Dagur - 03.03.1948, Side 1
Forustugreinin:
Kommúnistar þjóna herr-
um sínum. Atburðirnir í
Tékkóslóvakíu.
AGUR
Fimmta síðan:
„Hamarinn", hið nýja, ís-
lenzka leikrit og frumsýn-
ing Leikfélags Akureyrar
sl. laugardagskvöld.
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 3. marz 1948
9. tbl.
Lítil þorskveiði
í Húsavík
Frá fréttaritara blaðsins:
Stormasamt hefir verið hér að
undanfö.rnu og gæftir stj-jálar.
Afli hefir verið rýr, þegar bótar
hafa róið. Telja sjómenn aflaleys-
ið stafa af því, að mikil loðna sé á
miðunum og fiskurinn taki því
iila frosnu síldina. Tveir dekk-
bátar og nokkrar trillur stunda
róðra. Sunnan hlýviðri eru hér á
degi hverjum og hefir snjó tekið
að mestu af lóglendi. Bifreiðafæri
er ágætt um allt héraðið.
Á sunnudaginn voru haldnar
þrjár samkomur hér til ágóða
fyrir barnahjálpina. Voru þær
ágætlega sóttar og komu inn um
4000 kr., eða um kr. 3.50 á hvert
mannsbarn í bænum. Til viðbótar
þessai'i söfnun hafa gengið listar
um bæinn og hefir safnast á þá
svo skiptir þúsundum. ■
Látinn er hér í bænum Maríus
Benediktsson, bóndi og sjómaður,
83 ára gamall, kunnur borgari,
vel metinn. Ennfremur er nýlega
látin hér Kristín Jónsdóttir á
Túnsbergi hér í bæ, 79 ára, ekkja
Steingríms Hallgrímssonar, sem
lengi var afgreiðslumaður í
Kaupfélagi Þingeyinga.
Maður slasast
í Kelduhverfi
Stormur hamlaði
sjúkraflugi
Um helgina varð slys í Keldu-
hverfi. Unnið var að viðgerð
símalínunnar í milli Kópaskers
og Húsavíkur. Einn þeirra
manna, er að þessu störfuðu, var
Indriði Hannesson bóndi og gest-
gjafi í Lindarbrekku. Er verið
var að strengja einn símastreng-
inn í milli staura, brast hann og
féll Indriði úr staurnum til jarð-
ar. Hlaut hann alvarleg, innvort-
is meiðsli. í gærreynduflugmenn
Flugfél. íslands að komast aust-
ur í Kelduhverfi á Grumman-
flugbát til þess að flytja hinn
slasaða mann á sjúkrahúsið, en
afspyrnurok varnaði því að bát-
urinn gæti setzt á Lónið, eins og
fyrirhugað var. Komust flug-
mennirnir alla leið austur, en
urðu frá að hverfa. Indriði var
þungt haldinn er síðast fréttist.
Tvö prestaköll
á Akureyri
Fram er komið á Alþingi frv.
um að skipta Akureyrarpresta-
kalli í tvö prestaköll. Frv. er flutt
af Sigurði Hlíðar og fylgja því
meðmæli aðalsafnaðarfundar hér.
Líklegt má telja að frv. þetta
verði samþykkt.
Líklegt að ráðist verði í virkjun neðra lallsins í Laxá
Nýja fjórðungssjiikrahúsið á Akureyri
....... ---------------- —
Þcssi mynd af nýja fjórðungssjúkrahúsinu hér var tekin á síðastl.
hausti, er þak hafði verið reist á húsinu. Gluggar eru margir á hús-
inu. Eru þeir keyptir í Svíþjóð og í siðasta tbl. var upplýst, að flutn-
ingskostnaður á hvern glugga hefði orðið kr. 61,50, bar af 16 kr. um-
hleðslukostnaður í Reykjavík. — Af öllu bessu varð að greiða toll'.
Framsóknarmenn hafa í hyggju a§
koma upp flokksskrifstofu hér
Frá aðalfuiidi Framsóknarfélags Akureyrar
síðastliðinn föstudag
Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar var haldinn í Gildaskála
KEA sl. föstudagskvöld. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, var það
helzta verkefni fundarins að ræða möguleika á bví að koma upp
skrifstoíu hér í bænum fyrir flokksstarfsemina og ráða sérstakan
erindrelta flokksins. Voru ménn sanunála um nauðsyn þess og ríkti
mikill áhugi fyrir því, að þessu
máli yrði sem fyrst komið í fram-
kvæmd. Samþykkt var éinróma,
að fela stjórn félagsins og full-
trúaráði að undirbúa málið og
hrinda því í framkvæmd eins
fljótt og kostur cr.
KOSNINGAR.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in að mestu leyti. Marteinn Sig-
urðsson er formaður, Kristófer
Vilhjálmsson gjaldkeri og Eirík-
ur Sigurðsson ritari. Meðstjórn-
endur Halldór Ásgeirsson og
Björn Þórðarson. Þorsteinn Stef-
ánsson, bæjargjaldkeri, sem sæti
átti í stjórninni á sl. ári, baðst
undan endurkosningu og var
Halldór Ásgeirsson kjörinn í hans
stað. í fulltrúaráð félagsins fyrir
næsta ár voru Imsnir þessir menn
auk stjórnar félagsins: Brynjólf-
ur Sveinsson, Jakob Frímanns-
son, Haukur Snorrason, Þor-
steinn M. Jónsson, Guðmundur
Guðlaugsson, Gunnar Jónsson,
Ingimar Eydal, dr. Kristinn Guð-
mundsson, Þorsteinn Stefánsson,
Olafur Magnússon, Björn Sig-
mundsson og Jóhann Frímann.
NYIR FÉLAGAR.
Á fundinum bættust 15 nýjir
meðlimir í félagið. Rætt var um
að auka félagsstarfsemina á
næstunni m. a. með fleiri
skemmtifundum. Hagur félags-
ins er góður.
Barnahjálpin:
Samskotin hér
komin yf ir 100 þ ús.
Að kvöldi þess 1. þ. m. var fjár-
söfnunin hér í bænum og í næsta
nágrenni hans til barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna orðin rösk-
lega 100.000 krónur í peningum
og þar að auki allmikið af fatnaði.
Stærstu upphæðinni söfnuðu
skátafélögin s. 1. sunnudag eða
um kr. 33.000,00 Til afgreiðslu
Dags höfðu borist um 22.000 kr.
þar af ágóði af skemmtun Kven-
félags Alþýðuflokksins og hljóm-
sveitar Jóns Sigurðssonar kr.
8387,80 og í gær bárust blaðinu
þar að auki ýmsar upphæðir, sem
ekki eru meðtaldar í þessu yfir-
liti. Þá söfnuðu börnin í Barna-
skóla Akureyrar um 13.000 kr. í
peningum og rniklu af fatnaði,
gagnfræðaskólanemendur 6160
kr., hjá íslendingi söfnuðust 2700
kr. og afgangurinn á lista í skrif-
stofum Kaupfélags Eyfirðinga.
Gjafir eru enn að berast, og þar
að auki var ekki vitað í gær um
söfnunina á öllum listum þeim,
sem í umferð eru. Má því telja
víst, að söfnunin nemi allmiklu
meiru en hér er talið. Er því auð-
séð að undirtektir fólks hér um
slóðir hafa orðið með ágætum og
til mikils sóma. Annars staðar í
blaðinu er greint frá einstökum
upphæðum, sem Degi hafa borizt.
Söfnunin heldur áfram.
Samningar hafa enn ekki tekizt með
Akureyrarbæ og ríkinu irni sameigin-
legar framkvæmdir
Viðbótarvirkjun við cfra fallið nú talin óhentug
Eins og frá var greint hér í blaðinu fyrir skemmstu, samþykkti
bæjarstjórnin ályktun um rafmagnsmálin á bá lund, að hún tcldi
heppilegast að Akureyrarbær fengi að fullvirkja efra fall Laxár
fyrir eigin reikning og framkvæmdum yrði liraðað sem mest.
Jafnframt var ákveðið að senda
ráfveitunefnd kaupstaðarins á
fund raforkumálastjóra til við-
ræðna og samningagerðar við
ríkið um þessi mál. Þessum við-
ræðum er nú lokið í bráðina og
eru flestir nefndarmanna komnir
heim. Eftir því, sem blaðið hefir
frétt, náðist ekki samkomulag við
raforkumálastjóra um fram-
kvæmdir þessar, og bíður málið
nú frekari afgreiðslu bæjar-
stjórnarinnar.
Tilboð raforkumálastjóra.
Raforkumálastjóri ríkisins mun
vera því mótfallinn, að efra fallið
svokallaða sé fullvirkjað, og' telur
hann heppilegra að ráðist verði í
stórvirkjun — allt að 14000 hest-
öfl — við neðra fallið. Ástæðan
til þessa er sögð sú, að viðbótar-
virkjun verði tiltölulega dýfari
en nýja virkjunin og vatnsskorts
í ánni að vetrinum, sem stund-
um veldur truflunum á straumn-
um, mundi síður gæta með því
að virkja ána á ný á öðrum stað.
Raforkumálastjóri mun leggja til,
að Akureyrarbær og rikið geri
með sér samning um sameigin-
legar framkvæmdir og sé virkj-
unin öll sameign ríkisins og bæj-
arins. Akureyrarbær leggi fyrri
virkjun sína til fyrirtækisins með
kostnaðarverði og hlutur ríkisins
í fyrirtækinu á hverjum tíma sé í
hlutfalli við rafmagnsnotkun ut-
an Akureyrarbæjar. Til dæmis,
að ef 1/5 raforkunnar er notaður
utan bæjarins sé hlutdeild ríkis-
ins í fyrirtækinu talinn 1/5 og
síðan vaxandi eftir því sem raf-
magnsnotkunin utan bæjarins
fer í vöxt. Nú munu forráðamenn
raforkumála ríkisins hugsa sér að
leiða straum frá hinni nýju stór-
virkjun til héraðanna austan og
vestan við Akureyri. Er því aug-
ljóst að hlutdeild fíkisins í fyrir-
tækinu mundi fara mjög vaxandi.
Mundi reka að því, að ríkið eign-
aðist helming þess eða meira, og
þá þar með hina gömlu virkjun
bæjarins, sem er mjög ódýr mið-
að við virkjunarkostnað nú.
Nefndin héðan mun hafa verið
ófús að ganga að þessurn kjörum,
með því að með slíkum samning-
um mundi bærinn leggja ríkisraf-
veitunum til, með tíð og tíma,
hinar eldri virkjanir sínar við
ákaflega vægu verði. Varð því
ekki af samningum og bíða málin
fi-ekari ákvarðana bæjarstjórnar-
innar. Þess er vert að geta, að
þetta samningsuppkast raforku-
málastjóra mun í aðalatriðum
sniðið eftir samningum Reykja-
víkurbæjar og ríkisins um hina
nýju Sogsvirkjun, sem nú er haf-
in.
Akureyri hefir heimild til
virkjunar.
Fari svo, að ekki náist þeir
samningar við ríkið, sem bærinn
telur sig geta unað við, er sú leið
eftir ,að bærinn virki fyrir eigin
reikning. Til þess hefir hann
heimild og ennfremur er í lögum
frá í fyrra heimild til ríkisstjórn-
arinnar til þess að veita bænum
ríkisábyrgð fyrir láni til virkjun-
ar. Ef að þessu ráði yrði horfið,
er eftir að vita hvort ríkisstjórn-
in notar þessa ábyrgðarheimild
og hvort fjárfestingarleyfi og
gjaldeyrisleyfi verða fáanleg, svo
og lánsfé. Talið er að vélar til
nýrrar virkjunar séu ekki fáan-
legar með sæmilegum afgreiðslu-
fresti annars staðar en í Banda-
ríkjunum, en þá er eftir að út-
vega dollara til kaupanna, en al-
gjör dollaraþurrð hér mun fyrir-
sjáanleg á næstunni.
Af þessu er ljóst, að alllangt er
í land að nývirkjunarmál bæjar-
ins komizt á rekspöl. Hins vegar
mun það álit bæjarfulltrúanna,
að hraða verði afgreiðslu málsins
hér og vinna ötullega að því, að
grundvöllur fyrir framkvæmdir á
næstunni verði lagður.
LEIKFÉLAGIÐ:
Sýning á
„Hainriniim44
í kvöld
Leikfélagið sýndi hið nýja leik-
leikrit séra Jakobs Jónssonar fyr-
ir fullu húsi áhorfenda um sl.
helgi, og er frumsýning rædd
annars staðar í blaðinu í dag. —
Næsta sýning leiksins er í kvöld
og sýningar verða á laugardags-
og sunnudagskvöld. — Það er
ástæða til þess að vekja athygli
bæjarbúa og héraðsbúa á því, að
sýningum leiksins verður hraðað.
Hefir leikfélagið ekki umráð yfir
húsinu nema til 20. marz. Ættu
menn því að tryggja sér aðgöngu-
miða í tíma.