Dagur - 07.04.1948, Blaðsíða 8
8
Miðvikudaginn 7. apríl 1948
Ferðafélag Akureyrar efnir fil 18
skemmtiferða um landið í sumar
Lengsta ferðin níu daga sumarleyfisferð
um Suðurland
Samvinnukonur á fiúsmæðrakvöldi
Tímarit Ferðafélags Akureyr-
ar, „Ferðir“, 9. árg., er nýlega
komið út og er þar birt ferða-
áætlun félagsins á sumri kom-
aridi.
AUs efnir félagið til 18
skemmtiferða um byggðir og
óbyggðir. Fyrsta ferðin verður
farin 25. þ. m. en sú síðasta 29.
ágúst.
Ferðaáætlunin.
Ferðirnar erú þessar: 25. apríl,
um nágrénni Akureyrár, verður
ekið að Kjarna og farið um
Kjarnakamb á Súlumýrarbrúnir
til Skíðastaða. Upplýsingar veitt-
ar um helztu örnefni í landi bæj-
arins. Önnur ferð verður farin
17. maí og er hringferð suður um
Eyjafjörð, um. Grund, Djúpadal,
flugvöllinn, Saurbæ, Munka-
þverá, Brúnalaug og Laugaland.
Þriðja ferðin er 30. maí og verður
farið um Kötlufjall og Þorvalds-
dal. Fjórða ferðin, 13. júní, um
Laufás, Grenivík og Vaglaskóg,
fimmta ferðin, 19. og 20. júní, til
Grímseyjar. Sjötta ferðin, 26.
júní, um Ásbyrgi, Dettifoss,
Grímsstaði og Mývatnssveit, sjö-
unda ferðin, 3. júlí, að Hólum í
Hjaltadal, áttunda ferðin, 10. og
11. júlí, til Mývatns.
Fimm daga öræfaferð.
Hinn 10. júlí hefst fimm daga
öræfaferð til Öskju og Herðu-
breiðar. Verður ekið til Mý-
vatnssveitar og suður hjá
Grænavatni, um S*ellönd, Suður-
árbotna, Ódáðahraun og Dyngju-
fjalladal og gengið um Trölla-
dyngjuskarð á Öskju. Síðan far-
ið um Herðubreiðarlindir heim.
Hinn 17. júlí hefst fimm daga
Austurlandsferð og verða merk-
ustu staðir Austurlands heim-
sóttir. Önnur fimm daga ferð
hefst 21. júlí, til Snæfellsness og
Dala. Tólfta ferðin hefst 24. júlí
um Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslur og 13. ferðin verður
þriggja daga ferð um Laugafell,
Jökuldal, Tungnafellsjökul og
Vonarskarð.
Sumarleyfisferð um Súðurland.
Fjórtándaferðin hefst 6. ágúst
og er níu daga orlofsferð um
Suðurland, um Reykholt, Þing-
velli, Hveragerði, Sámsstaði, Vík
í Mýrdal, Gunnarsholt, Heklu,
Skálholt, Laugarvatn, Geysi,
Kerlingafjöll og Hveravelli.
Fimmtánda ferðin er tveggja
daga ferð um Dalvík og Ólafs-
fjörð og 16. ferðin, 14. ágúst, um
Fnjóskadal. Hinn 21. ágúst verð-
ur farið að Laugai-felli og hinn
29. ágúst enda sumarferðirnar
með berjaferð.
Er ferðaáætlunin öll hin fjöl-
breytilegasta og margar
skemmtilégar ferðir ákveðnar
um byggðir og óbyggðir.
í þessu hefti „Ferða“ er, auk
ferðaáætlunarinnar, sagt frá för
félagsins í fyrra frá Akureyri um
Sprengisand, og frá hinum forna
Hólamannavegi, milli Eyjafjarðar
og Skagafjarðar.
Félagar í Ferðafélagi Akureyr-
ar geta vitjað þessa heftis
„Ferða“, og Árbókar Ferðafélags
íslands, til Björns Þórðarsonar
eða Þorst. Þorsteinssonar.
Skemmtikvöld
F ramsóknarmanna
n. k. laugardag
Framsóknarfélag Akureyrar
hefir skemmtikvöld að Hótel K.
E. A. laugardaginn 10. þ. m. og
hefst kl. 9 síðdegis. Til skemmt-
unar verður: : Framsóknarvist,
kvikmynd, erindi og dans. Hauk-
ur og Kalli spila. Félagsmenn,
fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Hljómleikar Skagfields
í næstu viku
Vegna fyrirspurna um komu
hans hingað, hefir blaðið fengið
þær upplýsingar hjá formanni
Tónlistarfélagsins, að hans sé
ekki von hingað fyrr en í þyrjun
næstu viku, ef veður leyfir. Mun
Fritz Weisshappel verða honum
til aðstoðai'.
Fræðsludeild KEA gengst um þessar mundir fyrir ýmis konar fræðslustarfsemi fyrir húsmæður á
félagssvæðinu. Enn sem komið er hefir þessi starfsémi aðallega verið hér á Akureyri, en með vor-
inu mun deildin efna til svipaðrar starfsemi úti í deildunum eftir því sem við verður komið. —
Myndin er frá einu fræðslukvöldi deildarinnar fyrir skemnistu. Er hún tekin í Nýlenduvörudeild
félagsins, þar sem fór fram sýnikennsla í meðferð ýmis konar matvæla, einkum niðursoðimia. Hafa
þessi fræðslukvöld verið vinsæl og íjölsótt.
Hafíshroði á breiðu svæði úti fyrir Norðurlandi
Kolabirgðir víðast hvar nægilegar - korn- og
fóðurvörubirgðir af skornum skammti
í höfnum norðanlands og vestan
S. 1. mánudag urðu bátar á leið frá ísafirði til Dýrafjarðar varir við
hafíshroða úti fyrir Vestfjörðum og töldu landfasta ísspöng við
Galtarvita við Súgandafjörð. Um svipað leyti bárust fregnir frá
Horni um ísrek þar undan landi og síðdegis á mánudag komu fregn-
ir um almikið ísrek við Grímsey. Var af þessum fregnum ljóst, að
allmikill hafíshroði er á reki á breiðu svæði undan Vestfjörðiun og
Norðurlandi. Hefur norðaustan garðuriiui. sem- gengið hefur yfir
síðan um mánaðarmót fært ísinn að landinu.
Hinsvegar er ennþá óljóst,
hversu mikið ísmagn er og hvort
aðalísspöngin er langt eða
skammt undan, þar sem dimm-
Útsvörín hækkuð um 275 þús. kr,
Kommúnistar vildu 400 þús. kr. gjaldahækkun
Síðari umræða um fjárhags-
áætlun bæjarins fór fram á bæj-
arstjórnarfundi í gær.
Meirihluti bæjarráðs hafði lagt
til. að gerðar- yrðu nokkrar út-
gjaldahækkanir.'Nema þær sam-
tals 275 þús. kr. og var útsvars-
áætlunin hækkuð til samræmis
við þessar tillögur. Verða útsvör-
in þá samtals 4.629.000 kr., og er
það 146.000 kr. hækkun frá því í
fyrra.
Hækkanir bæjarráð,s.
Hækkunartillögur meirihluta
bæjarráðs, er samþykktai' voru,
eru þessar: Til Rauðakross Ak-
ureyrar 20.000 kr. gegn því skil-
yrði að Rauðikrossinn hafi í
þjónustu sinni eina fastráðna
hjúkrunarkonu er hafi á hendi
hjúkrun og aðstoð í heimahúsum.
Til sunnudagaskóla og æskulýðs-
starfsemi þjóðkirkjunnar kr.
5000.00. Framlag til dráttarbraut-
ar á Oddeyrartanga kr. 150.000,
vaxtalaust lán til hafnarinnar. —
Framlag til vega hækkað um
100.000 kr.
Hækkunartillögur kommúnista.
Kommúnistar fluttu að venju
allmargar sýndartillögur til
hækkunar. Námu þær rösklega
400 þús kr. og vildu þeir hækka
útsvörin um hluta af því, en aðra
tekjuliði, þ. á. m. áætlaðan stríðs-
gróðaskatt til bæjarins um af-
ganginn. Þessar tekjuáætlanir
kommúnista fá ekki staðist, t. d.
ekki stríðsgróðaskattsaukningin,
og hefði því orðið að hækka út-
svörin um rösklega 400 þús. kr.,
ef að ráðum þeirra hefði verið
farið.
Fleiri brezkir skíða-
menn væntanlegir
Hér var fyrir páskana brezkur
skíðamaðui' á vegum British Ski
Club. Mun honum hafa líkað
vistin allvel, því að nú hafa fleiri
brezkir skíðamenn boðað komu
sína. Munu tveir væntanlegir um
næstu helgi og nokkrir til viðbót-
ar munu hafa boðað komu sína
um 20. þ. m.
viðri hafa hamlað því að hægt
væri að fljúga til athugana, og
skip, sem leið haía.átt undan
ströndinni, haf lítið séð fyrir snjó-
muggu.
Vegna óveðursins hefur lítið
verið um skipaferðir. Þó er þetta
vitað: S.l. mánudag réri bátur úr
Önundarfirði og gat hann lagt
línu sína hindrunarlaust á miðum
út af firðinum. Sá aðeins fáa jaka
á reki. „Goðafoss" hýi, sem kom
til ísafjarðar í gærmorgun, varð
ekki var við neitt ísrek. ísrek
það, sem landfast varð við Gríms-
ey s. 1. mánudag, losnaði í gær og
sáust aðeins fáir jakar á reki með
fram eynni, en dimmviðri varn-
aði útsýni til hafsins. Isreks varð
vart undan Ströndum á fleiri en
einum stað.
Birgðamálin.
Þótt fregnir þessar séu af
skornum skammti og of snemmt
að ráða af þeim nokkuð ákveðið
um hafíshættu á þessu vori, er
samt ljóst, að ís muni hafa nálg-
ast landið og verði áframhald á
norðlægri átt, er ekki að ósekju
að menn óttist að hafís kunni að
verða landfastur. Er þá éðlilegt
að spurt sé: Hersu eru Norðlend-
ingar og Vestfirðingar viðbúnir
þeim válegu tíðindum? Ekki er
imnt að svara þeirri spurningu
svo að tæmandi sé, en benda má
á eftirfarandi: Samkvæmt upp-
lýsingum sem blaðið hefur afláð
sér bæði hér og frá Vestfjörðurri,
munu kolabirgðir vera nægilegar
í flestum höfnum. T. d. munu
nægileg kol til hér á Akureyri, á
ísafirði og fleiri vestfirzkum
höfnum. Aftur á móti munu
birgðir af kornrriat og fóðurvör-
um vera litlar. Samkvæmt upp-
lýsingum frá KEA, á félagið
verulegt magn af þessum vörum
í Reykjafossi, sem nú liggur í
Reykjavík, er nýlega kominn
þangað frá Ameríku. Eru. þessat'
vörur skráðar beint hingað með
skipinu, og ekki umhlaðnai' í
Reykjavík. Er þess að vænta, að
skip þetta verði sept hið bráð-
asta norður.
Goðafoss nýi, sem nú er á leið
kringum landið, flytur aðallega
sement og tilbúinn áburð.
Ymsar vörur ganga nú mjög til
þurrðar í verzlunum. Sú stað-
reynd, ásamt hafísfregnunum,
hlýtur að verða til þess að sann-
færa menn betur en áður um
nauðsyn gagngerðra breytinga á
innflutnings- og siglingafyrir-
komulaginu til landsins. Ef svo
váleg tíðindi gerazt, að hafís
léggst að landinu, þá er einokun
Reykjavíkur á siglingum og inn-
flutningaverzlun ekki aðeins orð-
in til fjárhagslegra þyngsla fyrir
Norðurland, heldur en hún bein-
línis stórhættuleg fyrir alla af-
komu fólksins. Þessi viðvörun —
og vonandi verður það aðeins
viðvörun — ætti því að þjappa
Norðlendingum fastar saman um
þá kröfu, að framkvæmd tiUagna
kaupstaðaráðstefnunnar og yfir-
lýsts vilja Alþingis, í innflutn-
ings- og siglingamálum, verði
tafarlaust hafin.
Ársþing Í.B.A.
hefst í kvöld
Ársþing íþróttabandalags Ak-
ureyrar hefst í íþróttahúsinu í
kvöld kl. 8.30 e. h. Framhald
þingsins verður síðan eftir hálfa
aðra viku og er búizt við að því
^ véi'ði lökið urri - aðra- helgi. Sex
íþróttafélög bæjarins sækja þetta
þing; Fúlltrúar eru yfir 30 talsins.