Dagur - 17.03.1948, Side 4
4
D AGUR
Miðviltudaginn 17. marz 1948
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgrciðsla, auglýsingar, innheimta:
Marínó H. Pétursson
Skrifstofa í Hafnarslræri 87 — Sími 166
Blaðið keniur út á hverjum miðvikudegi
Argangurinn kostar kr. 25.00
Gjalddagi er 1. júli
Prenlverk Odds Björnssonar h.f. Akureyri
Tvær opinberar tilkynningar
Tvaer opinberar tilkynningar munu einkum
hafa vakið athygli manna út um land nú þessa
síðustu daga. Hin fyrri frá skömmtunaryfirvöld-
unum, þar sem landsfólkinu er tilkynnt, að
skömmtunarmiðar fyrir vefnaðarvörum, búsá-
höldum o. fl. varningi, sem gefnir voru út fyrir
fyrstu þrjá mánuði þessa árs, falli úr gildi nú um
mánaðamótin. Hin síðari, fréttin um að ályktun
kaupstaðaráðstefnunnar um nýtt skipulag inn-
flutningsmálanna hafi verið flutt inn á Alþingi
af átta þingmönnum. Er þar gert ráð fyrir því, að
lögin um Fjárhagsráð verði framkvæmd með þeim
hætti, að landsmönnum verði tryggður jafn að-
gangur að þeim varningi, sem til landsins flytst,
án tillits til þess hvort þeir eiga heima í Reykja-
vík eða annars staðar á landinu.
Þessi tilkynning skömmtunaryfirvaldanna hlýt-
ur að verða til þess að sannfæra landsmenn
um nauðsyn þess að gera gagngerða breytingu á
núverandi fyrirkomulagi. Skömmtunartímabilið
er senn á enda. Vitað er að fjölmörg heimili hér
um slóðir, og sjálfsagt víðast hvar annars staðar
á landinu, eiga vefnaðarvöru- og búsáhalda-
skömmtunarmiða sína svo til ósnerta af þeirri ein-
fwldu ástæðu, að nauðsynlegustu vefnaðarvörur
og búsáhöld hafa alls ekki fengizt í verzlunum úti
um land allt tímabilið. Það lítið, sem flutzt hefur
til landsins, hefur verið selt í Reykjavík. Með nú-
vei andi skipan innflutningsmálanna e*r það engan
veginn tryggt, að dreifing vörunnar um landið sé
jöfn og réttlát. Innflutningsleyfi til reykvískra
heildsala eru engum slíkum skilyrðum háð. Með-
an innflutningsmagnið er ekki í neinu samræmi
við þörfina og útgefna skömmtunarmiða, geta þeir
selt mestallan innflutnkig sinn í höfuðstaðnum og
verzlanir úti um landið og fólkið þar situr eftir
með skömmtunarmiða en engar vörur. Með þess-
um hætti er skömmtunarfyrirkomulagið orðið
helber skrípaleikur og tilkynningin um að vefnað-
vöru- og búsáhaldamiðarnir eigi nú að falla úr
gildi um land allt aðeins staðfesting stjórnarvald-
anna á því, að þau skorti skilning á þessu máli og
þéim sé ósýnt um að framkvæma gjaldeyrisút-
hlutun og innflutning á þann hátt, að jafnt tillit sé
tekið til allra landshluta. Má ekki við svo búið
standa lengur. Landsmenn verða að neyta réttar
síns og krefjast gagngerðra úrbóta.
Hin fyrsta alvarlega tilraun í þá átt var ráð-
stefnan, sem haldin var fyrir skemmstu fyrir for-
göngu bæjarstjórnarinnar hér. Langvinnar um-
ræður í blöðum og sár reynsla almennings hafði
undirbúið jarðveginn. Fullt samkomulag varð á
þessum fundi í milli fulltrúa kaupsta^anna, um
veigamiklar réttlætiskröfur. Það er eftirtektarvert,
að þær opinberu stofnanir, sem fengu tillögur
ráðstefnunnar til meðferðar, hliðruðu sér hjá því
að gefa skýr og ótvíræð tvör. Er það út af fyrir sig
ábending um það ,að ekki verði endurbæturnar
auðsóttar í hendur þeirra, og jafnframt áminning
um þau gömlu sannindi,að embættismenn vilja
ógjarnan sleppa því valdi, sem þeir hafa einu sinni
náð undir sig. En í þessu tilfelli mun það ekki
duga, að beita gamalkunnum málþófs- og svæf-
ingaraðferðum. Málið er komið úr höndum hinna
opinberu nefnda og inn á Alþingi. Öll þjóðin fylg-
ist af áhuga með því, hverja afgreiðslu það hlýtur
Dar. Það má fullvíst telja, að þeir
Dingmenn dreifbýlisins, sem
reyna að skjóta sér undan því að
fylgja þessu mikla réttlætismáli
fast eftir, muni eiga erfiða göngu
til kjördæma sinna fyrir höndum.
Það er ljóst af því, hver skil
sum höfuðstaðarblöðin gerðu
kaupstaðaráðstefnunni annars
vegar og kaupmannaráðstefnunni
þar hins vegar, hvert hugur æði
margra ráðamanna stefnir. Þeir
vilja viðhalda núverandi skipan
eins lengi og nokkur kostur er.
Það er auðskilið hagsmunamál
höfuðborgarinnar. Hins vegar má
valdhöfunum nú vera það full-
ljóst, að landsmenn annars staðar
ætla ekki að una því lengur að
héruð þeirra séu réttlaus skatt-
lörid höfuðstaðarins. Nái réttlæt-
iskrafa byggðanna ekki samþykki
núverandi Alþ., verða landsmenn
að velja sér fulltrúa næst til þess
fyrst og fremst að hrinda þessum
málum í höfn.
FOKDREIFAR
///tr/y'a
Dagleg fæða
Flest allar fæðutegundir eru langtum fábreyttari
að efnum en mjólk. Þess vegna þurfum vér á margs
konai matvælum að halda. „Maðurinn lifir ekki á
einu saman brauði,“ heldur ekki af kjöti eingöngu,
fitu eða sykri, heldur þarf fæðan að vera skynsam-
lega blönduð, svo að okkur verði gott af. Reynslan
sýnir svo að fullorðinn, starfandi maður þarf dag-
lega:
Eftir stóra áhlaupið.
ÞAÐ VAR mikið um að vera
hér í bænum fyrir nokkrum vik-
um, þegar bærinn réðist í það
stórvirki að ráða niðurlögum
hesthússins á Kaupvangstorgi.
Hin stóra brynvarða bifreið bæj-
arfélagsins — stórikrani — tók
sér stöðu á torginu og í viðurvist
margmennis, sem ekki hafði séð
svo nýtízkuleg vinnubrögð fyrri,
lét hann höggin dynja á hinu
aldna húsi, unz ekki stóð steinn
yfir steini. Hesthúsið, sem hafði
þvælst fyrir bæjarstjórninni í
mörg ár, varð að lúta í duftið á
skammri stundu. Þannig er það
líka til, að ákvarðanir bæjar-
stjórnarinnar séu framkvæmdar
með röggsemi og skjótum hætti,
varð mér hugsað þegar eg stillti
mér upp í hóp hinna mörgu
áhorfenda á torginu. En líklega
ér það rétt hjá prédikaranum, að
hið bogna geti ekki orðið beint,
og óvéfengjanlégur sá dómur
sögunnar, að framkvæmdavöld-
um bæjarins endist ekki kraft-
arnir á neinum lokaspretti. Eftir
að stórikrani hvarf af torginu, að
afloknu miklu dagsverki, hefir
verið hljótt á hesthúslóðinni.
Engin mannshönd hefir ennþá
hreyft þar við rústum og braki,
sem skilið var eftir að afloknu
stóra áhlaupinu. Hugmyndin um
rúmgott og þokkalegt bílatorg
þarna ennþá fjarlæg hilling, en
slappleikinn í framkvæmdum
bæjarins aftur daglegt augna-
gaman gesta og gangandi á hinni
fjölförnu leið um Kaupvangs-
torg.
Þriðji verkfræðingurinn?
MÉR HEFIR stundum flogið í
hug, hvort bæta þyrfti þriðja
verkfræðingnum við fram-
kvæmdastjórn bæjarins til þess
að fá lokið svo miklum fram-
kvæmdum sem niðurlagi hest-
hússins eða að fylla í holu í aðal-
götu, án þess að til þess þurfi
margra mánaða vangaveltur. Yf-
irleitt má það vera fullkomið
áhyggjuefni borgaranna, hversu
hörmulega gengur að fá kippt í
lag ýmsu smávægilegu, sem af-
laga fer í bænum. Dæmin eru
mörg. Það er gremjulegt að sjá
bílana ár eftir ár aka ofan í sömu
holurnar á aðalgötum bæjarins.
Ekki mundi kosta mikið átak t. d.
að fylla holurnar, sem eru á syðri
mótum Hafnarstrætis og Kaup-
vangstorgs. En þær eru búnar að
vera þarna síðan snemma i
fyrrasumar og fara síversnandi,
og sjálfsagt búnar að skemma
hjólbarða og bíla fyrir margfalt
hærri upphæð en kostar að fylla
þær og ganga frá þeim, svo að það
endist lengur en einn rigningar-
dag Og fjölmörg fleiri dæmi
mætti nefna, t. d. alla staurana,
sem standa úti á miðjum um-
fei'öarbrautum og umferðanefnd-
in, sællar minningar, lagði til að
fluttir yrðu úr stað fyrir einum
tveimur árum síðan. Hvað skyldi
annars vera búið að framkvæma
mikið af þeim smávægilegu en
nauðsynlegu lagfæringum, sem
þessi nefnd samþykkti að gera
þyrfti í hitteðfyrra? Væri gaman
ef einhver úr nefndinni tæki sig
til og teldi það saman. Það ætti
ekki að vera ýkjamikið verk, en
gæti varpað ljósi á viðbragðsflýti
framkvæmdastjórnar bæjarins.
Vantar botninn.
ÞAÐ ER raunalegt að þurfa að
vera að jagast um svona mál ár
eftir ár. Manni virðist að ekki
þurfi um það að deila, að ljúka
þurfi framkvæmdum, sem hafnar
eru, á sómasamlegum tíma, né
heldur að halda þurfi við aðal-
vegum og öðrum mannvirkjum
bæjarins svo að í sæmilegu lagi
geti kallast. En það er sorgleg
staðreynd, að það er ekki einu
sinni deilt um þetta, heldur
þumbast við, ekkert sagt og lítið
gert. Það er eins og botninn í öllu
framkvæmdakerfi' bæjarins sitji
suður í Borgarfirði.
Kröftugar skammir.
„VERKAMAÐURINN“ fræðir
okkur stundum á því, að vondir
menn byggi Bretland og Banda-
ríkin. Þegar þeir eru ekki að of-
sækja svertingja eða skjóta á
uppgjafahermenn (sbr. frásögn
síðasta Verkam.) eru þeir að
senda stjórnmálamönnum í öðr-
um löndum skeyti, sem hafa
hin örlagaríkustu áhrif, geta
jafnvel „breytt gangi mannkyns-
sögunnar“. Ljótu símskeytin það.
En samkvæmt upplýsingum þessa
grandvara kommúnistamálgagns,
„er auðsætt, að skammir þeirra
og ávítur (þ. e. brezkra og
bandarískra stjórnmálamanna)
hafa nægt til þess að brjóta þrek
hans (þ. e. Jans Masaryk) á bak
aftur,“ og þrengja þarinig að hon-
um, að hann tók það örþrifaráð
að fremja sjálfsmorð. Að öðru
leyti sér blað þetta ekki ástæðu
til að setja sjálfsmorð Masafyks í
samband við framferði kommún-
ista í Tékkóslóvakíu eða afskipti
erlends stórveldis af innan lands-
málefnum Tékka. Líklega geta
erlendir kommúnistar aldrei lát-
ið svo lygilega og vitlausa full-
yrðingu frá sér fara, að hún þyki
ekki hæíilegt lesefni í blaði, sem
dregur jafn skarplegar ályktanir
af framvindu mannkynssögunnar
og þarna er gert.
Vörubifreið,
60—100 gr. af eggjahvítuefnum.
500—600 gr. af kolvetni (mjöli og sykri).
50— 60 gr. af fitu, auk vatns, steinefna og bæti-
efna (vitamin).
Eggjahvítuefni. Aðalhlutverk þeirra er að
byggja upp og viðhalda vefum líkamans og ýmsum
líffærum. Þegar fóstur þroskast eða barn er að vaxa,
eru því eggjahvítuefnin mjög mikilvæg.
Þau eru í fæðu úr dýraríkinu: Mjólk ,eggjum,
fiski og kjöti aðallega. í fæðu úr jurtaríkinu: Baun-
um, ertum, mjöli og grjónum og ýmsum belgávöxt-
um. f soyabaunum er mikið af eggjahvítuefnum.
Fita gefur líkamanum þrótt og heldur líkamshit-
anum uppi (eldsneyti við bruna í líkamanum). —
Þau efni fáum við úr: Smjöri, mjólk, feitu kjöti,
fiski o. fl Líkaminn getur og fitnað af kolvetnum
(mjölvi og sykri), en þau eru gerð úr sömu frum-
efnum og fitan.
Sykur og mjölvi geta komið í stað feitmetis og
verið líkamanum til sömu nota.
Steinefni þarf líkaminn fyrir beinin og efnaskipt-
inguna. Kalksölt eru nauðsynleg beinum, tönnum
og taugakerfinu, járn er nauðsynlegt fyrir' normala
samsettningu blóðsins.
í osti og mjólk er mikið kalk. Járn er í: lifur,
eggjum, spínati, salati, baunum og grófu mjöli. —
Steinefni fáum vér og blönduð saman við margs
konar fæðuteg. Vatn fáum vér meirú og minna í
öllum mat.
★
KALÓRÍUR — HITAEININGAR.
Vísindamenn hafa fundið að matvælin framleiða
jafnmikinn hita, hvort sem þeim er brennt utan
líkamans, eða í honum, eftir að þeirra er neytt.
Hitinn, sem fram kemur er mældur með áhaldi er
nefnist á erlendu máli „Kalorimeter“ og einingarn-
ar eru „kaloriur" eða hitaeiningar.
1 hitaeining er það hitamagn, sem þarf til þess að
hita 1 lítra af vatni um 1 gráðu á Celcius.
Hver starfandi maður þarf um 3000 hitaemingar
daglega, ef vel á að vera.
Sá. sem liggur í rúmi, kemst af með 1800.
★
Matvæli, sem hafa mesta fitu að geyma, gefa
mestan hita.
1 gr. af fitu gefur 9.3 hitaeiningar. — 1 gr. af
eggjshvítuefni gefur 4.1 hitaeiningar.
★
SMÁB ARN A-LEIKFIMIN.
Smábarna-leikfimin, sem Fræðsludeild KEA hef-
ir hafið með börnum hér í bæ, hefir þegar náð
miklum vinsældum.
Alls sækja þessa tíma 78 börn á aldrinum 4, 5 og
6 ára.
★
Húsmæður, sem vilja vera með á fræðslukvöldum
deildarinnar geta gefið sig fram við Fræðsludeild
KEA (Hótel KEA).
★
Chevrolet 1934, með
um mótor, til sölu.
nyj-
Aðakteinn Ólafsson,
Melgerði, Saurbæjarhr,
Kalk notast ekki líkamanum nema D-vitamín séu
fyrir hendi. — D-vitamín eru því mjög mikilvæg
fyrir líkamann, en þau fáum við í eggjum, stnjöri,
iifur og lýsi.