. laugardag, að við- stöddu fjölmenni og önnuðust Svarfdælingar jarðarförina. — Ti-yggvi þótti í hvívetna hinn mætasti maður. Fær friðarverðlaun ? Söfmm ti! Siinnar alþjóðlegu baraa' lijálpar er Iiafin ura land allt FYRIR NOKKRN er hafin hér á landi skipulögð fjár- og fatn- aðarsöfnun á vegum hinnar al- þjóðlegu barnahjálpar. Starfsemi þessi er rekin fyrir forgöngu Sam eihuðu þjóðanna og hefur það markmið að forða milljónum bárna í Evrópu og annars staðar frá hungri og hörmungum. Hér- á landi beita ýms lands- sambönd sér fyrir söfnuninni og eí'u umboðsmenn í hverri byggð á íandinu. Gjafir eru þegar tekn- ar að berast. Hér á Akureyri er Jakob Frí- mánnssön, kaupfélagsstjóri, um- boðsmaður söfnunarinnar. Er gjöfum veitt móttaka í Kaup félagi Eyfirðinga. Peningagjöf- um er einnig veitt mottaka á af- ,JÍ‘ . , ■'•ff "^1"- . t -V •J> greiðslu Dags og væntanlega hjá öðurm blöðum bæjarins, svo og stofnunum, er síðar kunna að verða auglýstar. Fjársöfnun þessi stendur yfir um heim allan í þessum mán- uði. Er ætlast til þess að aðal- söfunardagurinn verði hinn 29. febrúar n. k. og hefur alþjóða- nefnd sú, er skipuleggur þetta starf, farið fram á, að allir vinn- andi menn og konur gefi daglaun sín, til þessa mannúðai'málefnis þann dag Ýtarlegri grein um barnahjálp- ina og nauðsyn þessa starfs, birt- ist í dssemberhefti Samvinnunn- ar. Geta menn þar kynnt sér mál- efnið betur en hægt er af stuttri blaðagrein. Háskólinn í Budapest hefir ný- lega lagt það til, að Molotoff, ut- anríkisráðherra Sovét-Rússlands, verði veitt friðarverðlaun Nóbels fyi'ir yfirstandandi ár, fyrir frammistöðu sína á alþjóðaráð- stefnum að undanförnu!

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.