Dagur - 17.03.1948, Blaðsíða 1

Dagur - 17.03.1948, Blaðsíða 1
Fimmta síðan: Norrænir rithöfundar ræða árangur byltingarinnar í Rússlandi. — Athyglisverð ræða Overlands. F orustugreinin: Ályktun kaupstaðaráðstefn- unnar og afstaða Alþingis. XXXI. árg. Akureyri, miðviV.udaginn 17. marz 1948. 11. tbl. Skemmiilundiir F ramsóknarmanna á föstudagskvöldið Framsóknarfélag Akureyrar hefir skemmtifund í Hótel KEA n.k. föstudagskvöld. Spiluð verð- ur Framsóknar-whist, sýnd kvik- mynd o. fl. til skemmtunar. Er þess vænzt að Framsóknarmenn í bænum fjölmenni á skemmtun- ina. Nánari tilhögun auglýst á götunum. Mikil þátttaka í „skíðavikunni44 Þegar hafa á annað hundrað manns pantað far og fyrirgreiðslu hjá Ferðaskrifstofu ríkisins í Reykjavík, á skíðavikuna hér um páskana. Er því augljóst að þátt- taka verður mjög mikil. Þeir bæjarmenn, sem vilja leigja aðkomumönnum herbergi um páskana, eru beðnir að hafa samband við útibú Ferðaskrif- stofunnar hér í Búnaðarbanka- húsinu. Skrifstofan er opin dag- lega frá kl. 8.30—9 e. h. Jlamariiin4 sýndur aítur í næstu viku Leikfélag Akureyrar ráðgerir næstu sýningar á sjónleiknum Hamarinn fyrri hluta næstu viku. Þessa viku og um næstu helgi falla sýningar niður, vegna þess að leikhúsið er upptekið. Af því að svo margir hafa orðið frá að hverfa, án þess að ná í miða að síðustu sýningum, hefir stj órn Leikfélags Akureyrar ákveðið að gefa mönnum kost á að tryggja sér nú þegar miða að næstu sýningum, og geta þeir, sem þess óska, snúið sér til Björns Sigmundssonar og Júlíus- ar Oddssonar, sem taka á móti slíkum pöntunum. í stuttu máli Flakið af Anson-flugvélinni, sem týndist um fyrri helgi, fannst sl. fimmtudag í hlíðum Skálafells á Hellisheiði. Hafði vélin rekist á hlíðina og farizt samstundis. Álit- ið er að allir, sem í flugvélinni voru, hafi þegar látizt. Á laugardagskvöldið strandaði brezki togarinn „Epine“ undan Dritvíkurflúðum á Snæfellsnesi, einhverjum hættulegasta stað við ströndina hér. Veður var slæmt og aðstaða til björgunar mjög erfið. — Björgunarsveitum frá Sandi og Olafsvík tókst að bjarga 5 mönnum úr skipinu, en 14 menn drukknuðu. Verzlunarmál landsmanna lil meðferðar á Álþingi Reynslan á vetrarvertíðinni í Hval- firði mælir með nýju týrir- komulagi veiðanna Niðurburðurinn á miðunum felur í sér mikla hættu, segir reyndur skipstjóri M.s. Snæfell er nýlega komið hingað norður frá síldveiðunum í Hvalfirði. Fyrst framan af vertíðinni var skipið í síldarflutningum til Siglufjarðar og Patreksfjarðar, en fór siðan sjálft á veiðar og veiddi um 6200 mál á röskum mánúði. Dagur kom að máli við Egil Jóhannsson skipstjóra nú fyrir skemmstu og spiallaði við hann um stund um síldveiðarnar syðra og reynslu þá, sem fengist hefir af vetrarveiðunum liér á landi. „Það er mesti misskilningur, sem sums staðar hefir heyrzt,“ sagði Egill, „að vertíðarlokin í Hvalfirði hafi verið samkvæmt valdboði ríkisverksmið j anna. Það var yfirleitt álit sjömanna, að veið- arnar væru um garð gengnar og menn ákveðnir að hætta. Enda vitað, að ríkisverksmiðjurnar hefðu ekki tekið á móti förmum, ef borizt hefðu, eftir hinn aug- lýsta hættutíma.“ Hcldur þú að draga megi þá ályktun af veiðunum í vetur, að sagan endurtaki sig? „Mér þykir lang sennilegast, að (Fi'amhald á 3. síðu). Fjársöfnunin til bernahjálparinnar á Ákureyri o§ í nærsveifunum nemur 217,000 krónum Þar að auki mikiS af fatnaði Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk í gær hjá úmboðs- manni Barnahjálparinnar hér í bænum, hafa alls safnast hér og í nærsveitum Ak. kr. 217.960.02, og þar að auki mjög mikið af alls konar fatnaði. Hefir árangur söfnunarinnar «E því orðið mjög glæsilegur. Helztu upphæðirnar, sem bárust voru þessar: Safnað af kvenskátum á Akur- eyri kr. 34.170.00. — Safnað í Gagnfræðaskóla Akureyrar kr. 6.160.32. — Safnað af „Iðju“, fé- lagi verksmiðjufólks á Akureyri, kr. 10.780.00. — Safnað hjá Flug- félagi ísl. kr. 660.00. — Nokkrir menntaskólakennarar kr. 650.00. unn“, Hrafnagilshr., kr. 4.420.00. ■t— Safnað a£; Kvenfél. . A Idan?, Öngulsstaðahi'., kr. 5.100.00. •— Safnað af Búnaðarfélagi Saur- bæjarbrepps kr..5u475J10. Safn- að af Kvenfél. „Hvöt“, Árskógs- strönd, kr. 6.350.00. — Safnað af Verkamannafél. Akureyrarkaup- staðar kr. 8.285.00. — Safnað af Verzl. Björns Grímssonai' kr. 80.00. — Safnað af Vikublaðinu íslendingi kr. 9.117.00. — Safnað af Vikublaðinu Degi kr. 45.365.80. — Safnað af Kaupfélagi Eyfirð- inga, Akureyri. (Þar af frá starfsfólki KEA kr. 10.206.00 og frá KEA kr. 10.000.00. Barna- skólabörn í Öxnadal kr. 1000.00. Rauði kross Akureyrar, ágóði af skemmtun á Hótel Norðurlandi 7. marz, kr. 3.000.00. Blómabúð KEA, ágóði af Blómasölu, kr. 1000.00. Kennarar barnaskólans kr. 1750.00. Rauðakrossdeild Ak- mreyrai' kr. 1500.00. Söfnun bamaskólabarna kr. 14.312.00). 51.347.50. Samtals kr. 217.960.02. Söfnunin á öllu landinu nemur nú rösklega 2 mill j. kr. í pening- um. auk fatnaðar. ■.* Átta þingmenn flytja ályktun kaupstaðaráð- stefnunnar í tillöguformi í Sameinuðu Alþingi Landsmenn fylgjast af áhuga með afdrifum málsins Enis og áður er greint frá hér í blaðinu, fól kaupstaðaráðstefn- an átta manna þingmannanefnd að vinna að framgangi ályktana ráðstefnunnar um innflutnings- og gjaldeyrismól og veita viðtöku svörum frá hinum opinberu nefnduni, sem leitað var til. Þar sem engin fullnægjandi svör bár- ust frá nefndum þessum — Fjár- liagsráði og Viðskiptanefnd — liafa þessir þingmenn nú flutt þingsályktunartillögu í Samein- uðu Alþingi, þar sem ríkisstjórn- inni er falið að framkvæma lög- in um Fjárhagsráð í samræmi við ályktun kaupstaðaráðstefnunnar. Tillaga þessi mun ennþá ekki hafa verið tekin á dagskrá, en þingmennirnir munu staðráðnir í því að fá hana afgreidda fyrir páska. Landsmenn fylgjast af miklum áhuga með afdrifum máls ins. Mun vart um annað mál meira rætt í mörgum byggðum en þetta stórmál dreifbýlisins og hinar væntanlegu viðtökur þess á þingi. Þingályktunartillagan Þingmannanefndina skipa fjór- ir Framsóknarmenn, einn Al- þýðuflokksmaður, tveir Sjálf- stæðismenn og einn sósíalisti, þeir Skúli Guðmundsson, Halldór Ás- grímsson, Steingrímur Steinþórs- son, Björn Kristjánsson, Jón Pálmason, JónSigurðsson,Hanni- bal Valdimarsson og Lúðvík Jós- efsson. Tillaga þeirra er á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela í'íkis- stjórninni að koma nú þegar á þeirri skipan varðandi úthlutun innflutnings -og gjaldeyrisleyfa, skv. II. kafla laga nr. 70 frá 1947, að eftirfarandi meginreglum verði fylgt um skiptingu vöruinnflutn- ings til landsins: 1. Heildarinnflutningi til lands- ins af skömmtunarvörum og öðr- um venjulegum verzlunarvörum, öðrum en þeim, sem taldar eru í 2.—4. lið, verði skipt niður á lands fjórðunga eftir nánar tilteknum mörkum í hlutfalli við íbúatölu og þarfir hvers fjórðungssvæðis. Leyfunum sé úthlutað til verzl- ana og fyrirtækja búsettra innan hvers fjórðungssvæðis. 2. Heildarinnflutningi til lands- ins á byggingarvörum verði skipt niður á sömu fjórðungssvæði í .fullu samraemi við f járfestmgar-. leyfi Fjárhagsráðs og sveitar- stjórna á hverju svæði. 3. Heildarinnflutningi til lands- ins á útgerðarvörum skal út- hlutað til fjórðungssvæSanna í hlutfalli við skipakost og útgerð- arrekstur hvers svæðis. 4. Heildarinnflutningi á efni- vörum til iðnaðar skal skipt nið- ur á fjórðungssvæðin og úthlut- að til verksmiðja og iðnfyrir- tækja í hlutfalli við verksmiðju- og iðnrekstur á fjórðungssvæð- unum með tilliti til afkastagetu og möguleika þeirra til hag- kvæmrar og ódýrrar framleiðslu. Iðnfyrirtæki skuli skipta fram- leiðslu sinni milli landshluta eftir fyrirmælum Viðskiptanefndar, hlutfallslega eftir þörf hvers svæðis. Viðskiptanefndinni verði falið að birta opinberlega innan eins mánaðar frá lokum hvers árshelminga yfiiTit um leyfisveit- ingar í hverjum landsfjóruðngi á næstliðnum sex mánuðum, sund urliðað eftir aðalvöruflokkum." Greinargerðin. í greinargerð sinni rekja flutn ingsmenn aðdraganda málsins og störf kaupstaðaráðstefnunnar. Þeir staðfesta og þar að engin full nægjandi svör hafi borist frá hin- um opinberu nefndum. Viðskipta- nefndin hafði að vísu ritað þing- mannanefndinni bréf, dags. 11. marz og birt þar ályktun, sem nefndin gerði í sambandi vlð til- mæli ráðstefnunnai'. En þar sem ályktun þessi er talin algjörlega ófullnægjandi, var ákveðið að leggja málið fyrir Alþingi. Hefur það nú verið gjört, en ókunnugt ennþá um undirtektir þingmanna almennt. Mun fregna af því beð- ið með eftirvætningu um land allt. Barnaskólaskemmtunm verður um helgina Hin árlega skemmtun skóla- barnanna hér á Akureyri verður haldin í Samkomuhúsinu á föstu- dags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld. Auk þess síðdegis á sunnudag. Börnin sjálf sjá um öll skemmtiatriði nú eins og áður. Slys í Tunnuverk- smiðjunni Fyru' helgina varð slys í Tunnu- verksmiðju ríkisins hér í bænum. Bjöm Magnússon, vei'kamaður, sem var að vinna í verksmiðj- unni, lenti með hægri handlegg í vélsög og slasaðist mikið. — Var liann fluttur í Sjúkrahúsið og rnun líðan. hans nú sæmileg eftir atvikum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.